Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
z—ftt—i—7—r~T\—rc -i '•i/vavmTr-jT—
Safnahúsið á Húsavík:
Guðni Halldórsson
ráðinn forstöðumaður
GIJÐNI Halldórsson sagnfræðingur hefur verið ráðinn forstöðumað-
ur Safnahússins á Húsavík. Guðni tekur við starfinu af Finni Kristj-
ánssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra, sem veitt hefur safninu for-
stöðu undanfarin 13 ár.
létu mynda sig. Einnig var þama
útsýnisskífa og kíkir. Þarna breiddi
veröldin úr sér við fætur manns.
lengst úti á hafi voru skip á ferð.
Höfðaborg kúrði þarna í skjóli
Borðfjallsins og hinum megin horfði
maður eftir fjallgörðunum inn á
hásléttuna.
í S-Afríku eru yfirleitt öll skilti
bæði á ensku og afrikaans, í
Höfðaborg blandaðist málið þegar
ég sá skilti sem á stóð „Danger,
men working over hear“, lausleg
þýðing „hætta, vinnandi menn
heyra í þér“. Það liggur hraðbraut
frá Höfðaborg til Kairó, 7.200 km.
Hraðbrautin byrjar í miðborginni,
trónar ofan á risasúlum og steypt
fyrir endann!
Skammt fyrir sunnan Höfðaborg
er syðsti oddi Afríku, Cape Point
og Góðravonahöfði. Við gengum á
höfðann og litum yfir þar sem
Indlandshaf og Atlantshaf mætast.
Góðravonahöfði er ekki réttnefni,
því þetta er alþekkt veðravíti og
mörg skip hafa farist, en þarna
fara framhjá um 240.000 skip á
ári. í Cape héraði er mikil vínrækt
og fást um 260 mismunandi
tegundir af vínum. Athyglisvert er
að í smábænum Fish Hoek
(Króknum) er áfengisbann og hefur
verið frá upphafi.
Frá Höfðaborg flugum við svo
24. nóvember til Jóhannesarborgar
og þaðan til London, þar sem við
stigum um borð í Flugleiðavél. Það
er gott að vita til þess að það var
tvímælalaust þægilegasta
flugferðin, Flugleiðir eru _með góðar
vélar og góða áhöfn. í Keflavík
lentum við kl. 16.15, þá búin að
vera á ferðalagi frá því kl. 14.00
daginn áður.
í sátt og samlyndi.
Þetta var góður hópur á öllum
aldri, en við ferðuðumst saman í
sátt og samlyndi og bar hvergi
skugga á. Ingólfur Guðbrandsson
reyndist okkur frábær fararstjóri,
sem sinnti jafnt þörfum andans sem
magans. Það sem hann kallaði
hádegissnarl, var veisluborð sem
svignaði undan alls kyns
gómsætum réttum. Hann er hrein
gullnáma af fróðleik og kemur því
mjög vel til skila, hefur ferðast víða
ugar sölubrellur. Hvort þær takast,
fer ekki eftir gæðum verksins, held-
ur eftir ýmiskonar sniðuglega út-
hugsuðum dýrðarljóma sem hægt
er að sveipa verkið eða öllu heldur
höfund. Þau verk sem hafa náð
sölu undanfarin ár standa ekki eft-
ir sem hin bestu. Hins vegar hafa
mörg bestu verk undanfarina ára
horfið í skrumið sem skapað er um
önnur.)
Laun útgefanda: Oftast nokkrar
mínus-krónur, sem hann nær inn
aftur með útgáfu ómerkilegra bók-
mennta, svo sem ævisögurugli og
hégóma um frægar persónur, fjöl-
miðlaljón o.þ.h. og meirihluti þjóð-
arinnar kaupir til gjafa, og kallar
bókmenntir.
3) Nokkra sérfræðinga og iðnað-
armenn á vegum útgefanda og
prentsmiðju. Laun: taxti vinnu-
markaðarins.
4) Verkamenn á vegum sömu.
Laun: Taxti vinnumarkaðarins.
Þetta er sá hópur sem kemst næst
höfundinum í lágum launum.
4) Verktakar í formi auglýsanda,
hönnuða o.fl. Bera oft mikið úr
býtum, gætu haft menn á sínum
snærum með tíföld laun höfundar.
Fleira gæti þurft til, en ekki er
ætlunin að fara vandlega i saumana
á því hvað þurfi til.
Leikhús 'fáránleikans er allt í
kringum okkur. Sumir sjá það ekki
fyrr en þeim er bent á það. Hér er
það enn. Steinn Steinarr orti um
að hlutirnir væru borgaðir í öfugu
hlutfalli við gildið. Hér sannast það
bókstaflega. Viðlíka dæmi væri
íþróttakeppni þar sem keppendur
væru heiðraðir í öfugri röð við
frammistöðuna. Sá sem sigurorð
ber af hinum yrði tekinn og af-
klæddur, ekið með hann í vagni
þrjá hringi meðfram áhorfendum
og hann kaghýddur að launum.
Almenningur fagnaði á meðan.
Samt keppa menn áfram líkt og
sigurlaunin væri lárviðarsveigur.
og virðist alls' staðar vera á
heimavelli. Allur aðbúnaður í
ferðinni var líka mjög góður. Þrátt
fyrir stranga dagskrá og stundum
langar dagleiðir, fann ég aldrei til
þreytu, heldur vaknaði rótsnemma
um leið og sólin fór að skína, alveg
útsofin og tilbúin í ævintýri dagsins,
því alltaf var svo margt að sjá og
heyra í þessu fallega landi.
Suður-Afríka er stórkostlegt land
og það er einlæg ósk mín og von
að þau umbrot sem eru í landinu
leysist á farsælan hátt, þannig að
sem flestir fái notið alls þess sem
landið hefur upp á að bjóða. Þessari
ósnortnu náttúrufegurð sem
hvarvetna blasir við.
Lengi lifi Heimsklúbbur Ingólfs
og það tækifæri sem hann gefur
okkur til að kynnast fegurð og
furðum fjarlægra landa í öruggum
höndum frábærra fararstjóra. Takk
fyrir mig!
Höfundur er ritari í Búðardal
Guðni segir að sér lítist afar vel
á nýja starfið. Hann sé fæddur og
uppalinn á Húsavík en hafi ekki
búið þar í aldarfjórðung, að því
undanskildu að hann hafi kennt þar
í tvo vetur fyrir um 10 árum. „Ég
er þannig að koma heim,“ segir
hann, „og það í meira en einum
skilningi. Ég er lika að taka við
starfi, sem tengist þeirri grein, sem
ég hef menntað mig í, sagnfræð-
inni, en undanfarin ár hef ég starf-
að hjá útgáfufýrirtækinu Fróða, en
þar á undan innan íþróttahreyfíng-
arinnar."
Guðni segir að starfið hjá Safna-
húsinu sé afar fjölbreytt. „Hér er
ekki bara um að ræða venjulegt
byggðasafn. Þetta er í senn minja-
safn, náttúrugripasafn, skjalasafn
og mynda- og málverkasafn. Enn
fremur má nefna að einnig er verið
að byggja yfir sjóminjasafn," segir
hann.
Guðni Halldórsson
Stjórn Safnahússins á Húsavík
valdi Guðna úr hópi tólf umsækj-
enda. Gert er ráð fyrir að hann
taki til starfa í júlí í sumar.
Opið í allt sumar
í Suðurveri
SUMARKORT -frjjáls mæting
Sumarkort býður uppá frjálsa mætingu, eins
oft og þú vilt innan þeirrar tfmalengdar og á
þeim tímum dags sem þú sjálf velur. Þetta er
nýjung hjá okkur og vonumst viö'til þess að hún
eigi eftir aö þjóna þér vel.
4, 8 EÐA 12 VIKUR
-fyrir konur á öllum aldri
Kortin gilda í 4, 8 eða 12 vikur. 5 daga vikunnar
getur þú mætt eins oft og þú vilt.
Ljósatímar fylgja fyrir þær sem vilja.
Barnapössun fyrir hádegi.
SVONA FERÐ ÞÚ AÐ:
Þú kemur eða hringir í síma 813730
og pantar kort.:
Gult kort fyrir morguntíma.
Grænt kort fyrir síðdegistíma.
Rautt kort fyrir kvöldtíma.
IHRAUNBERGI
í Hraunbergi 2-18 júní verður 3ja vikna
sumarnámskeið og er það síðasta námskeið
þar fyrir sumarfrí.
PANTANIR I SIMA 813730
Boðið uppá barnapössun fyrir hádegi.
LÍKAMSRÆKT
SUÐURVERI • HRAUNBERGI4