Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 2
UACIUl
M (iIQ
"2
StíGI JAM ,8S
"mÖRGUNBLÁÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 26.' MAÍ1992
Brutust inn og
lögðu hendur á
húsráðendur
ÞRÍR menn um tvítugt réðust
inn í íbúð í Hólahverfi í Breið-
holti síðdegis í gær og lögðu
hendur á húsráðendur. Menn-
irnir náðust skömmu síðar og
voru þeir undir áhrifum áfeng-
is eða annarra vímuefna að
sögn lögreglunnar. Grunur
leikur á að nágranni hafi sent
mennina í þetta „verkefni".
Mennirnir þrír réðust inn í íbúð-
ina skömmu eftir klukkan fimm.
Húsbóndinn var rétt kominn í bað
þegar þeir spörkuðu upp hurðinni
og drógu hann fram í eldhús, þar
sem á hann voru lagðar hendur.
Konan reyndi að skakka leikinn
en fékk þá högg á andlitið. Eftir
skamma stund höfðu mennimir
sig á brott en lögreglan handtók
þá skömmu síðar og færði í gæslu,
þar sem þeir vom enn seint í
gærkvöldi.
Gert var að sámm húsráðenda
á slysadeild. Húsráðendur þekktu
ekki þá sem þama vom að verki
en gmnur leikur á að um ósætti
við nágranna sé að ræða, sem
sent hafi mennina.
Drög að úthlutunarreglum LÍN:
Lán vegna skólagjalda
erlendis takmörkuð
við framhaldsnám
í DRÖGUM meirihluta stjórnar Lánasjóðs islenskra námsmanna að
nýjum úthlutunarreglum sjóðsins er lagt til að lán vegna skólagjalda
erlendis umfram fenginn styrk verði aðeins veitt til framhaldshá-
skólanáms en námsmenn sem leggja stund á grunnháskólanám, s.s.
til BA og BS prófs eða sérnám sem ekki verður stundað á íslandi,
eigi kost á námslánum á markaðskjörum með venjulegum meðalvöxt-
um banka vegna skólagjalda.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Lögreglukonur leiða einn árásarmanninn burtu i handjárnum.
í tillögunni er einnig gert ráð
fyrir að ef árleg skólagjöld við við-
urkennda skóla á íslandi séu hærri
en kr. 15 þús. kr. skuli veitt lán
fyrir umframfjárhæðinni. Saman-
lögð lán til námsmanns vegna
skólagjalda skulu aldrei verða hærri
en 27.000 bandaríkjadalir eða jafn-
gildi í annarri mynt. Gert er ráð
fyrir að sérstök lán á markaðskjör-
um vegna skólagjalda endurgreiðist
með jöfnum afborgunum óháð öðr-
um námslánum og hefjist endur-
greiðsla tveimur árum eftir náms-
lok.
Heimild til að veita nemendum í
Aðalfundur Arness hf:
Heildareignir hins sameinaða
félags nema 1,7 milljörðum kr.
Skuldir nema alls rúmlega 1,2 milljörðum króna
AÐALFUNDUR Árness hf. í Þorlákshöfn verður haldinn annað kvöld
og þá formlega gengið frá samruna Glettings hf. og Hraðfrystihúss
Stokkseyrar hf. í hið nýja félag. Ámes hf. mun ýta úr vör með
heildareignir upp á tæplega 1,7 milljarða króna, heildarskuldir upp
á rúmlega 1,2 miHjarða króna og kvóta sem nemur ríflega 5.700
tonnum af þorskígildum. Árnes hf. er því níunda stærsta útgerðarfé-
Iag landsins.
Á aðalfundinum verða lagðir
fram rekstrarreikningar Glettings
hf. og Hraðfrystihúss Stokkseyrar
hf. Þeir sýna að tap varð á rekstri
Glettings upp á 17,3 milljónir króna
Úrskurður ríkis-
skattanefndar:
á síðasta ári en góður hagnaður
varð af rekstri HS, eða 146,8 millj-
ónir króna. Pétur Reimarsson fram-
kvæmdastjóri Ámess hf. segir að
hagnaðurinn sé einkum til kominn
vegna niðurfellinga skulda í nauða-
samningum á síðasta ári en þær
niðurfellingar námu 149 milljónum
króna.
Samtals námu rekstrartekjur
þessara tveggja félaga á síðasta ári
tæplega 1,25 milljörðum króna, þar
af 847,8 milljónir hjá Glettingi og
401.9 milljónir hjá HS. Rekstrar-
gjöld, án afskrifta, námu hinsvegar
802.9 milljónum kr. hjá Glettingi
og 355 milljónir kr. hjá HS.
Á aðalfundinum annað kvöld
verða fluttar tillögur um sammna
hlutafélaganna þannig að hluthafar
í Glettingi hf. og HS fá hlutabréf
í Árnesi hf. sem gagngjald fyrir
hlutafé sitt í fyrrnefndu félögunum.
Samtals fá hluthafarnir 210 millj-
óna króna hlutafé sem skiptist
þannig að hluthafar í Glettingi hf.
fá 134,4 milljónir kr., (64%), og
hluthafar í HS 57,6 milljónir kr.,
(36%). Um áramótin var svo boðið
út nýtt hlutafé að nafnvirði 50 millj-
ónir króna og selt á gengi 1,85.
Heildarhlutafé er því 260 milljónir
kr.
Frá áramótum hefur Ámes hf.
haft með höndum fiskvinnslu í Þor-
lákshöfn og á Stokkseyri og gerir
út sjö báta auk togara sem er í
leigu fram á haust í ár.
Pétur Reimarsson framkvæmda-
stjóri Ámess hf. segir að þótt félag-
ið sé mjög skuldsett í upphafi, með
langtímaskuldir upp á 858 milljónir
og skammtímaskuldir upp á 413
milljónir kr. reikni menn fastlega
með því að ná þeim markmiðum
sem sett hafa verið um hagræð-
ingu og niðurskurð í rekstri.
„Við leggjum upp með svipaða
stöðu og reiknað var með í upphafí
en síðan á eftir að koma í ljós hvern-
ig til tekst," segir Pétur.
sérnámi erlendis lán er þrengd og
nær aðeins til námsmanna sem náð
hafa 20 ára aldri og ennfremur að
um sé að ræða a.m.k. tveggja ára
skipulegt nám sem ekki verði stund-
að á íslandi.
Haldnir voru fundir í hagsmuna-
nefnd Stúdentaráðs, samstarfs-
nefnd námsmannahreyfínganna og
stjórn LÍN á sunnudag. Að sögn
Elsu Valsdóttur, varafulltrúa Stúd-
entaráðs i stjórn LÍN, óskuðu full-
trúar námsmanna eftir upplýsing-
um um forsendur niðurskurðarins
og að fá röksemdir fyrir þeim út-
reikningum sem meirihluti stjómar
hefur sett fram. Þá var farið fram
á lögfræðilega greinargerð vegna
ákvæða um námsframvindu og
hugsanleg brot á jafnréttislögum,
um að meðlag verði talið til tekna
og um áform um að hætta lánveit-
ingum þegar um er að ræða laun-
að, starfstengt nám.
Síðdegis í gær var svo haldinn
stjómarfundur í LÍN þar sem full-
trúar námsmanna lögðu fram at-
hugasemdir við einstakar greinar í
drögum meirihlutans. Honum lauk
um kvöldmatarleytið í gær og hefur
annar fundur verið boðaður seinni-
partinn í dag.
♦ ♦ ♦
íkveikja á
veitingastað
TILRAUN til íkveilqu var gerð
á veitingastaðnum Apríl í
Hafnarstræti 5, í Reykjavík í
gær. Steinolíu hafði verið hellt á
húsbúnað á efri og neðri hæð
hússins en eldurínn náði ekki að
breiðast út.
Þegar að var komið hafði eldurinn
komist að gosvél, sem tengd er
vatni. Vatnsslangan bráðnaði og
vatnið slökkti eldinn. Rannsóknar-
lögreglan fer með rannsókn málsins.
Jákvæð áhrif
á verð hluta-
bréfa útgerða
REIKNAÐ er með að úrskurður
ríkisskattanefndar í kvótamálinu
muni hafa jákvæð áhrif á verð
hlutabréfa hjá útgerðarfélögum.
Sigurður B. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkað-
ar íslandsbanka segir að fræði-
lega séð hljóti úrskurðurínn að
hafa jákvæð áhrif því hann felur
í sér að félögin geti sýnt fram á
skattalegt tap með kaupum á
kvóta. Friðrik Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfé-
lagsins segir einnig að áhrifin
verði jákvæð því félögin geti
frestað skattgreiðslum með
kaupum á kvóta.
Hvað varðar önnur áhrif úrskurð-
ar ríkisskattanefndar má nefna að
hann kemur til með að hækka að-
stöðugjöldin sem sveitarfélög inn-
heimta af útgerðarfélögum. Þar
sem aðstöðugjöld eru reiknuð sem
ákveðin prósenta af rekstrarkostn-
aði og útgerðarfélögum ber nú að
skrá kvótakaup sem rekstrarkostn-
að munu greiðslur til sveitarfélaga
aukast. Samkvæmt lögum mun
hámarksprósentan nema 1,3% en
flest sveitarfélög innheimta nú á
bilinu 0,33-0,85% í aðstöðugjöld af
útgerðarfélögum.
Sjá nánar á bls. 26.
Skaut út um bílglugga á 12 ára barn:
Miðaði allt í einu
byssu o g skaut
- segir Pjóla Bjamadóttir sem varð fyrir skotinu
ÓKUNNUR maður skaut úr loftriffli út um bílglugga að tólf
ára telpu á reiðhjóli í Hafnarfirði á sunnudagskvöldið og hæfði
hana í lærið. Telpan bólgnaði mikið en áverkinn var þó ekki
talinn hættulegur. Telpan heitir Fjóla Bjarnadóttir. Hún segir
að hún og þrír vinir hennar hafi veifað til tveggja manna í bíl
er ók framhjá þeim þegar annar þeirra miðaði allt í einu byssu
að þeim og hleypti af. „Ég fékk skotið í fótinn rétt fyrir ofan
hnéð og það var heldur sárt,“ segir Fjóla.
Fjóla var að hjóla ásamt félög-
um sínum við beitingarskúra á
móts við tanka Hlaðbæjar á hafn-
arsvæðinu í Hafnarfirði, þegar
litlum bláleitum fólksbíl af óvissri
tegund, líklega hlaðbaki með
gamlar númeraplötur, var ekið
að þeim. Þegar bömin höfðu
mætt bílnum teygði ökumaður-
inn, sem talinn er um eða undir
tvítugu, hönd út um gluggann
og skaut úr loftbyssu að Fjólu
og ók svo áfram. Skotið kom í
læri Fjólu skammt ofan við hné
sem bólgnaði mikið og marðist
undan því. Fjóla komst heim til
sín ásamt félögum sínum og það-
an var hún flutt á slysadeild og
lögreglu tilkynnt um atburðinn.
Skotmaðurinn hafði ekki náðst í
gær.
Fjóla segir að kúlugat sé á
læri hennar eftir skotið og nokk-
uð mar allt í kringum það. „En
ég kem til með að ná mér alveg
eftir þetta og sárið hefur lagast
mikið frá því á sunnudagskvöld,"
segir hún.
Morgunblaðið/Þorkell
Fjóla Bjarnadóttir, frei
myndinni, stendur hér á
tveimur vinum sinum á
stað sem skotárásin vs
hafnarsvæðinu í Hafna
Vinir hennar eru þau í
Reynisson og Elín Gróa
jónsdóttir en þau ásamt:
Guðmundssyni urðu vit
atburðinum. ’A innfelldu
inni sést sárið eftir skot