Morgunblaðið - 24.05.1992, Side 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRb i i UM sunnudagur
_______________■____________í___- : '!
24. MAI 1992
RÆÐISMAÐUR
„ Jöklar á yfirborðinu
og eldfjöll undir niðriu
l-coland Niklaus hafði ekki velt
■*'*' íslandi mikið fyrir sér þegar
siðameistari Genfar nefndi við
hann fyrir nokkrum árum að kons-
úlsstaða íslands í franska hlutan-
um í Sviss væri laus og spurði
hvort hún væri ekki eitthvað fyrir
hann.„Mér leist strax vel á það,“
sagði hann. „Ég var kapteinn í
fjalladeild svissneska hersins og
jöklar og fjöll höfða til mín. Og
konan mín er dönsk í aðra ættina.
Mér fannst hvort tveggja tengja
mig við ísland og tók því hugmynd-
inni strax vel.“
Hjálmar Jónsson, sem þá var sendi-
herra Sviss með aðsetur í Bonn,
gerði sér ferð til Genfar til að kynn-
ast Niklaus og ganga úr skugga
um hvort hann væri rétti maðurinn
í stoðuna. „Það var eins og við
hefðum þekkst langa lengi þegar
við höfðum talað saman í klukku-
stund,“ sagði Niklaus. „Við áttum
afar ánægjulega kvöldstund og ég
tók auðvitað starfinu þegar mér
var boðið það formlega.“
Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir
Roland Niklaus, ræðismaður
íslands i franska hlutanum i
Sviss.
Skjaldarmerki íslands hefur
hangið fyrir ofan inngöngudymar
á skrifstofuhúsnæði Niklaus síðan
haustið 1985 og gamalt skjaldar-
merki hangir undir svölum sem
liggja út að einni breiðgötu Genf-
ar.„Kornelíus Sigmundsson, vinur
minn og fyrrverandi forsetaritari,
segir að gamla merkið sé safngrip-
ur,“ sagði Niklaus og stoltið leyndi
sér ekki í röddinni. „Ég er svo hepp-
inn að fjölskyldan á þetta hús og
ég get því hengt merki og fána á
það eins og mig lystir." Niklaus er
lögfræðingur og rekur eigin skrif-
stofu. Stór íslenskur fáni stendur í
horni virðulegrar skrifstofu hans við
mynd af Vigdísi Finnbogadóttur
forseta. Kort af íslandi og önnur
mynd af forsetanum með ræðis-
mannshjónunum prýðir vegg. „Við
erum svo heppin að Vigdís forseti
hefur komið á hveiju hausti til Genf-
ar undanfarin ár til að starfa með
verðlaunahandritanefnd Samtaka
evrópskra sjónvarpsstöðva. Við höf-
um alltaf átt kvöldstund með henni
og metum það mikils. Við höfðum
til dæmis öll gaman af því þegar
við hittum Richard Nixon á matstað
Girardets í Crissier þegar við buðum
henni þangað fyrir nokkrum árum,“
sagði hann og brosti við endurminn-
inguna. Girardet er besti matar-
gerðarmaður Sviss, og þó víða væri
leitað.
Niklaus hefur kynnst landi pg
þjóð eftir að hann varð konsúll ís-
lands. „íslendingar eru frábærir,"
sagði hann. „Þeir eru svo opnir og
hlýir. Ekki þegar maður hittir þá
fyrst, þá eru þeir frekar hlédrægir,
en þeir eru hressir
og skemmtilegir
um leið og maður
kynnist þeim.
Þeir eru eins og
íslensk náttúra,
jöklar á yfirborð-
inu en eldfjöll
undir niðri. Ég
hef éignast
marga nána ís-
lenska vini.“
Sjálfur er hann
einkar viðfelldinn
maður og miklu
afslappaðri strax
við fyrstu kynni
en Svisslendingar
eru yfirleitt.
Hann hefur nú
farið nokkrum
sinnum til lands-
ins en fór þangað
fyrst á ráðstefnu
ræðismanna Is-
Skjaldarmerki íslands prýða
bæði fram- og bakhlið húss
konsúlsskrifstofunnar í Genf.
lands sem var haldinl986.„„Það var
góður og gagnlegur fundur,“ sagði
hann. „Þar kynntist ég fólki sem
sinnir málefnum íslands út um allan
heim. Nú finnst mér sjálfsagt að
segja dóttur minni að hún geti leit-
að til konsúla íslands á ferðum sín-
um um heiminn ef fulltrúar Sviss
geta ekki hjálpað henni!“
Ræðismannsstarfið er launalaust
pg felst aðallega í því að aðstoða
íslendinga sem lenda í vandræðum
og leita hjálpar. Niklaus reynir auk
þess að stuðla að auknum tengslum
milli Islands og Sviss. Hann kom
því til dæmis til
leiðar að íslensk
unglingahljóm-
sveit lék við mót-
töku í ráðhúsinu
í Genf fyrir
nokkrum árum
og hann hefur
kvatt íslenskt
knattspyrnulið til
dáða í Sion. Hann
heldur íslending-
um í Genf alltaf
hóf á 17. júní.
Þeir njóta þá
gestrisni hans og
konu hans á
heimili þeirra í
þorpinu Gy sem
er 300 manna
bær 15 km fyrir
utan Genf. Þau
hjónin fluttu
þangað 1972 og
Niklaus var kjör-
inn bæjarstjóri tveimur árum
seinna. Hann gegndi embættinu í
12 ár og hætti því um svipað leiti
og hann varð ræðismaður íslands.
Texti: Anna Bjarnadóttir
Suðurlandsbraut 6, símar 678383 og 687055
Þú átt erindi til okkar!
Sex vikna fitubrennslunámskeið með
fræðslu og aðhaldi
hefst mánudaginn 25. maí.
Skráning hafin. Takmarkaður fjöldi.
ranapui
Pallahringur
Teygjutímar
Skokktímar
Kringluhopp
Opnunartími:
Virka daga frá
kl. 7.00-22.00
Helgar frá
kl. 9.00-18.0
Komdu og fáðu
stundaskrá
Fullkomin tækjasalur
AFMÆLI
Torfi Hjartarson níræður
Torfi Hjartarson varð níræður
síðastliðinn fímmtudag 21.
maí. Gestkvæmt var á heimili hans
á Flókagötunni þennan dag og vildu
margir óska afmælisbarninu til
hamingju.
Ragnar Axelsson ljósmyndari
Morgunblaðsins tók meðfylgjandi
myndir í afmælinu. Á efri myndinni
er forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir með afmælisbarninu, en
aðrir á myndinni eru Ingibjörg Ásta
Hafstein eiginkona Péturs Kr. Haf-
stein hæstaréttardómara og Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra. Á
hinni myndinni eru tveir fyrrverandi
formenn Vinnuveitendasambands
Islands að óska afmælisbarninu til
hamingju, Páll Siguijónsson og
Gunnar J. Friðriksson, en að baki
þeim stendur Haraldur Sveinsson
framkvæmdastjóri Árvakurs hf.
útgáfufyrirtækis Morgunblaðsins.
Torfí Hjartarson var eins og
kunnugt er tollstjóri í Reykjavík frá
1943-1972 eða í 29 ár og jafnframt
sáttasemjari ríkisins frá 1944-1979
eða í 35 ár, þar af eitt ár í upp-
hafi sem vararíkissáttasemjari.
i4 wPW
Silungsveiði í
vötnum á vax-
andi vinsældum
að fagna.
KYNNING
Nú má silungnrinn
fara að vara sig
Það var viljandi gert að velja þenn-
an tíma, vorið er í algleymingi,
orðið hlýtt og sumarfíðringurinn far-
inn að gera vart við sig. Eg á von á
því að þetta verði vel sótt, enda fer
áhugi á stangaveiði vaxandi með
hveiju árinu sem líður," sagði Rafn
Hafnfjörð stjómarmaður í Lands-
sambandi stangaveiðifélaga í samtali
við Morgunblaðið, en Samstarfs-
nefnd um veiðiskap í silungsvötnum
hér á landi gengst fyrir kynningu í
Norræna húsinu í dag og ber hún
yfirskriftina
„Stangaveiði í
silungsvötn-
um“.
Kynningin
stendur yfir
milli klukkan
15 og 15 og er
dagskrá bæði
innanhúss og
utan. Inni byij-
ar á því að Éin-
ar Hannesson
býður menn velkomna og síðan flytur
Gylfí Pálsson tölu um silungsveiði
sém fjölskylduíþrótt. Margrét Jó-
hannsdóttir hjá Ferðaþjónustu
bænda tekur þá við og ræðir um
möguleikana á aukinni ferðaþjónustu
samfara silungsveiðiskap. Kristján
Guðjónsson stígur næstur upp og
flytur erindið „Listin að hnýta falleg-
ar flugur". Lýkur innidagskrá á lit-
skyggnusýningu Rafns Hafnfjörð
sem lýsir myndunum og kryddar með
veiðisögum. Úti sýna Kolbeinn
Grímsson og Þorsteinn Þorsteinsson
fluguköst í tjörninni og Skúli Hauks-
son netabóndi í Útey við Apavatn
sýnir verkun og meðferð á silungi.
Rafn Hafníjörð sagði enn fremur
að samstarfsnefndin hefði fengið
ýmsu ágengt í seinni tíð. „Þetta er
allt í áttina. Ég nefni sem dæmi að
við höfum komið upp hreinlætisað-
stöðu við fyrstu veiðivötnin. Það var
viss áfangi og sigur og við höldum
ótrauðir áfram enda eru verkefnin
mörg og verðug," sagði Rafn.