Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 40 Kveðjuorð: Ásgeir Beinteins■ son píanóleikari Fæddur 30. september 1929 Dáinn 5. apríl 1992 Við fráfall Ásgeirs Beinteinsson- ar getur manni orðið vant þeirra orða sem spanni til fulls öll þau hugrenningatengsl og minningar sem upp í hugann koma eftir nær- fellt fjörutíu ára kynni. En andlát hans kom ekki á óvart. Hann var búinn að berjast hetjulega við bana- mein sitt í meira en ár; og kannski var aðdragandinn að dauða hans enn lengri, ef tekið er með í reikn- inginn allt það sem lamað getur löngun manna og lífsþrótt í mót- streymi tímans og tíðarandans. Sumir menn læra ekki að dansa eftir því skrýtna hljómfalli og að ýmsu leyti var hann einn af þeim. Eg kynntist honum skömmu eftir að þann kom heim frá tónlistamámi á Ítalíu haustið 1955. Það var í gegnum sameiginlega vini tónlistar- innar. Eitt hið fyrsta sem ég tók eftir í fari hans var það, hvað hann var í rauninni dulur og ómannblend- inn, þrátt fyrir langa dvöl erlendis. Hann var fjarri því að hleypa hveij- um sem var inná sig, og hann var í rauninni mikill aristókrat bæði að eðlisfari og vegna uppeldis. Líklega er óhætt að segja, að hann hafi haft músíkalskan smekk hvers og eins að drjúgum mælikvarða á það hvort hann teldi það ómaksins vert að kynnast viðkomandi eða um- gangast hann að nokkru ráði. Og það er varla rangari mælikvarði en hver annar. Við heimkomuna haustið 1955 hélt hann einleikstónleika og hlaut geysigóða dóma. Sumir höfðu við orð að Chopfn-túlkun hans væri á heimsmælikvarða og á næstu árum kom hann oft fram, m.a. með Sin- fóníuhljómsveit íslands og nokkrum sinnum sem meðleikari söngsveita, en hliðraði sér hjá því að leika með ærið misjöfnum einsöngvurum; þar setti hann takmörk. Á þessum árum voru stór verk- efni fyrir klassíska píanista ekki eins mörg og síðar hefur orðið, og þótt undarlegt kunni að virðast, þá var Ásgeir ekki mjög umfram um að skapa sér slík tækifæri. Það var engu líkara en hann hefði óbeit á frægð. Hann hóf fljótlega píanó- kennslu og stundaði hana meðan kraftar leyfðu. Árum saman kenndi hann við Tónlistarskólann í Reykja- vík, en einnig á Akranesi um skeið, auk þess sem hann stundaði mikla einkakennslu um áratugi og hefur í tímans rás verið leiðbeinandi margra þeirra sem nú eru þekktir píanistar. Þess vegna er það, að þeim er nú tekið að fækka sem minnast hans sjálfs sem píanista frá þeim árum er hann var uppá sitt bezta, því að aldrei var gefin út nein hljómplata með píanóleik hans, og ég efast um að mikið af slíku hafi varðveist í hljóðritunum. Má vera, að Ríkisútvarpið eigi þó eitthvað varðveitt. Sjálfur á ég ein- hvers staðar upptöku með túlkun hans á Dvorák, minnir mig, tekna við léleg skilyrði sumarið 1972. Þá mun hann hafa leikið í eitthvert síðasta sinn opinberlega. Þegar ég kynntist Ásgeiri Bein- teinssyni fyrst, fannst mér hann bera með sér blæ suðrænnar menn- ingar, bæði til orðs og æðis. Það rifjast upp fyrir mér, að hann gekk þá gjaman með ítalska alpahúfu, en lagði hana þó brátt af, því að honum þótti hún vekja óþarfa at- hygli í höfuðstað sjötta áratugarins; ég sá hann aldrei setja upp höfuð- fat síðar, sama hvernig viðraði. En það var fleira sem manni fannst framandi í fari hans og lífs- viðhorfum. Hann hafði í rauninni alist upp í vemduðu umhverfi sem barn, því hann var astmasjúklingur í æsku þótt hann ynni sem betur fer bug á því ofnæmi í tímans rás. En sökum þess hversu heilsuveill hann hafði verið ungur, og þar af leiðandi losnað við líkamlega áreynslu og brauðstrit, þá vissi hann varla hvað h'fsbarátta var fyrr en hann kom heim frá námi. En þá kynntist hann henni líka, þótt hann skildi hana e.t.v. aldrei til fulls og væri máski of mikill Iista- maður í eðli sínu til að gaumgæfa hana nema sem allra minnst. Hann átti svo vissulega þau auðævi sem mölur og ryð granda ekki, og stund- um var sá innri gróður ótæpilega vökvaður gullnum tárum þeirra þrúgna sem vaxa í yl og anganblæ suðrænna landa. Mér fannst hann alla tíð vera einskonar suðrænn gestur hér norð- urfrá, sem hefði komið hingað og orðið hér innlyksa fyrir illa glettni örlaganna. Má vera að hann hafí gert rangt í því að setjast ekki að ytra strax að loknu námi. Hann fór þó oft og iðulega í utanlandsferðir, stundum í aðrar heimsálfur, og kom jafnan endurnærður til baka. Hann vildi flytja sumarið að sunnan heim með sér. Á meðan hann hafði stór- an suðurglugga á íbúð sinni rækt- aði hann þar fjölbreyttar blómateg- undir af mikilli natni. Myndlistar- áhugi hans var líka mikill, og held ég mér sé óhætt að segja, að þá tegund listar hafí hann metið næst tónlistinni, enda er hvorug þessara listgreina háð viðjum breytilegra þjóðtungna. Hann talaði oft um alla þá myndlist, sem hann hafði séð á Italíu og víðar, myndlist frá ólík- ustu menningarskeiðum. Ásgeir var á skólaárum sínum mikill námsmaður, og einkum lágu tungumál vel fýrir honum. Heim- kominn var hann iðulega fylgdar- maður erlendra ferðahópa vítt og breitt um landið. Tungumálahæfi- leikann átti hann ekki langt að sækja, frekar en tónlistargáfuna reyndar, því að afí hans var sá mæti maður sr. Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði, latínumaður mikill, en mun þó lifa í sögunni öðru fremur fyrir umfangsmikla þjóðlagasöfnun sína og kirkjulega helgisöngva. Með Ásgeiri Beinteinssyni er genginn einn af ágætustu lista- mönnum okkar, en ekki síður mik- ill mannkostamaður sem þeir kynntust bezt sem umgengust hann að staðaldri. Hann var allra manna trygglyndastur og hjálpsamastur, eftir því sem í hans valdi stóð. Hann var mjög orðheldinn og manna þagmælskastur, ef honum var trúað fyrir því sem ekki átti að fara lengra. Hann var róman- tískur að upplagi, og það var í sam- ræmi við þá tónlist sem hann dáði hvað mest. En hann var líka mjög skemmtinn, og gat á góðum stund- um verið allra manna kátastur. Þegar hann nú er genginn, þá sakna ég þess, að svo illa skyldi til takast að við hittumst aldrei á erlendri grund, þrátt fyrir þennan langa kunningsskap. Og þegar ég rifja upp kynnin, þá var það heldur ekki oft sem hann lék á hljómborðið fyr- ir okkur gesti sína. Hann þurfti þess ekki; og við fórum aldrei fram á slíkt, það var eins og það væri ekki viðeigandi. Samt er ekki nema rúmt ár síðan ég heyrði hann leika á píanóið í síðasta sinn. Hann var þá orðinn veikur maður. Hann lék það undurfagra stef úr 147. kant- ötu Bachs, sem engum getur gleymzt. Slá þú hjartans hörpustrengi, hrær hvem streng sem ómað fær... Það eru einmitt þeir strengir sem halda áfram að óma. Þeir eru sam- ofnir minningunni um mikinn Iista- mann og góðan dreng. Ásgeir Beinteinsson var fæddur í Hafnarfirði 30. september 1929, og voru foreldrar hans hjónin Bein- teinn Bjarnason útgerðarmaður og Þórunn Sigríður Ágústsdóttir Flyg- enring. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1950, hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík sama haust og lauk þaðan prófí vorið 1951. Hann stundaði nám í píanóleik erlendis næstu fjögur árin, fyrst einn vetur í Hamborg, en síðan í Róm, þar sem hann dvaldisttil hausts 1955. Hann varð síðan píanóleikari og tónlistar- kennari að ævistarfi. Hann lézt á Landspítalanum 5. apríl 1992, og fór bálför hans fram nokkrum dögum síðar, í kyrrþey, að hans eigin ósk. Elías Mar. Kynni okkar Ásgeirs hófust er við störfuðum saman við Tónlistar- skólann á Akranesi um nokkurra ára skeið. Þau kynni urðu ekki að- eins að vinskap okkar Ásgeirs, hann varð brátt vinur allrar fjölskyldunn- ar, kennari barnanna og sífelld hjálparhella stækkandi fjölskyldu ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð pbkun sími 620200 upp frá því. Ljúft er að minnast öðlingsins Ásgeirs Beinteinssonar. Ásgeir fæddist í Hafnarfírði 30. september 1929, sonur hjónanna Beinteins útgerðarmanns þar Bjarnasonar og konu hans, Þórunn- ar Sigríðar Agústsdóttir Flygen- ring. Föðurforeldrar Ásgeirs voru Bjarni Þorsteinsson, sóknarprestur, þjóðlagasafnari og tónskáld á Siglu- firði og kona hans, Sigríður Lárus- dóttir Blöndal; móðurforeldrarnir Ágúst Flygenring útgerðarmaður og skipstjóri í Hafnarfirði og hans kona, Þórunn Stefánsdóttir Flyg- enring. Ásgeir lést í Landspítalan- um 5. apríl sL eftir árslanga bar- áttu við ógnvaldinn krabbamein. Ásgeir hóf ungur píanónám. Stúdent varð hann frá Menntaskól- anum á Akureyri 1950 og lauk burtfararprófí í píanóleik frá Tón- listarskólanum í Reykjavik strax vorið eftir. Við þann skóla naut hann kennslu Árna Kristjánssonar samtals um þriggja ára skeið. Framhaldsnám erlendis stundaði Ásgeir á árunum 1951-55. Fyrsta veturinn við Tónlistarháskólann í Hamborg hjá Eduard Erdman. Hið raka Hamborgarloft átti illa við Ásgeir, sem frá barnæsku var veill fyrir asma. Hann leitaði því suður á bóginn og nam síðustu þrjú árin hjá þekktum kannara, prófessor Rudolf Caporoli í Róm. Að auki sótti Ásgeir sumarnámskeið píanó- snillingsins þekkta Edwins Fischer í Sviss 1953 og 1954. Heim kominn gerðist Ásgeir kennari við Tónlist- arskólann í Reykjavík og kenndi um lengri eða skemmri tíma nokkr- um af helstu píanóleikurum og pían- ókennurum þessa lands, þeim sem nú eru á miðjum aldri. Virkustu ár Ásgeirs sem píanó- leikara var áratugurinn frá 1955-65. Frumraun hans var ein- leikstónleikar á vegum Tónlistarfé- lagsins í Austurbæjarbíói 17. októ- ber 1955 með metnaðarfullri efnis- skrá: Chacconnunni í d-moll eftir Bach-Busoni, Waldsteinsónötu Beethovens, þremur prélúdíum eftir Debussy og etýðum op. 10 nr. 1 og 12 eftir Chopin. Morgunblaðið greinir frá þessum tónleikum á baksíðu daginn eftir undir fyrir- sögninni „Hrifning" ásamt því, að tónleikarnir verði endurteknir þá um kvöldið. Nokkrum dögum síðar birtist gagnrýni í Alþýðublaðinu, þar segir: „Hin stórglæsilega Etude Revolutionaire var leikið [sic] með miklum glæsibrag. Það leynir sér ekki að Ásgeir Beinteinsson hefur hlotið tónlistargáfuna í vöggugjöf, smekklegur flutningur efnisskrár- innar bar þess órækt vitni... (Alþbl.26/10 1955). Auk þess að halda nokkra sjálfstæða píanótón- leika á þessum árum kom Ásgeir fram sem einleikari með Sinfóníu- hljómsveit íslands í jafn ólíkum verkum og píanókonsert Tsjækovskíjs í b-moll, Rapsody in Blue eftir George Gershwin og fímmta píanókonsert Beethovens. Um flutning Ásgeirs í síðastnefnda verkinu ritaði Jón Þórarinsson í Morgunblaðið: „Ásgeir Beinteins- son lék einleikshlutverkið í konsert- inum með ágætri tækni og þeim tilþrifum, mýkt og innlifun, sem þetta mikla verk krefst (Mbl. 9/12 1961).“ Vitnað er í ofangreind ummæli til að sýna, að leikir sem lærðir voru á einu máli, að með Ásgeiri Beinteinssyni væri fram kominn sérlega glæsilegur og áhugaverður flytjandi. En hvað olli því að ekki logaði lengur en raun bar vitni á kyndli þessa efnilega listamanns? Ásgeir var ekki þeirrar gerðar, að hann þyldi til langframa álag kon- sertpallsins. Á honum sannaðist, að hinir fágætustu tónlistarhæfi- leikar nægja ekki einir og sér til langlífís á tónleikapalli. Jafnvel svo ágætt sambland gáfna og hæfileika sem Ásgeir hafði; háþróað hryn- og formskyn, óvenju næm stílkennd og innsæi í tónlist, hreyfíleikni, ein- lægur tónlistaráhugi og dugnaður í ströngu námi dugðu ekki til að yfirvinna helsta veikleika hans, sviðsbeyginn, þennan óvin sem óx og varð brátt sterkari en þessi við- kvæmi en hæfileikaríki maður fékk við ráðið. Þessi veikleiki batt ásamt öðru, sem á eftir fylgdi, enda á feril hans sem einleikara. í leik hans vantaði þó hvorki skap né átök. Sá einleikari sem endist er líklega sú manngerð, sem sameinar einshvers konar flókið jafnvægi milli tónlistargáfna og persónu- leikaþátta. Ásgeir hafði vísast allt sem til þurfti, nema hörku hins sterka egós. Það er þeim mun raunalegra fyrir þá sök, að á list- ræna sviðinu hafði hann meira að gefa en margur sá er „lengra hefur náð“ samkvæmt almennu mati á frama og afrekum á listasviðinu. Oftast er erfítt að átta sig á hvað er orsök og hvað afleiðing í lífi fólks og hegðun, jafnvel þeirra sem við teljum okkur þekkja vel. Ég hygg þó að áfengisneysla Ásgeirs, sem vissulega fór úr böndunum er á leið ferilinn, hafí í upphafi fremur verið afleiðing þeirrar erfíðu glímu, sem hann átti í við eigin viðkvæmni og innri spennu, heldur en frumorsök þess að hann hvarf af þeirri braut sem hann hafði markað sér og átti svo brýnt erindi við. Um 1970 varð Ásgeir fyrir heilablóðfalli. Þótt hann jafnaði sig að miklu leyti varð hann aldrei samur og fyrr. Minni hans, sem mun hafa nálgast afburða- minni fyrir áfallið, beið hnekki þótt ekki ylli neinum erfiðleikum í dag- legum samskiptum né venjubundn- um störfum. Undirritaður þekkir leik Ásgeirs svo til eingöngu af nokkrum upp- tökum, sem hann gerði fyrir Ríkis- útvarpið á þessum ámm. Synd að þær skuli ekki fleiri, því vinna í upptökusal virðist hafa átt mun betur við Ásgeir en hin beina áhætta tónleikasalarins. Sem ég er að rita þessi orð hljómar í eyrum mér Chopin-prógram, líklega hljóð- ritað um 1960: g-moll ballaðan, fimm etýður, og scherzóið op. 34 í cís-moll. Þessi flutningur hlýtur að vera meðal þess besta sem Ásgeir gerði. Það er eitthvað óvenju raf- magnað og spennuhlaðið við þenn- an leik, nánast hvergi dautt augna- blik. Öll hámörk virðast tímasett á nákvæmlega réttum músíkölsku augnablikum; tæknin ekkert vanda- mál og „hin breiða syngjandi lína“ vissulega á sínum stað. Þegar að því kemur að gerður verður safn- diskur með leik íslenskra píanista þessara kynslóðar hlýtur leikur Ásgeirs Beinteinssonar að skipa sinn sess á þeim diski. Um er að ræða óvenju lifandi minjar þar sem er tónlistarflutningur genginna kynslóða. Því má ekki bregðast, að Ríkisútvarpið geymi vel hljóðritanir fyrstu kynslóða íslenskra einleik- ara. Sá er þetta ritar kynntist Ásgeiri ekki fýrr en stærstu umbrotin í lífi hans voru að baki, að mestu. Sá Ásgeir sem ég þekkti var fjarri því að vera bitur manneskja, þvert á móti var hann einhver jákvæðasti og umburðarlyndasti maður sem ég hef kynnst; virtist í betra jafnvægi og sátt við sjálfan sig, lífíð og með- bræðurna en flestir aðrir. Hann naut orðið lífsins án skilyrða: Tón- listar, fegurðar náttúrunnar, jafnvel lítilla ómerkilegra hluta; mest af öllu þó þess að koma færandi hendi og gleðja aðra. Kannski var hann einn af sigurvegurunum í lífinu þrátt fyrir allt. Ásgeir var víða heima, víðförull málamaður sem naut þess mjög að ferðast. Ítalíuár- in höfðu gert hann að aðdáanda ítalskrar menningar og málið talaði hann vel. Ef það var eitthvað sem Ásgéir hataði þá var það helst að ræða um sjálfan sig og eigin hagi, enn síður hafði hann skemmtun af því að ræða ófarir annars fólks. Ummhyggja hans og áhugi á vel- ferð vina var hins vegar einlægur. Það sýndu hringingar hans og heimsóknir þegar eitthvað bjátaði á í fjölskyldunni. Ég þekki enga sem Ásgeiri kynntust, sem ekki var hlýtt til hans. Sambýlismaður Ásgeirs og vinur um árabil var Sturla Tryggvason. Hann reyndist Ásgeiri trygg stoð þar til yfir lauk._ Líklega hefði Ásgeir kunnað mér litlar þakkir fyrir skrif um sig lát- inn. Áf meðfæddu umburðarlyndi hefði hann þó látið gott heita að ég fengi að þjóna eigin lund í þeim efnum. Við Kristín og börnin sökn- um hans. Þórir Þórisson, tónlistarkennari. t INGILEIF ÁRNADÓTTIR fyrrum húsfreyja á Stóra Ármóti, Hraungerðishreppi, lést fimmtudaginn 7. maí sl. Útför hennar verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Búnaðarsamband Suðurlands. t Ástkær bróðir okkar og mágur, JÓN GÍSLASON, Álftröð 7, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 8. maí. Halldór Gfslason, Sigurborg Jakobsdóttir, Gunnþóra Gísladóttir, Stefán Gíslason. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA EBENESERDÓTTIR, Hlíf, ísafirði, áður til heimilis á Brunngötu 12, andaðist í Fjóröungssjúkrahúsinu, ísafirði, aðfaranótt 6. maí. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.