Morgunblaðið - 13.02.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
7
Apótekarafélag Islands:
Hægt að ná fram
auknum spamaði inn-
an núverandi kerfis
Apótekarafélag íslands skilar á næstunni skýrslu til heilbrigðis-
ráðherra þar sem samanburður er gerður á núverandi lyfsölu-
kerfi og fijálsu lyfsölukerfi, en eins og greint hefur verið frá
hyggst heilbrigðisráðherra leggja frain frumvarp á Alþingi um að
lyfsala verði gefin frjáls. Að sögn Guðmundar Reykjalín, fram-
kvæmdastjóra Apótekarafélagsins, telja apótekarar að hægt sé að
ná fram auknum sparnaði innan ramma núverandi kerfis, en þeir
telja frjálsa lyfsölu hins vegar ekki leiða til sparnaðar þegar á
heildina er litið.
Staðgreiðsluafsláttur — afborgunarkjör
10% sérstakur afsláttur
af öllum öðrum vörum _____________________
meðan útsalan stendur
yfir 10.-15. febrúar
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28. SÍMI 622900 • NÆG BELASTÆÐI
„Ráðherra hefur túlkað þetta
sem einhvers konar tilboð um að
við fáum að viðhalda núverandi
kerfi. Hann er hins vegar ekki
búinn að fá skýrsluna í hendur,
en henni verður væntanlega skilað
til hans eftir næstu helgi. í skýrsl-
unni erum við með samanburð á
núverandi kerfi og þeim fijálsu
kerfum sem við þekkjum, en við
teljum að þau markmið sem hann
hefur sett í sambandi við sparnað
við það að gefa lyfsöluna fijálsa
náist ekki. Við bendum á leiðir sem
hægt er að fara til þess að ná fram
sparnaði innan ramma núverandi
kerfís, og kannski túlkar ráðherra
það á þann hátt að við séum tilbún-
ir til að gefa eitthvað eftir til að
fá að viðhalda þessu kerfi. Hann
ræður hins vegar hvaða fyrirkomu-
lag hann hefur á lyfjadreifing-
unni,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að apótekarar væru
í sjálfu sér tilbúnir til að takast á
við það ef niðurstaðan yrði sú að
lyfsala yrði gefin fijáls, en það
hefði hins vegar sýnt sig í þeim
löndum sem fijálsræðið væri hvað
mest að jafnframt væri lyfjanotkun
þar meiri. Þeir teldu að það myndi
hf. kaupir
Stjörnuna
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hf.
hefur selt Kristilegri fjölmiðlun
hf. útvarpsstöðina Stjörnuna.
Kristileg fjölmiðlun tekur við
rekstri útvarpsstöðvarinnar 1.
mars næstkomandi en útsend-
ingum útvarpsfélagsins var hætt
kl. 17 í gær. Reiknað er með að
fyrstu útsendingar nýrrar sjón-
varpsstöðvar Islenska út-
varpsfélagsins hf. verði í mars-
mánuði.
í fréttatilkynningu segir að
Stjarnan hafi verið rekin í öðru
húsnæði en aðrar deildir íslenska
útvarpsfélagsins og þess vegna
hafi verið erfitt um vik að ná fram
eðlilegri rekstrarhagræðingu. Því
hafi ýmsar leiðir verið skoðaðar
áður en ákveðið hafi verið að taka
tilboði Kristilegrar fjölmiðlunar hf.
Þá segir að lokum: „íslenska
útvarpsfélagið mun nú einbeita sér
að því að halda áfram því starfi
sem unnið hefur verið á Stöð 2 og
Bylgjunni og jafnframt því að
koma á fót nýrri sjónvarpsstöð,
Sýn, sem verður eitt viðamesta
verkefni' næstu vikna. Áætlað er
að Sýn hefji útsendingar í mars-
mánuði. Nú þegar eru hafnar til-
raunasendingar með stillimynd á
þeirri sjónvarpsrás sem Sýn verður
á, VHF rás 6. Dagskrá Sýnar er
enn í mótun, en fyrir liggur að um
helgarsjónvarp með blönduðu efni
verði að ræða.“
Hluthafar í Kristilegri fjölmiðlun
hf. eru nú 160 talsins.
einnig fylgja í kjölfarið hér, auk
þess sem fjárfesting í lyfsölu myndi
aukast. Þess vegna fengju þeir
ekki séð að fijáls lyfsala í landinu
myndi leiða til sparnaðar þegar á
heildina væri litið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinnupallar fjúka í Vesturbergi
Hvassviðri gekk yfir sunnanvert landið í gærdag. Ekki er talið að veðrið hafi valdið umtalsverðu tjóni en
það hafði þó meðal annars þær afleiðingar að vinnupallar fuku af þessu fjölbýlishúsi í Vesturbergi.
Kristileg
fjölmiðlun
Tfifrapottar <f%0>
fyrir örbylgjuofn
Blomberg ofnar
útstillingareldhúsi
Blomberg
úr útstillingareldhúsi
Tatung
örbylgjuofnar
Buxnapressur,
svartar og hvít
Franskir pottar
Blomberg
bvottavél
Tatung sjónvörp
OKKAR VINSÆLA
STÓRÚTSALA
sem beðið hefur verið eftir er byrjuð