Morgunblaðið - 13.02.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992
47
VETUR KONUNGUR
Vetur ríkir nú um allt land og skeytir lítt um fólk og fénað.
Hvernig er gott ljóð?
RVMINMRSUi
Húsgögn - stólar, sófar,
Montana hillueiningar.
Gluggatjaldaefni, bútar
gólfmottur, lampar o.fl.
frá Jórti Þ. Haraldssyni.
MIG langar að spyrja Brand Jóhann-
esson kennara hvort hann hafi nokk-
urn tímann reynt að skilgreina hug-
takið ljóð? Ég held að það sé tjáning-
arform — allt form hefur sína lögun
og þannig er einnig með ljóðið, því
er ætlað að falla að lögun ríms með
höfuðstöfum og stuðlum. Frásagan
þarf ekki að vera verri ef hún er
sæmilega fram sett. Brandur fer
hinum háðulegustu orðum um okkar
bestu ljóðskáld, að mér virðist til að
upphefja aðra.
Mér þykir Brandur setja nokkuð
ofan með ofstæki sínu þegar hann
lýsir því yfir að öll þjóðin sé hafí
lélegum ljóðasrhekk og að hann einn
sé þess umkominn að segja hvað séu
góð ljóð. Ekki veit ég hver hefur
skipað hann í þá stöðu að fræða
þjóðina um það hvað hún er heimsk
hvað þetta varðar. En væri það til
of mikils mælst að hann færði ein-
hver rök fyrir máli sínu og segði
okkur hver er munurinn á ljóði og
frásögn í óbundnu máli? Hvað gerir
frásöguna að ljóði? Eða á Ijóðið ekki
að segja neitt til að geta heitið ljóð.
Ég held að þú verðir að taka starf
þitt svolítið alvarlegar, þú verður að
gera þér grein fyrir því að þú ert í
ábyrgðarstöðu sem kennari.
Þú nefnir Ijóðskáld sem þú mælir
með. En það er enginn velgjörningur
við byijanda að setja hann í efsta
bekk og láta hann svo falla á fyrsta
prófí. En þessir menn eru ef til vill
bara svo langt á undan sinni samtíð
að við skiljum þá ekki. Er þetta
ekki bara tímaskekkja?
Ég vænti þess að þú gerir betri
grein fyrir þínum ljóðasmekk þegar
þú stingur niður penna í annað sinn
til að sannfæra þjóðina um það hvað
hún sé fávís.
JÓN Þ. HARALDSSON,
Torfufelli 33, Reykjavík.
VELVAKANDI
HVERNIG MÁ
SPARA MEIRA?
Karen Traustadóttir:
EIGUM við einhverja fróða menn
til að reikna það út hvað það
kostar þjóðarbúið að halda uppi
ríkisstjóm og hvað þjóðin getur
gert til að losna við útgjöld með
meiri sparnaði? Gaman væri að
fá svar sem fyrst.
JAKKITEKINN í
MISGRIPUM
frá Sigrúnu Baldursdóttur:
AÐFARANÓTT nýársdags fór
hún dóttir mínj hún Rósa, á dans-
leik á Hótel ísland eins og þú.
Hún var klædd sínu fínasta pússi
og yfirhöfnin hennar var jólagjöfín
frá mér til hennar, svargrái ullar-
jakkinn með dökkbrúna loðkrag-
anum. Hún skemmti sér mjög vel
eins og ég vona að þú hafír gert.
Húsið var fullt af fólki sem ykkur
hefur vonandi fundist gaman að
skemmta ykkur með. Þegar dans-
leiknum lauk og hún og þú ætluð-
uð að fara heim komst hún að því
að hún hafði tapað kvittuninni
fyrir geymslu á jakkanum sínum
nýja og fína, hún varð því að bíða
eftir að allir gestir hússins yfir-
gæfu staðinn og þá yrði jakkinn
hennar örugglega einn af þeim fáu
flíkum sem eftir yrðu í fataheng-
inu.
Svo reyndist ekki vera, því rétt
áður hafðir þú fundið kvittunina
hennar og leyst jakkann hennar
út, örugglega fyrir einhvem mis-
skilning, og farið með hann heim.
Rósa þurfti hinsvegar að f ara heim
án yfirhafnar, sár og svekkt. A
fyrsta degi ársins vomm við báðar
leiðar yfír þessu atviki og ég er
viss um að það hefur þú líka ver-
ið og kannski það leið(ur) að þig
hafi skort kjark til að leiðrétta
þennan leiða misskilning. Nú bið
ég þig að sjá að þér, svona á nýju
ári, og færa okkur flíkina.
Alltaf getur komið til að maður
geri mistök og þá er einfaldast í
heimi að leiðrétta þau og betr-
umbæta sjálfan sig og sjá til að
maður geri þau ekki aftur. Verum
vinir, leiðréttu mistökin og veldu
þér betri leið á nýju ári. Þú getur
annaðhvort hringt í okkur í síma
43351 eða skilað jakkanum á
Hótel ísland, viltu vera svo
væn(n).
SIGRÚN BALDURSDÓTTIR
Lundarbrekku 10
200 Kópavogi
KETTLINGAR
TVO tveggja mánaða kassavana
fresskettlinga vantar gott heim-
ili. Upplýsingar í síma 672248.
HEEVHLIS-
SORPEYÐIR
Hansína Gísladóttir:
GREIN eftir Aðalstein Jónsson
um svokallaðan heimilissorpeyðir
birtist í Morgunblaðinu 9. janúar
sl. Þetta virðist vera hið þarfasta
heimilistæki og vil ég spyijast
fyrir um hvort það sér fáanlegt
hér á landi.
SIEMENS
K /Ccg// - og frvstitœki í miklu úrvali!
H Lítiö inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
Verðhrun
Allt að 70% afsláttur
Lækkum vörur okkur enn meira
íþróttaskór - úlpur - samfestingar o.m.fl.
Dæmi um verð:
Áður kr.: Nú kr.:
Barnaúlpa 5.995,- 2.995,-
Lutha jakki 15.900,- 5.990,-
Lutha úlpa 18.290,- 5.990,-
Fullorðinsúlpa 8.990,- 4.990,-
Lutha samfestingur 22.900,- 10.990,-
Nýtt greiðslukortatímabil hafið
Opið frá kl. 10-14
laugardag
Dhummel^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555