Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 31
U\M MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 31 Aðalfundur Rastar: Bændur ættu að leita réttar síns Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit. ROST, Samtök um eflingu landbúnaðar og byggðar í landinu hélt fyrsta eiginlega aðalfund sinn í Laugaborg síðastliðinn sunnudag. Norðurland: Hafnir sameinast um mengunarvamimar Morgunblaðið/Rúnar Þór Starfsmenn norðlenskra hafna kynntu sér í gær hvernig fást á við mengun í sjó af völdum olíu og var farið með varðskipinu Ægi út á Pollinn þar sem sýnd var notkun flotgirðinga. HAFNIRNAR á Norðurlandi munu í sameiningu kaupa meng- unarvarnarbúnað, sem gert er ráð fyrir að kosti um 10 milljónir króna. Fljótlega verður farið að leita tilboða í búnaðinn og er gert ráð fyrir að hann verði tilbú- inn til notkunar næsta haust. Með tilkomu búnaðarins verður bætt úr brýnni þörf, en fram til þessa hafa hafnirnar elcki verið vel tækjum búnar til að bregðast við mengunaróhöppum í höfnum. Fyrirhugað er að koma upp mengunarvarnarbúnaði við fjór- ar hafnir á Norðurlandi. Starfs- menn hafnanna á svæðinu kynntu sér m.a. meðferð flotgirðinga og fleytiefna á námskeiði sem þeir sóttu á Akureyri í gær. Guðmundur Sigurbjörnsson hafn- arstjóri á Akureyri sagði að hafnim- ar á Norðurlandi myndu koma sér sameiginlega upp mengunarvarnar- búnaði, en um er að ræða 22 hafn- ir frá Hvammstanga í vestri til Vopnafjarðar í austri. Þessar hafnir ætla sér að reka búnaðinn sameigin- lega, en þær teljast til sama svæðis hvað þessi mál varðar. Fljótlega verður leitað tilboða í búnaðinn sem fyrirhugað er að kaupa, en þar er um að ræða flot- girðingar og fleytiefni sem notuð eru þegar upp koma óhöpp vegna olíumengunar. Ekki er fyllilega ljóst hvað búnaðurinn mun kosta, en lausleg kostnaðaráætlun hljóðar upp á um 10 milljónir króna. Umhverfis- ráðuneytið greiðir 75% kostnaðar, en hafnirnar sameiginlega 25%. Reiknað er með að hlutur hafnanna verði um 2,5 milljónir króna og munu þær greiða í hlutfalli við íbúa- fjölda á hveijum stað. Þannig má Sauðárkrókur: gera ráð fyrir að Akureyrarhöfn muni greiða um 1,2 milljónir, en minnstu upphæðimar koma í hlut smæstu hafnanna og er gert ráð fyrir að t.d. Grímseyingar og Bakk- firðingar greiði um 10 þúsund krón- ur vegna kaupa á búnaðinum. Mengnarvamarbúnaði verður komið fyrir í ijórum höfnum á Norð- urlandi og verður landshlutahöfn á Akureyri þar sem mesti búnaðurinn verður til staðar, svæðishafnir verða á Sauðárkróki, Sigiufirði og Þórs- höfn. Á Akureyri er gert ráð fyrir að verði um 300 metra flotgirðing, en við hinar hafnirnar þijár verða til staðar um 120 metra langar girð- ingar. Komi upp mengunaróhöpp við þær hafnir þar sem ekki er til búnaður verður hann fluttur á milli og munu þá einn til tveir starfsmenn fylgja búnaðinum, en þeir munu verða þjáifaðir í að fást við slík óhöpp. í gær var haldið námskeið á Akureyri þar sem mönnum var kynnt hvemig fást á við mengun í höfnum af völdum olíu og sóttu það 30 manns sem starfa við hafnimar á Norðurlandi. Farið var með varð- skipinu Ægi út á Pollinn þar sem sýnd var notkun flotgirðinga og fleytiefnabúnaðar, sem notaður er við að ná upp olíu úr sjó. „Það er óhætt að segja að ástand- ið verður allt annað þegar við höfum yfir að ráða þeim búnaði sem fyrir- hugað er að kaupa og mér finnst menn vera jákvæðir fyrir þessum hlutum. Þetta er skynsamleg leið til áð eignast þennan búnað,“ sagði Guðmundur. Undirbúningur að byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða Sauðárkróki. Á síðastliðnu hausti, þann 8. október, skipaði bæjarstjórn Sauðár- króks nefnd til að vinna að undirbúningi þjónustuíbúða fyrir aldr- aða. I nefndinni áttu sæti Ilalldór Þ. Jónsson, formaður nefndarinn- ar, Jón Karlsson, ritari, og Sæmundur Á. Hermannsson. Nefndin hefur nú lokið störfum og hefur afhent bæjan-áði „Grein- argerð um störf og tillögur nefndarinnar", og verða tillögurnar lagð- ar fyrir bæjarstjórnarfund næstkomandi þriðjudag. Sigurður Líndal lagaprófessor fylgdi úr hlaði skýrslu sem hann hefur unnið að undanfarin fjögur ár og nefnist „Stjórnkerfi búvöru- framleiðslunnar og stjórnskipan ís- lands,“ og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Uppistaðan í þessum félagsskap eru bændur sem fóru illa út úr kvótaskiptum á sínum tfma og fóm að tilmælum stjórnvalda og drógu úr framleiðslu sjálfviljugir og einnig þeir sem breyttu mjólk- og eða sauðfjárbúmarki í nautakjötsbú- mark, sem stjórnvöld gerðu sér lítið fyrir og felldu út með einu penna- striki. í máli Sigurðar Líndal kom fram að þeir inenn sem urðu fyrir slíku á sínum tíma ættu hiklaust að leita réttar síns fyrir dómsstólum. Stjórn Rastar skipa nú Ámundi Loftsson, Lautum, Reykjadal, Sig- fús Jónsson, Söndum, Miðfirði og Kári Þorgrímssson, Garði II, Mý- vatnssveit. Benjamín Samkvæmt tillögum nefndar- manna gera þeir ráð fyrir að stofn- að verði félag eldri borgara á Sauð- árkróki, og verði eitt af markmiðum félagsins að standa að byggingu þjónustuíbúða fyrir þessa íbúa bæj- arins. Til þess að ná þessu markmiði er boðað til almenns kynningar- fundar í Safnahúsinu á Sauðárkróki mánudaginn 4. maí nk. kl. 17.30, en þar verða frummælendur þeir Ásgeir Jóhannesson úr Kópavogi og Gunnar Björnsson frá Bæ, en þessir tveir hafa báðir komið veru- lega að byggingarmálum aldraðra á Reykjavíkursvæðinu. Nefndin gerir ráð fyrir, að þegar félag eldri borgara hefur verið stofnað gangist Sauðárkróksbær fyrir stofnun byggingarfélags í samvinnu við félagið, en markmið byggingarfélagsins verði að und- irbúa o g byggja á Sauðárkróki þjón- ustuíbúðir fyrir aldraða; að ráðstafa þeim íbúðum sem byggðar verða með sölu kaupleigu eða leigu til eldri borgara; að vera eignaraðili að þeim íbúðum sem ekki verða seldar; að kaupa, endurselja eða endurleigja þær íbúðir sem losna; að aðstoða þá sem selja vilja íbúðir sínar til kaupa á ibúðum hjá félag- inu. Þá gerði nefndin tillögur um und- irbúning og framkvæmdir, stað- setningu bygginga og um fjár- mögnun og rekstur. Nefndin leggur áherslu á að íbúð- irnar séu vel staðsettar, þær verði vandaðar en án íburðar og við hönn- un verði þess gætt að fyrirfram ákveðinn rammi um byggingar- kostnað ráði hönnun, en hönnun ráði ekki byggingarkostnaði. Morgunblaðið/Rúnar >ór Tölvutæki opna nýja verslun Tölvutæki opnuðu nýlega stærstu verslun landsins á sviði skrifstofu- tækja og tölvubúnaðar, á Furuvöllum 5. Þar verða á boðstólum skrif- stofutæki af öllum gerðum, skrifstofuhúsgögn, tölvur og tölvuþjón- usta, eins og netbúnaður og uppsetning á hugbúnaði og fleira auk rekstrarvara, símar og símstöðvar. Þá rekur fyrirtækið öfluga viðgerð- arþjónustu. Fyrirtækið keypti stærstan hluta hússins við Furuvelli og á efri hæð þess mun Tölvufræðslan verða til húsa frá og með næsta hausti, en Tölvutæki eiga hlut í Tölvufræðslunni. Á myndinni eru eigendurnir, Jón Magnússon, Katrín Hermannsdóttir, Jón Ellert Lárus- son, Svandís Jónsdótir, Rúnar Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir og Lár- us Jónsson. - BB. MYNDLISTASKOLIN N Á AKUREYRI Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeild veturinn 1992-1993. Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu skólans, Kaupvangsstræti 16. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfrestur er til 26. maí. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.