Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAI 1992 28 Borgíirstjórn felur fé- lagsmálaráði að fjalla um vanda bágstaddra BORGARSTJÓRN samþykkti í fyrrakvöld að fela félagsmálaráði að fjalla um vanda bágstaddra einstaklinga í borginni og selja fram tillögur til að bregðast við honum. Tillagan var lögð fram í framhaldi af umræðum sem spunnust um tillögu Alfreðs Þor- steinssonar um að Félagsmálastofnun yrði falið að undirbúa stofn- un og rekstur skýlis, þar sem bágstöddum yrði úthlutað matarg- jöfum. Alfreð sagði að svo virtist sem raunveruleg fátækt væri til staðar í Reykjavík. Allstór hópur einstakl- inga stæði fyrir utan kerfið og nyti ekki þeirrar aðstoðar sem Félags- málastofnun hefði upp á að bjóða. Hér væri um að ræða einstæð gam- almenni, vegalausa unglinga og utangarðsfólk. Þessir einstaklingar fengju ekki mat reglulega og brýnt væri að Félagsmálastofnun kæmi til skjal- anna, hugsanlega í samvinnu við kirkjuna eða líknarfélög, og starf- rækti skýli, þar sem úthlutað yrði matargjöfum til bágstaddra. Nokkuð skiptar skoðanir voru um það á fundinum hvernig best væri að haga aðstoð við bágstadda. Kristín Ólafsdóttir lagði til að fé- lagsmálaráði yrði falið að fjalla um vandann og setja fram tillögur til að bregðast við honum og var það samþykkt samhljóða. Samþykkt um sljórn Reykjavíkurborgar: Tillögu um endurskoðun vísað frá í borgarstjórn TILLÖGU Elínar G. Ólafsdóttur um að samþykkt um stjórn Reykja- víkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar yrði tekin til endurskoð- unar var vísað frá á fundi borgarsljórnar í fyrrakvöld. Frávísunin var studd þeim rökum að samþykktin byggði á lýðræðislegum regl- um sem reynst hefðu vel. í tillögu Elínar var talað um að þyrfti mál sem ágreiningur væri sérstaklega þyrfti að taka á þremur um í borgarráði fyrir og afgreiða á atriðum. Kveða yrði á um skyldu undan fundargerðum einstakra borgarstjómar til að efna til at- nefnda og ráða á borgarstjórnar- kvæðagreiðslu um einstök mál ef fundum. tíundi hluti kosningabærra borg- í frávísunartillögu sem Katrín arbúa eða þriðjungur borgarfulltrúa Fjeldsteð flutti fyrir hönd borgar- æskti þess. Taka yrði af tvímæli fulltrúa Sjálfstæðisflokks kom fram um að fundir tiltekinna nefnda og að stjórnkerfi borgarinnar væri ráða borgarinnar yrðu haldnir í virkt og lýðræðislegt og hefði reynst heyranda hljóði og auglýstir í sam- Reykvíkingum vel. Tillagan væri ræmi við gildandi reglur og að taka því óþörf. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson. Mmntust félaganna, sem fórust fyrir 50 árum HÓPUR bandarískra skipveija af bandaríska varðskipinu Hammilton, sem fórst við Garðskaga 1942 eða fyrir réttum 50 árum, kom til íslands til þess að minnast slyssins, en skipið varð fyrir tundurskeyti þýsks kafbáts. Hátt á þriðja tug skipveija fórust, en fjölda manns var bjargað af íslenzkum fiskibátum sem komu á slysstað. Hinir bandarísku félagar afhjúpuðu í fyrradag minningarskjöld um þá sem fórust við Garð- skagavita, en héldu að því búnu með varðskipinu Óðni á slysstað, þar sem fram fór minningarat- höfn. Með í ferðinni voru nokkrir af bjargvættum Bandaríkjamannanna, sem vörpuðu blómum í sjóinn, eftir að prestur hafði farið með bæn. Þrjár sýningar á Kjarvalsstöðum Margrét Zóphóníasdóttir sýnir glerlistaverk í vesturforsalnum. Á KJARVALSSTÖÐUM standa nú yfir þrjár ólíkar sýningar sem eiga að standa til 17. maí. í vestursal stendur yfir sýning á grafíkverkum eftir japanska sam- tímalistamenn. Þessi sýning kemur í kjölfar sýningar á japanskri nútíma- list sem var í safninu í fyrrasumar. Á grafíksýningunni eru verk eftir listamenn víðsvegar í Japan og eru verkin bæði hefðbundin japönsk myndgerð og viðfangsefni úr nútím- anum. Þá stendur yfir sýning á teikning- um Kjarvals. Eru það hluti þeirra verka sem Kjarval ánafnaði Reykja- víkurborg á sínum tíma auk verka sem safnið hefur eignast á síðustu árum. Þriðja sýningin sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum, er sjöunda ljóðasýningin í samvinnu við Ríkisút- varpið. Nú eru til sýnis ljóð Kristjáns Karlssonar. Eru ljóðin stækkuð upp og límd á veggi eða glugga, eins og um myndverk væri að ræða. Auk þessara sýninga, er sýning á glerlistaverkum Margrétar Zóphóní- asdóttur í vesturforsal. Þeirri sýn- ingu líkur um helgina. Nissan srórsQningar flhuregri. SauOárhröhi Heflavlh og Reghjavlh. Nú um helgina veröur stórsýning á Nissan bílum frá kl. 14-17 á fjórum stöðum á landinu, Sigurði Valdimarssyni Akureyri, íþróttahúsinu Sauðárkróki, IMI55AN Frábær verð Verðdæmi: Nissan Sunny stallbakur SLX 1BOO cc 4ra dyra 16 ventla vél, 4ra þrepa sjálfskipting, aflstýri, samlæsingar á hurðum, rafdrifnar rúöur, upphituð sæti og margt, margt fleira Staðgreiðsluverð er kr. 1.014.000 Bílakringlunni Keflavík og að Sævarhöfða 2 Reykjavík. Á Akureyri verðurt.d. boðið uppá reynsluakstur Nissan Patrol diesel —-----—

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.