Morgunblaðið - 11.01.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
LITLI
TÓNLISTARSKÓLINN
Einkakennsla
Síðustu innritunardagar á vorönn standa yfir til
1 8. janúar í síma 4361 1.
Boðið er upp á kennslu á skemmturum.
Einnig gítar, bassa og tölvu (atari).
Kennsla hefst 20. janúar. __
Skolast|ori.
AÐALFUNDUR
ÍSFIRÐINGA-
FÉLAGSINS
verður haldinn þriðjudagskvöldið
14. janúar nk., kl. 20.30
að Háteigi, á Hótel Holiday Inn.
Venjuleg aðalfundastörf.
Kaffiveitingar.
STJORNIN
Svissneskur
hótel- og ferðamálaskóli
33 ára reynsla - 1 eða 2ja ára námskeið á ensku
Hótelrekstrarnámskeið sem lýkur meö prófskírteini
- Almennur rekstur og stjórnun
, - Þjálfun í framkvæmdastjórn
HCIMA réttindi. Námið fæst viðurkennt i bandariskum og
! evrópskumháskólum.
Ferðamálafræði lýkur með prófskírteini
- Ferðaskrifstofunámskeið viðurkennt af IATA/UFTAA
- Þjálfun í framkvæmdastjórn
Skrifið til:
HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL,
1854 D Leysin, Switzerland.
Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821.
HDSTB
SÓLARKAFFI
ÍSFIRÐINGA-
FÉLAGSINS
ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sínu
árlega SÓLARKAFFI föstudagskvöldið
17. JANÚAR nk., að HÓTEL ÍSLANDI.
Húsið opnar kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst
hefðbundin og vönduð dagskrá með kaffi og
rjómapönnukökum. Hljómsveit hússins leik-
ur fyrir dansi þar til kl. 3 eftir miðnætti.
AÐGANGSEYRIR kr. 1.800.-
Forsala aðgöngumiða fer fram í anddyri
Hótel íslands laugard. 11. janúar kl. 13—16.
Borð verða tekin frá á sama stað og tíma.
Miðapantanir auk þess í síma 91-687111 dag-
ana 11.—17. janúar milli kl. 13—18.
Greiðslukortaþjónusta.
STJÓRNIN
m
Metsölublaó á hverjum degi!
fclk f
fréttum
SÚRMATUR
Þorrinn
nálgast
Kokkamir Viðar Jónsson og
Halldór Ásgeirsson á Múla-
kaffí hampa stoltir súrmetinu,
sem bíður svangra landsmanna
þegar þorrinn gengur í garð. „Við
byrjum að leggja niður í septemb-
er og október. Þetta er alvöru
þorramatur, sem lagður er í
mysu,“ segir Jóhannes Stefánsson
veitingamaður. Nú mun það vera
þrítugasta áríð í röð sem Múla-
kaffi býður upp á þorramat, og
kveðst Jóhannes merkja breyferlígu
til batnaðar í neysluvenjum land-
ans. „Unga kynslóðin í dag er
hrifnari af þessu en áður var, en
þess ber að geta að af um tuttugu
tegundum þorramatar er minni-
hlutinn súmieti, og allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi í bökk-
unum.“ Jóhannes kveðst halda
hefðina í heiðri, og sitja á sér til
bóndadags 24. janúar, er þorri
byijar samkæmt fornu tímatali.
„Það eru allt of margir sem eru
farnir að byija þetta viku eða jafn-
vel tveim vikum fyrr, en við viljum
hafa þetta rétt, og okkar við-
skiptavinir kunna að meta það.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
COSPER
Pabbi þinn er líftryggður, þess vegna má hann fara í sjóinn.
ÚTNEFNING
Hvergerð-
ingur árs-
ins valinn
Nú um áramótin var í fyrsta sinn
kjörinn „Hvergerðingur árs-
ins“. Til þessa heiðurs voru fjórir
aðilar tilnefndir; en það eru Bragi
Einarsson forstjóri Eden, Hafsteinn
Kristinsson forstjóri Kjörís, Ingi-
björg Sigmundsdóttir garðyrkju-
bóndi og Pálína Snorradóttir yfir-
kennari við Grunnskóla Hveragerð-
is.
Dómnefnd var skipuð 8 mönnum,
sem voru fulltrúar frá jafnmörgum
stofnunum í bænum. Formaður
dómnefndar var Eiríkur Ragnars-
son forstjóri Heilsuhælis NLFÍ.
Dómnefnd útnefndi Braga Ein-
arsson í Eden „Hvergerðing ársins"
og. sagði í dómsorði nefndarinnar
að Bragi hefði unnið til þessarar
vegsemdar með mörgum hætti.
Hann hefur um árabil unnið að at-
vinnuuppbyggingu í bæjarfélaginu
og á sl. sumri veitti hann 55 manns
atvinnu. Hann hefur unnið að
menningarmálum, m.a. lánað sýn-
ingaraðstöðu í Eden endurgjalds-
laust fyrir listsýningar áratugum
saman. Á sl. sumari kom Bragi
sveitungum sínum og öðrum
skemmtilega á óvart er hann tók
þátt í samsýningu listamanna í
Hveragerði og sýndi andlitsmyndir
af mörgum þekktum íslendingum
sem hann gerði með blýanti og krít.
Á síðu^tu árum hefur Bragi kom-
ið fram á ritvöllinn og skrifað flölda
gi’eina í blað sjálfstæðimanna í
Hveragerði.
Var Braga afhentur fallegur far-
andbikar sem hann skal varðveita
þetta herrans ár 1992.
- Sigrún