Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 14
w AF SPJÖLDUM GLÆPASÖGUNNAR/Ian Brady var siðferðilega sjúkur _______og heillaöur af kvalalosta nasistaveldisins í Þýskalandi._ Eftir að hafa flekað Myru Hindley varð hún trygg hjákona hans og fús 14 c MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAl 1992. takandi í siðspilltum draumórum hans Morðin í mýrlendinu f JANÚAR 1961 sá Myra Hindley, hlédræg 19 ára stúlka af lágstétt- um frá Gorton hverfinu í Manchester, Ian Brady í fyrsta sinn í mötuneytinu hjá Millwards efnagerðinni. Brady, dökkhærður og sið- ferðilega sjúkur, var heillaður af kvalalosta nasistaveldisins í Þýzka- landi og var að lesa Mein Kampf eftir Hitler yfir hádegisverðinum. Hann hafði engan tíma til að gefa Hindley gaum, en í dagbók sína skráði hún lofgjörð um mannkosti þessa þungbúna unga manns. „Ian var í svartri skyrtu og leit frábærlega út ... Ég elska hann,“ skrifaði hún. Og í desember 1961 skrifaði hún: „Húrra! f dag eigum við okkar fyrsta stefnumót. Við ætlum í bíó.“ Hann fór með hana að sjá mynd um réttarhöldin I Niirnberg. Brady innsiglaði tilhug- alíf þeirra með því að fleka hana með fagmannlegum tilburðum á heimili ömmu hennar þennan sama dag. Upp frá því var Hindley trygg ástkona hans og fús þátttakandi í kvalalosta- og sjálfspísla- draumórum hans. Þau tóku klámmyndir hvort af öðru og söfnuðu þeim í albúm. Brady varð fljótt leiður á þessu og taldi Hindley (sem hann kallaði „Myru Hess“ til heiðurs lostapynt- arans og fangavarðarins Irmu Grese, sem starfaði við útrýmingar- búðir nasista) á að aðstoða hann við að fá böm og unglinga til þátt- töku í hættulegri leik. I júlí 1963 hvarf Pauline Reade, 16 ára stúlka frá Gorton. Hún bjó í nágrenni við David Smith, mág Hindleys, og fannst síðar myrt í mýrlendi skammt fyrir utan borgina. í nóv- ember hvarf John Kilbride, 12 ára, og sjö mánuðum síðar var öðrum 12 ára skólapilti, Keith Bennett, rænt og hann myrtur. Vegna þess hversu sláandi líkt var að morðun- um á Reade og Bennett staðið taldi lögreglan næsta víst að morðinginn eða morðingjamir væm hinir sömu í báðum tilfellum. Enn sem komið var stóð lögreglan þó ráðþrota enda vom skötuhjúin Ian og Myra þá óskrifað blað á spjöldum glæpasög- unnar. Morð á tíu ára stúlku, Lesley Ann Downey, 26. desember 1964 var næsta mál sem lögregluyfirvöld fengu til meðferðar. Síðar kom í ljós að Ian og Myra voru þar að verki, en þau höfðu farið með stúlk- una, sem hafði verið á jólasýningu, á heimili Bradys við Wardle Brook Avenue í Hattersley, og neytt hana til að sitja fyrir nakin meðan teknar vom af henni klámmyndir. Segul- bandsupptaka skráði angistaróp skólastúlkunnar rétt áður en hún var kyrkt. í bakgrunni hljómuðu Hinn siðspillti morðingi Ian Brady ur, Myra Hindley. „The Little Drummer Boy“ og „Jolly St. Nicholas". Þessi ógnvekjandi upptaka var síðar lögð fram sem fyrsta sönnunargagn saksóknara í réttarhöldunum yfir Brady og Hindley. Skötuhjúin biðu í tíu mánuði áður en Brady valdi næsta fórnarlamb sitt. í október 1965 hitti hann 17 ára pilt, Edward Evans, á krá í Manchester og tældi þennan unga mann, sem álitinn var samkyn- og hjákona hans og samverkamað- hneigður, með sér heim á Wardle Brook Avenue. Þar kórónaði Brady fólskuverk sín með því að mölbijóta höfuðkúpu unga mannsins með handöxi að viðstöddum David Smith, sem Brady hafði látið Hind- ley sækja. „Þetta er búið,“ skríkti Brady. „Þetta er það subbulegasta sem við höfum gert. Venjulega þarf aðeins eitt högg.“ Morðið á Evans var ekki framið „til gamans“ að sögn Bradys síðar, heldur til að veita Smith „fræðslu" um morð. Vafalítið hefur Brady einnig viljað bendla Smith við glæp- inn. Hann rétti furðu lostnum svila sínum öxina rétt eftir morðið svo fingraför hans væru á skaftinu. Líkinu var svo pakkað í plast og borið upp á loft meðan Brady og Hindley hlógu hæðnishlátri og sögðu hvort öðru brandara. Smith fylltist viðbjóði á því sem fyrir augu bar, kvaddi, og fór heim til að segja konu sinni, Maureen, frá verknaðinum. Ungu hjónin ákváðu að réttast væri að hringja í lögregluna, sem brá skjótt við. Lögreglumenn flýttu sér heim til Bradys og fundu iíkið þar sem Smith hafði sagt það vera. Tvær ferðatöskur fullar af ýmiskonar klámgögnum og upptakan frá morðinu á Downey fundust í geymsluskáp í Manchester Central járnbrautarstöðinni. Ljósmynd af Hindley þar sem hún stóð við grunna gröf Johns Kilbridge í Saddleworth mýrlendinu hjálpaði lögreglunni við að finna líkin af Downey og Kilbridge. Réttarhöldin yfir Brady og Hindl- ey hófust í Chester 19. apríl 1966, og dómari í málinu var Fenton Atk- inson. Hundruð blaðamanna frá sjónvarpi og blöðum fylltu réttarsal- inn til að fylgjast með morðingjun- um og hlusta á ógnvekjandi segul- bandsupptökuna. Hinn 6. maí voru Ian Brady og Myra Hindley fundin sek um morðin á Evans og Down- ey. Brady var einnig fundinn sekur um morðið á Kilbridge. Þau voru bæði dæmd til lífstíðar fangelsis- vistar. SÝNING Á SUMARHÚSGÖGNUM EYJASLÓÐ 7 REYKJAVÍK s.91-621780 í TJALDVÖGNUM Einfaldari UPPSETNING Frábært VERÐ og GREIÐSLUKJÖR HANNAÐIR á íslandi fyrir ÍSLENSKAR aðstæður 1/4 _. á HoHkamper ASTRO tjaldvögnum Brensubúnaður, 13" felgur, sterk galvaniseruð stálgrind, með fáeinum handtökum má breytaASTRO í bílakerru. Greiðslukjör: 50 þús. út, rest afb. í 2 ár. Innifalið: Tjaldvagn, innitjald, stórt fortjald og botn* Kaupauki: 2 tjaldstólar fyrir þá sem staðfesta pöntun um helgina. Opið laugard. 10 - 17 og sunnud. 12-16 *Skráningarkostn. ekki innifalinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.