Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992
C 29
Breytni eftir Kristi
Frá Árna Helgasyni:
Við íslendingar teljum okkur
kristna. Það felst í því að trúa og
treysta frelsara mannkynsins Jesú
Kristi. Trúa og treysta orðum hans.
í trúaijátningunni sem söfnuður-
inn fer með við hverja messugjörð
og fermingarbömin játast undir,
segir m.a.: Ég trúi á Jesúm Krist,
frelsara himins og jarðar ... og
mun koma þaðan í dýrð, til að
dæma lifendur og dauða. Og í
hveiju felst sá dómur: Hann segir
okkur skýrt og skorinort að fyrir
þeim dómstóli verði menn dæmdir
fyrir hið góða og vonda sem þeir
hafa aðhafst. Við vitum um verð-
launin fyrir að fylgja ráðum Krists,
þau fara ekki milli mála. En hann
segir líka hvað við skulum forðast
til að okkur verði ekki vísað út í
„myrkrið fyrir utan, þar muni
verða grátur og gnístran tanna“.
Það eru ekki nema tveir vegir,
segir Drottinn, en gefur okkur tíma
og fijálst val. í Matth. 10.28 segir
Kristur tæpitungulaust: Hræðist
ekki þá sem líkamann deyða en fá
ekki deytt sálina. Hræðist heldur
þann sem megnar að tortíma bæði
líkama og sál í Helvíti. Og í Matth.
13.40, segir: Eins og illgresinu er
safnað og það brennt í eldi, þannig
Illt verk
Frá Sigríði Eymundsdóttur:
Bogmaður drepur kind. Þann-
ig hófst frásögn í Morgunblað-
inu 14. maí af 18 ára pilti í
Hafnarfirði er hafði drepið kind
sem komin var að burði. Hann
hafði að gamni sínu haft kindina
fyrir skotmark örva úr boga sem
hann hafði trúlega keypt sér.
Þvílíkur óhugnaður að við skul-
um ala upp slík ungmenni er
gera sér að leik að ráðast að
saklausu dýri með slíkum hætti.
Ég held að það muni vera meira
en lítið athugavert við sálarlíf
og uppeldi hjá ungmenni er get-
ur framkvæmt slíkan viðbjóð.
Því segi ég: Guð hjálpi þessum
smásálum.
Ég held að það sé meira en
lítið að í uppeldismálum hjá þjóð
er slík börn eða er þetta kannski
það sem þau læra af eilífu glápi
og sýnikennslu í sjónvarpinu
okkar.
SIGRÍÐUR EYMUNDSDÓTTIR
Njörvasundi 19, Reykjavfk
verður við endi veraldar. Mannson-
urinn mun senda engla sína sem
síðan munu safna úr ríki hans öll-
um sem hneykslunum valda og
ranglæti fremja og kasta þeim í
eldstofninn. Þar verður grátur og
gnístran tanna. Kristur talar oft
um myrkrið fyrir utan og bendir á
hvernig við eigum að forðast að
lenda í því. Alvarleg orð. Hann
leggur áherslu á að guð gefi þeim
lífsins kórónu sem standast dóm-
inn, til lífs, eilífs lífs og lýsir ljóm-
anum og fögnuðinum og því sem
eftirsóknarverðast er. Prestarnir
segja líka við fermingarbörnin fyr-
ir altarinu: Vertu trúr — og Guð
gefur þér þá iífsins kórónu. Lífsins
skóli er sterkasti skólinn og fýrir
einkunnir hans fáum við dóm eins
og í venjulegum skóla, en örugg-
lega réttlátari. En menn segja:
Ystu myrkur eru ekki til og marg-
ir efa að nokkuð sé til eftir hinn
líkamlega dauða hér á jörð. Og
Guð lætur engan glatast, er sagt.
Vissulega rétt, heldur glata menn
sjálfum sér með illverkum og öðr-
um syndsamlegum gjörðum sem
Drottinn varar við. Syndin og
dauðinn eru samofin. Það kennir
Biblían okkur og kirkjan okkar á
að vera vakandi bæði í fræðum og
áminningum.
Drottinn hefir sett mannkyni
boðorð og bænina sem við förum
með frá því við lærum að biðja og
við hveija kirkjulega athöfn. Sér-
staklega varar Kristur við lyginni,
svikunum og falsinu í heiminum,
varar við að keppa éftir því sem
heimsins er. En hvernig er bara
ástatt hjá okkur. Eru menn ekki
alltaf að svíkja, blekkja og falsa,
fremja allskonar hryðjuverk og ill-
virki, stela ef þeir sjá nokkra
„hagnaðarvon“. Þegar ekki er orð-
ið hægt að treysta vinum sínum,
sem svíkja ef þeir sjá auðæfi
heimsins í augsýn. Erum við ekki
alltaf að reyna þetta, og svíkja
menn ekki loforð eiðfest í samtali,
til að auka við sín veraldlegu gæði?
Jú, vissulega. En hvernig skyldi
þeim líða sem svo gera, hvað
skyldu þeir hafa með sér til dóms-
ins því hann flýr enginn. Hvað
segir þeim samviskan sem Drottinn
hefir gefið þeim sem áttavita í líf-
inu? Nei, menn horfa ekki í það.
En það kemur að skuldadögunum.
Kristur segir: Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Liðsemd og
fylgd við hann þolir ekki myrkrið
fyrir utan. En hann varar við djöfl-
inum og krefst af þeim sem vilja
fylgja sér, að afneita djöflinum og
öllu hans athæfi. Hér fer ekkert
milli mála. í hvorri fylkingu er
heilladrýgra að standa? Það er
ekki vafi. Leitum því Guðsríkis og
þá kemur annað af sjálfu sér.
ÁRNI HELGASON
Neskinn 2, Stykkishólmi.
Pennavinir
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og bréfaskriftum:
Hisae Moroga,
241-3 Asai Wakasa-cho,
Yazu-gun,
Tottori-ken,
680-07 Japan.
Frá Ghana skrifar 26 ára kona
með áhuga á skokki, dansi, ferða-
lögum o.fl.:
Juliana Johnson,
P.O. Box 1309,
Cape Coast,
Ghana.
Frá Eistlandi skrifar karlmaður
á fertugsaldri með mikinn áhuga á
að komast í bréfasamband við ís-
lenska fjölskyldu:
Tiit Treve,
2 Toom-Kooli,
Harju Educational Centre,
Tallin,
Estonia.
Frá Hollandi skrifar 52 ára karl-
maður sem kveðst ungur í anda og
starfar hjá tryggingafélagi í Amst-
erdam. Ér mikill fuglaskoðari:
Maarten Klomps,
Remvardplaats 8,
3871 M H Hoevelaken,
Holland.
Frá Finnlandi skrifar 28 ára karl-
maður með mikinn íslandsáhuga
vill skrifast á við 20-30 ára stúlkur:
Risto Moilanen,
636 Heimola,
89999 Ammánsaari,
Finland.
Frá Svíþjóð skrifar 33 ára kona
með áhuga á tónlist, bréfaskriftum,
bókalestri o.fl. Vill eignast penna-
vini á aldrinum 25-40 ára af báðum
kynjum:
Susnane Sandahl,
Sibeliusgángen 8,
164 77 Kista,
Sverige.
Frá Kanada skrifar karlmaður
sem getur ekki um aldur en hefur
mikinn áhuga á íslandi:
Mario Lehouillier,
62B Boulevard Gagnon,
Ste-Clair,
Quebec,
Canada 60R 2VO.
GARÐASTAL
Lausn á steypuskemmdum
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 652000
\l»l>
Nuddsltóli Rafns Geirdals
útskrifaði nýja nemendur þann 15. maí sl.
Við tekur starfsþjálfun nema og sveina.
Boúið ei upp á:
1. SlDknnarnudd: Slakar ó spennu, eykur vellíðan.
2. Klassískt nudd: Mýkir vöðvo, örvar blóðrennsli.
3. Nudd við vdðvabólou: Losar um vöðvaspennu, t.d. i hðlsi, herðum og baki.
4. Svæðanudd (á iljar): Leiðréttir ójafnvægi í orkukerfi líkamans.
Vinsamlegast hringið og pantið tíma í símum 676612 & 686612
alla virka daga kl. 9-21. Smiðshöfða 10,112 Reykjavík.
SKIPUIAG
OG
'P
x
<
Í GARÐINUM
Stanislas Bohic, garða-
hönnuður veitir ókeypis
ráðgjöf hjá okkur um
helgina laugardag og
sunnudag kl. 14-18.
Verið velkomin.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 68 90 70