Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 47 MITT EIGIÐ IDAHO B'VER phoenix ★ ★ ★ ★ „Mynd sem fólk á að sjá. mynd og líka frumleg, vel gerð og hefur það umfram flestar myndir í bíó, að geta komið fólki á óvart." - PRJESSAN ★ ★★ - MBL. EFTIR LEIKSTJÓRA „DRUGSTORE COWBOY“ Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. - Bönnuð innan 16 ára. VIGHOFÐI Stórmyndin með Robert De Niro og Nick Nolte. Sýnd í B-sal kl. 5, 8.50 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára. HETJUR HÁLOFTANNA Fjörug og skemmtileg mynd um leikara sem þarf að læra þotuflug. Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11. 1 1 fagtnclfl Metsölublaó á hvetjum degi! Þráskák Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Refskák — „Knight Mo- ves“. Leikstjóri Carl Schen- kel. Aðalleikendur Chri- stopher Lambert, Diane Lane, Tom Skerritt, Daniel Baldwin. Banda- rísk. Sovereign Films 1992. Keppni á áskorenda- móti fyrir heimsmeistara- einvígið í skák stendur sem hæst er stórmeistar- inn Lambért, sigurstrang- legasti keppandinn, verð- ur fyrir heldur óskemmti- legri truflun. Ung og fög- ur stúlka, aðstoðarmaður hans, finnst myrt og ber- ast böndin að Lambert. Morðinginn lætur ekki þar við sitja heldur fjölgar fórnarlömbum hans með degi hverjum og eru þau jafnan kvennablómi hinn mesti. Lögregluniennirnir Skerritt og Baldwin gruna skáksnillinginn um græsku og kemur til sög- unnar fríðleikskonan og sálfræðingurinn Lane sem fær það hlutverk að fylgj- ast með Lambert. Morð- inginn, sem bersýnilega lítur á drápin sem e.k. skákkeppni, er í daglegu símasambandi við Lam- bert og gefur honum ill- skiljanlegar ábendingar um næsta ódæði og upp- hefst nú harla óhugnanleg þráskák. Skákheimurimm er óvenjulegur bakgrunnur kvikmynda en gæti hins vegar verið hinn ákjósan- legasti rammi utanum þriller sem þennan. Höf- undar leggja þó furðu lítið uppúr því spennuþrungna andrúmslofti sem fylgir stórmótum og reyndar skilst manni að Lambert tefli eins og engill og sé stikkfrí fyrir álagi voða- verkanna. Kúnstugt það. En þrátt fyrir ófáa ann- marka — því var Lambert ekki undir stöðugri gæslu o.s.frv., gengur Refskák prýðilega upp sem saka- málamynd af gerðinni „hver-er-morðinginn“, allt til lokakaflans þar sem leikstjórinn skýtur hressi- lega yfir markið. Þegar dulunni hefur verið svipt af morðingjanum — sem . kemur vissulega á óvart en er ódýrari lausn en þær getgátur sem höfundarnir hafa flækt áhorfandann í fram að því — reynir hann að teygja lopann sem mest hann má í klisjukenndum bardaga upp á líf og dauða. Það er að vísu í anda taflmennskunnar en allar tilvísanir í þá göfugu íþrótt eru næsta ómark- vissar yfir höfuð. Schenkel er óvenjulegur leikstjóri sem oft tekst að skapa magnað andrúmsloft en því miður á hann það til að láta stflinn ganga fyrir öllu öðru, líkt og starfsyst- ir hans, Kathryn Bigelow (Blue Steel). Ver gengur honum að fá vitrænan leik út úr skondnum leikhópn- um, enda spurning hvort honum sé til að dreifa. Lane stendur sig þó ljóm- andi vel sem endranær og þrátt fyrir ýmsa ann- marka þá lukkast Refskák sem æsileg afþreying allt til lokamínútanna. Charlton, Orton og Horton Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Bíóhöllin: Skellum skuldinni á vikapiltinn - „Blame it on the Bellboy" Leiksljóri og handritshöfundur Mark Herman. Aðalleikendur Dudley Moore, Bryan Brown, Richard Grif- fiths, Andreas Katsulas, Patsy Kensit, Alison Ste- adman, Penelope Wil- ton, Nronson Pincliot. Bandarísk. Hollywood Pictures 1992. Hér er á ferðinni ein þeirra gamanmynda sem byggja á hinum snúnustu uppákomum og flókinni atburðarás þar sem mis- tök og ruglingur skiptast á í framvindunni. Kenna engilsaxar þær við screw- ball og rnundi það æra óstöðugan að reyna að lýsa flækjunni. Sögusviðið er Feneyjar og persónurn- ar nokkrir hótelgesta þar að ógleymdum vikapiltin- um. Enskan hans er ekki uppá marga fiska enda gerir hann sig sekan um hinn alvarlegasta rugling á gestunum Charlton, Or- ton og Horton. Því einn (Brown) drepur fyrir pen- inga, annar giftur fitu- keppur (Griffiths) í við- haldsleit og sá þriðji guð- svoluð undirlægja (Moore) í snattferð fyrir húsbónd- ann. Að sjálfsögðu verður ekki komist hjá því að upp komi hinar spaugilegustu kringumstæður í öllu þessu húllumhæi og per- sónurnar flestar spaugi- legar og aldeilis prýðilega leiknar. Það sem á vantar er hinsvegar bragðmeira og einfaldlega fyndnara handrit. Það glittir oft í góðan breskan húmor og fléttan í sjálfu sér síst lak- ari en í mörgum myndum af þessu sauðarhúsi, svo- sem Oscar svo nærtækt dæmi sé tekið. Moore, Katsulas og einkum Grif- fiths hitta naglann á höf- uðið í farsaleiknum og Kensit er sannkallað augnakonfekt. Léttleikinn er fyrir hendi en hlátras- köllin vantar svo úr verður fljótgleymd meðalmynd. En að líkindum er óhætt að leggja nafn handrits- höfundarins/leikstjórans Hermans á minnið sem fæst hér við sitt byijenda- verk. REGNBOGINN SÍMI: 19000 Safnahúsið á Sauðárkróki: Selabyssa á sýningu Saudárkróki. NÝSTÁRLEG sýning var í Safnahúsinu á Sauðár- króki dagana 11. og 12. apríl. Þar voru sýndar yfir hundrað byssur af ýmsum stærðum og gerðum og var merkasti gripurinn tví- mælalaust hin fræga sela- byssa Jóns Ósmanns ferju- manns sem lengst af starf- aði við Vesturós Héraðs- vatna og greiddi mönnum leið yfir þetta mesta vatns- fall héraðsins. Er byssa Jóns í eigu Byggðasafnsins í Glaumbæ og varðveitt þar en safnið lánaði hana góðfúslega á sýninguna. Það er Skotfélagið Ós- mann sem stóð fyrir sýning- unni í Safnahúsinu en félag- ið er áhugamannafélag um skotvopn og skotveiðar. Fé- lagið var stofnað í maí ’91 og er þetta stærsta og viða- mesta verkefni félagsins til þessa. í samtali við Jón Pálmason og Sigurð Guðjónsson sem mest unnu að undirbúningi sýningarinnar kom fram að mönnum hefði gefist kostur á að skoða að minnsta kosti tólf framhlaðninga og sex til sjö stærri selabyssur auk ýmissa nýrri og smærri skot- vopna. Sögðu þeir Jón að auk selabyssu Jóns Ósmanns sem er að stærð núrner fjögur, hefði verið bakhlaðin byssa Morgunblaðið/Björn Bjömsson Jón Pálmason t.h. og Sigurður Guðjónsson með tvær af byssum Jóns Ósmanns. einnig númer fjögur sem sem Jón hafði keypt skömmu fyr- ir dauða sinn en sú byssa ber nafnið Rimmugýgur og var nefnd í selsblóði. Þeir Sigurður og Jón sögðu að sýning þessi hefði vonandi verið upphafið að því að félagið safnaði saman og sýndi fleiri byssur og væri meiningin að efna til sérsýninga t.d. á framhlaðn- ingum eða tvíhleypum. Félagar í Skotfélaginu Ósmann eru nú um þijátíu og formaður er Smári Har- aldsson. - BB. ■ SVIFDREKAFÉLAG Reykjavíkur verður með opið hús í félagsheimili sínu milli klukkan 11 og 18 sunnudaginn 10. maí nk. Svifdrekafélag Reykjavík- ur (SDFR) verður einnig með firmakeppni sem verður í nágrenni félagsheimilisins. Keppnin verður á Úlfarsfelli eða Hafrafelli (háð veðri). Keppt verður í marklendingu og í beinu framhaldi lending- ar er drukkið Selzer í kapp við tímann. Búast má við miklum tilþrifum keppenda. Firmakeppnin hefst um kl. 12.30 á sunnudaginn. Að firmakeppni lokinni verða svifdrekar í eigu félags- manna sýndir og gefst kost- ur á að skoða allar kynslóðir svifdreka einnig verða sýndir vélknúnir svifdrekar. I fé- lagsheimilinu verður kaffi og Selzer á boðstólum og geta þeir sem áhuga hafa sest og horft á myndbönd með svif- drekamyndum. Einnig er hægt að ræða við flugmenn og kennara félagsins um svifdrekaflug. Námskeið í svifdrekaflugi verður haldið í maí. Það hefst föstudaginn 15. maí 1992 kl. 20 með kynnmgarfundi. Svifdreka- flug er kennt á námskeiði á vegum SDFR og tekur um eina viku að ná 1. stigi í svifdrekaflugi. Þeir sem áhuga hafa geia fengið nán- ari upplýsingar um nám- skeiðið og hvernig hægt er að læra svifdrekaflug á opna húsinu á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.