Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
15
„Sjá hér hve illan endi
ofstjómarvaldið fær“
eftirÁsgeir
Jakobsson
Hún Hafrannsókn okkar lagði
fram fyrstu stjórnunaráætlun sína
í fískveiðum árið 1972. Áður en hún
tók við stjórninni var gerð úttekt á
fískbúskapnum. Árlegur meðal-
þorskafli undangenginna 20 ára
(1952-72) hafði verið 438 þús. tonn
og síðasta ár hinnar stjómlausu
sóknar, 1971, var þorskaflinn 453
þús. tonn. Ungfískur 1. og 2. árs
var talinn 873 milljónir físka. Allur
þorskstofninn veginn 1,5 milljónir
tonna, þar af hrygningarstofninn
700 þús. tonn.
Hafrannsókn var hvorki sátt við
fyrra búskaparlag né ástand físk-
stofnsins og vildi mæta þessum
stofni með friðun og samdrætti í
afla. Hann væri svo illa farinn
stofninn. Ef hún fengi að stjóma
myndi stofnunin sjá til þess að í
árslok 1992 væri fenginn 500 þús.
tonna jafnstöðu þorskafli og milljón
tonna hrygningarstofn, og horfnar
væru árlegar aflasveiflur náttúr-
unnar. Til þess að ná þessu marki
sagðist hún ætla að stjóma þorsk-
aflanum niður í 2-300 þús. tonna
árlegan afla í áratug eða svo (þeir
em nú orðnir tveir) og friða smá-
físk. Á níunda áratugnum fæmm
við að njóta ávaxtanna af þessum
þorsksparnaði og friðun.
Nú á tvítugsafmæli Hafrann-
sóknafískiríis er jafnstöðu þorskafli
Hafrannsóknar ekki 500 þús. tonn,
heldur 230 þús. tonn, og hrygning-
arstofninn ekki milljón tonn, heldur
300 þús. tonn og þijú aflaleysisár
sögð framundan.
Fallið hófst strax. Átta milljónir
af ungfíski eins til 2ja ára, sem
Hafrannsókn tók við 1972 urðu
ekki nema 342 milljónir af 3ja ára
físki 1974. Og sama ár var 700
þús. tonna hrygningarstofninn fall-
inn niður í 300 þús. tonn. Þar sem
smáfiskur kemur ekki inn í veiðam-
ar fyrr en á fjórða ári (30-200
gramma fískur veiðist ekki í vörpu
með 60 fersentimetra möskva)
verður þetta mikla fall á smáfíski
í tvö ár ekki skrifað á reikning veið-
anna. Hafrannsókn telur réttilega
ekki áhrif veiða heíjast fyrr en á
fjórða árs físki. Stofnunin hafði ein-
faldlega gleymt að gera ráð fyrir
að þessar átta milljónir ungfíska
þyrftu að éta til að vaxa upp. Þeir
vita margt á Hafrannsókn, en vand-
ræðin sem af þeim stafa em þau,
að þeir vita ekki hvað þeir vita
ekki. Þessi ofansagða fisktitta-
mergð hafði lent í köldum og ætis-
lausum pólarsjó á sínu fyrsta til
öðru aldursári. Sjór hafði tekið að
kólna nyrðra upp úr 1965 og þar
með sneiðast um æti á uppeldisslóð-
inni.
Osta- og smjörsalan:
Ný tegund
af viðbiti á
markaðinn
OSTA- og smjörsalan hefur hafið
sölu á Klípu, sem er nýtt viðbit
ætlað ofan á brauð. í Klípu er 33%
minni fita en í öllum öðrum
tegundum viðbits sem fáanlegar
eru, eða aðeins 27% fita.
Mjólkurbú Flóamanna framleiðir
Klípu með einkaleyfí frá Svíþjóð, en
þessi vara hefur hingað til eingöngu
verið framleidd þar og í Frakklandi.
Fitan sem notuð er við framieiðsluna
á Klípu er að 4/5 hluta smjör og 1/5
hluta olía, en af þessu leiðir að hún
er ekki aðeins afar fítusnauð heldur
er af henni ósvikið smjörbragð, segir
í frétt frá fyrirtækinu.
„Það var sem sé 1972,
sem örlaga Hafrann-
sóknaskekkjan gerðist.
Hafrannsókn vildi eng-
an lærdóm draga af
fiskveiðisögunni, sem
sýnir hvað íslenzk fiski-
slóð er viðkvæm fyrir
of stórum stofni. Haf-
rannsókn þekkti ekki
vistkerfið nægjanlega
og stjórnaði því í
blindni.“
Það var sem sé 1972, sem örlaga
Hafrannsóknaskekkjan gerðist.
Hafrannsókn vildi engan lærdóm
draga af fískveiðisögunni, sem sýn-
ir hvað íslenzk fískislóð 'er viðkvæm
fyrir of stórum stofni. Hafrannsókn
þekkti ekki vistkerfið nægjanlega
og stjórnaði því í blindni.
Þorskstofninn hafði haldist uppi
köldu árin eftir 1965, af því að
þessi sex ár hafði verið veitt í stjóm-
lausu sókninni nóg til þess að stofn-
inn féll ekki þessi síðustu ár stjóm-
lausu sóknarinnar, þrátt fyrir óhag-
stæð skilyrði á uppeldisslóðinni.
Stofninn féll strax og dregið var
úr veiðum og smáfískur friðaður inn
á köldu slóðina. Tuttugu ára stjóm-
unarsamdráttur Hafrannsóknar og
stjórnvalda í þorskafla nemur 1
milljón 581 þús. tonni frá heildar-
þorskafla stjómlausu sóknarinnar
1952-72 (8 milljón 763 þús. tonn
á móti 7 milljónum 182 þús. tonn-
um). Hafrannsókn ber sig upp við
þjóðina undan því, að aflasamdrátt-
ur hennar hafi ekki verið nægjan-
lega fylgt og segir þar muna orðið
500 þús. tonnum.
Hefðu 500 þús. tonnin gert allan
muninn? Því trúir núverandi sjávar-
útvegsráðherra og boðar herta Haf-
rannsóknastefnu. Hann er heitur
trúmaður, ráðherrann. Það verður
ekki í öðrum stað að fínna hans líka
í trúarhita en í Hafnarhvoli við
Ásgeir Jakobsson
Tryggvagötu, þar sem Vottar Je-
hóva hafa bækistöð sína. Margt
gott má um það trúfélag segja, en
hinn þríeini guð Vottanna, faðir,
sonur og heilagur andi, er misvitur.
Maður hélt að heilagur andi hefði
dottið út í kosningunum síðustu,
en hann gekk þá aftur tvíefldur í
Hafrannsóknastefnunni. Það em
því allar líkur á að maður lifí það,
að skrifa eftirmælagrein um íslen-
skan sjávarútveg, þar sem hver
Hafrannsóknaráðherrann tekur við
af öðrum.
Við andstæðingar Hafrannsókn-
ar í aflabrögðum höfum jöfnum
höndum vitnað í Shakespeare
(Something is rotten in the state
of Denmark) og Hallgrím Péturs-
son, „Sjá hér hve illan endi“, og
fleiri andans menn og signt okkur
í hvert sinn og Hafrannsókn er
nefnd, en allt komið fyrir ekki.
Þessum inngangi læt ég fylgja
afmælisljóð, sem ég hef nú ort til
Hafrannsóknar og þrenningarinnar.
Sjá hér hve illan endi
ofstjómarvaldið fær.
Aflinn í alvalds hendi
aumari í dag en í gær.
Nær því að engu orðinn
því ólukkans fískiforðinn
fellur jafnt og hann grær.
- Hafrannsókn rær og rær -
Þorrann og góuna þreyði
þrenningin aftur í skut.
Hún grætur þar glötuð seiði
og glataðan aflahlut.
En stjómað mun styrkri hendi
og stefnunni ekki breytt.
Allt hefur óvissan endi
nema aflinn í ekki neitt
Það verða ýmsir nú til að minn-
ast afmælis Hafrannsóknar. Einn
er hann dr. Schopka. Þar er nú gat
í ósonlagið. Það er enginn tími til
að stoppa í það nú, enda dugir ekk-
ert stopp. Það verður að sauma alla
flíkina upp fyrir hann.
Höfundur ér rithöfundur.
WETimf! ©Q FJ
hjá krbns
oestrft
KINGLUSPORT KYNNIR
VETRARFATNAÐ FRA:
m
Rank Shorter
OG FLEIRUM:
FATNAÐURINN SEM
VEITIR HLYJU OG
VERND í KULDA OG
VONDUM VEÐRUMl
HANN ER 45 ÁRA,
BUICK 1947
KKINGLA
BILALEIGAN ALP -AVIS
ER MEÐ KYNNINGU Á
STARFSEMI SINNI.
SCANDIA ÍSLAND KYNNIR
TYGGINGAR SEM í BOÐI
ERU HJÁ FÉLAGINU.
KRINGLUSPORT, BORGARKRINGLUNNI, SÍMI: 679955