Morgunblaðið - 09.05.1992, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
YFIR 150 BÍLAR Á STAÐNUM
Enn bréf til Helga Hálfdanarsonar
Páll Bergþórsson
VEITUM ÁBYRGÐ
ÁMÖRGUM
NISSAN OG
SUBARU BÍLUM
OPIÐ:
LAUCARDAC
frá 10-1700
Örugg bílasala
á góðum stað
Péturssyni. Mörgum finnst líka fag-
urt að nota við þessa sálma þau lög
sem Bjarni Þorsteinsson og aðrir
björguðu frá glötun. og voru orðin
að eiginlegum þjóðlögum eftir alda-
gamla vegferð frá kynslóð til kyn-
slóðar.
Ennfremur er til sú lausn að um-
skrifa sálmalög, breyta takti, og þá
helst í þrískiptan takt, en hann fellur
mjög vel að flestum sálmum Hall-
gríms, Einars í Eydölum, Jóns á
Bægisá og annarra meistara. Þetta
er gömul og þekkt aðferð, og var til
dæmis beitt við lag Georgs Neu-
marks, Hver sem ljúfan Guð lætur
ráða, en báðar gerðirnar eru í sálma-
söngsbók Sigfúsar og Páls. Sama er
að segja um lagið Jesú þín minning
mjög sæt er. Ekki þarf að benda á
hvað þrískiptur taktur í lagi Jóns
Nordals á yndislega vel við kveðskap
Jónasar Hallgrímssonar, Smávinir
fagrir, foldarskart. í því kvæði er
einmitt rammíslenák og hugljúf
hrynjandi eins og í sálmum Hallgríms
og flestum ljóðum Jónasar og ann-
arra skálda fyrir daga sálmabylting-
ar. Og undir lagi Kaldalóns með þrí-
skiptum takti er jólaljóð Einars í
Eydölum, Nóttin var sú ágæt ein,
einhver dýrasta perla kirkjusöngsins.
Og svona að lokum: Þetta má sem
best gera við lagið sem hefur verið
haft við vísur Guðjóns Guðjónssonar,
Það er leikur að læra. Takturinn
yrði þá sá sami og í lagi Glucks, sem
oft er haft við kvæði Jónasar, Efst
á Arnarvatnshæðum. Þú nefndir það
einmitt í greininni sem gaf hljómlist-
armönnunum tóninn og innblástur-
inn.
Með góðri sumarkveðju,
Páll Bergþórsson.
BILAB
SÆVARHöfda 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar
eftir Pál Bergþórsson
Kæri Helgi.
Þú hittir tónskáldin heldur betur
í hjartastað með pistlinum um Ijóðið
hans Guðjóns, Það er leikur að læra.
En er ekki umræðan um áherslur í
söng þessara sívinsælu vísna aðeins
kafli í miklu stærra máli sem stund-
um hefur borið á góma okkar í milli?
Þar á ég við sálmabyltinguna miklu
sem varð á nítjándu öld.
I stað gömlu sálmalaganna sem
forsöngvarar höfðu lært hver af öðr-
um var tekinn upp kirkjusöngur eins
og hann tíðkaðist erlendis, marg-
raddaður með organleik. Þessi tísku-
bylgja var óstöðvandi, enda höfðu
organleikarar engar raddsetningar í
höndunum til að prýða gömlu lögin
með hljóðfæraleik sem nú fór að
þykja ómissandi í kirkjum.
En fljótlega sýndi sig, að gömlu
sálmarnir voru varla sönghæfir und-
ir þessum nýju lögum. Á næstu öld-
um á undan hafði verið ríkjandi sú
hefð að áhersla var á fyrsta þrílið
og næsta á undan ljóðlínu sem höfuð-
stafur var í. Allt þetta gerði indæla
tilbreytingu í hrynjandi kveðskapar
og söngs:
Hver sem að reisir hæga byggð
hæsta guðs skjóli undir
textans, væru tvíliðir og þríliðir
greindir hveijir frá öðrum og hér er
auðvitað fyrst og fremst átt við þessa
gömlu sálma Hallgríms og annarra
snillinga. Þessa aðgreiningu mætti
sýna með broddi á undan áhersluat-
kvæði til stuðnings fyrir söngfólk:
’Son Guðs ’ertu með ’sanni
’sonur Guðs ’Jesú ’minn.
’Son Guðs ’syndugum ’manni
’sonararf ’skenktir ’þinn.
’Son Guðs einn ’einget’inn.
’Syni Guðs ’syngi ’glaður
’sérhver ’lifandi ’maður
’heiður í ’hvert eitt ’sinn.
En þessi aðferð er auðvitað ekki
bundin við sálmalögin. Hún hentar
líka við gömlu lögin, til dæmis þau
sem eru prentuð í Hólabók og Grall-
aranum og voru tiltæk Hallgrími
Gef þinni kristni góðan frið
guðsson um vorar tíðir
En í nýju lögunum tíðkuðust aðrar
áherslur og meiri reglufesta. Aðal-
einkennið var að í byrjun laglínu kom
oftast upptaktur sem heimtaði
áherslulítinn forlið í kveðskapnum.
Síðan tóku við tilbreytingarlausir
tvíliðir. Þarna var illt í efni og góð
ráð dýr. Kirkjunnar menn, þar á
meðal frændi þinn Helgi lektor Hálf-
danarson, gátu ekki unað því að lag
og ljóð stæðust ekki á. Og fangaráð-
ið var að yrkja marga gömlu sálm-
ana upp. Valdimar Briem hagræddi
þannig sálmi Einars í Eydölum:
Hver sá er vígi velur sér
í vernd hins almáttuga
O'g Helgi lektor endurkvað sálm
Þorvaldar Böðvarssonar og byrjaði
svo:
Af gæsku þinni gef oss frið,
ó guð, um allar tíðir
Svona var ijöldi sálma ortur upp,
öðrum gömlum sálmum var útiýmt
úr sálmabókinni, en nýir settir í stað-
inn, kveðnir undir nýju lögunum,
hvað sem gamla fólkið sagði.
En einn sálmahöfundur var frið-
helgur í þessum sviptingum. Það var
Hallgrímur Pétursson, ókrýndur kon-
ungur íslenskra sálmaskálda. Hall-
grímur hafði sjálfur mælt svo fyrir
í formála Passíusálma, að þeim
mætti ekki breyta. „Þeir sem betur
kunna munu betur gjöra“, sagði
hann, ekki laus við stolt yfir vel
unnu verki. En afleiðingin af hlífð-
inni við hann varð að hann lenti utan
garðs í kirkjusöng. Eftir að nýju lög-
in voru tekin upp voru sálmar hans
í rauninni ekki sönghæfir lengur, og
þannig standa málin enn í dag. Þeg-
ar fólk vandist nýju lögunum fór því
að finnast kveðskapur Hallgríms
stirður og rangur vegna undarlegra
áherslna og óeðlilegrar hrynjandi, ef
bókstaflega er farið eftir taktsetn-
ingunni í kirkjusöngbókunum:
Son / Guðs ert / u með / sanni,
son / ur Guðs / Jesú / minn.
Hér er áhersla á eftir takstriki.
En smekkvísir organistar sjá við
þessu. Þeir breyta laginu, ekki á
pappírnum, en í útfærslunni, söngn-
um, sem þá hljómar svona:
/ Son Guðs / ertu með / sanni,
/ sonur Guðs / Jesú 7 minn.
Þeir láta sem þeir sjái ekki takt-
strikin í nótnaskriftinni, láta skiptast
á þríliði og tvíliði eftir efninu, eða
þrískiptan og tvískiptan takt, til þess
að hrynjandi málsins njóti sín, en
lengd nótna er þó ekki breytt, nema
að því leyti sem áherslur krefjast
þess í upphafsatkvæði hvers liðar.
Þessa aðferð hinna smekkvísu org-
anista finnst mér að ætti að viður-
kenna í reynd með því að setja nótur
við hvern sálm í sálmabókinni í sam-
ræmi við þessa reglu. Taktstrik væru
þá ekki sett nema milli ljóðlína. Þetta
er reyndar gömul og viðurkennd að-
ferð, en lengd nótna væri annars
ekki breytt. En í prentun sálmsins,
Munið að við höfum 30 bíla
í hverjum mán sem við bjóðum
á tilboðsverði og tilboðskjörum
NISSAN PRIMERA 2000LX ÁRC. 1991 ekin 44 þ.km,
sjálfskiptur, samlæsing, rafm.rúður ofl.
Ath. skipti á ódýrari, verð 1150 þús. stgr.
SUBARU LECACY1800 4X4 ÁRC. 1990 ekinn 59 p.km,
5 gíra, rafm.rúður, samlæsing ofl. A th. skipti á ódýrari,
verð 1200 þús. stgr. Höfum einnig árg. 1991.
TOYOTA COROLLA TOURING 4X4 ÁRC.1989
ekinn 51 p.km, 5 gíra, álfelgur, útvarp, ofl.
Ath. skipti á ódýrari, verð 960 pús. stgr.
Við bjóðum greiðslukjör til þriggja ára og
jafnvel enga útborgun
GMC JIMMY 6,2L DIESEL ÁRC. 1988 ekinn 106 p.km,
sjálfskiptur, 8 cyl, samlæsing, rafm. rúðurofl.
Ath. skipti á ódýrari, verð 1850 pús. stgr.
SUBARU JUSTY J12 4X4 ÁRC1990 ekinn 11 p.km,
5 gíra, sumar og i/etrardekk útvarp ofl. Aðeins bein sala,
verð 720 pús. stgr. Höfum flestar árg. afJusty
TOYOTA CAMRY1800 ÁRC. 1987 ekinn 50 p.km,
5 gíra, útvarp, sumar- og vetrardekk ofl. skipti á ódýrari,
verð 760 pús. stgr.