Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992
33
Um stöðu fríkirkjusafnaðanna
eftir Þorbjörn Hlyn
Arnason
Formaður Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík skrifar grein í Morgun-
blaðið hinn 1. maí síðastliðinn og
víkur þar meðal annars að ummæl-
um biskups íslands um breytingar
á reglum er gilda um skráningu í
fríkirkjusöfnuðina í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Biskup lét þau orð falla, í við-
tali við Morgunblaðið, að nú hefðu
fríkirkjusöfnuðimir sömu stöðu og
sértrúarsöfnuðir, hvað varðaði
skráningu í trúfélög, þannig að nú
getur fríkirkjumaður úr Reykjavík
flutt austur á land, en verið skráð-
ur áfram í Fríkirkjusöfnuðinn í
Reykjavík.
I grein safnaðarformannsins
kom fram, að hann er ekki ánægð-
ur með nefnd ummæli biskups, og
segir marga hafa komið að máli
við sig og spurt hvort Fríkirkju-
söfnuðurinn í Reykjavík væri sér-
trúarsöfnuður. Rétt er að taka
fram í þessu sambandi að í orðum
biskups kemur hvergi fram að Frí-
kirkjusöfnuðurinn sé svokallaður
sértrúarsöfnuður, en það orð hefur
gjarnan verið notað um sum þau
trúfélög er standa utan þjóðkirkj-
unnar, hafa annan kenningagrund-
völl en þjóðkirkjan og byggja um
margt á ólíkum trúarhefðum. Bisk-
up er einungis að vísa til þess, að
nú hafi fríkirkjusöfnuðirnir sömu
stöðu varðandi skráningu í trúfélög
og sértrúarsöfnuðir.
Formaður Fríkirkjusafnaðarins
fjallar í nokkru máli um það sem
hann kallar „búsetuhömlur" frí-
kirkjufólks, en það eru reglurnar
sem áður giltu um skráningu í trú-
félög og höfðu í för með sér, að
ef fríkirkjumaður flutti út á land,
þá var hann sjálfkrafa skráður í
viðkomandi þjóðkirkjusöfnuð.
Fríkirkjumenn hafa nú fengið
breytingu á þessu fyrirkomulagi,
þannig að nú hafa þeir, hvað þetta
varðar, sömu stöðu og trúfélög
utan þjóðkirkjunnar, sem gjarna
eru nefnd sértrúarsöfnuðir. En það
er rétt að huga að því, að baki
hinu eldra fyrirkomulagi lágu
ákveðin trúfræðileg rök. Líkt og
formaður Fríkirkjusafnaðarins
bendir réttilega á, þá er Fríkirkjan
í Reykjavík evangelísk-lúthersk
kirkja eins og þjóðkirkjan. Játning-
argrundvöllur þessara tveggja
„Hvað sem skráningar-
reglum líður þá er
óhætt að fullyrða að
samstarf þjóðkirkjunn-
ar og fríkirknanna hef-
ur í gegnum tíðina ver-
ið ágætt, enda engar
efnislegar forsendur til
annars.“
kirkna er með öðrum orðum hinn
sami; þær viðurkenna sömu játn-
ingarnar. Þetta hefur birst í verki
í því, að biskup íslands hefur vígt
presta til þjónustu í fríkirkju-
söfnuðunum og þjóðkirkjuprestar
hafa gengið til þjónustu í fríkirkju-
söfnuðunum og horfið þaðan aftur
til þjónustu innan þjóðkirkjunnar.
Það er vel skiljanlegt að frí-
kirkjumenn hafi verið óánægðir
með eldri skráningarreglur, sem
höfðu meðal annars í för með sér
að fríkirkjufólk sem flutti úr Hafn-
arfírði eða Reykjavík um einhvern
tíma var ekki sjálfkrafa skráð í
sinn fríkirkjusöfnuð er það flutti
heim aftur. En í ljósi þess sem hér
er sagt að ofan, um sameiginlegan
játningagrundvöll þjóðkirkju og
fríkirkna á íslandi, er margt
skiljanlegt við eldri reglurnar sem
fólu í sér breytingar á trúfélagsað-
ild við búferlaflutninga, enda
byggja fríkirkjusöfnuðimir á sama
grunni og þjóðkirkjan. Tökum
dæmi af fríkirkjumanni úr Reykja-
vík sem flytur austur á Reyðar-
íjörð. Vegna þess að fríkirkjan og
þjóðkirkjan byggja á sömu játning-
um, eiga þannig sameiginlega guð-
fræðilega undirstöðu fyrir boðun
sína, eru allar líkur á að fríkirkju-
maðurinn kjósi að þiggja þá þjón-
ustu sem þjóðkirkjusöfnuðurinn á
Reyðarfírði veitir, og því ekki óeðli-
legt að hann sé skráður í söfnuðinn
á Reyðarfírði og sóknargjöld hans
renni til þess safnaðar.
En nú hefur þessum reglum
verið breytt, þannig að fríkirkju-
maður sem flytur á Reyðarfjörð
situr við sama borð, hvað varðar
trúfélagsaðild, og aðventisti eða
hvítasunnumaður, sem tilheyra
trúfélögum er ekki hafa sama
játningagrunn og þjóðkirkjan og
hafa í guðfræðilegum skilningi um
Þorbjörn Hlynur Árnason
margt önnur viðhorf en lúthersk
kirkja.
En hvað sem skráningarreglum
líður þá er óhætt að fullyrða að
samstarf þjóðkirkjunnar og frí-
kirknanna hefur í gegnum tíðina
verið ágætt, enda engar efnislegar
forsendur til annars, eins og bent
var á hér á undan, og fylgja þess-
um athugasemdum góðar óskir um
að þar verði framhald á.
Höfundur er biskupsritari.
Katrín Sigurðardóttir og Berg-
þór Pálsson í hlutverkum sínum
í Töfraflautunni.
Töfraflaut-
an á Norður-
landi vestra
LISTAMENN íslensku óperunnar
ætla að leggja land undir fót og
nú norður í land með Töfraflaut-
una eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art.
Sýningar verða á Blönduósi laug-
ardagskvöldið 16. mai kl. 21.00 og
í Miðgarði í Skagafírði sunnudaginn
17. maí kl. 15.00. Áður auglýstir
sýningartímar sem birtir hafa verið
m.a. í Morgunblaðinu í MENOR
menningarfréttum eru rangir.
í aðalhlutverkum eru Þorgeir J.
Andrésson sem Tamino, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir sem Pamina,
Bergþór Pálsson sem Papageno og
Sigrún Hjálmtýsdóttir sem Nætur-
drottningin. Tónlistinni stjórnar
Garðar Cortes, undirleikarar eru
Iwona Jagla og Rosemary Hewlett.
í sýningunni munu taka þátt böm
af Norðurlandi vestra.
NIÐURHENGD LOFT
■ CMC kerfi fyrir niðurhengd loft, er úr
galvanfseruðum málmi og eldþolið.
■ CMC kerfi er auðvelt i uppsetningu og mjög sterkt.
■ CMC kerfi er fest með stillanlegum upphongjum
sem þola allt að 50 kg þunga.
■ CMC kerfi fnst I mörgum gerðum baaði sýnilegt og
falið og verðlð er ótrulega lágt
EINKAUMBOÐ
88 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
TONCO KYNNIR
IMIðiH
I Laugardalshöllinni
Föstudaginn 5. júní klukkan 19.00
\<'6
f
*r.'> -T
VS°
mm.%
ÍSM - \ v '' ^
• W' i
^ , W-ÍÍÍ-'
Ér mm
Verð kr. 3800
m æ
•'... llillllTi’nmi lilisill WirBBlllTllTir^ ^
S • K- I • F • A • N
VISA
MIÐAPANTANIR I
S T E I N A R
EURO
Miðasala í hljómplötuverslunum:
ísafirði - Akureyri - Vestmannaeyjum - Keflavík - Akranesi
Reykjavík Steinar - Skífan
Flugleiðir veita 35% afslátt á fargjöldum vegna hljómleikanna.