Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
118. tbl. 80. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aðstoðarmaður Jeltsíns Rússlandsforseta:
Sovéski kommúnista-
flokkurinn studdi alþjóð-
lega hryðjuverkahópa
Þúsundir leyniskjala fundust í bygg-
ingu miðstjórnar sem sanna tengslin
Moskvu. ^Reuter.
SERGEÍJ Sjakhraj, náinn aðstoðarmaður Borisar Jeltsíns, forseta
Rússlands, sýndi í gær blaðamönnum leyniskjal þar sem kemur
fram að sovéski kommúnistaflokkurinn veitti Þjóðarfylkingunni
fyrir frelsun Palestínu (PFLP) fé um miðjan áttunda áratuginn
til árása á Bandaríkjamenn og Israela. Sagði Sjakhraj að þetta
væri einungis eitt þúsunda skjala sem sönnuðu náin tengsl gamla
kommúnistaflokksins við alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi.
Leiðtogi PFLP er George Ha-
bash og samtökin hafa höfuð-
stöðvar sínar í Damaskus, höfuð-
borg Sýrlands. Eru PFLP ein
þeirra samtaka sem mynda Frels-
ishreyfingu Palestínumanna
(PLO). A síðari hluta áttunda ára-
tugarins og í byijun þess níunda
voru fjölmargir bandarískir og
ísraelskir stjórnarerindrekar,
flestir þeirra starfandi í Evrópu,
vegnir í sprengjutilræðum og skot-
árásum og sögðust vestrænar
leyniþjónustur á sínum tíma telja
að PFLP-samtökin stæðu hugsan-
lega á bak við tilræðin.
Leyniþjónustur Bandaríkjanna
og ísraels sökuðu líka ítrekað Sov-
étríkin um að styðja hryðjuverka-
hópa í því skyni að koma höggi á
Vesturlönd. Þessum ásökunum
vísuðu Sovétmenn ávallt á bug.
Skjalið sem Sjakhraj sýndi á blaða-
mannafundinum í gær var dagsett
16. maí 1975. Ákvörðunin um að
styðja PFLP ijárhagslega hefur
því verið tekin á sama tíma og
Leoníd Brezhnev boðaði opinber-
lega slökunarstefnu í samskiptum
sínum við Vesturlönd.
Jeltsín bannaði sovéska komm-
únistaflokkinn í kjölfar hins mis-
lukkaða valdaráns í ágúst í fyrra
og hefur sú ákvörðun verið kærð
sem brot á stjórnarskránni. Sjakh-
raj sagði að skjalið sem hann hefði
sýnt yrði notað í málsvörn ríkis-
stjómarinnar þegar málið kæmi
fyrir dómstól síðar í þessari viku.
Hann sagði að það hefði fundist
í sérstakri hirslu merktri „algjört
trúnaðarmál" í byggingu mið-
stjórnar kommúnistaflokksins í
Moskvu sem ríkisstjórn Rússlands
lagði undir sig í ágúst síðastliðn-
um. „Því miður eru til mörg önnur
skjöl eins og þetta. Þau skipta
þúsundum," sagði Sjakhraj.
Fórnarlömbum mafíunnar vottuð virðing
Reuter.
Þúsundir Sikileyinga vottuðu dómaranum Giovanni Falcone, eiginkonu hans og þremur lífvörðum, virðingu
sína í hinsta sinn, er útför þeirra fór fram í dómkirkjunni í Palermo í gær. Létu þau lífið í sprengjutilræði
af hálfu mafíunnar á laugardag en Falcone var í fremstu víglínu í baráttunni gegn henni. Mannfjöldinn
hrópaði ókvæðisorð að stjórnmálamönnum sem viðstaddir voru útförina og ættingjar hinna látnu sökuðu
þá um tengsl við mafíuna. Gífurleg reiði ríkir á Ítalíu vegna tilræðisins og hafa stjórnmálamenn lofað að
láta hart mæta hörðu. Sjá nánar „Óhugurinn snerist . . . bls. 28.
Bosnía-Herzegovína:
Ágreiningur um vopnabúnað
tefur brottflutning hersins
Belerad. Reuter. ^ *
Belgjad. Reuter.
SVEITIR múslima stöðvuðu í gær
brottflutning serbneska sam-
bandshersins frá herbúðum í
Sarajevo, höfuðborg Bosníu-
Herzegovínu, og var deilt um
vopnabúnaðinn, sem herinn mátti
hafa með sér. Ekki er (jóst hvort
brottflutningur sambandshersins
frá borginni tengist vaxandi kröf-
um vestrænna þjóða um refsiað-
gerðir gegn Serbíu og stjórninni
í Belgrad en James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
skoraði á laugardag á Sameinuðu
þjóðirnar að beita sér fyrir þeim
og sagði, að enga afsökun væri
lengur að finna fyrir aðgerðaleys-
inu. I Serbíu sjálfri vex óánægjan
með framferði stjórnarinnar og
hernaðinn, sem er að leggja efna-
hagslífið í rúst.
Um 300 sambandshermenn fóru
úr einum herbúðum í Sarajevo á
sunnudag án þess að skotið væri á
Oscar Scalfarojkjör-
inn nýr forseti Italíu
Róm. Rcutcr.
OSCAR Luigi Scalfaro, forseti neðri deildar þingsins, var í gær
kjörinn forseti Ítalíu. Þingmenn höfðu áður gengið fimmtán sinnum
til atkvæða um nýjan forseta og stjórn landsins verið í lausu lofti
eftir að Francesco Cossiga sagði af sér embætti fyrir um mánuði
síðan. Það var ekki fyrr en í gær að samstaða náðist meðal þing-
manna um einn frambjóðanda og Scalfaro fékk þann rúmlega
hclming atkvæða sem nauðsynlegur er.
Scalfaro er 73 ára gamall og
tilheyrir flokki Kristilegra demó-
krata. Ákváðu þingmenn þriggja
helstu flokka Ítalíu að styðja hann
til embættisins í kjölfar sprengjutil-
ræðis helgarinnar á Sikiley.
Nýi forsetinn er strangkaþólskur
og sækir kirkju fyrir dögun á hveij-
um degi og blaðafuiltrúi hans er
sagður eyða miklu af tíma sínum
í að reyna að fá blaðamenn ofan
af því að vitna í ummæli hans um
einkasamtöl sín við Maríu mey.
Varð hin stranga trú Scalfaro til
þess að nokkrir vinstrisinnaðir
þingmenn neituðu að styðja hann.
„Eg neita að greiða presti atkvæði
mitt,“ sagði Rino Formica, fyrrum
fjármálaráðherra.
Scalfaro hefur setið lengi á ít-
alska þinginu og gegndi embætti
innanríkisráðherra á árunum 1983-
1987. í kjölfar afsagnar Bettino
Craxis, þáverandi forsætisráð-
herra, var Scalfaro veitt umboð til
myndunar nýrrar stjórnar undir
sínu forsæti'. Sú stjórnarmyndun
heppnaðist hins vegar ekki.
Oscar Luigi Scalfaro Rcutcr.
Meðal fyrstu verkefna hins nýja
forseta verður að skipa nýja ríkis-
stjórn en starfsstjórn hefur verið
við völd eftir að Giulio Andreotti
forsætirsráðherra sagði af sér emb-
ætti í kjölfar kosninganna 24. apríl
sl.
bílalestina, eins og komið hefur fyr-
ir áður, og í gær átti að hefja brott-
flutning úr þremur öðrum herbúð-
um. Sveitir múslima komu hins veg-
ar í veg fyrir hann og héldu því fram,
að Serbar hefðu brotið samkomulag
um að afhenda helming vopnanna.
Að sögn stjórnarinnar í Belgrad hef-
ur allur sambandsherinn í Bosníu
að öðru leyti verið kallaður heim.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði i ræðu, sem
hann flutti á laugardag á ráðstefnu
63 ríkja um aðstoð við sovétlýðveld-
in fyrrverandi, að þjóðir heims gætu
ekki lengur leitað eftir tylliástæðum
til að hafast ekkert að frammi fyrir
ástandinu í Bosníu.
„í landinu eru 35.000 sykursýkis-
sjúklingar, sem fá ekkert insúlín.
Áð minnsta kosti 6.000 konur og
nýfædd börn þeirra fá hvorki lyf né
næga næringu og fréttir eru farnar
að berast um, að fólk sé farið að
falla úr hungri. Þeir, sem leita í öll-
um skúmaskotum að ástæðu til að
hafast ekki að frammi fyrir þessari
martröð, eru á skelfilegum villigöt-
um,“ sagði Baker en orð hans eru
túlkuð sem gagnrýni á sum Evrópu-
ríkin, einkum Frakka, sem ekki hafa
viljað samþykkja, að Serbar bæru
sérstaka ábyrgð á ástandinu í Júgó-
slavíu fyrrverandi. Baker skýrði
einnig frá því í fyrsta sin, að Banda-
ríkjastjórn væri að vinna að því á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna, að
stjórn Serbíu yrði beitt refsiaðgerð-
um.
í dag munu ýmsir sérfræðingar
og frammámenn í Evrópubandalag-
inu koma saman í Brussel til að
ræða refsiaðgerðir gegn Serbíu en
í gær var ekki alveg ljóst hveijir
þátttakendurnir yrðu.
Kanadastjórn skipaði nokkrum
hluta starfsliðs júgóslavneska sendi-
ráðsins að fara úr landi á sunnudag
og kallaði heim sendiherra sinn í
Belgrad. Þá voru lendingarleyfi
júgóslavneska flugfélagsins JÁG
afturkölluð og Brian Mulroney for-
sætisráðherra ætlar að fara fram á
skyndifund í öryggisráði SÞ og krefj-
ast viðskipta- og olíubanns á Serbíu.
--------» ♦ ♦---------
Þýskaland:
ÖTV sam-
þykkir miðl-
unartillöguna
ÁTTATÍU manna framkvæmda-
stjórn stéttarfélags opinberra
starfsmanna í Þýskalandi (ÖTV)
samþykkti í gær, að loknum sex
tíma umræðum, að samþykkja
miðlunartillögu í deilum félagsins
við ríkið. Fyrr í mánuðinum hafði
miðlunartillagan, sem felur í sér
5,4% kauphækkun, verið felld í
almennri atkvæðagreiðslu.
Á þeim tíu dögum sem liðnir eru
síðan atkvæðagreiðslunni lauk hefur
formaður ÖTV, Monika Wulf-Mathi-
es, átt viðræður við félagsmenn um
allt land. Sagði hún þær viðræður
hafa aukið stuðning við tillöguna.
Þá var líka talið að ÖTV ætti fárra
annarra kosta völ en að samþykkja
hana eftir að Rudolf Seiters, innan-
ríkisráðherra, lýsti því yfir að frek-
ari samningaviðræður kæmu ekki
til greina.