Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1992 27 Tíu tilboð bárust í framleiðslu ÁTVR TÍU TILBOÐ bárust í framleiðslutæki, vöruheiti og uppskriftir ATVR, en tilboðin voru opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins í gær. Hæsta tilboð nam 17 rnilljónum, 425 þúsundum og 500 krón- um, en það lægsta var 4,761 milljón. A næstu dögum verður ákveð- ið við hvaða tilboðshafa verður Hæsta tilboðið átti Kristín Stef- ánsdóttir. Næstu tilboð voru: Hall- dór Kristjánsson 16 milljónir, 425 þúsund og 500 kr., Rek-ís hf. 15.425.500, Kristján G. Halldórs- son 14.425.500, Elding Trading 13.425.500, Tryggvi Hallvarðsson 12 milljónir, 310 þúsund, Helgi G. Sigurðsson 10,5 milljónir, Jónco 8,2 milljónir, Delta hf. 5,1 milljón samið. og Sproti hf. 4,761 milljón. Pálmi Jónsson hjá Innkaupa- stofnun sagði í samtali við Morg- unblaðið að á næstu dögum yrði farið yfir tilboðin og þau borin saman. Greiðsluskilmálar væru mismunandi og fjármálaráðuneyt- ið og ÁTVR tækju ákvörðun um við hvern yrði samið. Litið væri svo á að öll tilboðin væru bindandi. Morgnnblaðið/Þorkell Félagsmiðstöðin að Hraunbæ 105 er byggð við Hraunbæ 103 þar sem íbúðir aldraðra eru. Ný félagsmiðstöð aldraðra í Hraunbæ Ný félagsmiðstöð aldraðra að Hraunbæ 105 var aflient af bygginga- raðilum sl. föstudag og mun starfsemi hefjast þar innan skamms. Félagsmiðstöðin er tólfti staðurinn þar sem boðið er upp á opið félags- og tómstundastarf fyrir aldraða í borginni. Að Hraunbæ 105 verður boðið upp á ýmsa þjónustu s.s. hádegisverð, fót- og hársnyrtingu, leikfimi og hreyfiþjálfun og aðstoð við böðun. Opið verður virka daga. Byggingin er á einni hæð og leggst upp að háhýsinu Hraunbæ 103, íbúðum aldraðra. Byggingafélag Gylfa og Gunnars h.f. sá um byggingu húss- ins. Áætlaður heildarkostnaður við félagsmiðstöðina með búnaði og frá- gangi lóðar er um 87,5 milljónir króna. Morgunblaðið/Björn Blöndal Þessa dagana er unnið að kappi við gerð smábátahafnarinnar í Grófinni og áætlað er að verkinu verði lokið í ágúst. Keflavík; Ný smábátahöfn í Grófinni Keflavík. FRAMKVÆMDIR vegna hafnar fyrir smábáta í Grófinni standa nú sem hæst og sagði Pétur Jó- hannsson hafnarstjóri að ætlunin væri að ljúka við fyrsta áfanga hafnarinnar í ágúst og þá yrðu 84 legupláss við flotbryggjur. Auk þess yrði 20 m löndunar- kantur og upptökubraut í nýju höfninni. Það er fyrirtækið Hag- virki-Klettur sem vinnur við hafnargerðina en það átti lægsta tilboðið í verkið, 39,7 milljónir, sem var um 60% af kostnaðar- áætlun. Pétur sagði smábátaeigendur á Suðurnesjum og þá sérstaklega í Keflavík hefðu verið orðnir lang- þreyttir á að hafa stöðugt áhyggjur af bátum sínum en með tilkomu hafnarinnar í Grófinni yrðu bátar þeirra í öruggu vari í nánast hvaða veðri sem væri. Dýpið við bryggj- urnar verður 2,5-3 m þannig að skútueigendur gætu einnig nýtt sér aðstöðuna. Þegar hafa liðlega 50 umsóknir borist um legupláss í nýju höfninni og sagði Pétur að þær væru að meirihluta frá heimamönnum sem margir hverjir væru nú með báta sína í öðrum höfnum. Þá eru mann- virki í eigu bæjarins staðsett við nýju höfnina þar sem ætlunin er að koma upp beitinga- og geymslu- aðstöðu fyrir smábátaeigendur. Petur sagði að hægt yrði að stækka höfnina og ef farið yrði í gerð ann- ars áfanga kæmu 100 legupláss til viðbotar þeim 84 sem nu væn unn- ið að. -BB Tónleikar í Norræna húsinu LISA Ponton lágfiðluleikari og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleik- ari halda tónleika í Noræna húsinu miðvikudaginn 27. maí kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir Max Reger, Darius Millhaud og Henri Vieuxtemps. Lisa Ponton fæddist í Kank- akee, Illinois í Bandaríkjunum árið 1965. Hún lauk B.M. prófi (Bac- 'helor of Music) í lágfiðluleik frá Curtis Institute of Music 1986 og M.M. prófi (Master of Music) frá Juill- iardskólanum 1989. Þá hefur hún verið verið við framhalds- nám við tónlist- arháskólann í Köln. Hún hefur m.a. hlotið styrki úr Rubin- stein-sjóðnum og Naumburg- sjóðnum. Lisa hefur komið fram á ýmsum hátíðum í Bandaríkjunum og Þýskalandi, s.s. tónlistarhátíð- inni í Aspen og Rheinisches Musik- fest í Köln. Hún hefur leikið í út- varpsupptökum fyrir West- Lisa Ponton. Deutscher Rundfunk og Hessische Rundfunk. Sólveig Anna er Akureyringur. Hún steig fyrstu skrefin á tón- listarbrautinni hjá Ragnari H. Ragnar á ísafírði en stundaði nám við Tónlistarháskólann á Akureyri allt til ársins 1979, lengst af hjá Philip Jenkins. Sólveig Anna var nemandi Halldórs Har- aldssonar í Tón- listarskólanum í Reykjavík og lauk hún píanó- kennaraprófi frá þeim skóla í SÓJvei Anna . 1 Jónsdóttir Bandarikjunum árin 1984-1987 þar sem aðal- kennari hennar var Nancy Weems. Sólveig Anna býr nú í Reykjavík og starfar við kennslu og píanóleik. FJOLSKYLDUBILL VOLVO Bifreið sem þu qeturtreyst! 400 línan frá Volvo er hönnuð fyrir nútímafjölskyldur. Fólk sem vill traustan og rúmgóðan fjölskyldubil sem um leið hefur alla kosti sportbíls. Kraftur, sportlegt útlit og öll hugsanleg þægindi prýða 400 línuna frá Volvo. Sem dæmi um staðalbúnað má nefna: 106 hestafla vél, álfelgur, vökvastýri, plusssæti, samlæsingu, rafdrifnar rúður og spegla, upphituð framsæti, hljómflutningstæki og margt fleira. Ef þú ert i vafa um hvort þú átt að fá þér sportbíl eða fjölskyldubíl,.fáðu þér þá hvorttveggja, fáðu þér Volvo 440 eða 460! Verðið erfrábært eða frá 1.368.000 kr. staðgœitt, kominn á götuna! FAXAFENI8 • SIMI 91 -68 58 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.