Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAI 1992 SUZUKISWIFT 3 DYRA, ÁRGERÐ 1992 * Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu. * Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið. * Framdrif. ^ SUZUKI * 5 gíra. * Verð kr. 726,000.- á götuna, stgr. SUZUKIBÍLAR HF. SKEIFUNNI 17 ■ SlMI 685100 UPUR OQ SKEMMTILEQUR 5 MANNA BÍU_ Hafnarfjörður: Bærinn kaupir íbúðir fyrir aldraða BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hef- ur samþykkt, að veita Öldrún- armiðstöðinni Höfn vilyrði fyrir óráðstöfuðum lóðum á Sólvangs- svæðinu og jafnframt að kaupa fimm íbúðir fyrir aldraða í hús- unum. í samþykkt bæjarráðs kemur fram, að lóðirnar eru á staðfestu skipulagi og ætlaðar eldri borgurum í Hafnarfirði. Þá segir: „Bæjarráð telur skynsamlegt að uppbyggingin verði í umsýslu Hafnar og er vil- yrði þetta veitt í því skyni að Höfn hafi umsjón og eftirlit með heildar- uppbyggingu svæðisins, hvort held- ur er að byggingarframkvæmdir verði á hendi félagasamtakanna sjálfra eða annarra aðila, verk- taka/einstaklinga. Bæjarráð væntir tillagna Hafnar um fyrirkomulag þeirra mála, svo sem byggingar- og eignafyrirkomulag, tímaáætlan- ir og fleira sem æskilegt kann að teljast í þesssu samhengi. Stjórn Sólvangs verði með í ráðum í vinnu þessari.“ íbúðirnar, sem bærinn hyggst kaupa eru hlutdeildaríbúðir og er miðað við að lán til þessara íbúða- kaupa komi frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Enn fremur að þær verði meðal þeirra lánveitinga, sem af- greiddar verða til hins félagslega íbúðakerfis í Hafnarfirði á næst- unni. Klæðningar á vegum: Borgarverk bauð best BORGARVERK hf. í Borgarnesi varð hlutskarpast verktakanna í klæðingar á Vesturlandi og Norðurlandi vestra í sumar. Fyr- irtækið átti lægstu tilboð í bæði verkin, um 70% af kostnaðar- áætlun. Kostnaðaráætlun Vegagerðar- Nú eldum við Vikuna 25.-30. maí bjóðum við staðgreiðsluafslátt af öllum eldunartækjum frá Ofnar it Helluborð Eldavélar Viftur Tilboðið gildir aðeins þessa viku Grípið einstakt tækifæri Greiðslukjör eru einnig í boði. B JR Æ Ð U R N I R ORMSSnhJMP Lágmúla 8. Sími 38820 Umboðsmenn okkar eru um land allt. innar fyrir klæðingar á Norðurlandi vestra var 26,9 milljónir kr. Tilboð Borgarverks var 18,1 milljón eða 67,4% af áætlun. Tilboð Klæðningar hf., sem var næst lægst, var 450 þúsund kr. hærra. Tilboð Borgarverks hf. í klæðing- ar á Vesturlandi var 11,8 milljónir kr. sem er 72% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem er 16,4 millj- ónir. Klæðning hf. átti næsta boð, tæpar 13 milljónir kr. Ekkert verð- ur af heim- sókn Mandela NELSON Mandela, foiystumað- ur Afríska þjóðarráðsins, hefur beðist undan boði utanríkisráðu- neytisins að heimækja ísland í tengslum við heimsóknir hans til annarra Norðurlanda. Var Mandela meðal annars viðstadd- ur hátíðahöld í Noregi á þjóðhá- tíðardaginn 17. maí. ÞorsteinnTngólfsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, sagði að staðið hefði til að Mandela kæmi við á íslandi í hringferð sinni um Norðurlönd, og hafi hann fengið boð þess efnis frá ráðuneytinu. Hann hafi hins vegar ekki getað komið því við, og aflýst heimsókn- inni. Tilgangurinn með Norðurlanda- för Nelsons Mandela mun hafa ver- ið að rækta þau sambönd sem skap- ast hefðu vegna stuðnings landanna við fresisbaráttu blökkumanna í Suður-Afríku, að sögn Þorsteins. „Það er opið mál frá okkar hálfu að taka þetta upp að nýju ef tæki- færi gefst,“ sagði hann, en vildi þó engu spá um hvort eða hvenær af heimsókninni gæti orðið. Hjólaskauta- völlurinn í Laugardal opnaður HJÓLASKAUTAVÖLLUR verð- ur opnaður á Skautasvellinu í Laugardal mánudaginn 25. maí kl. 10.30 f.h. Fyrst um sinn verða eingöngu leyfðir hjólaskautar á svæðinu. Ósk- ar er eftir því að notaðir séu hjálm- ar, olnboga-, úlnliða- og hnéhlífar. Skautaleiga er á staðnum. Hjóla- skautavellið veður opið mánudaga til föstudaga kl. 10.30-19.00 og laugardaga og sunnudaga kl. 10.30-18.00. Fer inn á lang flest heimili landsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.