Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAI 1992 Meðferðarheimilið Tindar Sérhæfð meðferð fyrir unglinga í vímuefnavanda eftir Einar Gylfa Jónsson Að undanförnu hefur verið tals- verð umræða í þjóðfélaginu um málefni þeirra barna og ungmenna sem standa höllum fæti og þurfa sérstakrar aðstoðar við. M.a. hefur athyglin beinst að unglingum í vímu- efnavanda. Sumt af því sem sagt hefur verið um þessi mál er þess eðlis, að ég tel fulla ástæðu til að útskýra fyrir almenningi hvernig meðferðarheimilið að Tindum starf- ar og hvers vegna meðferðarstarf af því tagi sem þar fer fram er nauð- synlegt. Líkt og í öðrum vestrænum þjóðfélögum hefur vímuefnaneysla unglinga verið vaxandi vandamál hér á landi. í öðrum löndum hefur m.a. verið brugðist við þessu með því að koma á fót sérstökum með- ferðarstofnunum fynr yngsta aldurshópinn. Mér er ekki kunnugt um að það sé nokkurs staðar talinn fýsilegur kostur að blanda saman meðferð unglinga í vímuefnavanda og fullorðinna alkóhólista. - Þar með er ég ekki að gera lítið úr ágætri viðleitni áfengisdeilda ríkisins og SAA til að hjálpa hluta þessa hóps meðan ekki voru til sérhæfð úrræði á þessu sviði. - Það er meira en áratugur síðan fólk sem starfar að unglingamálum fór að vekja athygli á þörfinni fyrir sérstakt meðferð- arúrræði fyrir 13-18 ára unglinga í vímuefnavanda. Ymsar stjómskip- aðar nefndir komust að sömu niður- stöðu. í ágúst 1989 ákvað þáverandi rík- isstjóm að fela Unglingaheimili rík- isins rekstur meðferðarheimilis fyrir unga vímuefnaneytendur. Var þetta gert að fengnum tillögum samstarfs- nefndar ráðuneyta í ávana- og fíkni- efnamálum sem hafði kannað þessi mál rækilega og skoðað ýmsar mögulegar lausnir. Vel var staðið að undirbúningi og voru fjórir starfs- menn sendir til Bandaríkjanna í starfsþjálfun vegna þessa viðfangs- efnis. - 3. janúar 1991 komu fyrstu vistmennimir að Tindum. Meðferðin á Tindum er í ýmsu lík ____________Brids_______________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Afmælishátíð Bridsfélags Reykjavíkur Afmælishátíð Bridsfélags Reykja- víkur er nú í sjónmáli. Ljóst er að þijú af bestu bridslandsliðum heims sækja okkur heim og spila iandsleiki við heimsmeistarana okkar. Frá Bret- landi koma Tony Sowter, Roman Smolski, Tony Forrester og Andy Robson. Frá Svíþjóð koma Anders Morath, Sven-Áke Bjerregard, P.O. Sundelin og Bjöm Fallenius. Pólska liðið verður skipað Cezary Balicki, Adam Zmudzinski, Krzysztof Jassem og Dariusz Kowalski. Afmælishátíðin hefst miðvikudag- inn 27. maí kl. 19.30 með firmasveita- keppni. Verða spilaðar 10 umferðir, þijár á miðvikudeginum og sjö á fimmtudeginum. Byijað verður að spila kl. 10 fímmtudaginn 28. maí og áætluð mótslok um miðnætti. Spilað verður eftir Monrad-kerfi og er öllum heimil þátttaka. Keppnisgjald er 12 þúsund kr. á sveit. Verðlaun eru 150, 100 og 50 þúsund kr. Föstudaginn 29. maí verður slagur risanna. Spilaðar verða þijár umferð- ir, tuttugu spila leikir. Laugardaginn 30 maí kl. 10 hefst fjögurra umferða tvímenningur sem spilaður verður með Michell-fýrir- komulagi og er þátttaka öllum opin. Þar verða útlendingamir að sjálfsögðu því sem gerist á meðferðarstöðvum fyrir fullorðna alkóhólista: Athygl- inni er fyrst og fremst beint að neysluvandanum, lögð áhersla á mikilvægi bindindis eftir meðferð, grunnhugmyndir AA-samtakanna eru hafðar að leiðarljósi í meðferð- arstarfínu, stofnanadvölin sjálf er tiltölulega stutt, meðferðin er blanda af hópvinnu, einstaklingsmeðferð og fræðslu og fleira mætti telja. Samvinna við fjölskýldur Hins vegar eru áherslurnar á Tindum í veigamiklum atriðum sér- stakar og lagaðar að sérþörfum unglinganna. Þar ber fyrst að nefna áherslu á samstarf við fjölskylduna. Fjölskyldan er höfð með í myndinni frá fyrstu stundu. Þannig mæta for- eldrar á innskriftarfund í tengslum við komu skjólstæðingsins. Að lok- inni greiningu er hafður fundur með unglingi og foreldrum, þar sem skýrt er frá niðurstöðum greiningarinnar og settar fram tillögur um framhald- ið. í hverri viku er fjölskyldukvöld þar sem fjölskyldur þeirra unglinga sem eru í meðferð koma og miðla hvert öðru af reynslu sinni. Auk þess er á u.þ.b. 6 vikna fresti sér- stök fjölskylduvika, en þá koma fjöl- skyldur unglinganna 5 daga í röð, hlýða á fræðslufyrirlestra, taka þátt í umræðum um jafnt almenn mál- efni sem sértæk atriði sem tengjast hverri einstakri fjölskyldu. Foreldrar eru einnig viðstaddir þegar ungling- urinn útskrifast úr meðferðinni og í eftirmeðferðinni eru 2 fjölskyldu- kvöld í mánuði. Þar sem meðalaldur skjólstæðing okkar er rúm 16 ár er að sjálfsögðu mikilvægt að hafa fjölskylduna með í ráðum í meðferðinni. í mörgum tilvikum eru tengsl unglingsins við fjölskylduna orðin afar erfið þegar hann kemur til meðferðar og því mikilvægt að bæta þau. í öðrum til- vikum eru ýmsir aðrir örðugleikar í fjölskyldunni, auk vímuefnavanda unglingsins, sem mikilvægt er að komi upp á yfirborðið svo hægt sé að takast á við þá. í öllum tilvikum er þessi áhersla á samstarf við fjöl- með. Spilað verður í Perlunni og spil- aðar tváer umferðir á laugardag og sunnudag. Þátttökugjald er 10 þúsund krónur fyrir almenna spilara en 7 þúsund fyrir félagsmenn BR, og er hádegisverður innifalinn á laugardag. Glæsileg verðlaun eru í boði. Fyrir fyrstu verðlaun eru 120 þúsund kr., önnur verðlaun 90 þúsund, þriðju verð- laun 75 þúsund kr. þá 50 þúsund, 30 þúsund, 20 þúsund, 15 þúsund og fyrir 8. sætið verða 10 þúsund kr. verðlaun. Skráning í bæði þessi mót er hafin hjá Bridssambandinu og eru félagar BR og aðrir sem áhuga hafa beðnir að tilkynna þátttöku hið fyrsta en það mun auðvelda mótshöldurum skipu- lagningu mótsins. Lokahóf afmælishátíðar Bridsfélags Reykjavíkur verður í ráðhúsinu á sunnudagskvöldið en þar verða afhent verðlaun fyrir keppnir hátíðarinnar. Frá Skagfirðingum Spilað var í einum riðli síðasta þriðjudag, í eins kvölds tvímennings- keppni deildarinnar. Úrslit urðu (efstu pör): Hjálmar S. Pálsson - Hólmsteinn Arason 268 Höskuldur Gunnarsson - Erlendur Jónsson 245 RagnarJónsson-JónS. Ingólfsson 227 Ásthildur Sigurgísladóttir - Lárus Amórsson 223 Kjartan Jóhannsson - Helgi Hermannsson 222 ÁrmannJ.Lárusson-ÓlafurLárusson 222 Spilað verður næstu tvo þriðjudaga í Drangey, en Sumarbrids hefst mánu- daginn 18. maí í Sigtúni 9. skyldurnar nauðsynleg til að létta á þeirri sektarkennd sem gjaman þjakar foreldra unglinga í vímuefna- vanda og glæða hjá fjölskyldunum trú á að hægt sé að vinna sig útúr þeim vanda sem við blasir. Uppeldi og kennsla Á Tindum fer ekki einungis fram vímuefnameðferð, heldur er veruleg áhersla lögð á hinn uppeldislega þátt. Skjólstæðingar Tinda byijuðu að neyta vímuefna á barnsaldri og vegna neyslu sinnar hefur mikilvægt þroska- og mótunarskeið í lífi þeirra farið forgörðum. Sérhæfð meðferð fyrir unglinga í vímuefnavanda hlýt- ur að taka sérstakt mið af þessu og leggja áherslu á einstaklingsbundinn stuðning, aga og reglur ásamt fræðslu og leiðbeiningum varðandi mikilvæga þætti unglingsáranna. Allir unglingar sem dvelja á Tind- um eiga kost á keniislu 4 daga vik- unnar og er kennslan sniðin að þörf- um hvers og eins. Margir unglingar í vímuefnavanda standa höllum fæti gagnvart skólanum og sumir þeirra eru raunar dottnir út úr skólakerf- inu. Því er þessi þáttur afar mikil- vægur, ekki einungis fyrir þá sem eru á grunnskólaaldri, heldur einnig hina sem eldri eru og þurfa leiðsögn Á námsefni grunnskólans. Eftirmeðferð Þótt dvölin á Tindum taki einung- is 10-14 vikur, spannar meðferðin engu að síður yfir mun lengri tíma, allt að ári. Að lokinni meðferðinni að Tindum tekur við eftirmeðferð í 6-9 mánuði. Unglingurinn mætir 4 daga vikunnar til að byija með, en síðan fækkar skiptunum eftir því sem frá líður. í eftirmeðferðinni er unglingurinn studdur til að takast á við hið daglega líf allsgáður, auk þess sem hann nýtur stuðnings og felagslegs samneytis við hina ungl- ingana sem eru að feta sömu braut og hann sjálfur. Eftirmeðferðin er í Síðumúla 13, í sama húsi og skrif- stofa Unglingaheimilisins og Ungl- ingaráðgjöfin. Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson urðu að Iáta sér lynda annað sætið í íslands- mótinu í tvímenningi þrátt fyrir góða stöðu fyrir síðustu umferð- ina. Guðmundur Páll var sann- spár þegar hann sagði síðustu tvær umferðirnar vera hin raun- verulegu úrslit - hinar 29 um- ferðirnar væru bara undirbún- ingsvinna. Þeim félögum tókst hins vegar ekki að fylgja þessu eftir og töpuðu mótinu með minnsta mun. Einar Gylfi Jónsson „Mér er ekki kunnugl um að það sé nokkurs staðar talinn fýsilegur kostur að blanda saman meðferð unglinga í vímuefnavanda og full- orðinna alkóhólista.“ Dýrt úrræði Það er óumflýjanlegt að meðferð á unglingum í vímuefnavanda sé hlutfallslega dýrari en meðferð full- orðinna alkóhólista. Eins og frá var greint hér að framan þurfa ungling- ar ýmis sérstök úrræði sem kosta peninga, unglingameðferðin krefst meiri mannafla og meðferðareining fyrir unglinga þarf helst að vera mun minni en meðferðareining fyrir fullorðna. Leitast er við að hafa hópinn sem dvelur á Tindum hveiju sinni ekki stærri en 8-10 einstakl- inga. Ástæður þessa eru fyrst og fremst þær, að skjólstæðingarnir eru svo ungir og þurfa verulega ein- Bridsfélag Reykjavíkur Magnús Olafsson og Björn Ey- steinsson hafa nú örugga forystu í tvímenningnum en nú er lokið 29 umferðum af 35. Staðan. Bjöm Eysteinsson - Magnús Ólafsson 186 SigfúsOrnÁmason-JónHjaltason ' 160 Ragnar Magnússon - Páll V aldimarsson 151 Sverrir Ármannsson - Matthías Þorvaldsson 132 GunnlaugurKristjánss.-HróðmarSigurbjöms. 120 Símon Símonarson - Sverrir Kristinsson 113 BemódusKristinsson-GeorgSverrisson 106 GylfiBaldursson-SigurðurB.Þorsteinsson 95 Hæsta skor síðasta kvöldið: SigfúsÖrnÁmason-JónHjaltason 70 Guðmundur Baldursson - Guðbjöm Þórðarson 63 BemódusKristinsson-GeorgSverrisson 61 Bjöm Eysteinsson - Magnús Ólafsson 45 Bridsfélag hjóna Nú er 10 umferðum af 11 lokið í sveitakeppninni og er staða efstu sveita þannig: Sveit stig Drafnar Guðmundsdóttur 198 Ólafíu Þórðardóttur 184 Huldu Hjálmarsdóttur 183 Dóru Friðleifsdóttur 172 Eddu Thorlacius 168 Gróu Eiðsdóttur 164 Hinn 19. maí verður síðasta umferð spiluð og er það jafnframt síðasta spilakvöld vetrarins. Laugardaginn 23. maí verður aðalfundur félagsins og árshátíð haldinn í Naustinu og hefst kl. 17 stundvíslega, upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 42075 og Júlíus í síma 22378. staklingsumönnun. Sumir þeirra vistast á Tindum gegn vilja sínum og gerir meðferð slíkra skjólstæð- inga að sjálfsögðu sérstakar kröfur til starfsfólksins. - Vissulega væri hægt að setja á fót tiltölulega ódýra meðferðareiningu með mörgum plássum og lítilli mönnun. Slík með- ferðareining gerði þær kröfur til skjólstæðinganna að þeir hefðu ein- lægan áhuga á að stunda meðferð- ina, þyrftu litla sem enga einstakl- ingsmeðferð og ekki væri mikið svig- rúm til að telja þeim hughvarf sem hygðust hlaupast á brott úr meðferð- inni. Fljótlega myndi slík meðferðar- stofnun þróast út í að sinna fyrst og fremst ungu fóki (20-30 ára). Verst staddi hópurinn yrði útundan af þeirri einföldu ástæðu að það væri ekki til mannafli til að sinna honum. Þeir sem telja sig geta sinnt þessum verst stadda hópi unglinga á umtalsvert hagkvæmari hátt en við gerum á Tindum eru einfaldlega að blekkja sjálfa sig. Hvers vegna Unglingaheimili ríkisins? En því skyldi Unglingaheimili rík- isins sjá um þessa meðferð? Hvers vegna ekki SÁÁ eða áfengisdeildir ríkisins sem hafa langa reynslu af áfengismeðferð? — Að mínu mati eru meginrökin fyrir því að Unglingaheimili ríkisins reki sér- hæfða meðferð fyrir unglinga í vímuefnavanda eftirfarandi: 1. 13-18 ára unglingar eru á bamaverndaraldri og heyra þar af leiðandi undir barnaverndarlög. Þeir sem eru undir 16 ára eru ekki sjálf- ráða og þarf að hafa sérstakt sam- ráð við barnaverndaryfirvöld varð- andi vistun þeirra á meðferðarstofn- _ unum. Auk þess hafa barnaverndar- yfirvöld sérstakar skyldur gagnvart unglingum til 18 ára aldurs. Unglingaheimili ríkisins er sam- kvæmt reglugerð sérstakt meðferð- arúrræði fyrir þennan aldurshóp. — Þetta er hin lagalega hlið sem ég hygg að staðfesti það viðhorf þorra fólks, að börnum og ungmennum í vanda beri sérstök umönnun og það sé óeðlilegt að hafa þennan aldurs- hóp í meðferð með fullorðnu fólki. 2. Unglingaheimili ríkisins sam- anstendur af 5 meðferðardeildum, auk Tinda eru það Unglingaráðgjöf- in sem sinnir göngudeildarmeðferð, Móttökudeildin sem sinnir bráðavist- unum og rannsóknarvistunum, Með- ferðarheimilið Sólheimum 7 sem sinnir langtímameðferð og Sambýlið Sólheimum 17 þar sem unglingar sem ekki geta dvalið heima hjá sér fá stuðning. Auk þess hefur stjórnar- nefnd Unglingaheimilisins faglegt eftirlit með meðferðarheimilinu að Torfastöðum og er samvinna milli Torfastaða og annarra deilda Unglingaheimilisins um málefni ein- stakra skjólstæðinga. Loks er að geta náins samstarfs við Einholts- skóla, sem er sérskóli fyrir unglinga sem standa höllum fæti í skólakerf- inu og sinnir skjólstæðingum Unglingaheimilisins sérstaklega. Innan þessara meðferðareininga er löng reynsla af meðferð unglinga í vanda og nýtast þessi úrræði skjól- stæðingum Tinda á margvíslegan hátt. Gott samstarf Að lokum er vert að geta þess, að frá upphafi hefur verið lögð áhersla á gott samstarf við alla þá sem tengjast meðferðarmálum ungl- inga í vímuefnavanda með einhveij- um hætti: Félagsmálayfirvöld, barnavemdarnefndir, lögreglu, skól- ana, barna og unglingageðdeild, hús Rauða krossins, áfengisdeildir ríkis- ins, Vímulausa æsku og SÁÁ. Að mínu mati er samstarf þessara aðila afar mikilvægt og er það einlæg von mín að það megi eflast og dafna í framtíðinni. Höfundur er forsijóri Unglingaheimilis ríkisins. BILASYNINGIDAG KL. 10-14 Komiö og skoöið 1992 árgeröirnar af MAZDA ! SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.