Morgunblaðið - 11.01.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRLAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
47
KORFUKNATTLEIKUR / ISLAIMDSMOTIÐ
Mikil barátta
- í Borgarnesi þarsem Skallagrímurvann Snæfell 82:73 í
botnslagnum. Keflvíkingarsigruðu Þórsara á Akureyri
ThódórKr.
Þórðarson
sKrifarúr
Borgamesi
Anton
Benjamínsson
skrifar
hém
FOLK
■ ÓVÍST er hvort Guðni Bergs-
son verður með Tottenham gegn
Chelsea í ensku 1. deildinni, en
RUV sýnir leikinn beint.
■ STEVE Sed-
FráBob glei> sem tók mið-
Hennessy varðarstöðu Guðna
ÍEnglandi á dögunum er hann
meiddist verður altj-
ent í byijunarliðinu í dag, en það
er spurning hvort Guðni verður
hægri bakvörður. Hann kom inn í
þá stöðu sem varamaður í leiknum
gegn Norwich í deildarbikarkeppn-
inni á miðvikudaginn í stað Terry
Fenwicks.
■ GARY Lineker tognaði á nára
er hann gerði 23. mark sitt fyrir
Tottenham í vetur, gegn Norwich,
í vikunni — og verður að öllum lík-
indum ekki með gegn Norwich í
dag. Gordon Durie verður senni-
lega einnig illa fjarri góðu gamni
vegna meiðsla, en þeir hafa verið
aðal-framherjapar liðsins. Paul
Walsh hefur leikið mjög vel undan-
farnar vikur í fjarveru Duries, en
ekki er vitað hver verður með hon-
um í fremstu víglínu í dag.
■ JOHN Barnes, landsliðsmaður-
inn snjalli hjá Liverpool, hefur
neitað að endurnýja samning sinn
við liðið. Samningurinn rennur út í
vor — og hefur Barnes áhuga á
að leika með einhveiju stórliði á
meginlandi Evrópu, helst á Italíu.
■ GLASGOW Rangers keypti í
gær framherjann Paul Rideout frá
Notts County fyrir 500.000 pund.
Hann er 26 ára. Rideout lék áður
með Swindon, Aston Villa, Bari á
Ítalíu, Southampton og Notts Co-
unty, sem keypti hann sl. sumar.
■ TERRY Butcher, fyrrum
framkvæmdastjóri og leikmaður
Coventry, sem var látinn fara frá
félaginu fyrr í vikunni, hefur geng-
ið til liðs við utandeildarliðið Ha-
lesowen og leikar fyrsta sinni með
liðinu í dag gegn Poole!
■ JIMMY Nicholl, sem á sínum
tíma lék m.a. með Man. Utd. og
Rangers, og er nú stjóri Raith
Rovers í Skotlandi, hefur verið ráð-
inn aðstoðarþjálfari Billy Bing-
hams með norður-írska landsiiðið.
■ GEOFF Thomas, miðvallar-
leikmaður hjá Crystal Palace og
fyrirliði liðsins, er eftirsóttur. Ron
Noades, stjórnarformaður Palace,
hefur nú tilkynnt að leikmaðurinn
verði ekki seldur fyrir minna en
fjórar milljónir punda. Hann gat
þess ennfremur að forráðamenn
Arsenal geti gleymt því að þeir fá
að kaupa Thomas, en þeir hafa
sýnt honum áhuga.
■ PAUL Bodin, annar bakvarða
landsliðs Wales, sem Crystal
Palace keypti fyrir 450.000 pund
frá Swindon í fyrra, komst sjaldan
í'liðið hjá Palace og er nú farinn
til Swindon — fyrir 225.000 pund.
■ SEGJA má að Gazza-æðinu,
sem varð til í kringum Paul Gasco-
igne á Bretlandseyjum og náði
hámarki eftir HM á Italíu 1990, sé
nú formlega lokið. í bili a.m.k. Fyrst
eftir HM bárust drengnum um
8.000 bréf í viku hverri frá æstum
aðdáendum og móðir hans og syst-
ir opnuðu skrifstofu í Newcastle
til að sinna málum. Bréfin sem
berast núorðið eru hins vegar sár-
afá og fjöldi fólks hefur hætt í aðdá-
endaklúbbi kappans. Enda sér móð-
ir hans nú um reksturinn heima í
stofu.
HUMMEL HUMMEL HUMMEL HUMMEL HUMMEL HUMMEL HUMMEL HUMMEL
_ I
c
2
2
m
r-
s á Hlíðarenda í dag kl. 16.30 |
i VALSMENN - MUNIÐ ÞORRABLÓTIÐ 25. JANÚAR! p
HUMMEL hummel hummel hummel hummel hummel hummel hummel
„ÚRSLITIN réðust ífyrri hálf-
leik eftir að við misstum Tim
Harvey út af vegna meiðsla.
Þáð sló okkur út af laginu,"
sagði Ríkharður Hrafnkelsson
liðsstjóri Snæfells eftir að lið
hans hafði tapað fyrir Skalla-
grími í Borgarnesi í gærkvöldi,
82:73. Borgnesingar eru þar
með komnir af botni deildar-
innar og upp að hlið Snæfells
með 6 stig. Þór er á botninum
með 4 stig, en liðið tapaði fyrir
ÍBK nyrðra í gærkvöldi.
Jafnræði ríkti með liðunum í Bor-
garnesi framan af en lið Skalla-
gríms hafði þó oftar yfírhöndina.
Um miðjan fyrri
hálfleik var staðan
jöfn en þá dró heldur
í sundur og var stað-
an 40:31 fyrir Skal-
lagrími í leikhlé.
A fjórðu mínútu síðari hálfleiks
fór Maxím Kropatsjef út af með
fímm villur en Tim Harvey var þá
kominn inná þó haltur væri. Gætti
þá i fyrstu taugaveiklunar í liði
Skallagríms en leikmenn liðsins
náðu sér þó fljótlega á strik. Juku
þeir síðan forskot sitt og sigruðu
nokkuð örugglega .„Þetta var bar-
áttuleikur og þeim fylgir alltaf mik-
ið af mistökum. Ég er mjög ánægð-
ur með að vinna leikinn, sérstaklega
í ljósi þess að við misstum Maxím
út af í upphafí síðari hálfieiks. En
við verðum að leika betur í bikar-
leiknum næstkomandi mánudag á
móti KR,“ sagði Birgir Mikaelsson
þjálfari og leikmaður Skallagíms
eftir leikinn. Kvaðst Birgir ekki síst
þakka þykkum áhorfendum sigur-
inn í þessum leik.
Bestir í liði Skallagríms voru
þeir Birgir og Elvar. Hjá Snæfelli
voru þeir Bárður Eyþórsson og Tim
Harvey góðir.
Öruggur sigur ÍBK
Keflvíkingar létu Þórsara ekki
stöðva sig á þeirri sigurgöngu
sem þeir hafa verið og sigruðu þá
örugglega á Akur-
eyri í gærkvöldi.
Heimamenn héldu í
við gestina nokkuð
fram í síðari hálfleik
en þá kom styrkleiki þeirra í ljós
og sigurinn var öruggur.
Keflvíkingar hófu leikinn af mikl-
um krafti, bæði í vörn og sókn, og
höfðu náð þrettán stiga forskoti
áður en Þórsarar áttuðu sig. Eftir
Jón Kr. Gíslason var fremstur
meðal jafningja í góðu liði ÍBK á
Akureyri.
það komust heimamenn inn í leikinn
og minnkuðu muninn í tvö Stig, en
Keflvíkingar höfðu ávallt frum-
kvæðið. „Þrátt fyrir góða byijun
okkar vorum við í ströggli með þá
lengi vel. Það er greinilegt að
[Brad] Casey [þjálfari Þórsara] er
að laga vömina og á því komust
þeir inn í leikinn aftur,“ sagði Guð-
jón Skúlason, Keflvíkingur, við
Morgunblaðið eftir leikinn. „En það
var greinilegt að undir lokin var
þreytan farin að segja til sín hjá
þeim, en við nutum aftur á móti
breiddarinnar í hópnum,“ sagði
Guðjón.
Um miðjan síðari hálfleik tóku
Keflvíkingar sig á og sigur þeirra
var aldrei í hættu.
Keflvíkingar léku ágætlega í
gærkvöldi en hafa þó oft leikið bet-
ur. Liðið var jafnt og e.t.v. ósann-
gjarnt að nefna einhvern sérstak-
lega, en þó má.geta þess að Jón
Kr. Gíslason tók stundum af skarið
þegar á þurfti að halda.
Leikur Þórsara var gloppóttur,
góðir sprettir en mikið af mistökum
þess á milli. Joe Harge var mjög
sterkur í síðari hálfleik en hitti illa
í þeim fyrri. Aðrir leikmenn eiga
að geta betur.
URSLIT
VALUR - UMFT
Bikarleikur
ó Hlíðarenda
sunnudag kl. 20.
Skallagr. - Snæfell 82:73
íþróttamiðstöðin í Borgamesi, íslandsmótið
í körfuknattleik, Japisdeild, föstudaginn
lO.janúar 1992.
Gangur leiksins: 2:0, 3:1, 9:5, 15:15,
20:17, 29:23, 37:28, 40:31, 46:37, 51:40,
63:53, 69:59, 76:69, 80:69, 82:73.
Stig UMFS: Elvar Þórólfsson 21, Birgir
Mikaelsson 21, Maxím Kropatsjef 18, Haf-
steinn Þórisson 9, Guðmundur Kr. Guð-
mundsson 8, Þórður Helgason 4, Þórður
Jónsson 1.
Stig Snæfells: Bárður Éyþórsson 32, Tim
Harvey 13, Jón B Jónatansson 7, Karl
Guðlaugsson 7, Hjörleifur Sigurþórsson 6,
Sæþór Þorbergsson 6, Hreinn Þorkelsson 2.
Dómarar: Kristinn Oskarsson og Jón Otti
Ólafsson stóðu sig vel.
Áhorfendur: 450 og héldu mjög góðri
stemmningu.
Þór-ÍBK 81:99
íþróttahöllin á Akureyri, fslandsmótið i
körfuknattleik, Japisdeild, föstudaginn 10.
janúar 1992.
Gangur leiksins: 0:6, 9:22, 19:24, 26:28,
36:39, 38:47, 46:48, 54:56, 61:75, 68:84,
79:89, 79:95, 81:99.
Stig Þórs: Joe Hargé 32, Guðmundur
Björnsson 16, Konráð Oskarsson 14, Jóhann
Sigurðsson 8, Högni Friðriksson 7, Örvar
Erlendsson 2, Björn Sveinsson 2.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 18, Nökkvi M.
Jónsson 15, Jonathan Bow 15, Hjörtur
Harðarson 14, Guðjón Skúlason 13, Kristinn
Friðriksson 8, Sigurður Ingimundarson 8,
Albert Óskarsson 4, Július Friðriksson 2,
Brynjar Harðarson 2.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al-
bertsson.
Áhorfendur: 150.
Handknattleikur
fslandsmótið, 2. deild í gærkvöldi:
Völsungur - HKN..............12:28
Körfuknattleikur
Bikarkeppni KKÍ:
Akranes - Njarðvík...........73:155
Íshokkí
íslandsmótið, Bauer-deildin:
Skautafélag Reykjavíkur sigraði Skautafé-
lag Akureyrar, 7:5, í þriðja leik mótsins á
svellinu í Laugardal i gærkvöldi. Staðan
eftir fyrsta leikhluta var 6:0 og 6:1 eftir
annan hluta.
Knattspyrna
Holland - úrvalsdeild í gærkvöldi:
MW Maastricht - Ajax Amsterdam..1:4
Visser 10. - Winter 24., Bergkamp 26. og
53., Davids 90. Áhorfendur: 10.000.
Spænska bikarkeppnin á fimmtudag. Þriðja
umferð, fyrri leikur:
Valencia - Barcelona.•..........2:0
Borðtennis
Heimsmeistarinn Jörgen Persson frá Sví-
þjóð tapaði í gærdag í þriðju umferð á opna
enska meistaramótinu í Birmingharn, fyrir
Englendingnum Carl Prean, 24:22, 21:10
18:21, 21:17.
Prean var svo sleginn út í gærkvöldi, í
átta manna úrslitum, er hann tapaði ffyrir
Þjóðverjanum Jörg Rosskopf, 21:13, 21:12,
23:21.
Um helgina
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla:
Digranes: UBK - Stjarnan ....16.30
Strandg.: Haukar-Grótta ....16.30
Valsheimilið: Valur-ÍBV..16.30
1. deild kvenna:
Garðabær: Stjarnan - Grótta 13.30
Valsheimilið: Valur - Ármann
.........................14.40
2. deild karla:
Akureyri: Þór-HKN.........13.30
Sunnudagur:
1. deild karla:
Höllin: Fram-HK..........20.15
Kaplakriki: FH - KA......20.00
Víkin: Víkingur - Selfoss.kl.20
1. deild kvenna:
Höllin: Fram-KR........:..18.30
Kaplakriki: FH-Haukar....18.30
Vikin: Víkingur-fBK......18:20
2. deild karla:
Höllin: Ármann-ÍR.........16.00
Seljaskóli: Fjölnir-Ögri..20.00
Strandgata: ÍH - UMFA.....20.00
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla:
Seljaskóli: ÍR-UBK.......14.00
1. deild kvenna:
Seljaskóli: ÍR-KR........15.30
Sunnudagur:
Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit:
Strandgata: Haukar - Snæfell
........................14.00
Egilsstaðir: Höttur-Þór..14.00
Njarðvík: UMFN-b - ÍBK....16.00
Valsheimili: Valur - Tindastóll
........................20.00
Mánudagun
Borgarnes :UhfFS - KR....20.00
1. deild karla:
Sandgerði: Reynir-ÍA.....17.00
1. deild kvenna:
Grindavík: UMFG-fBK......18.00
Kennaraskóli: ÍS - Haukar....20.00
BLAK
Laugardagur:
1. deild karla:
KA-húsið: KA - Þróttur Nes..14
Hagaskóli: ÞrótturR. - HK ...14.00
1. deild kvenna:
Höfn: Sindri-ÍS...........14.00
Húsavík: Völsungur-ÞrótturN.16
SKAUTAR
ísknattleiksfélagið Björninn og
Skautafélag Akureyrar leika í Bau-
er deildinni í íshokkí í Laugardal í
dag, laugardag, 15.
KNATTSPYRNA
fslandsmótið i innanhússknatt-
spyrnu, 3. og 4. deild, fer fram í
íþróttahúsi Fjölbrautarskólans í
Breiðholti um helgina. Keppnin í
4. deild klárst í dag og verður úr-
slitaleikurinn 19.20. f 3. deild hefst
keppni á morgun 10 og stendur til
19.
BADMINTON
Unglingameistaramót TBR f bad-
minton fer fram í TBR-húsundum
við Gnoðarvog um helgina. Keppni
hefst 14 í dag og verður síðan fram-
haldið 10 á morgun. Keppt verður
í öllum greinum og flokkum ungl-
inga.
GOLF
Púttmót verður í Golfheimi í
Skeifunni á morgun, sunnudag, og
stendur yfir frá 08.00 til 20.00.
Sportbúð Kópavogs gefur verðlaun.
KEILA
Hin árlega tvímenningskeppni
keilufélagsins Þrastar fer fram í
Öskjuhlíð um helgina. Keppni hefst
í dag 12 og verður framhaldið á
sama tíma á morgun.
Laugardagsmót lærlinga fer
fram í Öskjuhlíð í kvöld 20. Keppt
verður í þremur flokkum.
GLIMA
Námskeið í glímu hefst mánudaginn 13. janúar kl. 18.30
í íþróttasal Breiðagerðisskóla.
Skráning og upplýsingar í síma 670858 sunnudaginn
12. janúarkl. 13.00-18.00.
Víkverji, glímudeild.