Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 9

Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 9
9 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 HUMANIC kvenskór komnir aftur S geröir Verð frá 3.900,- Einnig KATRIIM, mjúkir leöurskór Tvter gerðir Verð 5.990,- Skósalan, Laugavegi 1, s. 16584. TOSHIBA örbylgjuofn ? Þeir sem eiga TOSHIBA örbylgjuofn segja aö það sé tækiö, sem þeir vildu síst vera án. TOSHIBA eru mest seldu örbylgjuofnarnir á Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara. Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ? Við bjóðum yfir 10 gerðir af TOSHIBA örbylgjuofnum á verði og kjörum, sem allir ráða við! Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900 PELTOR HEYRNARHLÍFAR Island gleymist á Norðurlöndum... Norska blaðið Aftenposten birti nýlega viðtal við Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra. Var það ein þriggja greina sem blaðið hefur birt síðustu daga um afstöðu íslendinga til Evrópska efna- hagssvæðisins (EES), Evrópubandalags- ins (EB) og Norðurlandasamstarfs. Landfræðileg- ar aðstæður aðrar „Innan fárra ára verða Finnland, Noregur og Svíþjóð komin í Evrópu- bandalagið. Það er eðli- leg afleiðing af land- fræðilegri legu landanna og efnaliagslegum og pólitískum aðstæðum í þeim. Landfræðilegar aðstæður f okkar eru öðruvísi, 'Island er ekki eitt Eystrasaltsríkjanna, við erum Atlantshafs- ríki,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson. í viðtalinu er vitnað til samninganna um Evr- ópska efnahagssvæðið (EES) og haft eftir Jóni Baldvin að þeir hafi verið langdregnir. „EB hefur aldrei getað staðið við tímaáætlanir í samning- um við nokkurn aðila. Reynsla okkar af banda- laginu í því sambandi er slæm. Framkvæmda- stjórnina skortir ótvírætt samningsumboð fyrir hönd bandalagsins, aðild- arríkin þurfa stöðugt að blanda sér inn í,“ segir utanríkisráðherrann og hefur blaðamaður það eftir honum að eftir allan seinaganginn sé EB ekki trúverðug stofnun í aug- um islensks almúga. Síðar í samtalinu er fjallað um sambúð Norð- urlandanna: „Þegar ég les norræn blöð, en af þeim les ég helst norsk, tek ég eftir því að þegar skrifað er um Norður- lönd er átt við Skandin- avíu. Vesturnorræna svæðið, Island og Færeyj- ar, verða útundan," kvartar ráðherrann o® svarar afdrátúirlaust ját- aiidi spurningu um það hvort honum finnist líka að Norðmenn séu að gleyma Islandi. Norrænt sam- starf breytist „Norrænt samstarf á eftir að taka stakkaskipt- um i náinni framtíð og þungíuniðjan í því verður samstarf Noregs og Svi- þjóðar við ríki sem eiga land að Eystrasalti. Það verður nokkurs konar ofursvæði innan EB og þýsk áhrif munu ráða ferðinni," segir Jón Bald- vin. Vikið er að þeirri ósk Islendinga að fá að taka þátt - að minnsta kosti sem áheymarfulltrúar - í fyrsta fundi um sam- starf norrænna ríkja og Eystrasaltslandanna sem haldin var í Kaupmanna- höfn fyrr á árinu. „Við fengum þvert nei hjá Dönum. Uffe Ellemann- Jensen utanrikisráð- herra sagði nei, ákvörð- un sem ekki varð breytt [í þágu íslendinga] þrátt fyrir stuðning aimarra Norðurlanda. Hann reyndi að skýla sig á bak við það að Þjóðveijar vildu ekki að við fengjum áheymarfulltrúa en ég veit að þeir settu engin skilyrði af því tagi. Ekki veit ég hvað Uffe gekk til en afstaða hans olli vonbrigðum á íslandi," sagði utanríkisráðherr- an. „Noregur er jú ekk- ert Eystrasaltsríki frekar en ísland.“ Uppáhalds óvinur Blaðið spyr um sam- band utanríkisráðherr- anna, Jóns Baldvins Hannibalssonar og Uffe Ellemann-Jensens. „Ja, við getrnn sagt að hann sé minn uppáhalds- fjandi. Það er líka alls ekki ömggt að Danir myndu taka því með vel- þóknum ef íslendingar stigu á endanum upp i norrænu hraðlestina sem er á leiðinni inn í EB,“ sagði Jón Baldvin. Síðan segir blaðið að hann hafi sagt að meðan EB vildi stjórna nýtingu fiski- stofnanna við ísland gerðust Islendingar ekki aðilar að bandalaginu. Því snerist spurningin um það hvort EB myndi á endanum gera undan- tekningar á sviði land- búnaðar og fiskveiða, undanþágur á borð við þær sem Bretar fengu á sviði félagsmála og Danir varðandi takmörkun á sölu sumarbústaða til út- lendinga við gerð Maastricht-samkonm- lagsins. „EB er ekki kyrr- stætt,“ svarar Jón Bald- vin því og dregur blaða- maður þá ályktun af til- svömm ráðherrans að hann sé þeirrar skoðunar að hægt verði að komast að niðurstöðu sem komi til móts við sanngjamar óskir Norðm-landanna hvað varðar aðild að EB. Kaupi ekki buxur sem ekki passa -Yrðu það haldgóðar midantekningar? „Ja, það veit maður ekki fyrr en sótt hefur verið um og samið um aðild. Ætli maður að kaupa buxur verður að máta þær í búðinni til þess að sjá hvort þær passi. Passi þær ekki verður einfaldlega ekk- ert af kaupunum.“ -Hvað gera íslending- ar ef öll EFTA-ríkin ganga í EB? „Þetta er spuming um það hvort menn vilja hafa áhrif. Hver yrðu áhrif íslendinga í evrópska risaveldinu? í umræðum á Alþingi fyrir páska sagði ég að hefðu menn engan metnað á alþjóða- vettvangi dygði okkur EES. En ég spyr: Hvers vegna ættum við ekki að taka okkur far með Norðurlandalestiimi inn í EB? Sænski hraðinn — tímaáætlunin er óraun- hæf - er alltof mikill fyrir okkur," segir Jón Baldvin. Blaðamaðurinn bætir því við að haim tali varfærnislega um EB-aðild því Islendingar vilji helst ekkert ræða um það atriði fyrr en Alþingi hefm- samþykkt samninginn um EES. Til frambúðar SiBA stál þakrennur með lituðu plastisol ÍSVÖR WWW BYGGINGAREFNI Dalvegi 20, sími 641255. TölvttSttiiarskoIIii PC eða Macintosh námskeið fyrir 10 -16 ára 2ja eða 3ja vikna námskeið í júni, júlí eða ágúst. Kennt frá 9-12 eða 13-16 fimm daga vikunnar. q MJö® hagstntt verö Tölvu- og verkfræðiþjónustan ^S> Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ÞARFAÞING FRÁ MÚLALUNDI FYRIR RÁÐSTEFNUR, NAMSKEÍÐ OG FUNDI. Stendur fyrir dyrum ráSstefna,námskeið eSa fundur? Fundarmöppurnar og barmmerkin (nafnmerkin) frá Múlalundi eru einstakt þarfaþing sem auðvelda skipulag og auka þægindi og árangur þátttakenda. Allar gerðir, margar stærðir, úrval lita og áletranir að þinni ósk! Haföu samband við sölumenn okkar í síma 68 84 76 eða 68 84 59. l Múlalundur Vinnustofa SlBS - Hátúni 10c - Slmar: 68 84 76 og 68 84 59. sc vj Z UJ —I to > I 3 Z z > => Q

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.