Morgunblaðið - 11.01.1992, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
HANDKNATTLEIKUR
Bar skylda til að
taka þátt í þessu
- sagði Kristján Arason, sem hefur gefið kost á sér í landsliðið fyrir B-keppnina
KRISTJÁN Arason ákvað í gær
að gefa kost á sér í íslenska
landsliðið og ieika með því í
B-keppninni í Austurríki í
mars. „Handboitinn hefur gert
mikið fyrir mig og mér fannst
mér bera skylda til þess að
taka þátt í þessu verkefni, eft-
ir mikla pressu frá landsliðs-
þjálfaranum," sagði Kristján í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Kristján Arason gaf Þorbergi Aðalsteinssyni svar í gær — hann svaraði
kalli þjálfarans og verður með landsliðinu í B-keppninni í mars.
Kristján fer með landsliðinu í
æfingamótið í Austurríki 22.
til 26. janúar og verður með í öllum
undirbúningi liðsins fram að B-
keppni og í hópnum í keppninni
sjálfri. „Eg vildi koma strax inní
undirbúninginn hjá landsliðinú. Ég
tel mig ekki vera í toppæfingu
núna, enda hefur mikill tími farið
í að þjálfa FH. Það er annað að
leika sjö leiki eins og í B-keppn-
inni, en að leika einn og einn leik
með FH. Landsliðsdæmið leggst
ágætlega í mig, annars hefði ég
ekki gefið kost á mér. Það er vissu-
lega stór þröskuldur að komast í
gegnum B-keppnina, en ætti að
vera hægt,“ sagði Kristján.
Hann sagði að íslenska liðið, eins
og það er í dag, væri ekki eins
sterkt og það var 1988 - 1990. „í
liðinu 88 - 90 voru leikmenn á
besta aldri, 27 til 28 ára, og með
mikla leikreynslu og samæfíngu.
Það eru margir framtíðarleikmenn
í liðinu núna og einnig ieikmenn
sem ég hef spiiað mikið með. ís-
lenska landsliðið á eftir að ná langt
í framtíðinni, sérstaklega vegna
þess að „Austurblokkin" er ekki
eins sterk og áður.“
Kristján sagðist hafa mætt mikl-
um velvilja hjá FH og vinnuveit-
anda sínum, VÍB. Það hefði gert
honum kleift að taka þátt í þessu
verkefni iandsliðsins og væri hann
mjög þakklátur fyrir það. Guð-
mundur Karlsson hefur yfirumsjón
með þjálfun FH meðan Kristján er
í undirbúningi landsliðsins.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, var mjög ánægðúr með
að geta notið krafta Kristjáns í
B-keppninni. „Það er engum biöð-
um um það að fletta að Kristján
styrkir liðið mjög mikið. Ég er
mjög ánægður með að fá hann inní
liðið núna,“ sagði Þorbergur.
Landsliðsþjálfarinn sagði að enn
væri það inni myndinni að fá Einar
Þorvarðarson, markvörð, til að
koma inní hópinn. „Aðrir eru ekki
inní myndinni," sagði hann og átti
þá við Alfreð Gíslason og Sigurð
Gunnarsson.
Petr Baumruk
Baumruk
semur við
Hauka
til 1995
Tékkneski landsliðsmaðurinn Petr
Baumruk, sem leikið hefur með
1. deildarliði Hauka í Hafnarfírði frá
því sumarið 1990, hefur gert nýjan
þriggja ára samning við félagið —
til vors 1995.
Samhliða því að leika með meist-
araflokki þrjú næstu keppnistímabil
mun Baumruk sjá um þjálfun nokk-
urra yngri flokka Hauka eins og,
hann hefur gert hingað til.
Baumruk, sem er 29 ára, hefur
tekið þátt í undirbúningi tékkneska
landsliðsins fyrir ólympíuleikana í
Barcelona í sumar og væntir þess
að vera með í endanlegum leikhópi.
PH\UPS
blásari
sanvo
vasadisko.
PH\UPS
Ka«Wé\-
SÚPÉSvÉcvúT^O,'
útvarp 09 |É
mTERCOUtt C 900.'
terbaútvarp.
If I KR.STGR.
KaeliskaP^I:—~
brby!9Í!5Í2—
SUPEBTECH
JO
KR.STGR
SANYO 21
tommumasion-|
PHH-CO
þvottavel.
bí\taek\.
PHU.\PS rai-
magnsrakve\.
PH»UPS 21
tornmti
Utasjónvarp-
StJpÍRTECN J O,900'*
geislaspila'1- ii
Heitnlle®'0 w
i
i
í
i
i
í
i
i
€
i
«
k