Morgunblaðið - 13.02.1992, Side 1
64 SIÐUR B
36. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðræður EFTA og EB:
Samkomulag strand-
ar á Svisslendingum
- segir Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalagsins
Strassborg. Reuter.
JACQUES Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalags-
ins, sagðist í gær bjartsýnn á að samkomulag tækist um stofnun
evrópsks efnahagssvæðis (EES). Fyrst þyrftu Svisslendingar þó
að falla frá andstöðu sinni við lausn á dómstólamálinu svokallaða.
Delors ávarpaði í gæt* þing Evr-
ópubandalagsins og kynnti þar
Reuter
Clinton enn
í vanda
Raunir Bills Clintons, eins af fram-
bjóðendum demókrata í prófkjöri
fyrir forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum í nóvember, ætla seint að
taka enda. Fyrst var hann sakaður
um framhjáhald og svo um að hafa
færst undan því að gegna her-
skyldu. I gær neyddist hann til að
kynna sjálfur bréf sem hann skrifaði
hernum árið 1969. Þar þakkar hann
tilteknum liðsforingja sem vann við
herkvaðningu fyrir að hafa „bjarg-
að“ sér frá herþjónustunni. Clinton
sagði að ónafngreindir menn í
bandaríska varnarmálaráðuneytinu
hefðu látið ABC-sjónvarpsstöðinni
afrit af bréfinu í té vegna viðtals
sem stöðin ætlaði að taka við hann.
Var honum sagt frá bréfinu áður
en viðtalið hófst og ákvað hann þá
að kynna efni þess sjálfur. Er mynd-
in tekin við það tækifæri.
starfsemi og fjárlög framkvæmda-
stjómarinnar á næsta ári. í ræð-
unni minntist hann ekki einu orði
á evrópska efnahagssvæðið en
fyrir þremur árum ýtti hann hug-
myndinni um slíkt úr vör við sama
tækifæri. Á blaðamannafundi að
ræðunni lokinni tjáði Delors sig
hins vegar um EES. „Lögspakir
menn í Sviss verða að hætta að
líta á bandalagið sem venjuleg
alþjóðleg samtök.“ Sagði hann að
Evrópubandalagið væri einstök
stofnun og Fríverslunarbandalag
Evrópu (EFTA) gæti ekki búist
við að samningar við EB fælu í
sér sams konar reglur og þegar
um tvenn alþjóðasamtök væri að
ræða. Að sögn /feuíers-fréttastof-
unnar geta Svisslendingar ekki
fallist á að dómstóll Evrópubanda-
lagsins hafi að einhveiju leyti
dómsvald á. EES-samningssvæð-
inu öllu.
Sjá „Góðar líkur taldar...“
á bls. 25
Sjálfstæðissiiwar í Kasmír
Reuter
Amanullah Khan, leiðtogi Frelsisfylkingar Kasmírs, og stuðningsmenn hans eggja hér göngumenn á leið
frá Pakistan til Indlands til dáða. Gangan var stöðvuð með valdi í gær, nokkrir þátttakendur féllu og var
Khan handtekinn ásamt fleirum.
Sjá „Fyrirliðinn handtekinn" á bls. 24.
Samveldi sjálfstæðra ríkja:
Búist við að Rússar stofni
eigin her eftir leiðtogafund
Moskvu, Genf, Lundúnum. Reuter.
DMÍTRÍJ Volkogonov, varnarmálaráðgjafi Borís Jeltsíns Rússlands-
forseta, sagði í gær að Rússar myndu stofna eigin her. Jeltsín myndi
gefa út tilskipun um málið, líklega skömmu eftir fund leiðtoga aðild-
arríkja Samveldis sjálfstæðra ríkja í Mínsk á föstudag.
Volkogonov sagði þetta í viðtali I ímaja Gazeta og bætti við að allar
við rússneska dagblaðið Nezavís- I rússneskar hersveitir í Rússlandi
og öðrum Austur-Evrópuríkjum
myndu að lokum ganga í rússneska
herinn. Hann lagði þó áherslu á að
samveldislýðveldin myndu einnig
hafa her undir sameiginlegri stjórn.
Rússar hafa til þessa reynt að
CNN útvarpar „einkasímtali Yassirs Arafats“:
Gyðingnm ekki vandaðar kveðjurnar
Viðmælandi leiðtoga PLO segir upptökuna falsaða
París. Reuter.
IBRAHIM Souss, sendifulltrúi
Frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO, í París og háttsettur að-
stoðarmaður Yassirs Arafats,
leiðtoga PLO, neitaði í gær, að
Arafat hefði farið niðrandi orð-
um um gyðinga í simtali þeirra
tveggja, sem útvarpað var á
CNJV-sjónvarpsstöðinni fyrr um
daginn.
Souss sagðist ætla að höfða mál
á hendur CNN bæði í Frakklandi
og Bandaríkjunum fyrir ærumeið-
ingar og brot á lögum um friðhelgi
einkalífs og eink-
asímtöl. Hann
sagði, að upptak-
an með umræddu
símtali þeirra Ar-
afats frá 30.
fyrra mánaðar
væri „gróflega
fölsuð".
CNN sagðist Yassir Arafat
hafa fengið upp-
töku af samtalinu hjá „vestrænni
löggæslustofnun". Sérfræðingar
sem væru kunnugir Arafat fullyrtu,
að um væri að ræða rödd leiðtog-
ans, en raddfræðingur teldi ekki
unnt að sanna fyrir rétti að svo
væri.
Umræðuefnið í samtalinu er
uppistandið sem varð í Frakklandi
þegar George Habash, leiðtogi Al-
þýðufylkingarinnar til frelsunar
Palestínu, PFLP, var lagður inn á
spítala í París. Souss á að hafa
sagt að fjaðrafokið væri ekki sósíal-
istum að kenna, heldur leiðtogum
hægrimanna, Jean-Marie Le Pen
og Jacques Chirac, en „einkum
gyðingum ... fjölmiðlafári gyð-
inga“. Þessari athugasemd fylgdi
reiðilestur, sem eignaður er Ara-
fat, þar sem farið er mörgum niðr-
andi orðum um gyðinga og Frökk-
um eru heldur ekki vandaðar kveðj-
urnar.
Souss sagði, að hér væri greini-
lega um að ræða áróðursbragð
Israela; þeir teldu sig eiga mikið
undir því núna að rýra trúverðug-
leika PLO og sendifulltrúa samtak-
anna í París. í vinahópi sínum
væru margir gyðingar og sumir
þeirra ísraelar. „Þeim er varla
sjálfrátt sem ætla að saka mig um
gyðingahatur," sagði Souss.
halda megninu af her Sovétríkjanna
fyrrverandi undir einni stjórn.
Stjórnvöld í Úkraínu hafa hins veg-
ar ákveðið að stofna eigin her og
beitt sér fyrir mun minni samveldis-
her.
„Rússar hafa lýst því yfir að
þeir verða ekki fyrstir til að stofna
eigin her,“ sagði Volkogonov. „En
eftir Mínsk-fundinn rennur upp sú
stund er við neyðumst til að til-
kynna stofnun rússnesks hers. Það
verður gert með forsetatilskipun,
liklega eftir 14. febrúar."
Nezavísímaja Gazeta sagði að
yfirmenn sovéska hersins fyri’ver-
andi hefðu ákveðið að leggja að
Jeltsín að stofna rússneskan her svo
hægt yrði að staðfesta afvopnunar-
samninga Sovétríkjanna við Vestur-
lönd. Án hers gætu rússnesk stjórn-
völd ekki staðfest samninginn um
fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna (START) og Parísar-
samninginn um fækkun hefðbund-
inna vopna.
Volkogonov sagði að rússneski
herinn yrði aðallega skipaður at-
vinnuhermönnum. Ef hugmyndir
um varnarsamvinnu við Banda-
ríkjamenn gengju eftir ætti hernum
að nægja 1,5 milljónir hermanna.