Morgunblaðið - 24.05.1992, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
AÐMIRALL
ber nafn sitt með rentu.
Ef réttir vindar blása
geta herskarar þessara
fíðrilda borist til íslands,
eftir Kristínu Marju Baldursdótfur
BRIAN PilkingLon bar út blöð í
heimaborg sinni Liverpool og
átta ára gamall auraði hann
saman fyrir fuglabók sem hann
hafði lengi haft augastað á. Ekki
voru fuglategundir margar í
borginni, helst gráspói og dúfa
og því ekki hægt að rekja áhug-
ann til fjölskrúðugs fuglalífs.
Fuglum fjölgaði hins vegar í lífi
Brians þegar hann fluttist til
Islands og fyrir nokkrum árum
hóf hann að teikna þá. Árangur-
inn má nú sjá í fallegri bók sem
er að koma út þessa dagana og
ber heitið „Dýraríki íslands“, en
auk fuglanna eru í bókinni
myndir af villtum spendýrum á
íslandi, vatnafiskum, fjörudýr-
um og nokkrum skordýrum, og
sagt frá lífsháttum þeirra og lífs-
baráttu.
DILASKARFUR
eilítið skuggaleg-
ur, er snöggur að
yfirgefa hreiðrið
ef hætta steðjar
að og skilur eggin
eða ungana varn-
arlausa eftir.
HOLLENSKAR NUNNUR? Nei,
æðarkóngur. Ekki er hann íslenskur
varpfugl, en árviss gestur við land-
ið.
KONUNGSGERSEMI fyrr á öldum. Það tók ljósmyndarann hálfan mánuð að ná mynd af þessum prinsi,
Brian síðan málaði eftir.
tla mætti að
listamaðurinn breski, sem féll fyrir
íslensku náttúrunni, væri yfir sig
feginn eftir að hafa komið frá sér
þessu glæsilega verki, en það er
öðru nær. „Eg var miður mín þegar
þessu var lokið, fylltist næstum
þunglyndi, því það var svo gaman
að lifa meðan ég teiknaði þessar
rnyndir."
Ekki er nokkur mynd sjáanieg
eftir listamanninn heima hjá honum
og segir hann mér að yfírleitt sé
hann aldrei fullkomlega ánægður
með það sem hann geri og því geti
hann ekki notið eigin verka. „Ef til
vill er það best, því þeir sem eru
alltaf ánægðir með það sem þeir
gera, bæta litlu við sig.“
Hann segist þó vera mjög ánægð-
ur með það hvemig bókin var unn-
in. „Prentunin á bókinni er meist-
araverk, enda tel ég að Oddi sé
með eina bestu prentun í Evrópu.
Eg var oft marga tíma á dag í prent-
smiðjunni og það var mjög erfítt Iíf
fyrir mig því þá gat ég ekki teiknað
á meðan. Fyrir mér er teiknun ekki
vinna og ekki áhugamál, heldur
þörf. Ég teikna líka í sumarfríum
og er viss um að ég dræpist ef ég
missti höndina. Jæja, eða ég Iærði
að teikna með þeirri vinstri.“
Um bókina
Auk bókarinnar um dýraríkið
kemur út lítil handbók um fugla,
„íslenskir fuglar“, bók sem fugla-
vini hefur lengi dreymt um að hafa
í vasanum á ferðalögum um landið,
átta stórar fuglamyndir í möppu
áritaðar af listamanninum og 30
póstkort með myndum bæði af fugl-
um og rándýrum. Það er bókaútgáf-
an Iðunn sem gefur út báðar bæk-
umar og myndirnar.
„Ég byijaði að teikna þessar
myndir fyrir löngu, og sýndi mönn-
um í Iðunni þær,“ segir Brian.
„Þeim leist vel á myndirnar en ég
vissi ekki í fyrstu hvers konar bók
þetta yrði. í upphafi var ég að hugsa
um nokkurs konar sýnisbók fyrir
unglinga, en það breyttist síðar.
Frá því í febrúar í fyrra hef ég síð-
an unnið eingöngu að þessu verki
og oftast vann ég í fjórtán tíma á
dag. Hefði vel getað unnið lengur
ef ég hefði ekki verið orðinn svona
þreyttur í augunum."
Brian vann myndimar eftir ljós-
myndum og hafði einatt sex eða
fleiri mismunandi ljósmyndir 'af
„SOFA URTU BÖRN“ Kóparnir eru sýlspikaðir af mjólkurþambi og treg-
ir til að fara í sjóinn, svo að móðirin þarf stundum að hrinda þeim út í,