Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn/ffiVBÍNUlÍF ÞRIDJUDAGUR 26. MAÍ 1992
Stærsta markaðshlutdeild
töflugagnagrunnskerfa fyrir
MS-DOS og OS/2
á heimsvísu: 41%
- Gartner Group
ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími 91-618131 Fax 91-628131
" ’ • ; • - ■
HREINGERNINGAR
FYRIRTÆKJA
Reglulegar hreingemingar em nauðsynlegar öllum
fyrirtækjum og stofnunum.
SECURITAS h/f, hefur á annan áratug rekið
ræstingardeild sem tekur að sér hreingemingar
fyrir fyrirtæki og stofnanir á stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Reglulegar hreingemingar em eðlilegur hluti af
rekstri vel rekinna fyrirtækja og stoíhana. Þær bæta
ímynd og auka vellíðan viðskiptavina og
starfsmanna.
Miklir uppgangstímar í
dönskum skipasmíðaiðnaöi
Er sá stærsti í Evrópu og þriðji stærsti í heimi
Iðnaður
Skipasmiðjur í Danmörku hafa aldrei notið beinna styrkja frá stjórn-
völdum og á erfiðleikatímunum seint á áttunda áratugnum og um
miðjan níunda áratuginn urðu þær annaðhvort að auka hagræðingu
og framleiðni eða fara á hausinn. Varð sú líka raunin á með þijár
stóru stöðvanna en hinum sex, sem eftir lifa, tókst að sigla fram hjá
skeijunum og laga sig að nýjum tíma. Um síðustu áramót námu
pantanir hjá skipasmiðjunum 1,9 milljónum brúttótonna og danski
skipasmíðaiðnaðurinn er því sá þriðji stærsti í heimi á eftir þeim
japanska og s-kóreska og sá stærsti í Evrópu.
í Danmörku eru engar raddir um
að taka upp beinan styrk til skipa-
smíðastöðvanna en Danir hafa hins
vegar áhyggjur af slíkum niður-
greiðslum erlendis. „Þetta er eina
landið í Evrópu þar sem allir innan
atvinnugreinarinnar eru andvígir
niðurgreiðslum,“ segir Kurt Anders-
en, framkvæmdastjóri Odense Steel
Shipyard, en ríkisvaldið, verkalýðs-
félögin og eigendur stöðvanna hafa
ályktað gegn styrkjum af þessu tagi.
Raunar er það ekki alveg rétt, að
danskar skipasmíðastöðvar hafí
engra styrkja notið en þeir hafa
verið minni en annars staðar og
ekki runnið beint til stöðvanna, held-
ur verið notaðir til að greiða fyrir
fjármögnun smíðanna. Þeir hafa því
ekki orðið til að skerða samkeppnina
milli stöðvanna.
Odense Steel Shipyard er ágætt
dæmi um þetta. Hún er kunn sem
ein besta skipasmíðastöð í heimi og
líklega sú fremsta hvað varðar tölvu-
teiknun og -hönnun og framleiðslu-
kerfi. Hún er líka eina stöðin í Evr-
ópu, sem smíðað hefur risaolíuskip
Endurskoðun
Vinnubrögðin kost-
uðu 20 milljarða kr.
Bandaríska endurskoðunarfyrirtækið Price Waterhouse var nýlega
dæmt til að greiða enska bankanum Standard Chartered 338 milljón-
ir dollara, rúmlega 20,2 milljarða ÍSK., í bætur vegna vítaverðrar
vanrækslu. Eru það hæstu bætur sem endurskoðunarfyrirtæki hefur
nokkru sinni verið gert að greiða.
Price Waterhouse var falið að gera
úttekt á bankanum United Bancorp
í Arizona áður en Standard Chart-
ered keypti hann árið 1987 en vinnu-
brögðin þóttu með þeim eindæmum,
að bætumar voru ákveðnar þremur
milljónum dollara hærri en það, sem
Standard gaf fyrir bankann. Er dóm-
urinn í samræmi við miklu harðari
afstöðu bandarískra dómstóla til
endurskoðunarfyrirtækja, sem skila
ekki sínu verki skammlaust.
Það, sem meðal annars kom á
daginn þegar Standard hafði tekið
við Bancorp, var mikið af lánum til
þriðja-heims-landa en vegna þess
varð að leggja bankanum til nýtt fé.
Hann var síðan seldur undir árslok
1988 til Citicorp fyrir 207 millj. doll-
ara. Price Waterhouse hefur aðeins
100 milljón dollara tryggingu fyrir
yfírsjónum af þessu tagi og verður
því sjálft að reiða af hendi 238 millj.
dollara ef dómurinn verður staðfest-
ur en honum hefur verið áfrýjað.
Annað endurskoðunarfyrirtæki,
Ernst & Young, sættist nýlega á að
greiða 63 milljónir dollara í bætur
vegna ófullkominnar úttektar á
sparisjóðnum Lincoln Savings &
Loan Associated í Kaliforníu en hann
er nú gjaldþrota.
frá því snemma á áttunda áratugn-
um. í febrúar sl. samdi hún um
smíði þriggja 300.000 tonna olíu-
skipa fyrir Vela International í
Saudi-Arabíu og sýndi þar með, að
hún stendur skipasmíðastöðvunum í
Asíu fyllilega á sporði.
Skýringin á velgengni dönsku
skipasmiðjanna er meðal annars
endurreisnin innan dönsku kaup-
skipaútgerðarinnar enda skiptir
staðan þar miklu máli fyrir stöðvarn-
ar. Eftirspurn og ástand á alþjóða-
markaði ræður auðvitað miklu en
danska útgerðin hefði ekki lifað af
síðasta áratug, hefði ekki verið grip-
ið til róttækra ráðstafana.
Um miðjan áratuginn hafði fækk-
að verulega í kaupskipaflotanum
vegna mikilla kpstnaðarhækkana en
á því varð breyting 1988 með til-
komu dönsku alþjóðaskráningarinn-
ar, DIS. Síðan hefur skipum undir
dönskum fána fjölgað um 35% og
störfum um borð um 50%. Nú greiða
skipveijar engan tekjuskatt en laun-
in eru hins vegar miðuð við það, sem
þeir ættu eftir ef þeir greiddu skatt-
inn. Mismunurinn er því óbeinn
styrkur við útgerðina.
Samtök danskra farmanna voru
andvíg þessu fyrirkomulagi en tals-
maður útgerðarmanna bendir á, að
dönskum skipveijum hafí fjölgað síð-
an DIS var tekið upp, einkum yfir-
mönnum en undirmönnum einnig.
Hitt er aftur, að félagsmönnum í
samtökum farmanna hefur fjölgað
lítið en það er vegna þess, að fag-
lærðir menn, til dæmis málmiðnað-
armenn ýmiss konar, skipa æ stærri
sess á skipunum.
DIS hafði einnig þau áhrif, að
ákveðnar reglur um fjölda skipveija
voru afnumdar en þeir mega þó aldr-
ei vera færri en svo, að skipsstjóm-
inni og öryggismálum sé vel borgið.
Nýjustu gámaskipin hafa nú sjö eða
átta í áhöfn en 13 eða 14 áður.
Um síðustu áramót voru í danska
kaupskipaflotanum um 600 skip,
1,35% af heimsflotanum, en gáma-
skipin 42 svöruðu hins vegar til 6,5%
af flutningsgetu allra gámaskipa í
heimi.
Hreingemingar saman standa m.a. af
teppahreinsun, gólfbónleysingu og -bónun,
innréttinga- og húsgagnahreinsun og gluggaþvotti.
Hreingemingar em nauðsynlegar viðhaldi allra
húsa.
Ræstingardeildin býður nú ffam þjónustu sína á
sviði hreingeminga í fyrirtækinu þínu. Þjónusta
sem ömgglega skilar árangri.
Við gerum þér tilboð án skuldbindinga!
SECURITAS
RÆSTINGARDEILD
sími 687600
Kbifrtít
| Góðan daginn!
Fyrirlæki og einstaklingar
með atvinnurekstur!
Nýtiö ykkur skattaafslátt með hjálp
Fjárfestingarsjóðsreiknings sparisjóðanna.
Lokadagur til að stofna Fjárfestingarsjóðsreikning
vegna rekstrarársins 1991 er 29- ttiaí nk.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í næsta
sparisjóði.
K
SPARISJÓÐIRNIR
-fyrir þig og pína