Morgunblaðið - 13.02.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
19
Háteigskirkja teiknuð af Halldóri H. Jónssyni.
Ég get ekki lokið þessum kveðju-
orðum án þess að minnast sérstak-
lega á Margréti og heimili þeirra
Halldórs. Hjónaband þeirra var ein-
stakt. Þau höfðu verið gift í rúm-
lega fimmtíu ár, en í öllum sam-
skiptum þeirra kom fram djúp virð-
ing þeirra og ást hvort á öðru. Sam-
ráð þeirra var mjög náið. Á heimili
þeirra var fáum hlutum ráðið án
samráðs hins. Þau ferðuðust ævin-
lega saman. Hin síðari ár að
minnsta kosti, fór Halldór aldrei
út til kvöldverðar án Margrétar.
Þau voru mjög samhent um að
móta glæsilegt heimili sitt á Ægis-
íðu, sem ber þeim hjónum gott vitni
um fágaðan smekk og mikla reisn.
Þar er sérstakt að koma og gest-
risni mikil. Átti Margrét mikinn
hlut í öllum störfum eiginmanns
síns.
Ég vil að leiðarlokum flytja þakk-
ir mínar og fjölskyldu minnar fyrir
einstaka viðkynningu og samstarf.
Ég flyt í nafni Eimskipafélags
Islands og stjórnar þess einlægar
þakkir fyrir mikil og heilladrjúg
störf í þágu félagsins.
Ég færi Margréti Garðarsdóttur,
sonunum þremur, fjölskyldum
þeirra og eftirlifandi systur einlæg-
ar samúðarkveðjur. Ég bið góðan
Guð að styrkja þau á erfiðum tíma
í sorg þeirra.
Blessuð sé minning Halldórs H.
Jónssonar.
Hörður Sigurgestsson.
Hann Halldór er látinn, var mér
sagt er ég kom heim úr stuttri utan-
landsreisu 7. þessa mánaðar. Þetta
kom mér ekki á óvart, þar sem ég
hafði hitt konu Halldórs, Margréti,
nokkrum dögum áður, eða 2. febrú-
ar, og sagði hún mér þá að hverju
stefndi.
Ég lét hugann reika 60 ár aftur
í tímann, en sumarið 1931 útskrif-
uðust glaðir og ánægðir stúdentar
úr Menntaskólanum í Reykjavík. Á
meðal þeirra vorum við Halldór, en
við sátum í svokölluðum C-bekk,
eða stærðfræðideild, en í bekknum
voru alls 12 nemendur. Þetta var
nokkuð samstilltur hópur, og geri
ég ekki ráð fyrir að við höfum ver-
ið betri eða verri en aðrir sem í
skólanum sátu. Auðvitað brölluðum
við margt, en þar sem Halldór bjó
við Bókhlöðustíg, gengt skólanum,
urðu vistarverur hans fljótt eins
konar miðstöð okkar. Það var hvort
tveggja, að stutt var að fara, og
Halldór einkar gestrisinn. Þótt við
værum með ýmsar uppákomur í
skólanum, og líkaði misjafnlega við
kennarana, þá var það svo að þegar
prófum var lokið, var ekki laust við
að við fyndum til söknuðar, og
ávallt höfum við fundið hlýhug til
skólans, og ekki síður kennaranna,
sem voru afbragðs lærifeður, og
veittu okkur þá undirstöðumenntun
sem okkur var nauðsynleg til fram-
haldsnáms.
Stundum var erilsamt hjá Hall-
dóri og ef hann taldi að hann hefði
orðið eitthvað á eftir í námi, átti
hann það til, að tilkynna félögunum
að hann ætlaði að loka sig af til
að vinna upp það sem hann taldi
sig þurfa. Þetta var eitt af einkenn-
um Halldórs og virtum við félagarn-
ir þessar óskir hans, en af þessum
sökum varð námsárangur hans góð-
ur.
Á þessum árum varð sú vinátta
milli okkar, sem hélst alla tíð. Ég
átti þess kost að dvelja á heimili
Halldórs í nokkur skipti, en þar var
manni tekið eins og einum úr fjöl-
skyldunni.
Foreldrar Halldórs, þau Jón
Björnsson frá Bæ og Helga María
Björnsdóttir, voru rómuð fyrir gest-
risni og heimilisbragur allur hinn
myndarlegasti. Bjuggu þau í einkar
snotru húsi við Brákarey í Borgar-
nesi, þar sem Jón rak umfangs-
mikla sveitaverslun. Ég minnist
ennþá hve Helga var umhyggjusöm
við okkur unglingana og dekraði
við okkur á alla lund.
Á þessu myndarlega og ástúð-
lega heimili óx Halldór úr grasi, og
var það honum óneitanlega stoð í
lífinu.
Eftir stúdentspróf tvístraðist
bekkjarhópurinn og völdu menn sér
þá grein, sem þeir ætluðu að starfa
í. Halldór fór til Svíþjóðar og innrit-
aðist í Kungliga Tekniska Hugskol-
an í Stokkhólmi og nam þar arki-
tektúr. Að loknu námi kom Halldór
heim en það mun hafa verið á árinu
1938, og rak þá arkitektastofu í
Reykjavík. Eru til mörg myndarleg
stórhýsi, sem hann hefir teiknað,
og má þar m.a. nefna Bændahöll-
ina, Háteigskirkju og Borgarnes-
kirkju, auk Ijölda íbúðarhúsa. Á
þessum húsum mátti greina hand-
bragð Halldórs, en þau voru bæði
vönduð og falleg. Þegar Halldór
kom frá námi í Svíþjóð, settist hann
að í Reykjavík eins og áður segir,
og bjó þá á heimili mínu, á Mið-
stræti 10, en móðir mín var þá orð-
in ekkja. Fór vel á með okkur og
styrktist vinátta okkar enn meir.
Eitt atvik frá stúdentsárunum
er mér ákaflega minnisstætt. Dag
nokkurn gengum við bekkjarbræð-
urnir Halldór og Pétur Sigurðsson
sjóliðsforingi vestur á Grímsstaða-
holt, og þar nokkru vestar, mig
minnir að það hafi heitið Einars-
staðir, gengum við á hól nokkurn.
Var fagurt veður, Skeijafjörðurinn
spegilsléttur, en þarna var engin
byggð né skipulögð svæði. Er við
höfðum staðið þarna nokkra stund
sagði Halldór, hér vil ég byggja
mitt hús. Þetta gekk eftir þótt 20
ár liðu milli þessara orða og þess
er hann hóf byggingu húss síns,
sem hann bjó í til dauðdags, og bjó
fallegt heimili með konu sinni,
Margréti Garðarsdóttur.
Hjónaband þeirra var ákaflega
ástsælt og voru þau ákaflega sam-
rýmd í þá rúmlegu hálfu öld sem
þau bjuggu saman.
Þegar litið er yfir farinn veg er
margs að minnast, og allar eru þær
minningar góðar, þess sárara verð-
ur að kveðja góðan vin, en þó má
það vera mun sárara fyrir eftirlif-
andi konu hans og synina þijá og
fjölskyldur þeirra.
Það er þó huggun harmi gegn,
að minningin lifir um góðan föru-
naut og fjölskylduföður.
Baldvin Jónsson.
Nú þegar útför góðvinar míns
Halldórs H. Jónssonar fer fram vil
ég senda honum mínar innlegustu
hinstu kveðjur.
Kynni okkar hófust þegar við
þreyttum saman inntökupróf í
Menntaskólann í Reykjavík árið
1925. Við vorum bekkjarfélagar öll
árin í skólanum, þó við værum ekki
í sömu bekkjardeildum. Þannig tók
Halldór stúdentsprófið úr stærð-
fræðideild, en ég úr máladeild.
Hánn var mjög góður félagi,
traustur en þó ævinlega léttur og
skemmtilegur.
Ég mun ekki rekja starfsferil
hans hér enda býst ég við að aðrir
muni gera það. Samt sem áður
langar mig að minnast á nokkur
atriði. Þegar Halldór hafði lokið
arkitektsprófi sínu í Svíþjóð hóf
hann störf hér heima og það er
hreint með ólíkindum hve miklu
hann kom í verk og hafði margs
konar störf á hendi. Hann teiknaði
fjölmörg hús af ýmsum stærðum
og finnst mér mörg þeirra vera
hrein listaverk, eins og til dæmis
Háteigskirkjan í Reykjavík. Auk
aðalstarfs gegndi hann fjölda trún- ,
aðarstarfa, var meðal annars í t
stjórn margra fýrirtækja og oftast
sem formaður. Halldór var mjög
farsæll í sínum störfum og auk
þess var hann svo lánsamur að
kvongast fyrirmyndar og ágætis
konu árið 1940, Margréti dóttur
Garðars Gíslasonar stórkaupmanns.
Hún bjó manni sínum fagurt heim-
ili. Tíu árum eftir að þau giftust
reisti Halldór glæsilegt íbúðarhús á
Ægissíðu 88 og að sjálfsögðu hafði
hann teiknað það sjálfur.
Þau hjónin eignuðust þijá syni.
Elstur þeirra er Garðar húsameist-
ari ríkisins, næstelstur Jón hæsta-
réttarlögmaður og yngstur er Hall-
dór Þór verkfræðingur, en hann
starfar nú sem flugmaður.
Þegar við héldum upp á 50 ára
stúdentsafmæli okkar, buðu Hall-
dór og Margrét eiginkona hans öll-
um samstúdentum okkar, þeim sem
til náðist og mökum þeirra, heim
til sín á hið fagra heimili við Ægiss-
íðu. Það var ein glæsilegasta veisla
sem ég hef verið í, þjónar í einkenn-
isbúningum með hvíta hanska
gengu um beina og annað eftir
því. Þetta var mjög skemmtileg og
eftirminnileg samkoma.
Á sjötugsafmæli Halldórs bauð
hann til veislu sem fram fór í sölum
neðstu hæðar Bændahallarinnar,
einu af þeim stórhýsum sem hann
hafði teiknað. Honum voru haldnar
margar og góðar lofræður enda
átti hann það skilið. Þarna var sam-
ankominn fjöldi manns og miklar
og góðar veitingar voru fram born-
ar. Þetta var eftirminnileg stór-
veisla og góð skemmtun.
Margt af okkar gömlu bekkjar-
systkinum og samstúdentum sem
ég hef verið í sambandi við hafa
beðið mig fyrir sínar innilegustu
kveðjur til Halldórs og kærar sam-
úðarkveðjur til fjölskyldu hans. Við
Þórdís kona mín samhryggjumst
innilega frú Margréti, börnum
þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra.
Við biðjum Halldóri guðsblessun-
ar á þeim leiðum sem hann nú hef-
ur lagt út á. Blessuð veri minning
hans.
Erlingur Þorsteinsson.
Að heilsast og kveðjast - það
er lífsins saga. Fyrir nákvæmlega
50 árum, þegar undirritaður hóf
störf hjá Garðari Gíslasyni h.f. var
heilsast og kynni hófust, sem ávallt
urðu nánari og innilegri eftir því
sem árin liðu.
Það var hlutskipti Halldórs að
stjórna útflutningsverslun fyrirtæk-
isins, þar til rekstri var hætt fyrir
nokkrum árum. Eins og kunnugt
er, var Halldór arkitekt að mennt,
og má sjá margar glæsibyggingar
í þessari borg, sem hann er höfund-
ur að, en auk þess hlóðust á hann
ýmis aukastörf og fjölmargt sem
kallaði að á sama tíma. En alltaf
virtist hann hafa nægan tíma fyrir
fyrirtækið.
Það var gott að vinna með hon-
um. Hann var yfirvegaður, aðgæt-
inn og heiðarlegur í hvívetna. Auk
þess var hann ráðhollur vinur, sem
hlustaði á persónuleg vandamál og
átti sinn þátt í að leysa þau.
Margs er að minnast. Þakkir eru
nú fluttar þá kveðjustund er upp
runnin.
Samúðarkveðjur sendum við
hjónin frú Margréti, sonum þeirra
og fjölskyldum.
Blessuð veri minning Halldórs
H. Jónssonar.
Gunnlaugur J. Briem.
Málverka- og ljóðasýning-
ar á Kjarvalsstöðum
I VESTURSAL stendur yfir sýning á verkum í eigu Reykjvíkur-
borgar eftir eldri meistarana. Þeir eru m.a.: Jón Engilberts, Jón
Stefánsson, Ásgrímur Jónsson, Gunnlaugur Blöndal, Kristín Jóns-
dóttirj Júlíana Sveinsdóttir, Jóhann Briem og Gunnlaugur Sche-
ving. I austursal stendur yfir sýning á verkum í eigu Reykjavíkur-
borgar eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Og í austursal stendur yfir sýn-
ing á ljóðum eftir Hannes Sigfús-
son. Næsta helgi verður síðasta
sýningarhelgi.
Á laugardögum og sunnudögum
kl. 16.00 er sérstök safnaleiðsögn
fyrir sýningargesti á Kjarvalsstöð-
um. Sérfræðingur safnsins mun
taka á móti gestum í anddyri
Kjarvalsstaða og skoða með þeim
sýningu Kjarvals og eldri meistara
úr Listasafni Reykjavíkur.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
frá kl. 10.00 til 18.00 og er veit-
ingabúðin opin á sama tíma.
(Úr fréttatilkynningu)
HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK.
Pöntunarlistinn kostar 250 kr. + póstburöargjald.
PÖNTUNARLÍNA
91-653900
BKIMMRAUMM, XN HMmHRRRM
Helstu söluaðilar BMF á Islandi:
Höfuðborgarsvæðið:
Húsasmiðjan hf., Reykjavfk.
Húsasmlðjan hf„ Hafnarfirði.
Vesturland:
Akur hf„ Akranesi.
Kaupf. Borgfirðinga, Borgamesi.
Skipavfk hf„ Stykkishólmi.
Vestfirðir:
Pensillinn hf„ Isafirði.
Norðurland vestra:
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Torgið hf„ Slglufirði.
Kaupf. Skagfiröinga, Sauðárkróki.
Norðurland eystra:
KEA byggingavörudeild, Lónsbakka, Akureyri.
Skapti hf„ Akureyri.
Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavfk.
Austurland:
Kaupf. Héraðsbúa, Egiisstöðum.
Kaupf. Fram, Neskaupstað.
K.A.S.K. Höfn, Hornafirði.
Suðurland:
Kaupf. Rangæinga, Hvolsvelli.
Höfn-Þrihymingur, Hellu.
S.G. búðin, Selfossi.
Húsey, Vetmannaeyjum.
Suðurnes:
Járn & skip, Keflavfk.