Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 16
16 C
'MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
Úr Cuchi-göngunum. Þar er ekki hægt að mætast sama
hversu lítill og mjór maður væri.
ÞESSI
GEGGmV
fwff |/|/fw Og hermenn
fffffff/ fffff adliillnfortió
Texti og myndir: Jóhanno Kristjónsdóttir
Mér var þungt um andardrátt,
fæturnir skulfu undir mér, þar
sem ég paufaðist áfram hálfvegis
á hækjum mér — niður — niður
— niður. Köfnunartilfinningin
magnaðist, altók mig og svitinn
fossaði af mér. Ég var svo skrjáf-
þurr í kverkunum að ég kom
ekki upp orði. Ég greip andann
á lofti hvað eftir annað, þáð
hjálpaði ekki. Mér fannst ég vera
að springa innan í mér. Skelfingu
lostin hugsaði ég: ég sný við, ég
bara verð, annars dey ég, verð
bijáluð. Allt annað en vera hér.
Eg fálmaði eftir Dung,
fylgdarmanni, einhvers
staðar í þessu níðþrönga
rökkri, hann mjakaðist
léttilega á undan og beindi vasaljós-
inu fagmannlega; ég kuðlaði mig
saman, leit við, sá að ég gat ekki
snúið við og lagt á flótta, það var
halarófa af skólakrökkum á eftir
mér, ég varð að halda áfram þó að
innilokunarkenndin héldi um mig
kverkataki og hjartað virtist herp-
ast saman i örlitla kúlu í btjóstinu.
Eftir eilífðartíma sem kannski var
nokkrar mínútur eða kannski
nokkrir klukkutímar leit Dung um
öxl og gaf mér bendingu, þessum
áfanga var að ljúka, nokkrum sek-
úndum síðar stóð ég í stórri vistar-
veru sem var útbúin sem svefn-
skáli. Ég lét fallast á trébekk og
keyrði höfuðið niður, ég varð að
jafna mig en af hverju hafði ég
skilið vatnsflöskuna eftir uppi. Svo
leið angistin frá og hjartslátturinn
kyrrðist. Ég horfði í kringum mig
og mér var og er fyrirmunað að
skilja hvernig þúsundir manna gátu
lifað og starfað og unnið hér árum
saman. Og að þeim hugsunum lokn-
um náttúrlega hvílíkt stórkostlegt
undur og þrekvirki þessi göng væru.
Cu Chi eru við samnefndan bæ
um 30 km frá Ho Chi Minh-borg.
Þau eru furðuverk sem erfitt er að
lýsa. Þau eru ekki nema brot af
kerfinu sem var við lýði í stríðinu.
Göngin voru ekki gerð í einu vet-
fangi, byrjað á þeim milli 1940 og
1950. Þau voru úrræði vanbúins
hers smábænda við háþróuðum
Húfur til sölu á tvær krónur.