Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 18
18 3&MÍ0& MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1992 HITASTÝRITÆKI HITASTÝRITÆKI fyrir sturtu eða baðkar með fullkomnu brunaöryggi Verð frá Skeifunni 8, Reykjavík'B'682466 ESAB NÝ KYNSLÓÐ SUÐUTÆKJA A 10 Fyrir iðnað. Sterk og fjölhæf Mig/Mag iðn- aðarsuðutæki útfærð sam- kvæmt þínum fyrirmælum. Veldu útfærsluna sem best hentar verksviði þínu: - Hreyfanlegt þráðfærslubox með eða án masturs. - Öll þráðbox með "tacho" stýringu á þráðfærslu og /eða 4x4 þráðfærsludrif. - Val um hefðbundið þráð- færslubox eða alsjálfvirkt sammögnunarþráðbox með 50 forstillingarmögu- leika. - Þrepalaus eða 40 þrepa spennustilling á spenni. - 250 - 630 Amp. tæki. - Stýring með einum rofa og stillimöguleikar frá byssu. - Gas- eða vatnskældar suðubyssur. - OK - þjónustan, sérbúið þjónustuverkstæði fyrir ESAB notendur. GÓÐ ENDING. Hver einstakur hlutur tækj- anna fer í gegnum strangt gæðapróf á framleiðslustigi. Nýir ESAB fylgihlutir passa ávallt í búnaðinn sem fyrir er. Þetta eykur endingu og heldur endursöluverði háu. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 624260 íorm aðeins kr. 9.980,- Hlutleysi eða þátt- taka í samstarfi eftirÁrna Ragnar Árnason Þær Evrópuþjóðir sem hafa um áratugi viðhaft hlutleysi, leggjaþað nú af. Á sama tíma heyrast raddir um að ísland taki það upp. Þær heyrðust við umræður á Alþingi um skýrslu utanríkisráðherra, þær eru raddir þeirra sem ekki kunna að meta lærdóma reynslunnar. Aðild okkar að Atlantshafsband- alaginu hefur ásamt varnarsam- starfmu við Bandaríkin verið einn af homsteinum utanríkisstefnu okkar. Þær miklu breytingar sem orðið hafa í Evrópu og á samskipt- um stórveldanna á síðustu árum og áratugum, hafa sýnt fram á rétt- mæti þeirrar afstöðu svo ekki verð- ur um villst. Skjöldur nýfrjálsra þjóða Atlantshafsbandalagið er meðal burðarása í samtökum frjálsra „Hlutverki Atlantshafs- bandalagsins er síður en svo lokið. Það hefur skapað vettvang fyrir nýtt og aukið samráð um öryggi og stöðug- leika í Evrópu allri og tekið að sér enn stærra hlutverk en áður.“ þjóða um að styrkja þær sem ný- lega losnuðu úr helfjötrum komm- únista. Þær lyfta nú Grettistaki í uppbyggingu þjónustu og sam- göngutækja, atvinnu- og efnahags- lífs, þjóðfrelsis sem fólkið geti borið traust til, — í stuttu máli félags- og efnalegra mannsæmandi lífs- kjara, sem við teljum sjálfsögð mannréttindi. Þær horfa mjög til Atlantshafs- bandalagsins um tryggingu fyrir öryggi sínu og sjálfstæði. Lýðræðis- öfl þeirra eru sundurleit og hafa ekki traust tök á stjórnartaumun- um, samgöngur og dreifing í lama- sessi, skrifræðisstétt og stuðnings- menn einræðis kommúnismans hafa enn tögl og hagldir í stofnunum framkvæmdavaldsins og neyta að- stöðu sinnar til skömmtunar líf- snauðsynja. Þeir og önnur ofstæk- is-, ofstjórnar-, stjórnleysis- og ein- ræðisöfl ala á óánægju og sundur- þykkju íbúa og þjóðfélagshópa. Hætta á valdaráni er því enn raun- veruleg hjá hinum nýfijálsu þjóðum Mið- og Austur-Evrópu. Vaxandi mikilvægi samstarfs um öryggismál Hlutverki Atlantshafsbandalags- ins er síður en svo lokið. Það hefur skapað vettvang fyrir nýtt og aukið samráð um öryggi og stöðugleika í Evrópu allri og tekið að sér enn stærra hlutverk en áður. Það er haldreipi þjóðanna, sem losnað hafa Hafa öll hin EFTA- ríkin rangt fyrir sér? eftir Einar Karl Haraldsson „Það er ekki hægt að vera í EES og utan EB. Ríkisstjórnin áttar sig á því,“ segir Christoph Blocher, formaður Þjóðarflokksins (SVP) í Zurich í viðtali sem Anna Bjarna- dóttir átti við hann fyrir Morgun- blaðið. Allar ríkisstjómir EFTA-ríkj- anna, nema sú íslenska, hafa áttað sig á því að það er ekki hægt að taka þátt í Evrópsku efnahags- svæði án þess að ætla sér jafnframt að verða fullgildur aðili að Evrópu- bandalaginu. Þessvegna hafa þær sótt um eða ætla sér að sækja um aðild að EB. Ritsjórar allra helstu dagblaða í EFTA-ríkjunum, nema Morgun- blaðsins, hafa dregið þá ályktun af niðurstöðunni í samningaviðræðum EFTA og EB um Evrópskt efna- hagssvæði að hún kalli á aðild að Evrópubandalaginu og það frekar fyrr en síðar. Morgunblaðið heldur því á hinn bóginn fram að með þátttöku íslendinga í Evrópsku efnahagssvæði muni þrýstingur á aðild okkar að Evrópubandalginu minnka. „Samningurinn um EES jafngildir ekki samningi um aðild að EB. Þvert á móti. Hann er trygg- ing fyrir því að við þurfum ekki að taka aðiid að EB á dagskrá", segir í forystugrein Morgunblaðsis 17. þessa mánaðar. Ástæður þess að allir aðrir en ritstjórar' Morgunblaðsins og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra telja EES leiða inn í EB eru ákaflega auðskiljanlegar. í samn- ingunum kom á daginn að Evrópu- bandalagið gat ekki þolað sjálfstætt kerfí sér við hlið þar sem viðskipta- réttarfar og samkeppnisreglur þró- uðust á annan hátt en innan þess. Það gat heldur ekki unnt EFTA- ríkjunum að hafa áhrif á innri ákvarðanir sínar, sem þó eiga að ráða ferðinni á Evrópska efnahags- svæðinu eins og ótvírætt er í samningnum. Þrátt fyrir frestunar- möguleika, öryggisákvæði og form- legt neitunarvald þjóðþinga er það engu að síður skýrt í EES- samningnum að þróunin á í öllum meginatriðum að vera einsleit og öll mismunun bönnuð. Uppi og niðri í stað samninga á tveimur stöð- um EFTA og EB er um að ræða samning á tveimur hæðum sem hvíla á meginstoð Evrópuband- alagsins. Uppi eru stofnanir EB og niðri eru stofnanir EES. Uppi eru teknar ákvarðanir, sett ný lög, gefnar út tilskipanir, kveðnir upp dómar og felldir forúrskurðir. Niðri er spjallað um boðskapinn af efri hæðinni, reynt að ná samkomulagi um framkvæmdina og teknar ákvarðanir um að fresta eða undan- þiggja einhveija hluta hans. Niðri eru einnig samþykktar bænarskrár sem komið er á framfæri við emb- ættismenn af efri hæðinni. Stofnanir Evrópskra efnahags- svæðsins eru ennþá meira samsull en stofnanir Evrópubandalagsins sem sífellt liggja undir gagnrýni fyrir skriffinnsku, óskýra valdskipt- ingu og flókin ákvarðanaferli. Á sama tíma og íslendingar þurfa að breyta sinni dómstólaskipan að kröfu Mannréttindanefndar Evr- ópuráðsins vegna þess að sýslu- mennirnir gömlu blönduðu saman rannsóknar- og dómsvaldi er okkur boðið til borðs í EES-stofnunum, þar sem löggjafar-, framkvæmda- og dómsvaldi er hrært saman í graut. Þannig á til að mynda EES- nefndin að tryggja framkvæmd og stjórnun svæðisins, ná pólitísku samkomulagi um deilumál, fella úrskurði í tilteknum málum og taka ákvarðanir sem eru bindandi fyrir samningsaðilana. EES leiðir inn í EB Ríkisstjórnum Norðurlanda og Alpaþjóðanna er það sameiginlegt að vilja annaðhvort vera út af fyrir sig eða þá ganga uppréttar í samfé- lagi við ráðamenn annarra þjóða. Hugsun flestra samningamanna og ríkisstjórna þeirra var því þessi á síðustu stigum EES-samninganna: Úr því að ekki er gefinn á því kost- ur að standa í viðskiptalegu tilliti jafnréttur til hliðar við EB með samskiptabrú sjálfstæðra stofnana á milli, þá er ekki annar vænstur en að ganga inn í EB-samstarfið sem fullgildur aðili. Það er ekki að furða þó að bráðabirgðasvipur sé á stofnunum EES-samkomulagsins þegar niðurstaðan hefur mótast af þessari hugsun. Afstaða allra ríkisstjórna EFTA- ríkjanna, nema hinnar íslensku, er nú sú að það sé hægt að vera í EES Árni Ragnar Árnason undan oki nýlenduveldis kommún- ista. Mikilvægi þess hefur ekki minnkað; heldur þvert á móti vaxið. Úrsögn Islands á þeim tímamótum sem Evrópa stendur á nú yrði öllum öðrum Evrópuþjóðum óskiljanleg. Bandalagsþjóðirnar hafa sameig- inlegan skilning á undirstöðu frið- samlegrar sambúðar þjóða. Sam- skipti, samráð og samstarf í örygg- is- og varnarmálum leiðir til gagn- kvæms skilnings á hagsmuna- og áhorfsmálum þjóðanna og dregur úr spennu í samskiptum þeirra. Einar Karl Haraldsson „Endanlegt mat á EES- samningnum helgast af því hvað ætla má að við taki af honum og hver ætla megi að framtíð- arsamskipti íslendinga við EB verði.“ ef þjóðirnar ætli sér inn í Evrópu- bandalagið. Tímabil Evrópskra efnahagssvæðisins er þá skoðað sem aðlögunartímabil meðan samningaviðræður um aðild að EB eiga sér stað. íslenska ríkisstjómin segist hins vegar ekki ætla að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. Davíð Oddsson forsætisráðherra getur ekki ímyndað sér að ákvarðanir um lífshagsmunamál okkar, nýtingu auðlindanna í sjón- um, verði nokkru sinni teknar í Brussel. En hvað tekur þá við þeg- ar öll EFTA'-ríki nema Islendingar hafa gengið inn í EB? Ófullnægjandi staða Ljóst er að íslendingar eru í allt ÞETTA RÖR ER NÍÐSTERKT EN ÞÚ LEGGUR ÞAÐ SAMT LÉTTILEGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.