Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 26
2é
Rithöfundasamband Islands
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
Vonandi verða margir
fallegir dagar í starfínu
— segir Þráinn Bertelsson nýkjörinn formaður
„Það er fallegur dagur núna
þegar ég tek við þessu starfi og
vonandi verða margir fallegir
dagar í því starfi,“ sagði Þráinn
Bertelsson, nýkjörinn formaður
Rithöfundasambands íslands, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þráinn var kosinn formaður sam-
bandsins á aðalfundi þess í Nor-
ræna húsinu 23. maí síðastliðinn.
Hann fékk 116 atkvæði en mót-
frambjóðandi hans Sigurður
Pálsson fékk 96 atkvæði. Einar
Kárason, fráfarandi formaður,
Steinunn Sigurðardóttir, vara-
formaður, og Andrés Indriðason,
meðstjórnandi, gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs.
Eftir aðalfundinn er stjóm Rit-
höfundasambandsins þannig skipuð
að Þráinn Bertelsson er formaður
eins og áður segir, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Siguijón Birgir Sigurðs-
son (Sjón) og Þórarinn Eldjám em
meðstjórnendur og Pétur Gunnars-
son og Vigdís Grímsdóttir em vara-
menn.
Hinn nýkjörni formaður sagði í
samtali við Morgunblaðið að sér lit-
ist prýðilega á starfið og hann
hlakkaði til að takast á við það.
„Sambandinu fylgja margar ágætar
hefðir og fyrir í stjórn situr hópur
af mjög góðu og hæfu fólki sem
mér fínnst spennandi að vinna með.
Þráinn Bertelsson formaður Rit-
höfundasambands Islands.
Það kemur þá með reynsluna og
kjölfestuna. Og vonandi, eins og
engir tveir era eins, fylgja einhveij-
ar breytingar nýjum formann.
Hveijar þær verða verður bara að
koma í ljós svona smátt og smátt
og hvað varðar einhver stefnumál
þá hefur ekki ennþá verið haldinn
fyrsti stjórnarfundur og mér fínnst
eðlilegt að bíða með allar yfirlýsing-
ar þangað til að honum loknum,“
sagði Þráinn.
Þráinn var spurður að því hvort
honum fyndist ekki erfítt að taka
við starfínu með tilliti til þess að
stjómin hefði mælt með mótfram-
bjóðanda hans. „Nei, það fínnst
mér ekki því ég þekki held ég alla
í stjóminni, að vísu mismunandi
mikið, og þetta er ágætis fólk og
vill Rithöfundasambandinu ekkert
nema allt það besta. Þó það hafi
verið fylgjandi Sigurði var það búið
að lýsa yfir þeim stuðningi áður en
að mitt nafn var nefnt svo ég get
alls ekki tekið það sem svo að það
ágæta fólk sé eitthvað á móti mér,“
sagði hann.
Aðalfundurinn samþykkti álykt-
un til stuðnings Ragnheiði Davíðs-
dóttir. Hún hljóðar svo:„Aðalfundur
Rithöfundasambands íslands, hald-
inn 23 maí 1992, lýsir að gefnu
tilefni stuðningi við Ragnheiði Dav-
íðsdóttur vegna þeirra átaka sem
orðið hafa í Menntamálaráði og
flestum er kunnugt af fréttum. Rit-
höfundar ítreka að stjórnmálaflokk-
ar jafnt sem aðrir verði að virða til
fullnustu rétt hvers manns til skoð-
ana sinna og afstöðu. Jafnframt
varar aðalfundurinn við öllum
áformum um að leggja niður Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs nema að
vandlega athuguðu máli.“
Úskurður ríkisskattanefndar í kvótamálinu:
Aðstöðugjöld hjá
sveitarfélögum hækka
Hefur jákvæð áhrif á verð hlutabréfa útgerðarfélaga
ÁHRIF úrskurðar ríkisskattanefndar í kvótamálinu eru m.a. þau að
aðstöðugjöld útgerðarfélaga til sveitarfélaga hækka. Einnig mun
úrskurðurinn hafa jákvæð áhrif á verð hlutabréfa útgerðarfélaga.
Og vegna ummæla formanns Stéttarsambands bænda í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins um helgina er rétt að taka fram að ríkisskatta-
nefnd kvað upp úrskurð um kaup og sölu framleiðsluréttar í landbún-
aði fyrir ári síðan. Var greint frá þeim úrskurði í Morgunblaðinu
þann 31. maí í fyrra.
Hvað varðar aðstöðugjöld sveit-
arfélaga em rekstrarútgjöld fyrir-
tækja lögð til gmndvallar aðstöðu-
gjaldastofni en síðan borguð ákveð-
in prósenta af rekstrarútgjöldum í
aðstöðugjöld til sveitarfélaga. Sam-
kvæmt lögum má þessi prósenta
nema hæst 1,30%. Sveitarfélög
leggja yfírleitt minna hlutfall á út-
gerðarfélög eða á bilinu 0,33%-
0.85% á stærstu útgerðarstöðunum.
Með úrskurði ríkisskattanefndar
ber að flokka kvótakaup sem
rekstrarkostnað og því meir sem
útgerðarfyrirtæki kaupir af kvóta
því meir borgar það í aðstöðugjöld
til viðkomandi sveitarfélags. Þórður
Skúlason framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga segir
að auknar tekjur til sveitarfélaga
séu af hinu góða en bendir jafn-
framt á að sveitarfélög hafi kapp-
kostað í gegnum tíðina að hafa
álögur á sjávarútveginn í lágmarki
og á sumum stöðum hafí sveitarfé-
lög staðið sameiginlega með útgerð-
um að kvótakaupum.
Þegar skoðuð em aðstöðugjöld
einstakra sveitarfélaga á útgerðar-
félög kemur í ljós að þau em lægst
á höfuðborgarsvæðinu. í Reykjavík
nema þau 0,33% og einnig í Hafnar-
firði, Garðabæ og Kópavogi. Á
Akureyri nema þessi gjöld 0,75%
og hið sama gildir um Sauðárkrók,
Ólafsfjörð og Dalvík. í Vestmanna-
eyjum hinsvegar nema gjöldin
0,33%, á Höfn í Hornafirði 0,40%
og á ísafirði 0,65%. Úrskurður rík-
isskattanefndar var í máli útgerðar-
félags á ísafirði og hefur hann í för
með sér að aðstöðugjöld viðkom-
andi félags fyrir gjaldárið 1990
hækka um 400.000 krónur.
Jákvæð áhrif á
hlutabréfamarkað
Reiknað er með að úrskurður rík-
isskattanefndar hafí jákvæð áhrif á
verð hlutabréfa í útgerðarfélögum,
a.m.k. fyrsta kastið, en reynslan
sýni að nokkurn tími líði þar til
áhrifin koma fram á markaðnum.
Sigurður B. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka segir að fræðilega séð
hljóti þetta að hafa jákvæð áhrif á
verð hlutabréfanna því úrskurðinn
feli í sér að útgerðarfélögin geta
sýnt fram á skattalegt tap með
kaupum á kvóta. „Það að geta
gjaldfært kvótakaup sem rekstrar-
kostnað þýðir frestun á skatt-
greiðslum þéssara félaga þar til
kaupin sýna arð,“ segir Sigurður.
Friðrik Jóhannsson framkvæmd-
astjóri Fjárfestingarfélagsins tekur
undir það sjónarmið að þessi úr-
skurður ríkisskattanefndar muni
hafa jákvæð áhrif á verð hlutabréfa
í útgerðarfélögum. „Það liggur fyr-
ir að með úrskurðinum verður út-
koman hjá útgerðarfélögum hag-
stæðari en hún var og þau geta
frestað skattgreiðslum með kvóta-
kaupum,“ segir Friðrik. Hann á
ekki von á að bréfin hækki strax í
verði einkum þar sem hlutabréfa-
markaðurinn í heild er í lægð þessa
daganna.
Hvað varðar spurninguna um
veðhæfí kvóta í framhaldi af úr-
skurði ríkisskattanefndar mun það
vera staðreynd að bankar hafa ekki
tekið veð í kvóta fyrir lánum, né
heldur Fiskveiðasjóður. Hins vegar
mun algéngt í skuldabréfum sem
hafa veð í skipum að þar sé ákvæði
sem kveður á um að ekki megi ráð-
stafa kvóta skipsins nema með vit-
und veðhafa. Reinhold Kristjánsson
lögfræðingur Landsbankans segir
að kannski megi líta á fyrrgreint
ákvæði sem óbeint veð í kvóta en
hinsvegar beri að líta á að Lands-
bankinn hefur ekki gert mikið af
því að taka veð í skipum m.a. vegna
þeirrar óvissu sem ríkt hefur í kvót-
amálum.
Þegar úrskurður í
framleiðsluréttarmáli
Vegna ummæla Hauks Halldórs-
sonar formanns Stéttarsambands
bænda í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins um helgina þess efnis að
úrskurður ríkisskattanefndar geti
haft áhrif á kaup og sölu á fram-
leiðslurétti í landbúnaði má nefna
að ríkisskattanefnd hefur þegar
úrskurðað í slíku máli. í frétt Morg-
unblaðsins þann 31. maí í fyrra er
greint frá þessum úrskurði undir
fyrirsögninni „Kaup á fullvirðisrétti
Morgunblaðið/KGA
Helga Þórdís Guðmundsdóttir leikur á píanó við opnun sýningar
Sotheby’s og Barnaheilla í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Sextán hundruð manns
komu á tveimur dögum
— sýningu Sotheby’s og Barnaheilla
SÝNING á verkum þeim sem uppboðsfyrirtækið Sotheby’s mun bjóða
upp á vegurn félagasamtakanna Barnaheilla, hefur dregið að sér ná-
lægt sextán hundruð gesti á þeim tveimur dögum sem sýningin hefur
verið opin, að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur, fulltrúa Sotheby’s á ís-
landi. Áætlað er að sýningunni, sem er í Ráðhúsi Reykjavíkur, ljúki
í dag, en vera kann að hún verði framlengd. Uppboðið verður haldið
á Hótel Sögu, sunnudaginn 31. maí.
„Það er ekki útilokað að sýningin
verði framlengd fram að uppboð-
inu,“ sagði Sigríður. Hún sagði enn-
fremur að mikils áhuga hefði gætt
frá innlendum jafnt sem erlendum
aðilum á þeim 40 verkum sem boðin
verða upp.
„Áhugasamir aðilar hafa haft
samband við okkur, þar á meðal
erlend söfn, til dæmis í Svíþjóð.
em frádráttarbær á móti seldum
rétti,“ og segir þar að þessi úrskurð-
ur rfkisskattanefndar gangi gegn
túlkun ríkisskattstjóra.
Forsaga þessa máls er sú að
bóndi norður í landi seldi Framleiðn-
isjóði landbúnaðarins á árinu 1988
annarsvegar 75 ærgildi í fram-
leiðslurétti og hinsvegar 50 ær fyr-
ir samtals 837.500 krónur. Á móti
keypti hann 86 ærgildi framleiðslu-
réttar í mjólk fyrir 900.000 krónur.
Mismuninn 62.500 gjaldfærði bónd-
inn í landbúnaðarskýrslu sinni.
Skattstjóri gerði athugasemdir við
þessar færslur og boðaði í bréfí til
bóndans tekjufærslu á selda fram-
leiðsluréttinum, niðurfellingu frá-
dráttar vegna keypts framleiðslu-
réttar og eignfærslu keypts réttar
fyrir 900.000 krónur. Þetta var
gert í samræmi við álit ríkisskatt-
stjóra þess efnis að kaup á fram-
leiðslurétti búvara annarar bújarðar
séu kaup á fasteignatengdum rétt-
indum og teljist kaup á eign sem
beri að eignfæra á fasteignamats-
verði. Bóndinn kærði til ríkisskatta-
nefndar og komst nefndin að þeirri
niðurstöðu að aðalkröfu hans bæri
að taka til greina. í rökstuðningi
nefndarinnar segir m.a.: „Hinn
keypti fullvirðisréttur felst í verð-
ábyrgð ríkisvaldsins á tilteknu
framleiðslumagni...Byggist réttur
þessi á búvörulögunum, reglugerð-
um samkvæmt þeim og samningum
Stéttarsambands bænda við ríkis-
valdið um búvömframleiðsluna.
Afmarkast rétturinn í tíma af þess-
um samningum. Hafa slíkir samn-
ingar verið gerðir til ákveðins tíma
en ekki hefur legið fyrir slíkt af-
markað heildartímabil þeirrar verð-
ábyrgðar sem í fullvirðisrétti þess-
um felst þannig að tækt sé að skipta
gjaldfærslu keypts réttar á slíkt
tímabil með ömggum hætti. Þá er
engum sérstökum ákvæðum til að
dreifa um meðferð fullvirðisréttar í
skattskilum." Síðan kemst ríkis-
skattanefnd að þeirri niðurstöðu
sökum þess sem að framan segir
beri að taka gjaldfærslu bóndans
til greina þar sem hvorki skatt-
stjóri né ríkisskattstjóri hafi sýnt
fram á hvernig meðferð hins um-
deilda atriðis skuli háttað eða að
gjaldfærslan hafí verið bóndanum
óheimil.
Einnig hafa einstaklingar og safnar-
ar sýnt þessu áhuga,“ sagði Sigríð-
ur. Hún telur ástæðuna fyrir þeim
mikla áhuga sem verkin hafa vakið
vera að hluta til þá, að þarna séu
bestu listamenn þjóðarinnar að láta
sín bestu verk, auk þess sem mál-
staðurinn hljóti að hitta menn í hjart-
astað.
Helmingur söluvirðis verkana
mun renna til sjóðs sem ætlað er
að styrkja rannsóknir á högum
barna er eiga undir högg að sækja.
Listamennirnii* gefa hálft andvirði
verka sinna, og Sotheby’s gefur alla
vinnu, uppboðslaun og annan til-
kostnað við uppboðið. Mælst er til
þess að þeir sem hug hafa á að bjóða
í verkin skrái sig hjá Sotheby’s eða
Bamahjálp, og mun þá hveijum
bjóðanda verða úthlutað númer. Þó
geta þeir einnig boðið, sem ekki
hafa skráð sig áður.
----------------
Kærður fyr-
ir tilraun til
nauðgunar
KONA kærði mann um þrítugt
fyrir tilraun til nauðgunar á
sunnudagsmorgun. Atvikið átti
sér stað á heimili hennar í mið-
borginni.
Kona hafði fengið manninn, sem
hún var lítillega kunnug, til að aka
sér heim úr samkvæmi en hann
fékk að koma með henni inn undir
því yfirskyni að hann þyrfti að nota
síma.
Þegar inn var komið otaði hann
hnífi að konunni, afklæddist og
læsti íbúðinni en mun hafa farið
af staðnum án þess að koma fram
vilja sínum við konuna. Lögreglan
var kvödd til og maðurinn var síðar
handtekinn og hafður í haldi vegna
yfirheyrslna en var ekki úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald, samkvæmt upp-
lýsingum RLR.
------♦ ♦ ♦
Með fíkniefni
á víðavangi
FJÖGUR ungmenni voru tekin
með fíkniefni í fórum sínum í
Kópagvogi um helgina.
Lögreglan hafði fundið svokallað
lón, sem er áhald til fíkniefnaneyslu,
falið á víðavangi i austurbænum,
fylgdist með staðnum og handtók
ungmennin þegar þau vitjuðu um
áhaldið. í fórum unglinganna, sem
voru flest 18 ára, fannst smáræði
af hassi.