Morgunblaðið - 09.05.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1992
37
Svari nú hver fyrir sig
eftir Kristínu
Steinsdóttur
Alþjóðlegi barnabókadagurinn
var haldinn hátíðlegur í Norræna
húsinu 2. apríl 1992. Það var
Barnabókaráðið, íslandsdeild Ibby,
sem stóð fyrir hátíðinni. Þessi dag-
ur er ekki valinn af handahófi.
Hann er fæðingardagur ævintýra-
skáldsins H.C. Andersens og árið
1953 var ákveðið að helga barna-
bókinni þennan dag.
Barnabókaráðið stóð fyrir vand-
aðri dagskrá. í bakherbergjum
sögðu rithöfundar börnum sögur
eða lásu úr verkum sínum á meðan
dagskrá var í gangi inni í sal. Þar
ræddi Erna Árnadóttir um texta í
bókum fyrir yngri böm, Ólöf Pét-
ursdóttir um bækur fyrir eldri börn
og Margrét Theódórsdóttir um
þýddar bækur. Ragnheiður Gests-
dóttir fjallaði um myndir í barna-
bókum og sýndi litskyggnur máli
sínu til stuðnings.
Siðari hluti dagskrárinnar bar
yfirskriftina: Hvernig fjalla fjöl-
miðlar um barna- og unglingabæk-
ur?
Hópur sem kallaði sig Starfshóp
höfunda barna- og unglingabóka
gerði nokkra úttekt á umfjöllun
fjölmiðla á síðasta ári og tók undir-
rituð að sér að segja frá niðurstöð-
um hennar f.h. hópsins. Leitað var
til fjölmiðla og þeim boðið að senda
fulltrúa sem gera skyldu grein fyr-
ir stefnu þeirra og markmiðum.
Ekki einn einasti fjölmiðill sá sér
fært að taka þátt í umræðunni.
Þetta segir meira en mörg orð
hvaða virðingarsess barna- og
unglingabókmenntir skipa í augum
þessara fjölmiðla.
í síðasta jólabókaflóði kynnti
Ríkisútvarpið bækur fyrir fullorðna
í Leslampanum, Kviksjá og á Bóka-
þingi, í allt að sautján klukkustund-
ir á meðan barnabækur fengu eina
klukkustund og tuttugu og eina
mínútu í þættinum Brotabroti. Þó
voru barna- og unglingabækur
rúmur fjórðungur af heildarútgáf-
unni fyrir jólin skv. upplýsingum
frá Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Bækur fyrir börn og fullorðna voru
aldrei kynntar í sömu þáttum. Af
hveiju ekki? Eru það ekki fullorðn-
ir sem í flestum tilfellum velja
bækur fyrir böm sín? Er hér ekki
um bókmenntakynningu að ræða
og hvað er þá eðlilegra en þessar
bókmenntagreinar séu í einum og
sama þættinum? Af hveiju eru bók-
menntir sífellt dregnar i dilka?
Sjónvarpið var í fyrsta sinn með
blandaða bókakynningu og á þakk-
ir skilið fyrir það. Aðalstöðin var
einnig með blandaða bókakynn-
ingu. Þar voru bækur kynntar með
upplestri, viðtölum við höfunda og
umsögnum um bækur.
Á hvern hátt sinna dagblöðin
skyldum sinum við þessa bók-
menntagrein? Það gera þau á þann
hátt að skrifa að jafnaði helmingi
fleiri, lengri og ítarlegri ritdóma
um fullorðinsbækur en bækur ætl-
aðar börnum og að sniðganga þá
sem skrifa fyrir síðarnefnda hópinn
með öllu þegar kemur að viðtölum
og kaflabirtingum. Hefur þá sá
höfundur sem skrifaði fyrir ungl-
inga ekki frá neinu að segja þegar
bókin hans eða hennar kemur loks-
ins út? Telst það ekki til tíðinda
þegar barnabók kemur út? Þögnin
í kringum þennan hóp er hrópandi.
Börn hér á landi njóta ekki virðing-
ar fyrr en þau eru vaxin úr grasi
og þess vegna er það sem kemur
á bók fyrir þau lítils metið. Þarna
eiga fjölmiðlar stóran þátt, sinnu-
leysi þeirra er fýrir löngu gengið
út yfir allt velsæmi. Samstarfshóp-
urinn reyndi að vekja máls á sinnu-
leysinu í grein í Morgunblaðinu 22.
Fermingar á morgun
Fermingarbörn í Stokkseyrar-
kirkju sunnudaginn 10. maí kl.
10.30. Prestur Ulfar Guðmunds-
son. Fermd verða:
Bi-ynja Ármannsdóttir,
Stjörnusteinum.
Guðný Benediktsdóttir,
íragerði 7.
Helena Sif Zóphoníasdóttir,
Hásteinsvegi 7.
Hafnarfjarðarsókn og
Laugarnessókn:
Hafnfirðing-
ar heimsækja
{ Laug-arneskirkju
SAFNAÐARFÓLK úr Hafnar-
á fjarðarsókn mun sunnudaginn
* 10. maí hcimsækja Laugarnes-
kirkju og taka þar þátt í messu
sem hefst kl. 11.00. Rútuferð
verður frá Hafnarfjarðarkirkju
kl. 10.00 um morgunin.
Kórar beggja kirkna munu leiða
söng í messunni undir stjórn organ-
ista sinna, þeirra Ronalds Turners
og Helga Bragasonar og séra
Gunnþór Ingason predika og þjóna
fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú
Hróbjai’tssyni, staðarpresti og pró-
fasti.
Eftir messu mun gestunum svo
verða kynnt það víðtæka starf sem
fram fer nú á vegum Laugarnes-
kirkju og stefnt er þar að. Heim-
sóknir af þessu tagi stuðla að kynn-
ingu milli safnaða og skapa vina-
bönd þeirra á millum og efla sam-
stöðu í því brýna verki að boða og
breiða fagnaðarerindið góða út á
sem fjölþættasta hátt og gera
kirkjustarf virkt sem víðast.
Jón Dalbú Hróbjartsson
Gunnþór Ingason.
Kristrún Ragna Elvarsdóttir,
Álftarima 9, Selfossi.
Guðmundur Einarsson,
íragerði 6.
Guðmundur Þór Þórðarson,
Hásteinsvegi 9.
Kristján Bjarkarson,
Tóftum.
Smári Guðjónsson,
Heiðarbrún 24.
Steinar Nóni Hjaltason,
Heiðarbrún 22.
Fermingarbörn í Eryarbakka-
kirkju sunnudaginn 10. maí kl.
13.00. Prestur Ulfar Guðmunds-
son. Fermd verða:
Ásta Björk Jónsdóttir,
Eyrargötu 19.
Eyrún Hafþórsdóttir,
Túngötu 32.
Heiða Jóhannsdóttir,
Háeyrarvöllum 32.
Þóra Osk Guðjónsdóttir,
Kirkjuhvoli.
Árni Hjálmarsson,
Álfsstétt 3.
Bjarni Sigurðsson,
Túngötu 23b.
Bjarni Skúlason,
Túngötu 16.
Erling Tómasson,
Eyrargötu 17.
VINKLAR A TRE
HVERGI LÆGRI VERÐ
if'Yx fi
ii \r Pj
Líl
ÞYZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
EINKAUMBOÐ
Þ.Þ0RGRÍMSS0N & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
„Telst það ekki til tíð-
inda þegar barnabók
kemur út? Þögnin í
kringum þennan hóp er
hrópandi. Börn hér á
landi njóta ekki virð-
ingar fyrr en þau eru
vaxin úr grasi og þess
vegna er það sem kem-
ur á bók fyrir þau lítils
metið.“
febr. sl. og Ólafur M. Jóhannesson
lagði málinu lið nokkru seinna í
sama blaði í grein sinni Ólæsið.
Engu að síður tóku fjölmiðlar
engan þátt í barnabókadeginum.
Eg lýk máli mínu með glóð-
volgri reynslusögu úr nýafstöðnu
jólabókaflóði.
Um miðjan desember var hringt
frá forlaginu mínu og ég beðin um
að koma upp í Perluna næsta laug-
ardag þar sem lesa ætti upp úr
nýjum barnabókum. Það fyrir-
komulag var haft á að tvö forlög
sáu um lesendur hvern laugardag
Kristín Steinsdóttir
og þannig áttu kynningarnar að
standa allt til jóla. Þetta er ekkert
smá tækifæri til að vekja athygli
á barnabókinni, hugsaði ég og
þekktist boðið.
Næsta laugardag dreif ég mig
yfir Flóann og beint í Perluna. Á
fyrstu hæð var jólamarkaður í full-
um gangi, heilmikil verslun og sá
ég ekki betur en seldist gi'immt.
Jólasveinar voru að syngja uppi á
heljarmiklu sviði. Ekki var einn
einasti stóll fyrir framan sviðið eins
og væri ekki til þess ætlast að
menn tylltu sér niður og hlustuðu
þó svo að einhvern langaði til þess
eða væri bara þreyttur! Á miðju
gólfi stóð jólatré. Börn og fullorðn-
ir eigruðu um gólfið og nú var
komið að mér. Um leið og jóla-
sveinninn fór ofan af sviðinu til-
kynnti hann eftirfarandi í hátalar-
ann:
„Nú kemur kona sem ætlar að
lesa fyrir ykkur úr barnabók en á
meðan hún er að lesa ætla ég að
ganga um og taka í höndina á
ykkur og spjalla við ykkur því mér
þykir svo afskaplega gaman að
tala við krakka.“
Svo Iagði jólasveinninn af stað
og börnin mændu á eftir honum í
halarófu. Á svona samkomu er
barnabók dæmd til að bíða lægri
hlut fyrir jólasveininum. Metnaður
þeirra sem standa að samkomu-
haldinu er enginn, það er alveg
sama hvað krökkum er boðið upp
á og í hvaða röð, það er allt nógu
gott í þau, bara að það sé eitthvað
og helst nógu mikil læti.
Haldið þið að fullorðnum hefði
verið boðið upp á þetta?
Haldið þið að fjölmiðlar hefðu
hundsað boðið 2. apríl ef umræðan
hefði snúist um fullorðinsbækur?
Svari nú hver fyrir sig!
Höfundur er rithöfundur.
U N
M
N N
Yfirlit yfir afdregna
staðgreiðslu ársins 1991
*S9»
Berið yfirlitið saman við
launaseðla
Nú eiga allir launamenn að hafa
fengið sent yfirlit yfir afdregna
staðgreiðslu af tekjum sínum á
árinu 1991.
Mikilvægt er að yfirlitið sé borið
saman við launaseðla til þess að
tryggt sé að rétt skil hafi verið gerð
á staðgreiðslu.
Afleiðing vanskila
Ef um skekkjur á yfirliti er að raeða kann
það að leiða til þess að greiöslustaða
verður röng og gjaldendur hugsanlega
krafðir um hærri skattgreiðslur við
álagningu en ella heföi orðið.
w-w®
XtLSÍ®
XtUMS®
*tUW®
xlSSL-
Umsókn um leiðréttingu
Ef um skekkjur á yfirliti er að ræða
er nauðsynlegt að umsókn um
leiðréttingu sé komið til ríkisskatt-
stjóra sem fyrst til þess að tryggja
að rétt staðgreiðsla verði ákvörðuð
við álagningu opinberra gjalda nú
í sumar.
Umsókn um leiðréttingu ber að
senda til ríkisskattstjóra.
Póstfangið er:
Ríkisskattstjóri
Laugavegi 166
150 Reykjavík
Símanúmer ríkisskattstjóra er:
91-631100 og grænt númer
996311.
Tryggið rétt uppgjör á
staðgreiðslu og álagningu í
sumar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI