Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 5 herb. ígamla miðbænum Til sölu falleg 5 herb. íbúð á 3. hæð í góðu steinhúsi. Stofa, 4 svefnherb., eldhús og gott baðherb. með sturtu. Nýlegt tvöfalt verksmgler. Nýtt þak. Góð sam- eign. Mikið útsýni. Laus fljótlega. Verð 6,1 millj. Upplýsingar veittar í síma 629041, og hjá Huginn, fasteignamiðlun, Borgartúni 24, sími 625722. 011 RH 01 07H L*RUS Þl VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri L I IQUhlw/v KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteigimasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Rétt vestan borgarmarkanna Glæsilegt raðhús á vinsælum stað. Húsið er á tveimur hæðum með innb. bílskúr um 280 fm. Fullb. u. tréverk. Langtímalán um kr. 8,0 millj. fylgir. Ýmiskonar eignaskipti möguleg. Fyrir smið eða laghentan í suðurenda á 3. hæð við Álftamýri 4ra herb. íb. 98,5 fm nettó. Tvenn- ar svalir. Vélaþvottahús. Góður bílskúr. Mjög gott verð. Úrvalsíbúð með sérinngangi 3ja herb. íb. tæpir 70 fm á 1. hæð við Hraunbæ. Allar innréttingar og tæki af vönduðustu gerð. Vélaþvottahús og gott gufubað í sam- eign. Húsið er nýmálað að utan. Glæsilegt endaraðhús - eignaskipti Vel byggt raðhús um 240 fm á þremur hæðum 6-7 svefnherb. Tvenn- ar svalir. Séríbúð má gera á 1. hæð. Stór og góður bílskúr. Eigna- skipti möguleg. Stór og góð með langtímaláni Sólrík 3ja herb. íbúð 86,4 fm nettó á 3. hæð við Rofabæ. Sólsvalir. Ágæt nýmáluð sameign. Mikil og góð lán að meirihluta 40 ára húsnlán. Skammt frá Hlemmtorgi Stór og góð 2ja herb. kjib. í reisulegu steinhúsi. Með lítilli breytingu má gera íb. 3ja herb. Sanngjarnt verð. í Vogunum - hagkvæm skipti Vel byggt og vel með farið steinhús, ein hæð, 165 fm, auk bílsk. 5 svefnherb., 2 stofur m.m. Skrúðgarður. Eignaskipti möguleg. Við Hulduland - tilboð óskast 5 herb. íb. á 2. hæð 120 fm. Sérþvottahús. Bilskúr fylgir. Yfirstand- andi endurbætur utanhúss. Útsýnisstaður. • • • Opið í dag kl. 10-16. Komið á skrifst. og fáið teikningar, söluskrá og allar nánari upplýsingar. ALMENNA fASTEIGHASAlAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 ÓÐAL fyrirtækjasala Skeifunni 11A, 3. hæð, ® 682600 Sölumaður: Magnús Jóhannsson, lögmaður: Sigurður Sigurjónsson hrl. Seljendur athugið! Vegna endurnýjunar í söluskrá biðjum við þá, sem eru með fyrirtæki á skrá hjá okkur, að hafa samband sem allra fyrst. Við seljum þitt fyrirtæki fljótt og vel. Kaupendur athugið! Höfum á skrá mörg mjög góð fyrirtæki, bæði stór og smá. Látið okkur finna rétta fyrirtækið fyrir ykkur. Við þjónum ykkur með ánægju. Matvöruverslun Vorum að fá i sölu mjög öfluga matvöruverslun i góðu hverfi. Mikil velta. Söluturn - myndbönd Vorum að fá í einkasölu sölu- turn og myndbandaleigu í stóru ibhverfi með mikla veltu. Sportvöruverslun Vorum aðfá i einkasölu sport- vöruverslun íverslunarkjama. Sólbaösstofa Erum með i sölu fallega sól- baösstofu miðsvæðis í Rvík. Þægilegur rekstur. Matsölustaður Vorum að fá í einkasölu veit- ingahús og „pub“. Staðurinn er einn sá huggulegasti á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Miklir möguieíkar. Efnalaug Nýleg efnalaug til sölu í einu af úthverfum Rvikur. Fyrirtæki á uppleið. Sýnishorn úr söluskrá • Söluturnar • Myndbandaleigur. • Bflasölur. • Vínveitingahús. 9 Matsölustaður. • Matvöruverslanir. • Tískufataverslanir. • Fiskbúðir. • Sólbaðsststofur. • Samlokugerð. Vantar - vantar Höfum kaupendur að heild- sölum, matvælaframleiðslu- fyrirtækjum og öðrum góðum og sérhæfðum fyrirtækjum. Opið mánudag til föstudags frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-15 Metsölublaó á hverjum degi! íslensku barnabókaverðlaunin: Benjamín dúfa verðlaunasaga Morgunblaðið/Þorkell Ármann Kr. Einarsson afhendir Friðriki Erlingssyni verðlaunaféð. Aftar sést Olafur Ragnarsson formaður stjórnar Verðlaunasjóðsins. FRIÐRIKI Erlingssyni, þrítugum Reykvíkingi, voru veitt Islensku barnabókaverðlaunin 1992 við hátíðlega athöfn í Laugarnes- skóia í fyrradag. Við verðlauna- afhendinguna sungu nemendur skólans og félagar úr skólalúðra- sveitinni léku nokkur lög. Verð- launasagan ber heitið Benjamín dúfa og var hún valin úr 30 inn- sendum handritum. Verðlaunin eru nú afhent í 7. sinn. Ólafur Ragnarsson, formaður stjórnar Verðlaunasjóðsins, afhenti Friðriki fyrsta eintak bókarinnar og skrautritað viðurkenningarskjal sjóðsins. Þar segir dómnefnd að Benjamín dúfa sé nýstárleg og áhrifamikil saga úr íslenskum veru- leika sem jafnframt sé spennandi og þaulhugsuð af hálfu höfundar. Hann dragi persónur sínar skýrum dráttum, komi átakamikiu efni tii skila af einstakri nærfærni og tak- ist að skapa einkar trúverðuga og læsilega sögu fyrir börn og ungl- inga. Ármann Kr. Einarsson af- henti Fnðriki 200.000 kr. verðlaun- afé og Ólafur G. Einarsson, mennt- amálaráðherra, ávarpaði viðstadda og óskaði verðlaunahöfundinum til hamingju með sigurinn. Til Islensku barnabókaverðlaun- anna var stofnað árið 1985 en að þeim standa bókaforlagið Vaka- Helgafell, fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnabókaráðið, ís- landsdeild IBBY-samtakanna og Barnavinafélagið Sumargjöf. Friðrik Erlingsson, höfundur verðlaunasögunnar að þessu sinni, hlaut viðurkenningu Námsgagna- stofnunar fyrir bókina Afi minn í sveitinni árið 1987 og hefur auk M.a. verður tískusýning frá „Stórum stelpum", dans og söngur og snyrtivörugjafir verða á boðstól- um og happdrættisvinningar. Verði þess fengið styrk frá stofnuninni til að skrifa framhald af henni. Að öðru leyti hefur hann ekki látið að sér kveða á ritvellinum. hagnaður af mæðradagsskemmtun- inni, rennur hann til stuðnings Soff- íu Hansen, sem berst fyrir því að fá dætur sínar heim frá Tyrklandi. Mæðradagsskemmtun til styrktar Soffíu Hansen Mæðradagsskemmtun verður haldin sunnudaginn 10. maí á Hótel ís- landi og opnar húsið klukkan 14, en skemmtunin hefst klukkan 15. Kynnir verður Rósa Ingólfsdóttir, og dagskrá er sögð fjöreytt í frétta- tilkynningu, sem Félag íslenskra snyrtisérfræðinga hefur sent frá sér. ÍQaisDsS dudíÐ Umsjónarmaður Gísli Jónsson 639. þáttur Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli miðlar okkur enn af fróðleiksbrunni sínum: „Heill og sæll Gísli! Fáein orð okkar á milli. Ég held að það sé málvenja í Grinda- vík að tala um Þorbjörninn. Menn vinna í Þorbirninum. Fóst- urdóttir mín er í Grindavík með fjölskyldu sína svo að ég heyri stundum hvernig þar er talað. Svo er það barðinn og táin. Á mínum bæ urðu lepparnir tii eins og Kristín [Gunnarsdóttir] lýsir fyrir þér. Þeir voru bara nefndir leppar, hvorki íleppar né illeppar. Það sem fyrst var pijónað var kallað miðja eða stykki. Svo voru prjónaðir endar sem Kristín nefn- ir rassa. Síðar var heklað utan um leppinn, tvær umferðir held ég venjulega. Þetta er mér minnis- stætt síðan ég var að læra að pijóna. Það gekk víst í basli og svo kvað faðir minn: Dugir lítt við leppapijónið litli karlinn, mörg ein lykkjan finnst þar fallin. Kona mín er frá Sandhaugum í Bárðardal. Þar var talað um barða. Og þar var venja að fitja upp á öðrum endanum, aukið í eftir þörfum og tekið úr þegar komið var á hinn endann. Hún telur að venja hafi verið að hafa leppinn eða barðann mjórri undir ilinni en hælnum og táberginu. Þá virðist mér eðlíiegt að hællinn hafi verið snubbóttari en táin. Og hafi verið venja að fitja upp á hælnum var verkinu lokið með því að pijóna tána á barðann. Bestu kveðjur." Og hér gæti þá verið komin skýringin á því, hvað myndhverfa orðtakið að prjóna tána á (í) barðann merkti. Umsjónarmaður breytti letri nokkurra orða í bréfi Halldórs. ★ Sigríður Rósa Kristinsdóttir á Eskifirði, ættuð af austurströnd Eyjafjarðar, „austurlandinu", eins og við Út-Eyfirðingar kölluðum það, hringdi til mín vegna spurn- ingar minnar um að „pijóna tána á (í) barðann". Hún þekkir vel orðið barði (=íleppur), og í henn- ar ungdæmi var hvort tveggja, hæll og tá, pijónað á barðann í eiginlegum skilningi. Hana rámar í að móðir hennar hafi sagt að nú væri kominn tími til (eða ekki úrhættis) að pijóna tána á barð- ann, en segist ekki átta sig á hvað þetta hafi táknað í óeigin- legri merkingu, það er sem mynd- hverft orðtak. Sigríður Rósa var mjög óánægð með málfar í ríkisútvarpinu, rás eitt, og hvernig myndi þá hið visna tréð, ef svo væri um það græna? ★ Þistill kvað (sjá 634. þátt): Fritz Leutschner aus Laibach, ein Krieger, lachelnd ritt Galopp auf Tiger. Als sie flitzten von hinnen war Fritz schon darinnen und teufelisch grinste der Tiger. Beygingafræðin hefur nú um langt skeið þokað hér í þáttunum, og ég þykist sjá að við svo búið megi ekki standa. í fyrirsögn að fréttatilkynningu hér í blaðinu á dögunum stóð ómyndin „silfur- spónar" í staðinn fyrir „silfur- spænir“. Ég ætla þó ekki að koma að þessum beygingaflokki alveg strax, heldur taka i-stofna næst, og halda þannig hefðbundinni röð. í i-stofnum bregður svo við, að þar eru bæði karlkyns- og kvenkynsorð. Ég var víst löngu búinn að segja, að öll sterk hvor- ugkynsorð væru a-stofnar nema fé. Nú, nú. I-stofnar þekkjast á því, að fleirtalan í nefnifalli endar á ir í báðum kynjum. Munur kynj- anna kemur hins vegar strax fram í þolfalli fleirtölu. Þá heldur kven- kynið r-inu, en karlkynið missir það. Á þessu hefur margur nú- tímamaður ruglast. Ekki veit ég hversu oft til dæmis ég hef séð og heyrt Flugleiðir gert karl- kyns, rétt eins og blessaðir menn- irnir, sem þar vinna, væru orðnir „flugleiðir", það er leiðir á því að fljúga. En geymum þetta. Lítum heldur á karlkynsorð í i-stofna- flokki. Þau geta verið svolítið lúmsk. Eins og kunnugt er, þarf mikla hæfileika til að skipta öllu í þrennt, og nú ætla ég að reyna að greina karlkyns i-stofna niður í þrjá flokka. Hins vegar sniðgeng ég í þetta sinn þann vanda, hve- nær i er í endingu þgf. et. þess- ara orða og hvenær ekki. Umsjón- armaður hefur fyrr haft nokkra tilburði að glíma við þann vanda. En þrískiptingin verður þannig: 1) Þau orð sem enda á s í eignar- falli eintölu, dæmi gestur. 2) Þau sem enda á ar í ef. et., dæmi vinur og 3) þau sem fá j-inn- skeyti í þgf. ft., til dæmis vegg- ur. Slík orð eru vís til að enda ýmist á s eða ar í ef. et. Sjáum þá beyginguna í heild: Gestur - gest - gesti - gests; gestir - gesti - gestum - gesta. Vinur - vin - vin(i) - vinar; vinir - vini - vinum - vina. Veggur - vegg - vegg - veggjar (veggs); vegg- ir - veggi - veggjum - veggja. Eins og gestur beygjast til dæmis: bolur, brestur, bugur, glæpur, grarnur (=konungur), grípur, grís, guð, halur (=mað- ur), hamur, hvalur, hvellur, kippur, krytur, (sbr. nágranna- krytur), lýður, nár (=lík), pyttur, smiður, svanur og valur. Eins og vinur beygjast til dæm- is: bragur, bur (=sonur), burð- ur, fundur, hlutur, hugur, mat- ur, sauður og staður. Eins og veggur beygjast til dæmis: beður (=hvíla), bekkur, belgur, berserkur, byr, bær, drengur, drykkur, gnýr, her, hryggur, hylur, kækur, leggur, lækur, mergur, seggur, styrk- ur, vængur, ylur og þefur. Sýnist nú umsjómarmanni ráð að geyma kvenkynsorð í i-stofna- flokki. ★ P.s. í síðasta þáfetti varð rímorð „rí-morð“. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.