Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 17
MORtíUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 C 17 þyrlum, sprengjuflugvélum og efna- vopnum Frakka. Viet Minh hófu gerð þeirra og mér skilst að harður jarðvegurinn í Cu Chi sé tilvalinn til jarðgangagerðar. Þar með tókst að hafa samgöngur milli þorpa og forða sér undan frönsku hermönn- unum. Þegar Viet Cong óx fiskur um hrygg um 1960 var drifið í að end- urbæta gömlu göngin og grafin ný á svæðinu. Þvi var langmestur hluti Cu Chi-héraðs á valdi Víet Cong. Þeir gerðu magnaðar árásir þaðan og þar var njósnamiðstöð þeirra. Hin fræga Tet-árás á Saigon 1968 var skipulögð frá Cu Chi. Suður-víetnamski herinn átti í vök að verjast og Víet Congar sýndu þá ofdirfsku að halda stórbrotna sigurhátíð í miðbæð Cu Chi í miðju stríðinu. S-víetnamski herinn hafði ekki roð við þeim og styrkur þeirra var ein meginástæðan fyrir því að Johnson Bandaríkjaforseti ákvað að hefja fyrir alvöru þáttöku Banda- ríkjamanna í stríðinu. Ekki tókst að finna göngin en það var deginum Ijósara að það var þörf að hafa gát á svæðinu. Eitt fyrsta verk Bandaríkjamanna var því að reisa stóra bækistöð í Cu Chi-héraði. Það var kaldhæðnis- legra en tárum taki að án þess þeir vissu voru göng Viet Conga undir henni. Það liðu mánuðir áður en 25. herdeildin komst að því hvers vegna var alltaf verið að skjóta á þá í tjöldunum á nóttunni. Þá hófust æðisgengnar sprengju- árásir á svæðið til þess að svæla Víet Conga út. En ekki tókst að staðsetja göngin. Til að reyna að koma í veg fyrir að birgðir og vist- ir bærust til Víet Cong voru hrís- gijónaakrar sviðnir, skóglendin rudd, íbúar fluttir eða reknir úr þorpum í grenndinni. Bandarílqa- menn vörpuðu eitri á svæðið úr lofti og sprautuðu bensíni og napalmi á gróðurinn. En þegar ofsahitinn frá þeim blandaðist heitu hitabeltisloft- inu mynduðust skúraský, regn steyptist niður og slökkti eldana og í göngunum voru Víet Congarnir heilir á húfi. Þegar Bandaríkjamenn reyndu að nota hunda þjálfaða til að hafa upp á leyniinngöngum, svömðu Víet Congar með því að sáldra pip- ar út um allt til að villa um fyrir hundunum. Þeir þvoðu sér með bandarískum sápum sem voru með lykt sem hundarnir tengdu vitan- lega ekki óvininum. Og það sem úrslitum réði var að hundrarnir gátu ekki heldur fundið leyni- sprengjur og drápust í þúsundatali. Þá var farið að senda menn inn í þá fáu staði sem höfðu fundist. Þeir gengu undir nafninu „tunnel rats“ og varð óskaplegt mannfall á báða bóga. En áfram vora Viet Congar í göngunum og leifturárásum þeirra linnti ekki. Þegar B-52 sprengjuvél- ar vora látnar sprengja svæðið sundur og saman upp úr 1970 tókst loks að eyðileggja göngin. En það var um seinan, Bandaríkjamenn voru á leið út úr stríðinu og göngin höfðu skilað hlutverki sínu. Víet Congar sem bjuggu í göngunum lifðu við aðstæður sem ímyndunarafl mitt nær ekki að skilja. Mannfall var mikið eins og grafreitur skammt frá ber vott um. Einhvers staðar las ég að af 16 þúsund gangamönnum hafi 10 þús- und látist. Að auki var tala óbreyttra borgara sem stríðsmenn beggja drápu annað hvort fyrir misskilning eða trylling mjög há. Víet Cong lærðu af reynslunni hvernig þeir gætu gert göngin leynileg og að erfitt yrði að finna þau. Hlerar, sem þeir sópuðu yfir laufblöðum eða jarðvegi, eru á hvetju strái. Yfir aðra voru settar tijágreinar, við sumar dyr voru sett- ar sprengjur. Leynileg vatnsleiðsla var byggð frá fljótunum. Þeir leiddu reykinn frá eldhúsunum langar leið- ir og gerðu sérstakan útbúnað svo gas, reykur eða vatn kæmist ekki frá einum stað til annars innan ganganna. Sums staðar voru meira að segja rafmagnsljós. Innréttaðir vora stórir svefnskálar, eldunarhús, fyrirlestrasalir og kennslustofur. Aðeins hluti ganganna hefur ver- ið endurbyggður. Samt fannst mér meira en mikið til um. Þau vinda sig niður og gegnum hæðirnar tugi metra ofan í jörðina. Göngin sjálf era með öllu óupplýst og þar sem þau eru víðust eru þau 1,2 m á hæð og 80 sm breidd milli veggja. Menn geta haft sínar skoðanir á Viet Cong og gerðum þeirra á sín- um tíma, rétt eins og aðrir hafa sínar skoðanir á því sem her Suður- Víetnam og Bandaríkjamenn að- höfðust. En eftir að hafa farið inn í þessi göng sannfærðist ég um eitt; sannfæring þeirra sem við þessar aðstæður bjuggu og háðu sína bar- áttu, hlýtur að hafa verið óbilandi og trú þeirra á að þeir berðust fyr- ir réttum málstað. Við lögðum af stað upp, ég hafði ekki þrek til að leika hetju og fara niður á þriðju hæðina, ég vissi ég réði ekki við hlutverkið. Skóla- krakkarnir fetuðu sig að því er virt- ust áreynslulaust af stað. Ég átti fullt í fangi með mig á leiðinni upp. Ég svalg í mig loftið þegar Dung lyfti hleranum frá og ég sté upp í skjannabirtu dagsins. Dung sópaði laufblöðum yfir hlerann. Engin ummerki sáust. Og þó var handan hlerans heill heim'ur. Vitnisburður um hugvit, snilld og kærleika, grimmd og stríð. Fornleifarannsóknir gefa til kynna að víetnamska þjóðin hafí verið til fyrir þúsundum ára og lifað aðallega í fenjaskógum Rauðár. Goðsögnin segir þá afkom- endur dreka, Lac Long Quan og fjallaálfsins Au Co. Au Co verpti eitt hundrað eggjum og úr þeim sprangu út hundrað manneskjur, fimmtíu þeirra héldu með föður sín- um til strandar, hin urðu um kyrrt í fjöllunum. Víetnamar eru afkom- endur þeirra sem héldu til strand- ar. Drekabörnin komu á fót akur- yrkjuríki í dqlum Rauðár og Svartár í grennd við þar sem nú er Hanoi. Elsti sonurinn stýrði hinu forna konungsríki Van Lang. Þetta var fyrir þijú þúsund áram og Kínveij- ar fóru snemma að heija á ríkið og alla sína tilveru hefur Víetnam orðið að beijast fyrir sjálfstæði sinu til að veijast erlendri ásælni. Kín- veijar náðu völdúm árið 111 f. Kr. og ráðskuðust þar í þúsund ár. Oft voru gerðar tilraunir til að koma þeim frá og konur stóðu fyrir tveim- ur þeim frægustu og kraftmestu þó að þær enduðu með því að fara út um þúfur. Sú fyrri stóð yfir 40-43 e. Kr. er systurnar Trung leiddu baráttuna af hetjuskap og síðan árið 248 er sú tápmikla valkyija Trieu Thi þeysti á sínum hvíta fíl gegn óvinaheijunum. Menn segja sögurnar af djarflegri framgöngu þessara kvenna eins og atburðirnir séu nýliðnir. Það var ekki fyn- en árið 944 að JSIgo Quyen og iieijum hans tókst að reka Kínveija af land- inu. Stöðug ásókn útlendinga hélt áfram og á seinni tímum hafa Víet- namar verið undir franskri og jap- anskri stjórn og um afskipti Banda- ríkjamanna ætti ekki að þurfa að hafa mörg orð. Eftir sigur kommúnistaheijanna 1975 var Víetnam því sem næst lokað land fyrir Vesturlandamönn- um í áratug. Aftur á móti vorú tíð- ar gesta- og ráðgjafakomur frá kommúnistalöndum. Þetta var farið að breytast, ofur hægt þó, áður en hrun kommúnismans hófst fyrir alvöru í Austur-Evrópu og Sovét- ríkjunum. Síðan hefur kannski ekki orðið alger kúvending en nú sækj- ast Víetnamar eftir að fá Vestur- Iandafólk í hóp- eða einstaklings- ferðir og uppbygging er að hefjast til að gera aðstöðu fyrir ferðamenn samkeppnisfæra. Þeir stefna að því að um aldamót komi árlega, um ein milljón ferðamanna. Þessi þjóð er iðjusöm með afbrigðum, verklagin og útsjónarsöm svo það tekst ugg- laust. Víetnamar, sem flúðu eftir að stríðinu lauk, flykkjast nú í heim- sóknir. Sumir ætla að setjast að og þeim er misvei tekið og þeir segja að stjórnvöld líti þá homauga. En það koma fleiri; margir bandarískir hermenn sem gegndu herþjónustu leita nú aftur. Ég hitti þijá þeirra á „Saigon Floating Hotel“ og við sátum saman kvöldstund. Þeir voru hugnanlegir og sjarmerandi menn, miðja vegu milli fertugs og fimm- Gestir boðnir velkomnir. Fínir krakkar með nýárshúfur. Grafreitur þúsunda Víet Conga skammt frá Cuchi. Markaðsmynd frá Ho Chi Minh. tugs. Tveir þeirra særðust og voru fluttir heim nokkrum mánuðum eft- ir þeir komu en einn var í tvö ár. Þeir fyrrnefndu eru. kvæntir sömu konunum og þegar þeir fóru til Víetnam en sá sem lengst var sagði að hjónaband sitt hefði endað með skilnaði nokkram áram eftir hann kom heim. eir reyndu að skýra fyrir mér og sjálfum sér af hveiju þeir hefðu komið aftur og hvað Víetnam hefði verið á sínum tíma. Þeir vora að vitja fortíðar og reyna að sætta sig við hana. „Við áttum það sam- eiginlegt þegar við héldum hingað að við vildum drepa alla komma sem við kæmumst í tæri við. En að öðru leyti vissum við ekkert nema að Víetnam var hinum megin á hnett- inum,“ sagði einn og hinir kinkuðu kolli og bættu við: „Við vissum ekkert um sögu lands né þjóðar, menningu, hugsunarhátt, hefðir og venjur. Við kærðum okkur kollótta, höfðum engan áhuga á því.“ Flestir voru fullir af heift og fyrirfram mótuðum skoðunum. Margir þoldu loftslagið illa og landið víða erfitt yfírferðar enda þeir gjörókunnugir og enginn hafði hugmynd um hvemig ætti að heyja stríð í þessu umhverfi sem var gerólíkt öliu sem þeir höfðu þekkt. Þeir bölvuðu land- inu, annar hver maður virtist vera kommi og þar með svikari og mat lítils fórnir þeirra og frelsishugsjón. Þeir skildu hvorki upp né niður, Víet Congar voru hryðjuverkamenn og kommar og óskiljanlegt að nokk- ur styddi þá. „Við héldum að við værum góðu gæjarnir, og okkur fannst vanþakklætið glæpsamlegt. Fyrir hveija vorum við eiginlega að drepast,“ sagði sá sem lengst var. Flestir Bandaríkjamannanna komu sér fljótlega upp „mini“-eigin- konu. Sjálfsagt er einhvers staðar til tala um hve mörg þúsund börn þeir gátu. Langflestir héldu sig við eina konu og voru ekki að valsa á milli. Gleðikonur í þeim skilningi sem þekkist víða annars staðar voru teljandi á fingrum sér. Þegar menn héldu á braut höfðu margir beðið varanlegt tjón á sálu sinni og þeir áttu í erfíðleikum með að taka upp fyrri lífsháttu, þjáðust af martröð, sektarkennd, ofsóknar- æði og þunglyndi. „Það getur verið að við höfum einhvers staðar í undirmeðvitund- inni dáðst að klókindum og baráttu- þreki Víet Conga,“ sagði einn. „En þá voru þeir að gera okkur vit- lausa. Það var alveg sama hvað við gerðum, þeir voru alltaf feti fram- ar. Margt má skilja seinna. Þeir voru að berjast fyrir sjálfstæði síns lands, þótt við gerðum ekki mikið með þá hugsjón þá. Ef við hefðum þekkt sögu þeirra hefðum við vitað að þeir höfðu verið undirokuð þjóð, fengið sjálfstæði, misstþað, endur- heimt það og ætluðu sér að fá það aftur og sameina landið. Fáeinum árum áður höfðu þeir háð frelsis- stríðið við Frakka. Fæstir okkar óbreyttu kunnu skil á því. Og þeir voru auðvitað á heimavelli. Mórali suður-víetnamska hersins var af- leitur og raunar fylgdu margir Viet Cong á laun. Óraunveraleiki þessa tíma og óhugnaður sló okkur út af laginu. Það varð sálarslítandi til lengdar að lifa lífinu hvern dag eins og hann væri sá síðasti." Sá þeirra sem var lengst átti „mini“-eiginkonu hér. Hinir eignuð- ust vinkonur sem þeir höfðu auð- heyrilega ekki gleymt en hvorugur hefur reynt að fínna þær. Sá þriðji átti eiginkonu heima. A þeim tíma fannst honum hann elska báðar jafnt, hann gat ekki verið án víetnömsku konunnar. Hún gerði honum lífíð ögn bærilegra þegar hann fékk frí frá því að drepa menn. Og hann gat ekki hugsað sér að missa konuna sem beið hans heima og skrifaði honum bréf í hverri viku. „Bréf hennar leyfðu mér að ímynda mér að allt væri eðlilegt. Hún var að segja frá sínu ofurhversdagslega lífi og ég reyndi að vera þátttak- andi í því,“ sagði hann. Hann segir að þannig hafi verið flesta. Víetnömsku_konu rnar héldu í þeim lífínu og sýndu þeim tryggð og ástúð f vitfirringunni miðri. „Það var ekki bara líkam- legt,“ segir hann og styður hönd undir kinn. „Það var að vita af henni og finna þessa óendanlegu blíðu þegar ég kom reiður, kolr- uglaður og hafði séð félaga mína drepna eða særða í kringum mig.“ Hann segist telja að allmargir bandarískir hermenn sem- skráðir eru týndir búi í fullu fjöri í Víet- nam, þeir hafi valið þann kost og og hann hallist að því að sumir þeirra hafí hreinlega þurrkað út fortíð sína sem Ameríkanar. „Mini“-eiginkonan eignaðist barn þeirra, stúlku, um það leyti sem hann fór. Hann langaði að gefa henni loforð um að seinna kæmi hann að sækja þær. Hann segist hafa þjáðst af samviskubiti gagn- vart henni og ekki síður bandarísku eiginkonunni. Hann sendi henni peninga fyrsta árið, en eftir að stríðinu lauk var það ekki mögu- legt. Hann hefur leitað hennar en frétt það eitt að hún hafí flúið sjó- leiðina og hver afdrif hennar urðu veit hann ekki. Hann segir: „Ég býst við að þær séu dánar. Ættingj- amir hafa aldrei heyrt frá henni. Víetnamar sem komust í burt hafa yfirleitt tök á að láta vita af sér. Frá henni hefur ekkert heyrst.“ Hann leit undan og ræskti sig, snýtti sér og hreytti út úr sér: „Það sem ég þarf núna er góð grát- skvetta.“ Hann stóð upp og hraðaði sér að lyftunni. Hann kom ekki aftur niður. Við sátum þögul eftir, ég kláraði kaffí og líkjör og kvaddi, rölti út úr lúxus Fljótandi hótels yfir á Saigon Mini. Allar götur voru fullar af prúð- búnu fólki, drekar og skrímsl döns- uðu, krakkar hlupu um með papp- írshúfur með bandarískum áletrun- um, kínveijar sprengdir og skæða- drífa af marglitum pappírsflyksum spýttist úr þeim. Það var nýárs- kvöld og hátíð í bæ. Nú er að vaxa upp kynslóð í Víetnam sem þekkir ekki stríð nema af frásögnum og bókum. Megi það verða svo.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.