Morgunblaðið - 24.05.1992, Side 23
MORG UNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
C 23
ATAK
Sjóður fyrir langveik börn
Atak til að vekja athygli á málefn-
um langveikra barna verður í
dag í Perlunni, en þar stilla saman
strengi sína Sjóður til styrktar lang-
veikum börnum, félagið Umhyggja
og Styrktarsjóður krabbameins-
sjúkra barna annars vegar og Bylgj-
an hins vegar sem tileinkar vikulegan
sunnudagsþátt sinn „Perluvini" að
þessu sinni langveikum börnum.
Uppspretta þessa var hugmynd og
vinna ungrar konu, Herdísar Bene-
diktsdóttur. Það sem um ræðir er
bók sem komin er út og heitir Rækt
- átak til hjálpar langveikum börnum.
Herdís hefur notað veturinn til að
safna saman efni í bókina og fylgja
henni í gegn um alla vinnslu. I dag
verður hún kynnt í Perlunni milli
klukkan 14 og 16 er Bylgjan sendir
út þátt sinn. Bókin verður til sölu
og hagnaður af henni verður nýttur
í þágu langveikra barna og aðstand-
enda þeirra. Jafnframt verður dagur-
inn nýttur til þess að vekja athygli
á að bæta má verulega úr aðstæðum
og aðbúnaði á barnadeildum þeim
sem starfræktar eru hér á landi.
Morgunblaðið spurði Herdísi fyrst
hver tilurð bókarinnar væri.
„Hugmyndin hefur komið upp af
og til hjá okkur hjónum í nokkur ár,
en þegar sú stund var runnin upp
að yngra barn okkar var að fara af
smábarnaskeiðinu fór ég að líta í
kring um mig á vinnumarkaðinum.
Hann var heldur rýr um þær mundir
og þá fórum við að ræða um það
hvort að ekki væri viturlegra að gera
eitthvað sjálfstætt og skemmtilegt
og gera gagn um leið. Þá kom þessí
hugmynd aftur upp og við ákváðum
að iáta slag standa. í bókinni eru
myndir sem myndþerapistar barnda-
deilda Landakotsspítala og Landssp-
ítala völdu og voru unnar af veikum
börnum. Lang flestar myndanna eru
frá Landakoti Skýringartextar þeirra
SigHðar ' Björnsdóttur á Landakotl
og Önnu Maríu Harðardóttur fylgja
hverri mynd. Einnig eru textar eftii’
þær, svo og eftir Hugó L. Þórisson
sálfræðing, Gunnar Hersvein rithöf-
und, Öldu Helgadóttur hjúkrunar-
fræðing og þær Ester Sigurðardóttur
og Bryndísi Torfadóttur sem eru for-
eldrar barna sem eiga við langvinn
veikindi að stríða. Síðast en ekki síst
eru formálar í bókinni eftir frú Vig-
dísi Finnbogadóttur forseta íslands
og Sævar Halldórsson yfirlækni á
barnadeild Landakotsspítala.
En hver eru markmiðin með útgáf-
unni? „Þau eru, að setja á stofn sjóð
sem nýttist langveikum bömum og
fjölskyldum þeirra. Þegar söluátak-
inu er lokið setjumst við niður og
sjáum hvað við höfum í höndunum
og þá verður hægt að skoða tillögur
um hvernig peningarnir nýtist þess-
um aðilum best. Við getum einnig
kallað það markmið að varpa ljósi á
gildi tjáningar og sköpunnar fyrir
sjúk börn. Undirstrika þar með mikil-
vægi myndþerapíu í meðferð barna.
Einnig viljum við með þessu vekja
athygli á þeim fjárhagslegu og
félagslegu hremmingum sem fjöl-
margar fjölskyldur lenda í er alvarleg
veikindi barna knýja dyra. Foreldrar
verða þá oft fyrir vinnutapi, þurfa
að kosta búferlaflutninga landshoma
á milli eða greiða dýrar aðgerðir í
útlöndum. Almennur aðbúnaður á
barnadeildum gæti einnig verið betri.
Víða er pottur brotinn þótt margt
sé gott og vel gert. Það þarf að vekja
þjóðina til umhugsunar um þessi
mál,“ sagði Herdís.
Herdís Benediktsdóttir með eidri dótturinni Ásdísi.
Dí skoðar bíla...
DOMGREIND
Kóngafólkið
borið þung-
um sökum
Díana prinsessa af Wales var
harðlega gagnrýnd fyrir
nokkru og náðu þær raddir alla leið
inn í þingsali þar sem nokkrir þing-
menn tóku til máls og fengu dálítinn
hljómgrunn.
Þannig var mál vexti, að Díana
seldi Jagúar XJS sportbílinn sinn og
fékk í kaupleigu í staðinn lítinn rauð-
an Mercedes Benz sportbíl af vönd-
uðustu gerð. í síðara stríðinu reyndu
breskar sprengjuflugvélar mjög að
jafna Benz-verksmiðjurnar við jörðu,
en nú er öldin greinilega önnur og
ekki allir á eitt sáttir með það. Denn-
is SKinner, þingmaður Verkamanna-
flokksins gagnrýndi Dí harðlega og
raunar kóngafólkið allt með þeim
orðum að það lítilsvirti breskan verk-
alýð. „Þetta lið liggur uppi á skatt-
greiðendum, en lætur sig samt hafa
það að hrækja í andlit þeirra með
þessum hætti,“ sagði Skinner. Því
var fleygt að Elísabet drottning hefði
ekki verið ánægð með umtalið í þessu
tilviki og dómgreind tengdadóttur-
innar.
>
NYR OG
GLÆSILEGUR
MITSUBISHI
>
DI
r
NYTT OG STEFNUMARKANDI UTLIT
> Meira innirými > Betri hljóðeinangrun > Aukinn öryggisbúnaður >
> Aflmiklir hreyflar með rafstýrðri fjölinnsprautun > Styrktarbitar í hurðum >
> Aukin þægindi > Enn betri aksturseiginleikar >
DÆMIÐ SJÁLF
AÐ LOKNUM REYNSLUAKSTRI
Verð frá kr. 897.600
HVARFAKUTUR
MINNI MENGUN
>
A1
HEKLA
MITSUBISHI "gavegT^
MÖTORS SlMI 695500
ára
ábyr®0
\x