Morgunblaðið - 11.01.1992, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
Skólastjór-
ar mótmæla
niðurskurði
FUNDUR í Skólastjórafélagi
Rcykjavíkur átelur harðlega
niðurskurð á kennslustunduni
nemenda grunnskólans, sem
boðaður hefur verið í nýsam-
þykktum fjárlögum Alþingis.
Fundurinn bendir á að þessi
aðgerð kemur fyrst og fremst
niður á nemendum auk þess
sem skólunum eru skapaðir
ómældir erfiðleikar.
í frétt af fundinum, sem hald-
inn var í Hagaskóla fimmtudag-
inn, 9. janúar segir ennfremur:
„Það er krafa fundarins og hlýt-
ur að vera krafa foreldra að lág-
marksstundaljöldi sé bundinn
lögum en verði ekki reglugerð-
arákvæði sem hægt sé að breyta
með litlum fyrirvara. Þetta er
nauðsynlegt fyrir grunnskólann,
sem ætlað er það stóra hlutverk
að sjá urn grunnmenntun þjóðar-
innar. Á síðasta ári náðist eftir
mikla baráttu að festa þetta lág-
mark í lögum. Nú er fyrirhugað
að nema það burt um tíma. Með
því er skapað fordæmi fyrir
hvaða ríkisstjórn sem er að
ógilda þetta grundvallarákvæði
um lögbundinn lágmarksstunda-
ijölda."
Þá segir í ályktun skólastjór-
anna: „fjölgun nemenda í bekkj-
ardeildum upp í 30 er ömurleg
tilhugsun. Fjölgunin hefur tvö-
falt vægi til tjóns þar sem hún
á að koma á sama tíma og
kennslustundum er fækkað.
Flutningur nemenda milli
hverfa, sem látið er í veðri vaka,
er fráleitur.
Með þessum aðgerðum, sem
boðaðar hafa verið er horfið ára-
tugi aftur á bak í skólastarfi á
Islandi. Slíkt hlýtur að veikja
stöðu okkar í samkeppni þjóð-
anna.“
- Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Norska loðnuskipið Eros að selja nótina í land til viðgerðar.
Neskaupstaður:
Norsku loðnuskip-
in skapa vinnu
Neskaupstað.
FYRSTA norska loðnuskipið sem
hér leitar hafnar á þessari vertíð
kom hér miðvikudaginn 8. janúar
til þess að fá gert við nót og Iand-
aði um leið um 800 tonnum af
loðnu.
Töluvert hefur verið um á þeim
loðnuvertíðum sem Norðmenn hafa
stundað veiðar hér við land að þeir
leiti inn á Austfirðina þar sem þeir
hafa legið og unnið við frystingu
ioðnunnar um borð í skipunum og
eins til að sækja sér ýmiss konar
þjónustu. Ekki eru því veiðar þeirra
hér eingöngu af því illa því að þessi
litlu pláss munar um þá verslun og
vinnu sem skapast við komu þeirra.
— Agúst
Skora á ríki og borg að bjarga Iðnó
EINS og fram kom í Morgunblaðinu í gær hafa 68 listamenn
undirritað áskorun til ríkis og borgar, þar sem varað er við að
„vagga íslenzkrar leikhússmenningar, Iðnó“ sé að drabbast niður
og skorað er á ríki og borg að koma í veg fyrir það. Ákorunin
ásamt undirskriftum er svohljóðandi:
„Við undirrituð leyfum okkur að
vekja athygli ráðamanna ríkis og
Reykjavíkurborgar á að hin fagra
vagga íslenskrar leikhúsmenning-
ar, gamla Iðnó við Reykjavíkurt-
jörn, er að drabbast niður öllum
góðum mönnum til sárrar raunar
og menningu þjóðarinnar til mesta
álitshnekkis. Á undanförnum
mánuðum hafa Alþingi og Reykja-
víkurborg varið stórfé til ýmiss
konar framkvæmda á svæðinu milli
Tjarnarinnar og Kirkjustrætis,
meðal annars hefur allur norður-
bakki Tjarnarinnar verið endur-
gerður frá grunni og göngubrú lögð
frá Ráðhúsinu að Iðnó. Á sama
tíma hefur húsinu sem er höfuð-
prýði Tjarnarbakkans verið sýnd
slíkt umhirðuleysi að óskiljanlegt
er. Það er misþynning á metnaði
þjóðarinnar og getur ekki verið
ætlun valdhafa að þegar menn
stíga á land við austursporð Ráð-
húsbrúar mæti þeim eitt elsta og
helgasta menningarsetur landsins
í örmustu niðurníðslu eins og háðs-
merki aftan við öll herlegheitin.
Þess vegna skorum við á borg og
ríki að bregða skjótt við, bjarga
Iðnó frá frekari niðurlægingu og
gera það þannig úr garði að það
verði í framtíðinni bæjarprýði og
bústaður lifandi menningar í mið-
bænum eins og það hefur verið í
nærfellt heila öld.“
Þeir sem rita nöfn sín undir
áskorunina eru eftirtaldir: Anna
Sigríður Einarsdóttir leikari, Art-
húr Björgvin Bollason rithöfundur,
Atli Heimir Sveinsson tónskáld,
Auður Bjarnadóttir listdansari,
Ásta Ólafsdóttir myndlistarmaður,
Bríet Héðinsdóttir leikstjóri, Brynja
Benediktsdóttir leikstjóri, Edda
Heiðrún Backman, Einar Bragi
skáld, Einar Jóhannesson klarinett-
uleikari, Eyvindur Erlendsson leik-
stjóri, Elísabet Jökulsdóttir skáld,
Erlingur Gíslason leikari, Flosi Ól-
afsson Ieikari, Gísli Halldórsson
leikari, Guðmundur Jónsson söngv-
ari, Guðný Guðmundsdóttir kon-
sertmeistari, Guðrún Ásmunds-
dóttir leikari, Guðrún Gísladóttir
leikari, Gunnar Eyjólfsson leikari,
Gunnar Kvaran sellóleikari, Gunn-
ar Örn Gunnarsson myndlistarmað-
ur, Gyrðir Elíasson skáld, Harald
G. Haraldsson leikari, Hákon Leifs-
son hljómsveitarstjóri, Helgi Hálf-
danarson þýðandi, Hjálmar H.
Ragnarsson tónskáld, Inga Bjarna-
son leikstjóri, Kristján Árnason
skáld, Kristín Jóhannesdóttir kvik-
myndaleikstjóri, Kristján Davíðs-
son myndlistarmaður, Kristján
Karlsson skáld, Laufey Sigurð-
ardóttir fiðluleikari, Leifur Þórar-
insson tónskáld, Margrét Ákadóttir
leikari, Margrét ólafsdóttir leikari,
María Gísladóttir listdansari,
Matthías Viðar Sæmundsson rit-
höfundur, Nanna Ólafsdóttir dans-
skáld, Nína Björk Árnadóttir skáld,
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari, Rut
Magnússon söngvari, Rögnvaldur
Siguijónsson píanóleikari, Sigfús
Daðason skáld, Sigríður Hagalín
leikari, Sigrún Edda Björndsóttir
leikari, Sigurður A. Magnússon rit-
höfundur, Sigurður Pálsson skáld,
Sigurjón Jóhannsson leikmynda-
hönnuður, Siguijóna Sverrisdóttir
leikari, Sólveig Eggertsdóttir
myndlistarmaður, Steindór Hjör-
leifsson leikari, Sveinn Einarsson
leikstjóri, Valgarður Egilsson leik-
ritaskáld, Vilborg Dagbjarstdóttir
skáld, Þorgeir Þorgeirsson rithöf-
undur, Þorkell Sigurbjörnsson tón-
skáld, Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari, Þorsteinn Gylfason
rithöfundur, Þorsteinn frá Hamri
skáld, Þorsteinn Hannesson söngv-
ari, Þorsteinn Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður, Þorsteinn Þorsteins-
son þýðandi, Þráinn Bertelsson
kvikmyndaframleiðandi.
Krossgötur austursins:
Landið frjálsa - Thailand
Blómaskrúð við eina af þremur sundlaugum Ambassador City-hótels-
ins, sem verður aðalaðsetur í ferð Heimsklúbbsins.
eftir Ingólf
Guðbrandsson
Fá lönd í heiminum eru annað
eins ævintýri heim að sækja og sjá
og Thailand. Gróska lands og litir,
mýktin í hreyfingum fólksins, hátim-
bruð, gullin musteri með sín svifiéttu
form, listhneigð fólksins og lífsstíll
er svo langt utan hversdagstilveru
hins vestræna gests að hann veit
varla, hvort hann má trúa augum
sínum og eyrum, en skynjar reynslu
sína'á mörkum draums og veruleika.
Svo örlátir voru guðirnir að gæða
Thailand einstökum töfrum að land-
ið kemur sífellt á óvart í margbreyti-
leika sínum.
Thailand er komið í tölu eftirsótt-
ustu ferðaslóða í heiminum og lang-
mesta ferðamannaland Asíu. Gest-
imir koma úr öllum áttum, en mest
frá Evrópu, Japan og Ástralíu. Vel-
megunarþjóðirnar vita að þær njóta
aðstöðu og þjónustu, sem stenst
samanburð við það besta í heiminum
fyrir miklu lægra verð en þeir búa
við heima fyrir eða þekkja annars
staðar á ferðum sínum. Þannig verð-
ur Thailandsferðin ódýr, þótt lengra
sé að farið.
Saga Thailands og menning er
heillandi heimur, sem fáir íslending-
ar þekkja til þessa. Til þess að kynn-
ast henni þarf fólk að stefna annað
en til Pattaya. Frá elstu höfuðborg-
inni, Sukhothai (Dögun hamingjunn-
ar), breiddist út hinn sérstæði stíll
thailenskrar listar í myndlist, högg-
myndum, húsagerð og bókmenntunj,
auk hins sérstaka thai-stafrófs og
þeirri grein Búddismans, sem kennd
er við Theravaida. Það var á þeirri
tíð sem íslendingar skráðu sögur
sinar og norræna goðafræði á skinn.
Um miðja 14. öld tók veldi Ayuttha-
ya við og var höfuðborg í meira en
400 ár. Til markst um stærð hennar
og glæsibrag má telja hinar 2.000
gylltu turnspírur musteranna, sem
gnæfðu við himin í borg sem taldi
yfir milljón manns og bar af London
og París þess tíma, í lok 17. aldar,
en stríðandi herir Burma lögðu hana
í rúst árið 1767. Árið 1782 komst
Chakri konungsættin til valda og
gerði lítið árþorp við Chao Praya-
fljótið, sem Bangkok nefndist, að
höfuðborg sinni, og er enn, með
meira en sex milljón íbúa.
Öldum saman gekk þetta land á
krossgötum þjóðanna í Suðaustur-
Asíu undir nafninu Síam, en er nú
kennt við aðalstofn þjóðarinnar, hina
svonefndu Thai, sem þýðir hinir
fijálsu, og munu hafa komið suður
frá Kína undir austurhlíðum Himala-
ya á fyrstu öld tímatals okkar. Þeir
hafa staðið vörð dyggilega um þjóð-
erni nágrannaþjóða. En þúsundum
ára fyrr blómstraði menning í Thai-
landi, eins og ljóst er af hinum merka
fornleifafundi í Ban Chiang árið
1966, þar sem 5.600 ára gamlir
skartgripir, hljóðfæri og áhöld úr
bronsi voru dregin fram í dagsljósið
fyrir einskæra tilviljun, til staðfest-
ingar á elstu bronsmenningu heims-
ins.
Thailand er eina ríkið í Suðaustur-
Asíu, sem aldrei varð evrópsk ný-
lenda. Það er fimm sinnum stærra
en ísland að flatarmáli og íbúarnir
nærri sextíu milljónir, brosmilt og
fallegt fólk með sterka þjóðernistil-
finningu og stolt bakvið auðmjúkt
viðmót sitt og umburðarlynt fas.
Thailendingar eru orðlagðir fyrir
gestrisni sína og glaðværð. Þrátt
fyrir misskipt kjör, sýnist þetta bros-
milda fólk alltaf vera í sólsskins-
skapi, enda býr það við marga gleði-
gjafa lífsins í undurfögru landi við
sífellt sumar, þótt árstíðir séu þijár,
þurrt og tiltölulega svalt frá október
til mars, þegar hiti er að jafnaði um
25 gráður. Þá taka við sumarhitar
fram í júní og síðan regntími
monsúnvindanna fram í september.
Thailendingar nota hvert tækifæri
til að gera sér glaðan dag, og hvers
konar litríkar hátíðir setja sterkan
svip á þjóðlífið. Matargerðarlist er á
háu plani, en verðlag á matvælum,
fatnaði og listmunum, batik og silki
ótrúlega lágt.
Fjölbreytni gróðursins í Thailandi
er með ólíkindum, skógar af kjör-
viði, flestir ávextir heimsins, þ. á
m. um 30 bananategundir, blóm-
skrúð, sem vart á sinn líka, t.d. um
1.000 tegundir orkidea. Einnig er
dýralífið fjölbreytt, og fíllinn er enn
húsdýr, til reiðar, dráttar og
skemmtunar, því hægt er að temja
hann til að leika hvers konar ótrúleg-
ar listir. Fátt er ævintýralegra en
að halda inn í frumskóginn á vit
hins óþekkta á fílsbaki. Hinir rólynd-
ari gestir flatmaga í sólinni við sund-
laugar eða á pálmaskrýddum bað-
ströndum eða taka þátt í annarri
veislu augans og margháttaðri
skemmtun, hver eftir geðþótta sín-
um.
Markmið Heimsklúbbins er að
kynna fólki það besta, sem heimur-
inn hefur að bjóða á ferðalögum.
Thailand er næst á dagskrá í menn-
ingar- og hvíldarferð á fegursta tíma
ársins í febrúar, þegar blómahátíð
er í Chiang Mai í Norður-Thailandi,
sem þykir einn fegursti staður lands-
ins. Mest af tímanum verður dvalist
í nýja lúxusbaðstaðnum Ambassador
City í Jomtien, sem er á strönd
Síamsflóans sunnan við Pattaya og
um tveggja stunda akstur frá Bang-
kok. í Thailandi eru 50 þjóðgarðar,
einn hinn fegursti er Nong Nooch,
skammt frá gististaðnum. Einnig
verður höfuðborgin Bangkok heim-
sótt, boðið upp á ferð til Chiang
Mai, siglingu um Síamsflóann, og
fleira.
Ingólfur Guðbrandsson
„Frá elstu höfuðborg--
inni, Sukhothai (Dögun
hamingjunnar), breidd-
ist út hinn sérstæði stíll
thailenskrar listar í
myndlist, höggmyndum,
húsagerð og bókmennt-
um, auk hins sérstaka
thai-stafrófs og þeirri
grein Búddismans, sem
kennd er við Thera-
valda.“
Heimsklúbbur Ingólfs mun kynna
Thailand með erindi og myndasýn-
ingu í Ársal Hótel Sögu á sunnudag-
inn, 12. janúr kl. 16.00. Aðgangur
er ókeypis en kaffiveitingar seldar.
Litprentuð áætlun um ferð Heims-
klúbbins liggur frami og pantanir í
nokkur óseld sæti skráðar að kynn-
ingu lokinni.
Höfundur er ferðamáUifrömuöur.
!
»
I
í
*
»
>
i
\