Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992 19 Svar frá siðanefnd BÍ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá siðanefnd Blaða- niannafélags íslands með ósk um birtingu: Haukur Holm, fréttamaður Bylgj- unnar, gerir í Morgunblaðinu 7.- maí athugasemdir við niðurstöðu og vinnubrögð siðanefndar Blaða- mannafélags íslands vegna svokail- aðs Sandgerðismáls. í málinu kærir Barnaverndarráð nokkra starfs- menn fjölmiðla fyrir umfjöllun um viðkvæmt deilumál um forsjá barns. Kvartanir Hauks eru einkum tvær. Önnur er sú að honum hafi ekki verið kunnugt um að hann væri meðal hinna kærðu fyrr en úrskurð- ur nefndarinnar féll. Hin er sú að siðanefndin hafi ekki gefið honum kost á að gera grein fyrir máli sínu eins og henni beri að gera sam- kvæmt siðareglum. Um fyrra atriðið er þess að geta að í upphaflegri kæru Barnavernd- arráðs var Sigurveig Jónsdóttir fréttastjóri kölluð ein til ábyrgðar fyrir fréttaflutningi Bylgjunnar. Á hinn bóginn er það hefð í blaða- mennsku, sem kæranda er ókunn- ugt um, að blaðamaður beri sjálfur ábyrgð á því sem hann sendir frá sér sem frétt þótt yfirmenn hans beri á því endanlega ábyrgð. Þar með er galli á kærunni. Siðanefnd ■ EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á fundi stjórnar BSRB 7. maí 1992: „Stjórn BSRB krefst þess að efnt verði til þjóðarat- kvæðagreiðslu um hugsanlega aðild íslands að Evrópsku efnahags- svæði, EES. Á 36. þingi BSRB var samþykkt að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnar og Alþingis að þjóð- aratkvæðagreiðsla fari fram áður en endanlegar ákvarðanir verði teknar í þessu afdrifaríka máli sem varðar þjóðina alla.“ tekur með ýmsu móti á slíkum göll- um á kærum. Stundum leiðbeinir hún kærandanum. Hún er ekki dómstóll með þeim föstu reglum sem fylgja opinberu réttarfari, held- ur einungis nefnd sem stéttarfélag hefur kosið sér til að vera til nokk- urrar leiðsagnar í störfum stéttar- innar. í máli Barnaverndarráðs lét néfndin sér nægja að líta á megin- efni kærunnar — fréttaflutning Bylgjunnar — og kallaði síðan þá til ábyrgðar sem hana bera sam- kvæmt hefðum í blaðamennsku. Um síðara atriðið er þess að geta að í þessu máli, eins og stundum áður, fór siðanefnd þá leið að æskja skriflega greinargerða frá hinum kærðu fjölmiðlum í stað þess að kalla alla þá sem hlut áttu að máli á fund nefndarinnar. Þegar þetta er gert gengur nefndin að því vísu að öllum sem málið er skylt á við- komandi fjölmiðli sé fullkunnugt um kæruna, og eins um svarið við henni af hálfu fjölmiðilsins. Jafn- framt gengur hún að því vísu að fréttamenn þekki sjálfir hefðir stéttar sinnar um ábyrgð í starfi. Skriflegt svar Sigurveigar Jóns- dóttur fyrir hönd fréttastofu Bylgj- unnar er meðal annars greinargerð fyrir vinnubrögðum Hauks Holm. Með þessu svari Sigurveigar lítur nefndin svo á að ákvæðum 6. grein- ar siðareglna um greinargerð af hálfu kærða hafi verið fúllnægt. Á hinn bóginn er nefndinn ljóst að vel má færa rök að því að hún hefði átt að kalla Hauk Holm á sinn fund. En að fengnu svari fréttastofu Bylgjunnar er vandséð hveiju það hefði breytt um úrslit málsins. Fyrir hönd siðanefndar, Halldór Halldórsson, varaformaður. ÞAKKIR Þakkir tjái ég vinum og velunnurum, rithöfundum og öðrum ármönnum fagurra lista, fjölmiðlum, forleggjara mínum og Mosfellíngum, sem tóku höndum saman um að gera mér dagamun á afmceli mínu 23. apríl 1992. Halldór Laxness Stýrimannaskólanemar (úr fiskimannadeild) útskrifaðir 1967 Ákveðið er að hittast á næstunni í tilefni skólaslita skólans 22. maí. Hringið og tilkynnið þátttöku til einhvers eftirtalinna aðila: Gunnars í síma 92-68370, Bubba í síma 91-73494 eða Guðfinns í síma 98-33744. SKIPUIAG Í GARÐINUM Stanislas Bohic, garða- hönnuður veitir ókeypis ráðgjöf hjá okkur um helgina laugardag og sunnudag kl. 14-18. Verið velkomin. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 68 90 70 Sýningar í Háskólabíói laugardag 9. maí, sunnudag 10. maí og mánudag 11. maí. Aðgangur ókeypis! Heimildarkvikmynd ífjórum hlutum um sögu átgerðar og sjávarútvegs íslendinga frá árabátaöld fram á okkar daga. 1. hluti - Frá árum til véla (-1918) Kl. 16:30 2. hluti - Bygging nýs íslands (1920 -1950) Kl. 17:40 3. hluti - Baráttan um fiskinn (1950-1989) Kl. 18:45 4. hluti - Ár í útgerð (1989) KL 19:50 ERLENDUR SVEINSSON SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON ÞÓRARINN GUÐNASON VILHELM G. KRISTINSSON . . LIFANDIMYNDIR H.F.fyrir LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA Handrit, stjórn: Kvikmyndagerð: Hljóð: . ...... Þulur: ........ Framleiðsla: tíj/ :'w

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.