Morgunblaðið - 26.05.1992, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1992
_
Með
morgunkaffinu
Ást er...
.. . að kenna honum að
dansa.
TM Reg. U.S Pat Off. — all rights reserved
* 1992 Los Angeles Times Syndicate
íipWTí
Er ’ann ekki hressandi?
Uppskriftin var í glæpa-
sögu...
HÖGNI HREKKVÍSI
„HMR. ER þESSl „
l/hjsa sÞlffjöl ?
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Hvítlauk-
ur - lífæð
góðrar
heilsu
Frá Geir Viðari Vilhjálmssyni:
Hvítlaukur og heilsubætandi
áhrif þessarar vinmörgu mat- og
heilsujurtar hefur oftlega verið
umræðuefni á síðum Morgun-
blaðsins. Voru dálkar Velvakanda
meðal annars ítrekað nú í vetur
vettvangur skoðanaskipta með eða
á móti ákveðnum tegundum hvít-
lauksafurða. En hvítlaukur í töflu-
eða hylkjaformi þykir betur henta
til daglegrar neyslu í heilsubótar-
skyni, því sterkt bragð og lykt er
af hráum eða lítt meðhöndluðum
hvítlauk.
Þó þessar umræður í Velvak-
anda virkuðu á undirritaðan aðal-
lega sem framlenging á auglýsing-
astríði innflytjenda, vöktu þær for-
vitni á öflun meiri upplýsinga,
ekki síst varðandi spurninguna um
samband lyktar og bragðefna jurt-
arinnar við hin heilsubætandi
áhrif. Er það tilfellið, að lyktar-
lausar hvítlauksafurðir komi að
gagni, eða er það rétt sem aðrir
segja: „Engin lykt, engin áhrif“?
Bók sem veitt gat vitræn svör
við þessari spurningu reyndist
finnanleg á markaði hér. Og þar
sem talsverður fjöldi íslendinga
neytir hvítlauks í heilsubótar-
skyni, virðist rétt að benda á slík
tiltölulega hlutlæg skrif svo fólk
haijj aðgang að víðari yfirsýn en
upplýsingar frá beinum
hagsmunaaðilum geta gefið.
Garlic, The Life-Blaod of Good
Health eftir Stephen Fulder Ph.D.
(Thorsons, Wellingborough, Eng-
land 1989) veitir á rúmum 90 síð-
um handhægt yfirlit nýlegra rann-
sókna á hvítlauk, einkum með til-
iiti til jákvæðra áhrifa hans á
hjarta og æðakerfi og gildi gegn
sveppa- og bakteríusýkingum.
Þetta er annað rit höfundar um
hvítlauk, en hann hefur sent frá
sér sex aðrar bækur um heilsu og
náttúrulækningar. Honum tekst
að gera meira en þremur tugum
rannsókna skil og draga saman í
stutt mál. Hann gerir einnig grein
fyrir því helsta, öðru en hvítlauk,
sem skiptir máli fyrir heilsu hjarta-
og æðakerfisins og veitir í lokin
innsýn í meira en 5 þúsund ára
sögu hvítlauks sem lækningajurt-
ar.
Hagnýtastur er 8. kaflinn, sá
sem fjallar um neyslumáta og
helstu hvítlauksafurðir. Og hér var
það sem skýrust svör var að finna
við spurningunni um lykt og
virkni. Til að byija með er nauð-
synlegt að greina á milli áhrifa til
blóðþynningar og kólesteróilækk-
unar annarsvegar og hinsvegar
virkni gegn sýkingum, einkum
sveppasýkingum.
Varðandi hið síðarnefnda bendir
Fulder á að nýr hvítlaukur eða
nýpressaður safi sé langtum virk-
ari sóttkveikjubani en hvítlauksol-
íur, þó þær sýni einnig nokkra
virkni. Hið sterka brennandi bragð
af nýjum hvítlauk rekur hann til
allisíns og sé sóst eftir áhrifum á
sóttkveikjur og sveppi þarf hvít-
lauk eða hvítlauksafurð, sem varð-
veitt hefur hið brennandi bragð.
Hin sterka lykt, sem Fulder rek-
ur til olíukenndra niðurbrotsefna
allisíns, er að hans mati einkenni
þeirra efna sem stuðla að betri
samsetningu blóðsins. Fyrir hon-
um er lyktin því ábending um
virkni.
GEIR VIÐAR VILHJÁLMSSON,
Bergstaðastræti llb, Reykjavík
Víkveiji skrifar
að hefur orðið mikil breyting
á Búdapest frá því að ferða-
langur var þar á ferð fyrir sex
árum, að ekki sé talað um frá því
fyrir tveimur áratugum. Um og upp
úr 1970 hvíldi myrkur og drungi
yfir þessari fallegu borg og ekki
síður fólkinu, sem þar bjó. Þá mátti
ehn sjá merki um ofbeldi sovézku
hersveitanna, sem ruddust inn í
borgina haustið 1956. Fátt fólk var
á ferli á götum úti og lítið um bíla-
umferð. Þeir bílar, sem þá voru á
ferð voru nánast eingöngu frá
Austur-Evrópu.
Sumarið 1986 var ekki lengur
hægt að sjá a.m.k. ekki með aug-
ljósum hætti, vísbendingar um at-
burðina 1956. Þá var sú breyting
á orðin, að verzlanir voru fullar af
vörum, þótt ekki stæðust þær sam-
keppni við vörur Vesturlandabúa,
mikið var um fólk á ferli í miðborg-
inni og allar götur fullar af bílum
en nánast eingöngu Austur-Evr-
ópubílum.
Nú eru þijú ár liðin frá því að
kommúnistar féllu af valdastóli í
Búdapest. Breytingarnar eru ótrú-
lega miklar. Borgin er smátt og
smátt að missa svipmót Austur-
Evrópuborganna frá tímum komm-
únismans. Nú eins og 1986 eru
göturnar fullar af bílum en veruleg-
ur hluti þeirra eru þýzkir bílar og
að einhveiju leyti franskir. Það er
tæpast hægt -að þekkja íbúa lands-
ins lengur á klæðaburði, sem var
auðvelt í Austur-Evrópuríkjum fyrr
á árum. Vestræn fyrirtæki hafa
hafið innreið sína í Búdapest og
þess verður ekki langt að bíða, að
borgin verði einhver eftirsóttasta
borg Evrópu fyrir ferðamenn.
xxx
Fyrir sex árum minnti það helzt
á ógnarstjórn kommúnista,
sem þá var enn við lýði, að vopnað-
ir hermenn voru á hveiju strái í
flugstöðinni í Búdapest. Þeir sýndu
ferðamönnum ruddaskap við skoð-
un á farangri og vegabréf voru
ekki skoðuð einu sinni, heldur
þrisvar, í síðasta sinn af vopnuðum
hermönnum, þegar farþegar gengu
út í flugvélar.
Nú eru vopnaðir hermenn ekki
lengur á ferð í flugstöðinni, þótt
Víkveiji hafi að vísu séð tvo slíka
utan hennar. Vegabréfaskoðun er
stirð en ekki ruddaleg eins og hún
var.
Fyrir sex árum og tuttugu árum
vár algengt, að erlendir ferðámenn
væru beðnir um að skipta gjaldeyri
á götum úti. Slíkt sýnist heyra fort-
íðinni til svo og dollarabúðirnar
svonefndu, sem enn voru til fyrir
sex árum.
xxx
etta er myndin, sem blasir við
erlendum ferðamanni. En
,ekki er allt sem sýnist. Breytingin
frá kommúnisma yfir í markaðsbú-
skap er Ungveijum, sem og öðrum
Austur-Evrópuþjóðum erfið. Lífs-
kjörin hafa versnað frá tímum
kommúnista og skoðanakannanir
sýna, að fólk hefur þungar áhyggj-
ur af framtíðinni, sérstaklega at-
vinnuleysi og verðbólgu. Væntan-
lega eru þetta einungis fæðingar-
hríðir hins nýja lýðræðislega þjóð-
skipulags. Rússneskur blaðamaður
kvartaði undan versnandi ástandi
við pólskan starfsfélaga sinn, sem
spurði: Hvort viltu heldur markaðs-
búskap eða miðstjórn Kommúnista-
flokksins? Markaðsbúskapinn var
svarið.