Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 43
43 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992 Guðbrandur S. Þor- láksson frá Veiði- leysu — Minning Fæddur 23. júní 1921 Dáinn 16. maí 1992 Á strönd Miðjarðarhafsins, nánar tiltekið í Tyrklandi, barst okkur Þurý fréttin af andláti okkar kæra Guðbrandar. Fréttin kom að vísu ekki á óvart. Þegar við lögðum af stað að heiman höfðum við illan grun um að við værum að kveðja hann hinstu kveðju á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði. Við héldum þó í von- ina, þetta síðasta hálmstrá þegar öll sund virðast lokuð. Vonin brást og í annað skipti á nokkrum mánuð- um horfum við á eftir nánum ást- vini falla fyrir „fólksjns forna fjanda“, krabbameininu. Öldur Mið- jarðarhafsins halda áfram að brotna á ströndinni þrátt fyrir helfregnina að heiman. En nú minna þær á systur sínar í Veiðileysufirði á Ströndum þar sem Guðbrandur bjó í æsku. Ég átti þess einu sinni kost að fara í ógleymanlega sjóferð með vini mínum Guðbrandi. Ti) hafs var haldið til veiða frá Djúpuvík. Við stjórnvölinn sat maður reynslu og þekkingar á öllu sem fyrir bar. Ég, liðlega tvítugur strákurinn, hélt ég væri fær í flestan sjó. Tók myndir í bak og fyrir og áttaði mig ekki á þeirri breytingu sem varð á sjólagi þegar út fyrir Gjögur var komið. Allt í einu vorum við komnir í haugasjó á minn mælikvarða og sjóveikin lét ekki á sér standa. Ékki hafði þetta hin minnstu áhrif á Guðbrand sem sat einbeittur á svip og stýrði trillunni af öryggi og festu. Mér fannst við sigla í óratíma en brátt kom að því að veiðar hóf- ust og smám saman varð veiðieðlið sjóveikinni yfirsterkara. Skyndilega varð ég dauðskelkaður þegar heljar- stórt flykki þaut upp úr sjónum rétt hjá bátnum. Guðbrandur var fljótur að róa mig og sagði: „Þetta er bara stökkull, þeir láta gjarnan svona.“ Nú þegar Guðbrandur vinur minn er allur er þessi veiðiferð okkar mér miklu dýrmætari en nokkru sinni fyrr. Hún lýsir mannkostum Guðbrandar frá Veiðileysu betur en mörg orð. Hann var góðmenni i bestu merkingu þess orðs. Á sjónum norður af Ströndum var hann hann sjálfur og leyfði mér, kornungum manninum, að eignast með sér un- aðsstund og það var honum allt svo eiginlegt. Við ræddum oft um þessa ferð. Um ferðina sem Guðbrandur er núna farinn í veit ég hins vegar ekkert. Mér er aftur á móti minnis- stæður einn síðaáti heimsóknar- tíminn á spítalanum þegar við Þurý rifjuðum upp lag og ljóð sem Guð- brandur hafði kennt henni norður í Veiðileysu. Ljóðið var eftir góð- vin hans og þegar hann heyrði það þarna fársjúkur á sjúkrabeð- inu byrjaði hann að raula það með okkur. Allt í einu var á ný kominn glampi í augun og fyrr en varði söng hann lagið á enda og hugurinn var greinilega kom- inn á æskustöðvarnar fyrir norð- an. Við leiðarlok er margs annars að minnast og margt að þakka. Á sjötugsafmæli Guðbrandar fyr- Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið lekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. ir tæplega ári síðan áttum við sam- an unaðsstund austur í Hveragerði. Engan grunaði þá að hveiju stefndi. Elsku Ásta, missir þinn er mik- ill. Ólöf og Þorlákur sjá á bak elsku- legum föður. Böm Ástu frá fyrra hjónabandi eiga Guðbrandi mikið að þakka. Við tengdabörnin, barna- börnin og barnabarnabörnin syrgj- um nú ástsælan mann sem ávallt vildi allt gott til mála leggja. Hann er fjölmennur barnahópurinn sem saknar nú afa á Öldugötunni. Mér þykja þau eiga einstaklega vel við um Guðbrand Þorláksson orðin Genginn er góður maður. Það verða kveðjuorðin frá okkur Þurý til þín, elsku Ásta, um ástríkan eig- inmann. Óli H. Þórðarson. Erfitt er að sætta sig við að afi okkar, sem ávallt geislaði af lífs- hamingju og krafti, sé dáinn. Við eigum aldrei eftir að njóta sam- verustunda með honum, né deila með honum hamingjustundum. Afa tengjast margar okkar bestu minningar. Þegar horft er yfir farinn veg er margs að minnast. Síðan elsta systkini okkar leit fyrst dagsins ljós i rúmi afa og ömmu á Djúpuvík á Ströndum, hafa þau veitt fjölskyldu okkar ástúðlegt skjól. Allt frá fyrstu búskaparárum foreldra okkar, hefur heimili afa og ömmu verið okkur sem annað heimili, þangað höfum við ávallt getað leitað í gleði og sorg. Afi hætti aldrei búskap, þótt hann væri fluttur í bæinn. í mörg ár var afi með hænsnabú og fórum við systkinin oft upp í kofa að hjálpa til, kannski oftar okkur til ánægju en til gagns. Einnig var afi með kindur og var það oft yndislegur tími að fara með honum, hvort sem það var í smölun, slátt eða bara upp í fjárhús að gefa. Kindurnar veittu afa mikla gleði og voru hon- um tengsl við æskustöðvarnar. Heimahagarnir áttu alla tíð stór- an sess í hjarta hans. Það kom best í ljós er hann geislandi af gleði sagði okkur frá vetarferðinni sem hann fór með strákunum norður á Strandir. Okkur er einnig ljúft að minnast þeirrar stundar er við átt- um öll saman að Vigdísarvöllum síðastliðið sumar. Þegar við hugsum til afa okkar sem alltaf var svo hress og ljúfur, þá er erfitt að trúa því að hann muni aldrei koma aftur. Við viljum þakka afa okkar fyrir allt og allt. Minningin um hann mun alltaf lifa. Drottinn styrki elsku ömmu okkar. Sirrý, Bubbi, Steini, Ásta, Oddný.Hafdísogfjölskyld- urþeirra. í dag verður til moldar borinn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði Guðbrandur Sveinn Þorláksson frá Veiðileysu eða Gumbi eins og við krakkarnir sem vorum í sveit í Veiðileysu kölluðum hann. Hann var einn þeirra manna sem lét ekki mikið fyrir sér fara og mátti ekki vamm sitt né sinna vita. Og aldrei hef ég kynnst manni sem átti eins marga vini og Gumbi, enda var hann óþreyt- andi að rækta þann vinskap og halda sambandi og tengslum við ættingja hvar sem þeir voru eða bjuggu. Það var ti! að mynda ótrú- lega gaman og mannbætandi að ferðast með honum, því auk þess að hafa gaman af að sjá nýja staði og kynnast fólki þurfti hann að koma við á ótrúlega mörgum stöð- um þar sem bjuggu vinir eða ættingjar sem hann mátti til með að hitta, annað kom ekki til greina. Sama sagan var alla tíð heima hjá honum sjálfum, eilífur gestagangur og kátastur var hann þegar sem flestir komu. í fyrra þegar hann lét af störf- um átti gamli draumurinn að rætast, að hafa nægan tíma næstu árin til að gera margt, fara svo víða og heimsækja svo marga sem honum fannst hann hafa vanrækt eða gera hluti sem ekki hafði verið komið í verk, en enginn veit sína ævina fýrr en öll er. í nóvember í haust er leið kenndi hann fyrst meinsins sem aðeins sex mánuðum seinna lagði hann að velli. Hve lítið sýnist lífið manns, þá litið er til baka, án dvalar hverfa dagar hans, sem draumur enda taka. Sjá, þúsund ár vors lýðs og lands' eru liðin sem næturvaka. (M. Joch.) Guðbrandur Sveinn Ingimar Þorláksson eins og hann hét fullu nafni fæddist í Veiðileysu á Ströndum 23. júní 1921. Sonur hjónanna Ólafar Sveinsdóttur og Þorláks Guðbrandssonar bónda í Veiðileysu. Hann var þriðja barn þeirra hjóna, en alls urðu börnin níu og þótti ekkert tiltökumál í þá daga. Þá þótti líka sjálfsagt og var einnig bráðnauðsynlegt að börnin færu að vinna strax og þau gátu veitt hjálparhönd við bústörfín og hvað eina sem til féll. Öll komust systkinin á legg á þessum ágæta og gestrisna heimili, en fóru svo einsog gerist eitt og eitt að heiman þegar þau stofnuðu til hjúskapar og reistu sitt eigið heimili. Gumbi bjó í föðurhúsum til ársins 1959 og starfaði þar við bú föður síns ásamt systkinum sínum sem enn voru heima. Einnig sóttu þeir bræð- ur sjóinn þegar færi gafst, fyrst á árabátum og síðar trillum, því allar gjafir Guðs þurfti að nýta til að komast af. Árið 1959 kvæntist hann móður minni Ástu Dagmar Jónasdóttur og fluttust þau það vor til Djúpu- víkur þar sem hann gerðist sím- stöðvarstjóri og hafði auk þess trillu og fjárbú til tekjuauka og yndis. Við vorum fjögur systkinin sem hann stjúpi okkar fékk í morgungjöf, þar af ólust þijú upp hjá honum og varla er hægt að hugsa sér lánsamari börn en okk- ur að eignast annan eins stjúpa og Gumbi var. Þau hjónin eignuð- ust tvö börn: Ólöfu, sem fæddist sumarið 1959 og Þorlák, sem fæddist veturinn 1964. Árið 1966 fluttust þau hjónin til Hafnarfjarðar þar sem hann vann á ýmsum stöðum, síðast á bensínstöð Skeljungs í Hafnarfirði þar til í sumar er leið, að hann lét af störfum sökum aldurs. Það er kaldhæðni örlaganna að maðurinn, sem dreymdi svo stóra drauma um allt sem hann ætlaði nú að gera loksins þegar hann hafði nægan tíma fyrir sig og sína, skuli vera allur innan árs. Veit honum, Drottinn, þína eilífu hvíld og lát þitt eilífa ljós lýsa honum. Hann hvíli í þínum friði. Þórir og Magga. 32.900,- 25.900,- KVEIKJAJSf AÐ GÓÐRI MÁLTÍÐ Ö5 ft r£> - gasgrill í úrvali. HAGKAUP — allt í einni ferö PÓSTKRÖFUSÍMI 91-3 09 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.