Morgunblaðið - 24.05.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992
----------------------------------
C 9
KAUPMANNAHAFNARBRÉF
Já með heilanum en
nei með hjartanu
ÞEGAR danska þingið greiddi atkvæði um Maastric-
ht-samkomulagið fyrir skömmu var það samþykkt
með nokkuð færri atkvæðum en aðildin að Efnahags-
bandalaginu á sínum tíma. Eftir atkvæðagreiðsluna
fór þingið í frí til að þingmenn gætu beitt sér af
alefli í umræðum fram að þjóðaratkvæðagreiðslu
um samkomulagið 2. júní. Og þeir sitja ekki á ein-
tali. Já eða nei er mál málanna meðal Dana um
þessar mundir. Samkvæmt skoðanakönnunum eru
næstum jafnmargir með og á móti, þeir óákveðnu
munu væntanlega ráða úrslitum.
Þegar fór að koma í ljós að almenningur var tví-
bentur í afstöðu sinni sakaði Uffe Ellemann Jensen
utanríkisráðherra, Jafnaðarmannaflokkinn, stærsta
flokk landsins, um að vera með hálfvelgju í stuðn-
ingi sínum við samkomulagið. Hvort sem það er
réttmæt ásökun eða ekki er ljóst að flokksmenn eru
ekki á eitt sáttir. Ritt Bjerregaard, sem var á móti
inngöngunni 1972, rökstyður jákvæði sitt nú meðal
annars með því að Evrópa sé ekki sú sama og hún
var 1972. Nú sé sá tími að renna upp að öll Evrópu-
ríki geti verið með ef þau vilja. Enginn múr lokar
suma úti og aðra inni. Ef Danir ætli sér á annað
borð að taka þátt í samstarfi Evrópuríkja, geti þeir
ekki annað en sagt já við samkomulaginu. Ella sitji
þeir utanborðs og þá hlusti örugglega enginn á ráma
raust Dananna.
Herra og frú Hansen geta kynnt sér málin á
ýmsan hátt áður en þau krossa við 2. júní. Fyrir
nokkrum mánuðum var samkomulaginu dreift á
bókasöfn, þar sem hægt var að fá það endurgjalds-
laust. Einnig hafa verið gefnar út tvær bækur með
því ásamt skýringum og athugasemdum um inni-
haldið, fyrir þá sem finnst textinn sjálfur tyrfinn.
í blöðunum fyllir EB-efnið marga dálka daglega.
Fræðingar hafa í löngum bunum verið kallaðir fram
á fjölmiðlavettvanginn til að vitna um hin ýmsu
atriði. Eitt þeirra er hvort samkomulagið stangist á
við stjórnarskrána og sjálfsákvörðunarrétt Dana. Á
hveijum virkum degi er stuttur viðræðuþáttur í ríkis-
ajqnvarpinu þar sem með- og mótmælendur samkom-
ulagsins skiptast á skoðunum.
I hrærigraut með- og mptraka er tvennt sem leynt
pg ljóst virðjst móta afstöðuna til Maastricht-sam-
komulagsins. Annars vegar er hræðslublandin af-
staðan til Þjóðveija, hins vegar þrúgandi tilfinning
Dana fyrir því að þeir séu smáþjóð. Um leið og
sameining Þýskalands var í sjónmáli vpknuðu
áhyggjur meðal Dana um hyer yrði framtíð þeirra
í skugga þess stórveldis, sem þeim fannst að risi
nú upp. Það er einungis hálf öld síðan Þjóðveijum
mistókst að koma á fót þúsund ára ríki og hemámi
þeirra í Danmörku lauk. í hugum fullorðins fólks
er það ekki gleymt. Hvort sem fólk talar upphátt
um það eða ekki, eru margir Danir sér meðvitaðir
um vanmátt sinn gagnvart Þjóðveijum. Við þetta
fólk segja Ritt Bjerregaard, fyrrum þingflokksform-
aður Jafnaðarmannaflokksins, og Uffe Ellemann-
Jensen að það sé betra að sitja til borðs með Þjóð-
veijum og hinum og ákveða gang mála með þeim,
en að ætla að gagga utan í þeim einir á báti.
Danir em sér meðvitaðir um smæð sína. Það hjálp-
ar ekkert upp á sjálfsálitið þó að þeir séu fleiri en
bæði Norðmenn og Finnar, því þeir eru nefnilega
færri en Svíar, en þó einkum og sér í lagi bara eins
og sýsla í Þýskalandi. Á landakortinu eru þeir að-
eins eins og skagi út frá þessu nágrannalandi sínu.
í þessu samhengi gildir líka áðurnefnd röksemd um
að það sé betra að vera innan vallar en utan.
Norræn samvinna er einnig með í dæminu. Með-
mælendur segja að það styrki norræna samvinnu
að styðja samkomulagið, því það sé hinum Norður-
löndunum hvatning til inngöngu og þar eigi þau sér
vettvang til að vinna að sínum hagsmunamálum í
evrópsku samhengi. Poul Schlúter forsætisráðherra
sagði í lokaumræðum á þingi að þetta væri ekki
aðalatriðið, en þó veigamikið atriði, þegar litið væri
á með- og mótrök. Við sama tækifæri benti Holger
K. Niélsen, formaður Sósíalíska þjóðarflokksins, á
að þessu væri öfugt farið. Utan EB gætu Norður-
löndin stundað norræna samvinnu, óháð Evrópu, og
veitt evrópsku stórveldunum veigamikið mótspil.
Um daginn var haldinn mikill fundur í Kaup-
mannahöfn þar sem formenn stjórnmálaflokkanna
sátu fyrir svörum. Fyrir fundinn gaf sjónvarpsmaður
sig á tal við nokkra fundargesti og síðan aftur eftir
fundinn. Einn sagðist sækja fundinn til að reyna að
fá botn í hvernig hann ætti að kjósa. Eftir fundinn
sagðist hann í hjarta sér segja nei við samkomulag-
inu en með höfðinu já. Tilfinningalega ógnaði sér
svolítið að vera með í svona bákni, en með skynsem-
inni sæi hann að það væri ekkert vit í að vera ekki
með.
Það er því ekki einfalt mál að taka afstöðu, ef
marka má af öllum þeim röksémdum með og á
móti, sem er dengt yfir fólk. Þó að herra og frú
Hansen leggi nótt við nýtan dag fram að 2. júní
og kynni sér samkomuiagið og þýðingu þess aftur
á bak og áfram, er hætt við að þau verði litlu nær-
Á endanum er ekki haigt að syara já eða nei út frá
einstökum atriðum, heldur við spurningimni um
hvort það ejgi að reyna að þoka máiefnum Eyrópu
áfram í sameiningu, eða hvort hver eigi að draga
sig inn í sitt skot pg paufast þar. Qg livernig geta
traust lýðræðisríki Evrópu stutt við haltrandi þrseð-
ur í Austur-Evrópu? Það er ekkert sérlega ljóst, eig-
inlega öldungjs óljóst, hyað gerist í kjölfar Maastric-
ht-samkomulagsins, en Danir geta spurt sig hvort
þeir eigi að bretta upp ermarnar og leggja hönd á
plóginn eða sitja úti í homi með lunta.
Jón Jónsson á Grettisgötunni þarf ekki að ákveða
eitt né neitt fyrir 2. júní. hann hefði hins vegar
kannski átt að vera búinn að gera það upp við sig
fyrir löngu hvört hann ætlaði að beita skynserninni
eða láta óljósar hræðslutilfinningar einangra sig á
skeri út í hafí.
Sigmún
Davíðsdóttir.
________Brids_________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Sumarbrids í Reykjavík
Rólegt var í Sumarbrids á þriðju-
deginum, enda spilað víða í bænum.
Spilað var í einum riðli. Sigurvegarar
urðu Þröstur Ingimarsson og Þórður
Björnsson, en á hæla þeirra komu
Lárus Hermannsson og Guðlaugur
Sveinsson.
Öllu liflegra var á fimmtudeginum,
26 pör mættu til leiks og var spilað í
tveimur riðlum. Urslit urðu (efstu pör):
A-riðill:
LárusHermannsson-GuðlaugurSveinsson 249
Guðrún Jóhannesdóttir—Gróa Guðnadóttir 248
Jón Stefánsson-Ragnar Þorvaldsson 246
AibeitÞorsteinsson-KristóferMagnússon 244
ValtýrPálsson-ÞórðurSigurðsson 243
Hörður Pálsson-Þráinn Sigurðsson 238
B-riðill:
HailurSimonarson-ísakÖmSigurðsson 132
ÁsgeirSigurðsson-AndrésÁsgeirsson 123
Sigrún Jónsdóttirringólfur Ulliendahl 117
Gylfi Ólafsson—Siguijón Harðarson 116
Og eftir 3 kvöld í sumarbrids er
staða efstu spilara orðin þessi: Þröstur
Ingimarsson og Þórður Björnsson 64,
Lárus Hermannsson og Guðlaugur
Sveinsson 51 og Andrés Ásgeirsson
38.
Alls hafa 37 spilarar hlotið stig á
þessum 3 spilakvöldum sem lokið er.
Næst verður spilað i sumarbrids á
laugardaginn og hefst spilamennska
kl. 13.30. Á mánudaginn kemur hefst
svo spilamennska kl. 19 (Mitchell).
Allt spilaáhugafólk er velkomið f Sig-
tún 9 (hús Bridssambandsins).
oí>
\®
&
vcÆ
áP
&
íþrótta og útivlstar
Sumarbúðir U.Í.A. Eiðum.
fyrir böm á aldrinum 6-12 ára.
Tímabil
5. 05.-11. júlí
6. 12.-16. jálí*
7. 19.-25. júlí
1. 07.-13. júní
2. 14.-20. júní
3. 21.-27. júní
4. 28. jún.-04. júl.
INNRITUN.
Innritun og upplýsingar
alla virka daga 1 síma
97-11353 og FAX: 97-11891.
' 4 daga námskeið kr. 8.000.-
6 daga námskeið kr. 12.000,-
Systkinaafsláttur!
ATH
Fyrir böm lengra að komin er boðið
uppá 14. daga námskeið kr. 30.000
innifalið er flug frá Reykjavík.
lUCTDKn
Satellite TV nr.
AMTEC hf., umboðs.aðili AMSTRAD á íslandi, býður
nú fullkomin móttökubúnað tilbúinn til uppsetningar.
AMSTRAD Tyrirtækið, sem hefur selt ó
þriðju milljón móttökudiska fyrir gervi-
hnetti og er með 86% markaðshlutdeild
ó Bretlandseyjum og 50% í Evrópu, hef-
ur nú markaðssett búnað til notkunar í
NORÐUR SKANDINAVIU OG Á ÍSLANDI
1.2 m diskloftnet með flestingu
Lógsuðumagnari með innbyggðum pólskipti (Dual LNB)
48 rósa stereo móttakari með fjarstýringu
Búnaðurinn er seldur ón milliliða með heildsölu ólagn-
ingu og fæst eingöngu hjó AMTEC hf., Suðurlands-
braut 32, sími 30200.
ÓTRÚLEGT VERÐ!
.59.900,
AMTECx
Sími 30200
Suðurlandsbraut 32,
108 Reykjavík.
flkstur og sigling
12, ágúst - 2. september
ÍSLAND - FÆREYJAR - DANMÖRK - SVÍÞJÓD
- EYSTRASALTSEYJAR - ÞÝSKALAND
Ekið um Norðurland til Seyðisfjarðar og silgt með Norröna um
Færeyjar til Danmerkur. Þaðan liggur leiðin til Kaupmannahafnar
um Suður-Svíþjóð, öland og Bomholm. Siglt til
Norður-Þýskalands þar sem meðal annars Berlín er heimsótt.
Frá Þýskalandi er haldið um Jótland og silgt heim um Færeyjar.
Ekið um Suðurland til Reykjavíkur.
Þessar ferðir hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
Sérlega þægilegurferðamáti:, Sama bifreið allan tímann, gisting
á góðum hótelum og íslensk leiðsögn.
s Verð kr. 136.000,-
S Innifalið í verði: Hringferð, gisting í 2ja manna herbergi ásamt
s morgun- og kvöldverði. Gisting í 4ra manna klefa um borð i
Norröna.
Leitið nánari upplýsinga.
FERÐASKRIFSTOFfl SUÐMUNDflR JÓNASSQNAR HF.
Borgartúni 34, sími 683222. a