Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 17

Morgunblaðið - 26.05.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 17 ttr REYNSLA FARÞEGA: „Fyrir öllu hafði verið liugsaö af slíkri kunnáttu, útsjónarsemi og smekkvísi, að ferðin var óblandin ánægja og draumi likust. Það var sem viö ferðuðumst um í landslagsmálverki, og nutum ails hins besta sem Ítalía hefur að bjóða. Hvflik stemmning og lífsnautn! Listin og lífið allt fá annaö samhcngi við reynslu af þessi tagi. Það er list að gera ferðir svona úr garði og á fárra færi. Mér fannst hún nokkuð dýr í fyrstu en komst að raun um aö liklega væri hún ódýrasta feröin aö raungildi, sem ég hef nokkurntíma farið, ég heyrði ferðafélagana taka í sama streng. Eg vil þakka fyrir mig, og hiýt að ráðieggja þeim, sem vilja kynnast því besta að velja sér ferð mcð Heimsklúbbnum.“ Úr lesendabréfi Morgunblaösins, sept. 1991. Hvort á að duga eða drepast? eftir Gunnlaug Eiðsson Nú stefnir í það, að miklu færri erlendir ferðalangar kaupi tjaidferð- ir hjá íslenskum ferðaskrifstofum í sumar en í fyrra. Síðan Austurríkis- menn ruddust inn á tjaldferðamark- aðinn fyrir fáum árum, hefur þeim tekist að þjarma svo að Islending- um, að í voða stefnir, minnkandi vinnu. Ferðaskrifstofan Kneissl hef- ur árum saman flutt inn starfs- menn, sem vinna hér langt undir lögboðnum launum. Oftast eru þetta námsmenn, sem taka að sér elda- mennsku og leiðsögn gegn íslands- ferð og nánast engum launum. Margfaldar kærur hafa engan árangur borið. Ein stærsta ferðaskrifstofan í þessari grein ferðaþjónustu sér fram á 30% samdrátt í sumar frá í fyrra. Það þýðir minni vinnu fyrir leiðsögu- menn og marga aðra. Og þá líklega 30% lægri tekjur eftir sumarið. Og víst er, að sífellt hefur orðið minna að gera í tjaldferðum eftir því sem starfsemi Kneissl hefur þanist út í skjóli ójafnaðar og lögbrota. Hér er eingöngu við íslensk stjórnvöld að sakast'. Þau átta sig ekki á gildi ferðaþjónustunnar. Þau skortir framsýni til að tengja hana við þróun atvinnumála í landinu. Og ég sé ekki, að nokkur breyting ætli að verða þar á. Þess vegna legg ég til að við leiðsögumenn, a.m.k. í öræfaferðum, tökum á okkur 10% kauplækkun þetta sumar frá því í fyrra. Þá var kaupið kr. 8.251 á dag, sem gera um kr. 200 þús. á mánuði. Við hefðum þó eftir lækk- unina um kr. 180 þús. á mánuði. Það finnst mér allgóð laun enda þótt miðað sé við jafnaðarkaup og 11,5 klst. vinnudag. Ég er ekki að tala um að gefa neinum neitt eftir. Ekki að aumkva sig yfír bágstaddar ferðaskrifstofur. Ekki að beygja sig fyrir slöppum og sljóum stjórnvöldum. Þetta er spurning um að hafa vinnu. Hafa tekjur. Það gagnar ekkert að vísa til reynslu og góðrar menntunar ís- lenskra leiðsögumanna þegar ferða- menn vilja ekki kaupa þjónustu okk- ar á því verði, sem við setjum upp. I gönguferðum, þar sem leiðsögu- maðurinn ber allt sitt hafurtask á bakinu, er miðað við tvöföld tjald- ferðalaun, kr. 16.500 á dag. Enda er sáralítið að gera í þeim ferðum. Þá er að lækka verðið. ÞAð er eina leiðin og þá mættum við minnast þeirra, sem ruddu veginn, hugsjóna- mannanna Úlfars Jacobsen og Guð- mundar Jónassonar. Þáttur stjórnvalda Það verður hreinlega að segja eins og er, að í sambandi við ferða- mál eru stjómvöld bæði heimsk og skammsýn. Afskaplega treg. Á ég þá ekki eingöngu við núverandi ferð- amálaráðherra og hans starfslið, heldur ekki síður alla alþingismenn og ríkisstjómir síðustu 10-20 ár og stóran hluta af embættismanna- farganinu. Sennilega var það hamingja ferðaþjónustunnar, hversu lítil afskipti hins opinbera vom. Hún reis af sjálfri sér, dafn- aði og blómstraði — og gerir enn, nema tjaldferðimar - þær em að visna vegna hirðuleysis stjómvalda um lög og rétt. Þetta er auðvitað ekki stefna nokkurs ferðamálaráð- herra, heldur skilningsskortur, stefnuleysi. Með vingulshætti sínum stuðla þeir beinlínis að því, að gjald- eyristekjur minnka, samdráttur verður í atvinnurekstri og atvinnu- leysi eykst. í fyrrasumar lokuðust nokkrir ferðamannahópar inni í Herðubreið- arlindum vegna flóða. Þá kom til mín Þjóðverji og spurði hvenær myndi sjatna í ánum. Hann þurfti nefnilega að komast til Keflavíkur- flugvallar fyrir ákveðinn tíma til að sækja nýjan hóp, en hann hafði bíla- leigujeppa í sínum atvinnurekstri. Þeir em ekkert að fela þetta greyin, því þeir þekkja ekki reglugerð nr. 175 frá 1983, sem bannar þetta. Hana þekkja aftur á móti íslenskir embaéttismenn. Og ef þetta er kært, sem gert er oft á ári, svarar embætt- ismannafarganið: „Tja, það er nú það, væni minn“. Svo drattast það af stað til að sækja launin sín fyrir óunna yfirvinnu. Til hvers í ósköp- unum skapaði guð hið opinbera? Annað dæmi em alls kyns farar- tæki, sem flutt eru til landsins að vori og róla hér hring eftir hring allt sumarið og sækja í hverri ferð nýja hópa til Keflavíkurflugvallar. Sum farartækjanna eru gripavagn- ar, sem íslendingar mættu aldrei nota til fólksflutninga. Einn slíkur var í Kverkfjöllum í fyrra með hol- lenska túrhesta. Þeir eltu mig út „Legg ég til að við leið- sögumenn, a.m.k. í ör- æfaferðum, tökum á okkur 10% kauplækkun þetta sumar frá því í fyrra.“ um allt, því þeir rötuðu ekkert. Sögðu mér allt um atvinnurekstur sinn því þetta var ágætisfólk eins og aðrir ferðamenn, en þetta var ótvírætt brot á 4. grein áðurnefndr- ar reglugerðar: „Hafí erlendur ferð- amannahópur ökutæki meðferðis við komuna til landsins til eigin nota skal það fylgja hópnum við bróttför úr landi." Einnig þetta hef- ur margsinnis verið kært án árang- urs. Hver veit nema við fáum einhvern tíma ferðamálaráðherra, sem hefur skilning á möguleikum lands og þjóðar og getur hugsað svolítið fram á veginn. En þangað til verðum við að keppast við að skerða kjör okkar í takt við erlenda svartamarkaðs- braskara. Því mér er full alvara með hugmyndinni um 10% launaskerð- ingu. Við skulum halda uppi merkj- um Úlfars og Guðmundar. Öræfa- ferðirnar mega ekki falla í hendur útlendinga. Höfundur er leiðsögumaður. Gunnlaugur Eiðsson HEIMSKLUBBUR Skipulag og fararstjórn: Ingólfur Guðbrandsson INGOLFS KYNNIR LISTA, OPERU OG SÆLKERAFERÐ - ÞAÐ BEZTA AITALIU r o o 2ja vikna listskodun oglífsnautn í fegurstu héruöum ogborgum Ítalíu. Brottför 17. ágúst. GRÍPIÐ TJEKIFEIH) 86 TRYGGH) YKKUR FRABIERA FERB MEÐAN SffTI ERU TIL FERÐAMÁTI: Flug til MÍLANÓ og til baka frá Róm. Akstur um Ítalíu í glæsilegustu gerð farþegavagna. GISTING: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum með tilliti til gæða og staðsetningar. Hlaðborðsmorgunverður. HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: 1. MÍLANÓ, m.a. LA SCALA-óperan, dómkirkjan, BRARI- safnið og Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci í Santa Maria delle Grazie. Gisting: BAGLIONE DORIA. 2. VERONA, hin heillandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu og óperan AIDA í ARENUNNi með frægustu söngvurum heimsins. Gist á splunkunýju glæsihóteli, LEON D’ORO. 3. GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum SIRMIONE, BARDOLINO, GARDA, TORBOLE, RIVA. Siglt á vatninu. 4. Listir og líf í FENEVJUM. Þar sem gist verður á HOTEL LUNA við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG til að upplifa töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi. 5. ítalska hjartað - listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er 3 nætur á BERNINI PALACE, mitt í heimslistinni til að sjá með eigin augum snilld endurreisnarinnar, mestu listfjársjóði veraldar í söfnunum UFFIZI og PITTI. 6. PISA, SIENA OG ASSISI, borgirnar, sem eru sjálfar eins og undurfagurt safn aftan úr öldum, ótrúlegri en orð fá lýst. Gist á PERUGIA PLAZA. 7. RÓM, borgin eilífa, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur engu tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að ferðamenn fá öllum heimshornum í 2000 ár. Gist 4 nætur á REGINA BAGLIONE hótelinu við sjálfa VIA VENETO. Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð sem þú mátt ekki missa af. Allur viðurgerningur, matur og vín eins og bezt gerist í gósenlandi sælkera. ENDURTEKIN, ENDURBÆTT FRÁ í FYRRA. HAUSTFERDIR HEIMSKLÚBBSINS: Filippseyjar - Japan - Taiwan - Thailand 6. - 27. sept. 10 sæti. Fegurð og furður Afríku 7. - 25. okt. laus sæti. Töfrar Malaysíu 5. - 23. nóv. uppselt nema óstaðf. pantanir. HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS AUSTURSTRftTI 17, 4.UJ10I REYIUAVIK*SIMI 620400-FAX 626564

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.