Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
Afnám viðskiptabanns á Suður-Afríku:
Verðum samstiga norræn-
um verkalýðsfélögum
- segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður verkalýðsfélagsins Dags-
brúnar, segir að enn hafi ekki verið tekin afstaða innan Dagsbrúnar
til samþykktar ríkisstjórnarinnar um að aflétta viðskiptabanni á
Suður-Afríku. Hann segir að fyrst ætli Dagsbrún að hafa samráð
við verkalýðsfélög á Norðurlöndum. Gunnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Mata hf., telur að með því að hefja aftur innflutning
á ávöxtum frá Suður-Afríku geti það hugsanlega leitt til lækkaðs
vöruverðs.
„Við tökum ekki formlega afstöðu
til þessa máls fyrr en afstaða verka-
lýðsfélaga á Norðurlöndum verður
ljós. Við ætlum að vera í takt við
þá varðandi þetta mál og við ætlum
ekki að verða fyrri til að aflétta af-
stöðu okkar,“ segir Guðmundur.
Hann segir að ætlunin sé að koma
með yfirlýsingu varðandi afnám við-
skiptabannsins eftir helgi.
Fyrirtækið Mata hf. er eitt þeirra
fyrirtækja, sem flutti inn vörur frá
Suður-Afríku áður en viðskipta-
bannið var sett á árið 1988. Gunnar
Þór Gíslason, framkvæmdastjóri,
segir það alveg ljóst að með því að
aflétta viðskiptabanninu opnist
möguleikar á hagstæðari innkaupum
á matvöru til landsins. „Við fluttum
mikið inn af vínbeijum og appelsín-
um fyrir viðskiptabannið. Við lítum
það björtum augum ef opna á aftur
fyrir viðskipti við Suður-Afríku og
það er einnig ástæða fyrir neytendur
að gleðjast, en á þeim vörum, sem
við fluttum inn þaðan eru yflrburðar-
gæði og verðið er auk þess mun
hagstæðara,“ segir Gunnar Þór.
Ó. Johnson & Kaaber hf. flutti inn
Del Monte ávexti frá Suður-Afríku.
Ólafur Ó. Johnson, markaðsstjóri
fyrirtækisins, segir að vegna við-
skiptabannsins hafl verið farið að
flytja inn Del Monte vörur frá Evr-
ópu og við það hafl verðið hækkað.
„Mikið af verksmiðjum Del Monte í
Suður-Afríku hefur hins vegar verið
lokað vegna viðskiptabanns margra
landa. Þess vegna er mjög hugsan-
legt að ekki verði hægt að fá þessar
vörur á því verði sem áður var
hægt,“ segir Ólafur.
Hann segir jafnframt að ef Del
Monte í Suður-Afríku nái sér aftur
á strik geti vel verið að möguleikar
á frekari innflutningi þaðan opnist
aftur. „Við höfum einnig kannað lí-
tillega möguleika á að skipta við
aðra aðila þar en það er í raun ekk-
ert öruggt í því hvað við gerum í
þessum rnálurn," segir Ólafur.
VEÐUR
3°
JL
V
Helmltó: Veðurstola (slands
(Byggt ö veðurspá kl 16.1S I gær)
ÍDAGkl. 12.00
VEÐURHORFUR I DAG, 13. FEBRUAR
YFIRLIT: Um 500 km suðsuðvestur af Reykjanesi er 948 mb lægð,
sem þokast austur og grynnist. Yfir Grænlandi er 1015 mb hæð.
SPÁ: Allhvöss austanátt og snjókoma eða slydda um norðanvert
landið en suðaustan stinningskaldi og slydduél syöra. Hiti 0 til +3
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suðaustlæg átt, víðast
fremur hæg og sennilega hlýtt. Skúrir eða slydduél um sunnan-
vert landið, en annars þurrt.
Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt ' Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
/ / / * / *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og flaörirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
FÆRÐ A VEGUM:
Greiðfært er um flesta vegi landsins nema á Vestfjörðum. Á Suður-
landi er vart ferðaveður í nágrenni Vikur og i Öræfasveit. Á Aust-
fjörðum og Norðausturlandi er smávegis snjór á vegum og gæti
færð versnað þar ef hvessir eins og spáð er. Greiðfært er fyrir
Hvalfjörð og vestur um Snæfellsnes og um Dali til Reykhóla en
víða er hvassviðri. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjaröar og það-
an til Tálknafjarðar en ekkert ferðaveður er á Hálfdán. Fært er
norður yfir Holtavörðuheiði til Hólmavíkur en Steingrímsfjarðar-
heiði er aðeins fær jeppum og stórum bílum, en þaðan er fært til
ísafjarðar en hálka er á þeirri leið. Breiðadals- og Botnsheiði eru
ófærar. Greiðfært er um allt Norðurland en þar er spáð versnandi
veðri.
Vegagerðin
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akúreyri +4 alskýjað
Reykjavtk 2 úrkomaígrennd
Bergen vantar
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 46 skafrenningur
Nuuk 421 skafrenningur
Ósló vantar
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn vantar
Algarve 17 skýjaö
Amsterdam 11 súid
Barcelona vantar
Beriín 7 skýjaö
Chicago •f6 alskýjað
Feneyjar 7 súld
Frankfurt 9 súld
Glasgoty 10 rigning
Hamborg 7 súld
London 12 rigning
Los Angeles 13 skúr
Uixemborg 9 súld
Madríd 11 skýjað
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 15 þokumóða
Montreal 426 iéttskýjað
NewYork 48 lóttskýjað
Orlando 10 þoka
París vantar
Madeira 18 skýjað
Róm 16 þokumóða
Vín 9 alskýjað
Washington +2 skýjað
Winnipeg 420 alskýjað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í þessum fríða hópi á fæðingardeild Landspítalans leynist sjálf-
sagt 100 þúsundasti íbúi Reykjavíkur.
Reykvíkingar voru
100.005 í gær
SKRÁÐIR íbúar í Reykjavík voru í gær eitthundrað þúsund og
fimm talsins. Þessi tala miðast við að stofn íbúaskrár frá 1. des-
ember sl. breytist ekki. v
Undanfama daga hefur verið
ljóst að íbúatala Reykjavíkur næði
100 þúsundum í febrúar. Eins og
fram kom í frétt Morgunblaðsins
í gær voru íbúarnir skráðir 99.996
síðdegis á þriðjudag. í gær kom
í ljós, að þijú böm höfðu fæðst
Reykvíkingum á þriðjudaginn, þó
þau væm ekki skráð fyrr en dag-
inn eftir og því var fjöldinn í raun
99.999 á þriðjudag. í gær bætt-
ust svo sex við til viðbótar.
Eyþór Fannberg, forstöðumað-
ur manntals Reykjavíkurborgar,
sagði að þessi íbúafjöldi miðaðist
við að stofn íbúaskrár frá 1. des-
ember sl. breyttist ekki. Enn ætti
eftir að skrá dauðsföll síðastliðnar
vikur og niðurstöður kæra vegna
lögheimilisskráninga yrðu ekki
ljósar fyrr en í apríl. Því væri
ekki hægt að benda á einhvern
ákveðinn einstakling sem þann
100 þúsundasta. Eftir stæði samt
sem áður, að í skrám manntalsins
væru íbúar Reykjavíkur, miðað
við kl. 17 í gær, 100.005.
Númer af hjá skuld-
ugum bíleigendum f
TOLLSTJÓRI hefur óskað eftir því við lögreglu að klipptar verði
númeraplötur af þúsundum bifreiða, vegna vangoldinna bifreiða-
gjalda á síðasta ári. Lögreglan mun hefjast handa á næstu dögum.
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn, sagði í
samtali við Morgunblaðið að lög-
reglunni í Reykjavík hefði borist
listi yfír nær þrjú þúsund bifreiðar
í borginni, sem skuld hvíldi á vegna
vangoldinna bifreiðagjalda. „Við
sinnum þessu á næstunni, eftir því
sem mannafli leyfír, en það er vert
að benda bifreiðaeigendum á að
gera skil hið fyrsta, svo þeir komi
ekki að bifreiðum sínum númera-
lausum á næstunni."
Tollstjóri hefur sent lögreglu um
allt land slíkar beiðnir og munu
skuldugir bifreiðaeigendur nema
a.m.k. sex þúsundum.
4
i
Jón Sigtryggsson
fyrrv. prófessor látiim
JÓN Sigtryggsson fyrrverandi
prófessor við tannlæknadeild
Háskóla Islands lést að kvöldi
þriðjudagsins 11. febrúar 83 ára
að aldri.
Jón Sigtryggsson fæddist á Ak-
ureyri 10. apríl 1908, sonur hjón-
anna Sigtryggs Benediktssonar
veitingamanns og Margrétar Jóns-
dóttur. Jón varð stúdent frá Mennt-
askólanum á Akureyri 1931, lauk
læknanámi frá Háskóla íslands
1937 og tannlæknaprófí frá Tann-
læknaháskólanum í Kaupmanna-
höfn 1939.
Jón starfaði við sjúkrahús á ís-
landi og í Danmörku á kandidats-
árum sínum en 1941 hóf hann störf
við tannlækningar í Reykjavík og
fékk almennt lækningaleyfí sama
ár. Hann var skipaður dósent í tann-
lækningum við læknadeild Háskóla
íslands 1944 og prófessor við sömu
deild 1950 og gegndi þeirri stöðu
til 1978.
Eftir Jón liggja ýmsar greinar
og rit um tannlækn ngar. Hann var
ritstjóri Árbókar Tannlæknafélags
íslands um árabil.
Jón Sigtryggsson var sæmdur
fálkaorðunni fyrir tannlæknastörf.
Hann var heiðursfélagi Tannlækna-
Jón Sigtryggsson.
félags Íslands og var skipaður heið:
ursdoktor við tannlæknadeild HÍ
1987. I
Jón var kvæntur Jórunni Tynes
en hún lést 1978. Þau eignuðust
fimm börn.