Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1992 Rök gegn aðild íslands að EB Þriðji hluti eftir Halldór Guð- jónsson Þriðju rök Gunnars fyrir aðild að EB voru þessi: 3. í þriðju röksemd Gunnars felst það greinilega að verulegir ágallar séu á stjórnmálum okkar. Miðstýring er hér mikil og fijálsræði lítið. Aðild að EB er ætlað að bæta úr þessu. Þarna er augljóslega um að ræða stjórnmálalega ágalla. Það eru stjórnmál okkar sem hafa ráðið mið- stýringunni og ófrelsinu. Ætlunin er þá að aðild að EB breyti ekki aðeins til betri vegar einstökum ákvörðunum stjórnmálalegs eðlis heldur einnig að hún breyti stjórnar- háttum og stjórnmálunum sjálfum. Þarna er í fyrsta lagi ljóst að um raunverulegt framsal fullveldis í hefðbundnum skilningi er að ræða. En í öðru lagi felst í þessu það að íslensk stjórnmál og stjórnvöld hafi reynst illa og þá að þau hafi ekki megnað að skoða og greina og ræða mál og skera úr málum með þeirri skynsemi sem Evrópumönnum er lagin. Aðild að EB á sem sé ekki aðeins að færa okkur skynsamlegar ákvarðanir í einstökum efnum held- ur einnig almennan aga í stjórnmála- lífi okkar yfír höfuð með sama hætti reyndar og aðildin á í fyrstu röksemd Gunnars að koma skynsamlegri reglu og aga á efnahagslíf okkar í heild. Þarna hljóta að vakna strax efa- semdir um að þau stjórnmál sem við búum við geti tekið í eitt skipti svo afdrifaríka ákvörðun sem þá að ganga í EB. Ef stjórnmál okkar hafa búið okkur óhagkvæma mið- stýringu og illbærilegt ófrelsi þá er það vegna þess að þau hafa ekki megnað að skoða og greina nánustu aðstæður og skilyrði samfélags okk- ar. Það verður sem sé að fría stjórn- málum okkar vits fremur en gruna þau um græsku. En það er á viti stjórnmálanna sem allur þungi verð- ur hvíla við svo einstæða og sérstaka ákvörðun sem innganga í EB er. Ef það er ætlunin að aðild að EB verði til þess að laga stjómmál okk- ar erum við í raun að biðja um að aðrir komi vitinu fyrir okkur í stjórn- málalegum efnum í heild og þá í öllum málefnum sem stjórnmál okk- ar taka til en það eru öll efni sem okkur eru sameiginleg. Eru nokkrar líkur á því að stjórnmál sem hafa verið svo óviturleg að búa okkur alvarlegt ófrelsi og þrúgandi mið- stýringu geti af viti beðið aðra að koma vitinu fyrir sig? Er líklegt að slík stjómmál geti farið að því viti sem þannig er komið fyrir þau? Svörin við þessum spurningum blasa líklega við í því að núverandi ríkisstjórn virðist helst líta á umræðu um EB sem dagskrármál. Þegar ráðherrar segja að aðild að EB sé ekki á dagskrá eiga þeir vafalaust fyrst og fremst við það að stjórnin hafi ekki tekið ákvörðun um að sækja um aðild og hafi enn engin áform um að taka slíka ákvörðun. En í því að leggja stöðugt áherslu á þessi dagskrármál sín kemur stjórnin sér hjá að skoða málin sjálf og hindrar aðra í að ræða þau. Málin sjálf, þ.e. hver áhrif þátttöku í EB yrðu og hvernig við þeim mætti bregðast, em þó að stofni til hin sömu og þau mál sem ráðast af aðild að EES sem augljóslega er á dagskrá. Eins og mál annarra EFTA-landa hafa þróast virðist „Ef það er ætlunin að aðild að EB verði til þess að laga stjórnmál okkar erum við í raun að biðja um að aðrir komi vitinu fyrir okkur í sfj órnmálalegum efn- um í heild og þá í öllum málefnum sem stjórn- mál okkar taka til en það eru öll efni sem okkur eru sameigin- leg.“ samningurinn um ÉES að minnsta kosti leiða til þess að við verðum í fyrirsjáanlegri framtíð að taka ákvörðun um það hvort við viljum sækja eftir aðild að EB ef hann gerir þá ekki óhjákvæmilegt að við reynum að fylgja grönnum okkar eins og venjulega og eltum þá inn í EB. Með því að neita að ræða efnis- atriði aðildar að EB hafna stjórnvöld því að gera það eina skynsamlega sem við getum gert nú þegar ekki er enn kominn tími til ákvarðana sem þó blasa við í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Ef það er rétt að þróun EB muni hvernig svo sem fer ráða mestu um þau skilyrði sem við munum búa við í framtíðinni — og sannfæringin um þetta er undirstaða jafnvel aðild- arinnar að EES — þá er reyndar nauðsyn að ræða EB ítarlega alveg án tillits til þess hvort við hyggj- umst sækja um aðild eða ekki. Það gegnir augljóslega allt öðru máli að taka smátt og smátt ákvarð- anir um að áðlagast siðum og fyrir- ÞAÐ ER UM HELGINA sem er opið hús hjá okkur í Innval laugardag kl. 11-16 og sunnudag kl. 13-16 PROFIL einingareldhús -15% verðlækkun til 15. maf. PROFIL innréttingaeiningar eru á lægra verði en þú átt að venjast, og það er ekkert slakað á kröfum um gæði. BIGA sérsmíðaðar gæðainnréttingar í eldhús og á bað. 600 litir og óteljandi valkostir. Ekkert eidhús er eins og baðinn- réttingarnar fjölbreyttar og óvenjulegar. GEBA þýskar gæðainnréttingar búnar öllum hugsanlegum þægindum ÍSLANDSSTIGINN frá sænsku stigaverksmiðjunni Trátrappor ab hefur slegið f gegn á íslandi. Hagastætt verð og fjölbreytt úrval. Hver stigi er framleiddur eftir teikningu. 125 íslandsstigar hafa nú selst. LUXLINE nýja fataskápalínan okkar er einstök. Allir skápar eru sér- smíðaðir. Hurðir eru á nýjum hjólabrautum og eru sniðnar eftir þfnum málum. Margvfslegt útlit m.a. speglar. HÖNNUNARVERÐLAUN Hannið ykkar eigin BIGA baðinnréttingu og vinnið BLOMBERG HMN227 örbylgjuofn að verðmæti kr. 31.500.oo Vinningshafí verður valinn úr hópi kaupenda þann 31. maf n.k. SERVERSLUN MEÐINNRETTINGAR OG STIGA NÝBÝLAVEGI 12, SÍMI 44011 myndum annarra eftir því sem til- efni og tækifæri gefast. Vafalaust er ýmislegt í reglum og siðum EB á einstökum sviðum og í einstökum málum sem við gætum vel sætt okk- ur við eða jafnvel tekið fegins hendi. Við að skoða slík efni eitt af öðru og taka afstöðu til þeirra hvers um sig veittum við þeim vonandi einmitt þess konar athygli sem réttarríki er skylt að veita ákvörðunum og lög- gjöf. Jafnvel þótt fyrirfram væri gefið að við felldum okkur í einstök- um efnum undir fyrirmyndir og ákvarðanir EB gæfi sjálfstæð um- fjöllun okkar um þær fótfestu fyrir raunverulegri framkvæmd hverju sinni og leiddi þá beinna en annars til raunverulegrar fylgispektar við það sem ákveðið væri. Það er einkum í slíkri nákvæmri umfjöllun um skyn- samleg og skynsamlega afmörkuð efni sem helst væri að vænta lífvæn- legra úrbóta í stjórnmálalífi okkar. Þannig getum við haft Evrópumenn og ákvarðanir þeirra til fyrirmyndar ekki aðeins í þeim einstökum efnum sem fyrir liggja hveiju sinni heldur einnig í almennum aðferðum og sjónarhornum sem almennt leiða til skynsamlegs árangurs. Þriðja röksemd Gunnars er greini- lega þungur áfellisdómur um stjórn- mál okkar en hún er einnig nokkuð mótsagnakennd. Aðild að EB er samkvæmt henni ætlað að ráða bót á miðstýringu og ófrelsi. En EB er reyndar sjálft mjög miðstýrt og vald þess breytir ákvörðunum í aðildaríkj- unum og reyndar einnig í ríkjum sem hafa viðskipti við EB en standa utan þess. Það er einmitt þetta síðasta sem veldur því að það lítur þannig út fyrir okkur að við verðum beitt nauðung ef við stöndum utan EB. Þannig er ljóst að ákvarðanir EB skerða frelsj okkar jafnvel þótt við stöndum utan þess. Aðild okkar að EB breytir líklega litlu um flestar ákvarðanir þess þannig að af ákvörð- ununum hlytist nákvæmlega sama frelsisskerðing og hlýst ef við stönd- um utan þess eða enn meiri. Aðild að EB virðist þannig heldur líkleg til að auka en minnka miðstýringu og ófrelsi. En miðstýring út af fyrir sig er ef til vill ekki svo slæm. Ef yfirhöfuð er þörf samræmingar, samvinnu og samstöðu er eitthvert miðstjórnar- vald óhjákvæmilegt. Það sem veldur ágöllum miðstýringar er ekki það eitt að stjómað er frá miðju heldur það að miðstjórnarvaldið hefur til- hneigingu til að einangrast og fjar- lægast menn og málefni á þeim vett- vangi sem það tekur til. Það er sem sé tilhneiging til Qarstýringar og firringar manna og málefna sem gerir miðstýringu óhagkvæma og illþolandi og veldur því ófrelsi að menn á vettvangi verða að lúta fyrir- mælum sem þeir sjá enga skynsemi í og gætu aldrei átt hlutdeild í að gefa. Það er greinilegt að hættan á og af fjarstýringu og firringu eykst með fjarlægð bæði í rúmi og tíma og enn í skipulagi eða fjölda milliliða í stjórnun. Full aðild að EB færir ákvörðun enn fjær okkur í tíma, rúmi og stjórnskipulagi en stjórnvöld okkar sjálfra hafa gert. Það eru meira að segja allar likur á að aðild að EB færi okkar eigin stjómvöld íjær okkur en þau eru nú. Full aðild að EB krefðist þátttöku Halldór Guðjónsson stjórnvalda okkar í störfum stofnana EB og sú þátttaka drægi án efa til sín mikið af athygli og starfskröftum stjórnvalda og þau hefðu að sama skapi minni áhuga og krafta til að sinna innanlandsmálum. Stjórnvöld okkar hefðu trúlega tilhneigingu til að fella innanlandsmál undir sjónar- mið stjórnmálaþátttöku sinnar í EB. Ferðakostnaður ríkisstjórnarinnar ber nú þegar vott um hve nærtækt þetta er. Samskipti stjórnmála- manna okkar við erlenda valdamenn eru þegar orðin þáttur í lýðhylli þeirra hér heima og efni til kjörfylg- is. Full þátttaka í öllum störfum EB gæti vel valdið margföldun á umsvif- um æðstu stjórnvalda okkar og firrt þau okkur einfadlega vegna atork- unnar sem í það færi og vegna fjar- vista ráðamanna. Það sem skiptir máli um kosti og ókosti miðstýringar og fjarstýringar er greinilegt hve vel valdinu í miðj- unni tekst úr fjarlægð að skoða og greina mál á vettvangi og koma ákvörðunum fram þar. Það nægir ekki að miðstjórnin hafi getu til að vinna úr málum sem berast til henn- ar heldur verður hún að hafa trygg- ingu fyrir því að leita eftir því að mál berist til hennar til úrvinnslu. Verðum við aðilar að EB verða það stjórnvöld okkar sem bera boð frá okkar vettvangi til ákvörðunar stofnana EB. Það verður sem sé á valdi okkar eigin stjórnvalda hvað af málum okkar verður á dagskrá hjá EB og þá þannig að almenning- ur hér heima hefur litla möguleika til að fylgjast með dagskránni og enga möguleika til að hafa áhrif á hana nema gegnum stjórnvöld hér. En eins og áður var getið telja stjórn- völd hér dagskrármál vera alfarið sitt ákvörðunarefni. Þegar stjórnvöld hér segja að mál sé ekki á dagskrá þá er það ekki á dagskrá og stjórn- völd loka eyrunum fyrir því sem umbjóðendur þeirra hafa að segja. Þegar stjórnvöld okkar hafa tekið sér bólfestu í Brussel þurfa þau ekki einu sinni að loka eyrunum. Æmt Reykvíkinga eða Húsvíkinga heyrist alls ekki til Brussel. Núverandi mið- stýring hér og ófrelsi stafar af því að þetta æmt virðist ekki einu sinni heyrast við Lækjartorg og Austur- völl. Ef stjórnvöld heyra orð almenn- ings þá er fulljóst að þau eru ráðin í að hafa þau að engu. Höfundur er dósent viðHáskóla Islands. Dansverkið Færeyskt ferða- tívolí frumsýnt í Tjarnarbíói FRUMSÝNT verður í Tjarnar- bíói Færeyskt ferðatívolí sem er samheiti yfir þijú dansverk eftir þrjá íslenska danshöfunda. Það er Iistdanshópurinn Uppspuni sem stendur að sýningunni en hann samanstendur af þremur íslenskum dönsurum og danshöf- undum, Lilju Ivarsdóttur, Katrínu Ólafsdóttur og Mörtu Rúnarsdótt- ur, en alls koma fram fimm dans- arar í sýningunni. Færeyskt ferðatívolí verður sýnt alls fímm sinnum. Frumsýning eins og áður segir sunnudaginn 10. maí en önnur sýning verður fimmtudag- inn 14. maí, síðan föstudaginn 15. maí, laugardaginn 16. maí og loka- sýningverður sunnudaginn 17. maí. Sýningarnar hefjast allar kl. 20.30. 1' I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.