Morgunblaðið - 26.05.1992, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1992
I
I
I
I
í
í
1
•J
i
í
Um fornafnið „það“
Frá Auðunni Braga Sveinssyni:
Upp á síðkastið hef ég orðið var
við mikla ofnotkun persónufor-
nafnsins „það“, einkum í upphafí
setninga. Þetta smáorð er áleitið,
og freistandi að nota það, til að tjá
hugsun sína. En því miður er þessu
orði oft ofaukið. Málið verður einn-
ig fegurra sé því sleppt oft og tíð-
um. Ekki má skilja orð mín svo,
að þetta orð, það, sé alls staðar
bannfært í rituðu máli. Ég held,
að dæmi skýri mál mitt best í þessu
efni. Dagblöðin eru helsta lesmál
fólks, eins og kunnugt er. Þau
móta málfar og stíl ekki svo Iítið,
að ég hygg. Þegar ég tek dæmi úr
rituðu máli, þar sem mér finnst
persónufomafnið það ofnotað eða
ranglega sett, nefni ég hvorki dag-
blað né höfund, af tillitssemi við
þá sem í hlut eiga. Skal þá vikið
að þessu.
„Það verður aldrei komið í veg
fyrir, að einhver fyrirtæki verði
gjaldþrota." — Væri ekki betra að
sleppa þessu það, og setja í stað-
inn: „Aldrei verður komið í veg fyr-
ir“, o.s.frv.
„Ég held, að það fari ekki á milli
máia...“ Betra: „Ég held, að ekki
fari á milli mála.“ — „Það hefur
því verið gengið á hlut sjávarút-
vegsins." Betra, að mínum dómi,
Tvö bréf - utan
við kjarna málsins
Frá Birni S. Stefánssyni:
TVEIR bréfritarar eiga orðastað
við mig í blaðinu 12. maí, Jóhannes
Gunnarsson (JG) („E.ru Neytenda-
samtökin Qöldasamtök neytenda?")
og Svend-Aage Malmberg (SM)
(„Þorskur — konungur fiska“).
Ég átti það helzt erindi við Neyt-
endasamtökin í bréfi 1. maí, að þau
sinntu fæðuöryggi almennings í víð-
um skilningi, en það hafa þau van-
rækt. í bréfí JG kemur ekki fram
vilji til þess. Bréf hans staðfestir
ýmislegt sem ég benti á um gerð
samtakanna og starf. Síðan and-
mælir hann þeirri afstöðu sem hann
ímyndar sér að ég hafí til núver-
andi uppkasts að GATT-samkomu-
lagi, en ég hef reyndar ekki tekið
afstöðu til þess.
SM er haffræðingur (á Hafrann-
sóknastofnun) eins og segir undir
bréfínu eða eins og segir nánar í
bréfinu „hafeðlisfræðingur og eng-
inn sérfræðingur á sviði fæðuvist-
fræði físka". Hann býður mig vel-
kominn til skrafs og ráðagerða á
Hafrannsóknastofnun. Undanfama
tvo áratugi hef ég annað veifíð
komið á stofnunina, ekki til skrafs
og ráðagerða, heldur til að fræð-
ast, og alltaf þóst velkominn. Nú
bregður að vísu svo við, að Hafrann-
sóknastofnun vantar sérfræðing á
nýju áhugasviði mínu, sem er hag-
nýting stofnvistfræði til fiskveiði-
stjómar. Það er sem sagt enginn
stofnvistfræðingur á stofnuninni.
Þess verður ekki heldur vart, að á
Hafrannsóknastofnun hafí menn
tileinkað sér viðhorf og vinnubrögð
stofnvistfræði. Það sýna m.a. skrif
SM í Morgunblaðinu í vetur.
Stofíivistfræði hafsins fjallar um
gagnkvæm áhrif fæðuskilyrða,
fæðu og dýrastofna. Sá stofnvist-
fræðingur mun vandfundinn sem
ekki telur ráð Hafrannsóknastofn-
unar um hæfilegt aflamagn sem
reist á sandi. Sem dæmi um það
hvað viðhorfin em langt frá stofn-
vistfræði er það að í bréfi SM er
ekkert minnzt á athuganir Haf-
rannsóknastofnunar á þrifum
þorsks, enda em slíkar athuganir
ekki til þar. Þrif nytjafiska em bet-
ur en annað hagnýt vísbending um
það hvort hafið sé svo sett af yngra
físki eða ónytjufiski að nytjafískar
vaxi ekki eðlilega. Þau sýna hvort
fískur á hverju aldursstigi vex eins
og eðlilegt. er. Það yrði ekki aftur
leitað til búfjárfræðings um rann-
sókn, ef hann rannsakaði nýtingu
beitilands án þess að athuga hvort
þrif búíjárins sem á því gengur em
eðlileg.
BJÖRN S. STEFÁNSSON
Vesturvallagötu 5, Reykjavík.
VELVAKANDI
GIFTINGAR-
HRINGUR
Giftingarhringur merktur
„Ingibjörg" fannst við Skútu-
vog 4 fyrir nokkm. Upplýsingar
í síma 686844, Ari Guðmunds-
son.
BARNABÆKUR
Tvær bamabækur frá bóka-
safninu á Seltjamamesi töpuð-
ust á Grandasvæðinu fyrir
nokkm. Finnandi er vinsamleg-
ast hringi í síma 616888.
OFBELDIOG
FRÉTTIR
Svala Norðdal:
Það virðist aldrei verða að
blaðamáli þó konur séu barðar
og lagðar í einelti en þegar ráð-
ist er á lögfræðing og hann
hrakinn af heimili sínu í nokkr-
ar mínútur er gerð úr því stór
blaðafrétt. Ofbeldi á heimilum
er miklu meira mál en þetta,
það em ekki aðeins konurnar
sem fara illa út úr því heldur
er einnig ráðist á börnin, þau
jafnvel lögð í einelti þannig að
þau em of hrædd til að fara í
skólann.
KETTIR
Kisa er týnd. Hún er gulbrún
og svört, yijótt, frekar loðin og
stuttfætt því hún er angóra-
blönduð. Hún heitir Heiða og
ef einhver veit um hana yrðum
við þakklát ef látið yrði vita í
síma 624396 eða á Flókagötu
67, 1. hæð, hurð merkt Jón
Siguijónsson.
Kettlingar fást gefins á góð
heimili. Upplýsingar í síma
45098.
Þrír kassavandir kettlingar,
10 vikna, fást gefíns. Upplýs-
ingar í síma 20974.
Lítill bröndóttur högni slapp
út á fimmtudaginn 21. maí í
Hólahverfinu. Vinsamlegast
hringið í síma 670992 ef hann
hefur einhvers staðar komið
fram.
REGNHLÍF
Regnhlíf tapaðist fyrir um
það bil mánuði, sennilega við
Langholtsveg eða þar í grennd.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 681046.
væri að segja: „Gengið hefur því
verið á hlut sjávarútvegsins.“ —
„Undirritaður er sammála því að
það fer ansi mikið fyrir boltaleikjum
í íþróttaþáttum." Væri ekki fegurra
mál á þessari setningu þannig:
„Undirritaður er sammála því að
ansi mikið fari fyrir boltaleikjum í
íþróttaþáttum." „Það skal enginn
velkjast í vafa um ...“ Nokkuð
betra væri að segjæ „Enginn skal
velkjast í vafa um____“ — „Það er
sama, hvemig á málið er litið ...“
— Er ekki orðinu það ofaukið þama,
væri ekki hægt að ná sama árangri
með því að segja og skrifa: „Sama
er, hvemig á málið er litið ...“
„E.T. sagði, að það yrði að panta
aksturinn fyrirfram ...“ Mundi
ekki hafa nægt að segja: „E.T.
sagði, að panta yrði aksturinn fyrir-
fram.“
Ég vil biðja glögga lesendur
blaða og bóka að athuga, hvort
finna megi dæmi, þar sem persónu-
fomafnið það er ofnotað eða óþarft
í málinu. Ég hef komið umræðu af
stað, vona ég, sem ætti að geta
orðið málinu okkar, íslenskunni, til
framdráttar.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Missögn leiörétt
NAFN Evu Vilhjálmsdóttur misrit-
aðist í frétt frá brautskráningu
stúdenta frá Fjölbrautaskóla Breið-
holts í Moigunblaðinu á sunnudag.
Hún hlaut viðurkenningu Soroptim-
ista, og var ein þeirra, er náði best-
um árangri á stúdentsprófí.
Höfundanöfn
féllu niður
VEGNA tæknilegra mistaka féllu
niður höfundanöfn í minningargrein
nr. 3 um Jómnni Ingvarsdóttur á
bls. 26 í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins. Nöfnin, sem standa áttu
undir greininni voru: „Magnús,
Margrét og Halldóra". Hlutaðeig-
endur em beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Lægsta boö
í FRÉTT af útboði Hitaveitu
Reykjavíkur á stýrishúsið á Hafnar-
fjarðar- og Kóþavogsæð, féll niður
nafn þess aðila, sem átti lægsta boð
en það var Þorsteinn Sveinsson,
sem bauð 19.226.350 eða 76,19%
af kostnaðaráætlun.
Pennavinir
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist o.fl.:
Shizue Yamamoto,
6777, 2-chome Ichiba,
Minami Izumisano-city,
Osaka,
578 Japan.
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
10.993.297 kr.
57
ÚTVARP ÞJÓÐARINNAR
5k upp að bensíndælu fyrir utan söluskúr. Fullkomin
stúlka í bláum nælonslopp steig út. Hún var með gult
þykkt hár og svö þróttmikil að fyrr en varði voru öll
tæki byijuð að hristast og skjálfa og dýrmætur vökvinn
spýttist í eldsneytishulsuna. Ég steig út og ætlaði að Jjj
spyijast fyrir um veginn þegar hvítur hestur fór upp á JB
rauða hryssu við braggann.
Pétur Gunnarsson, Dýrðin á ásýnd hlutanna.
RÁS 2 VAR Á. LANDIÐ OG MIÐIN.
Landskeppni saumakiúbbanna!
Úrslitin nálgast!
SUZUKISWIFT
5 DYRA, ÁRQERÐ 1992
* Aflmikil, 58 hestafla Vél með beinni innspýtingu.
* Ódýr f rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
* Framdrif. ^ SUZUKI
* 5 gfra, sjálfskipting fáanleg. Ilr
* Verð kr. 828.000.- á götuna, stgr. suzuki BÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 SIMI 685100
LPUR OG SKEMMTLEQUR 5 MANNA BÍLL.
JACOBS
Sívmsælt
JACOB’S tekex
Ekki bam tekex
i
\
J