Morgunblaðið - 26.05.1992, Qupperneq 59
8G
59
seoi íam ,as nuoAauuiiHn (ikiajuvuj»30m
-MORGUNBLAÐÍ&ÍjtfBJUDAGUR
Á annað þúsund manns í Jesúgöngu
Á annað þúsund manns tóku þátt í Jesúgöngu um miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni. Þetta er í fyrsta skipti sem farið er í slíka göngu hér á landi en þær hafa verið
farnar víða í Evrópu frá 1987. Að göngunni stóðu Vegurinn, Krossinn, Hvítasunnukirkjan, Orð lífsins,
Hjálpræðisherinn, kristilegt stúdentafélag, Kristileg skólasamtök, Kristilegt félag heilbrgiðisstétta, KFUM
og KFUK, Aglow og áhugafólk innan þjóðkirkjunnar. Stefnt er að því að næsta Jesúganga verði gengin
samtímis um allan heim 25. júní 1994.
Bílkross:
Fj örug barátta feðganna
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigmundur Guðnason á Toyota Corolla lagði 40 keppendur að velli
í krónukrossi sem er vinsælasti aksturflokkurinn og búinn ódýrum
bflum.
METÞÁTTTAKA var f bílkrossi
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavík-
ur á sunnudaginn, en 60 keppnis-
bílar tóku þátt í keppni sem fór
fram í blíðskaparveðri. Keppt var
í þremur flokkum og í þeim fjöl-
mennasta voru fjörutíu keppend-
ur, en þessari íþrótt vex sífellt
fiskur um hrygg. í rally cross-
flokk vann Kristín Bima Garðars-
dóttir á Porsche, í teppaflokki
Einar Gíslason á Pontiac og í
krónukrossi vann Sigmundur
Guðnason á Toyota Corolla.
Meðal þess sem gladdi augað í líf-
legri keppni var barátta feðganna
Einars Gíslasonar og Óskar Einars-
sonar í flokki stærstu bílanna, en
þeir aka báðir amerískum drekum,
Pontiac og Monte Carlo. Hafa þeir
marga hildi háð á brautinni frá því
hún komst á laggimar. Faðirinn,
Einar, hafði betur að þessu sinni og
hafði betur eftir mikla keppni. „Það
gefur hvorugur okkar eftir, þó við
séum feðgar. Við eru andstæðingar
innan hringsins en vinir þess á milli.“
sagði Einar í samtali við Morgun-
blaðið. „Mér finnst þessi flokkur til-
þrifamestur og það er ótrúlega gam-
an að spretta úr spori á þessum bíl-
um. Annars hefur sýnt sig í tímatöku
að bestu bílamir í öllum flokkum em
á svipuðu róli hvað aksturstíma varð-
ar,“ sagði Einar.
Eina konan í hópi keppenda var
Kristfn Bima Garðarsdóttir á
Porsche og hún vann eftir jafna
keppni í undanrásum. „Bílamir í
mínum flokki em sífellt að verða
öflugri og þessi keppni var eiginlega
til að venjast bílnum fyrir sumarið.
Maður er alltaf svolítið ryðgaður eft-
ir vetrarsetuna“ sagði Kristín, sem
nýverið eignaðist bam, en lét það
ekki aftra sér frá þátttöku. í krónu-
flokki aka menn bílum sem ekki
mega kosta meira en 150.000 kr.
þ.e. ef einhver vill kaupa sigurbílinn
eftir keppni verður hann að vera
falur fyrir þann pening. Þessi flokkur
er geysilega vinsæll og hamagangur-
inn oft mikill. Sigmundur Guðnason
vann á vel búnum Toyota.
Úrslit:
Rally cross.
1. Kristín Birna Garðarsdóttir, Porsc-
he.
2. Amar Guðnason, Escort.
3. Páll Halldórsson BMW.
Teppaflokkur:
1. Einar Gíslason, Pontiac.
2. Óskar Einarsson, Monte Carlo.
3. Amar Hrafnsson, Nova.
Krónukross:
1. Sigmundur Guðnason, Corolla.
2. Sigurður Sigurðsson, Corolla.
3. Högni Gunnarsson, Datsun.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Einar Gunnlaugsson vann fremur óvænt í Greifatorfærumótinu á
Bleika pardusnum.
Torfæra:
Ovænt-
ur sigur
NÍU VELTUR urðu í íslandsmót-
inu í torfæruakstri á Akureyri um
helgina, en þá fór fram fyrsta
torfæran sem gildir til íslands-
meistara. Lítt þekktur ökumaður
vann það afrek að vinna sérútbúna
flokkinn, Einar Gunnlaugsson á
Bleika pardusnum sló reyndan
mönnum við í erfiðum þrautunum.
í flokki götujeppa vann Ragnar
Skúlason á jeepster.
íslandsmeistarinn, Ámi Kópsson,
lenti í bilun í einni þraut sem gerði
honum erfitt uppdráttar það sem
eftir lifði keppni, en hann nældi þó
' þriðja sæti. Fjórar þrautir voru
eknar auk tímabrautar, en þrautimar
vom ýmist í börðum, hliðarhalla og
erfíðum beygjum. Stextán keppendur
voru í sérútbúna flokknum, 12 í
flokki standard jeppa, sem gefur von
um mikla þátttöku í torfæmkeppn-
inni á Hellu í byijun júní. Þá verða
sjálfsagt línumar lagðar um hveijir
muni betjast um meistaratitilinn á
tímabilinu. í keppninni á Akureyri
hlaut Einar Gunnlaugsson 1.125 stig
í sérútbúna flokknum, Magnús
Bergsson fékk 939 stig, Árni Kóps-
son 916, Helgi Schiöth 775 og Gísli
Jónsson 720. í flokki standard jeppa
varð Ragnar Skúlason stigahæstur
með 1.435 stig, Gunnar Pálmi Pét-
ursson fékk 1.377, Þorsteinn Einars-
son 1.236, Steingrímur Bjamason
1.130 og Gunnar Guðmundsson
1.122.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
22. - 25. maí 1992.
Á föstudagskvöld veitti glöggur velli í austurborginni. Þeir náðust
vegfarandi athygli tveimur mönn- og vom færðir heim og foreldmn-
um þar sem þeir vom í óða önn um gert kunnugt um athæfið.
að taka upp tré úr gróðurreit ná- Einnig var tilkynnt um 3 pilta að
lægt íþróttahúsinu við Austurberg reyna að kveikja í sinu skammt frá
og raða þeim á kerru. Þegar lög- Kötlufelli. Þeim var og ekið heim
reglan kom að mönnunum brá þeim og rætt var við foreldrana.
nokkuð í brún. Aðspurðir sögðust Aðfaranótt sunnudags var bíll
þeir vera að fjarlægja trén því þau mældur á 123 km/klst. á Sæbraut
hefðu verið þama svo lengi og að við Kleppsmýrarveg. Ökumaðurinn
þeir hefðu talið þau til einskis nýt var færður á lögreglustöðina og
þar sem þau vom. Mennimiv vom sviptur ökuréttindum.
látnir gróðursetja aftur þau tré, Á sunnudagsmorgun var til-
sem þeir höfðu tekið upp. kynnt um par við ósæmilega iðju
á gi-asbletti nálægt bflastæði við
Á föstudagskvöld var talsvert Dalsel. Þau reyndu að elskast þar
um ölvaða unglinga á flækingi um ítrekað en það tókst ekki vegna
Breiðholtshverfi. Vom þeir með þess hve ölvuð þau vom. Þegar
ærsl og hávaða og hlaust af nokk- lögreglan kom á staðinn var tölu-
urt ónæði. Hvar foreldrar þessara vert um böm að leik í nágrenninu
barna vora er ekki vitað. og fylgdust þau með háttalagi pars-
Snemma á laugardagsmorgun ins. Það var tekið og fært á lög-
sá vegfarandi hvar tveir ungling- reglustöðina.
spiltar vom að bijótast inn í bíla á Á sunnudag sást hvar ölvaður
bílastæði við Bergstaðastræti. Þeir hestamaður reið um Elliðaárdalinn
vom gripnir glóðvolgir og færðir á og inn á Bústaðaveg. Þar reið hann
lögreglustöðina. mjög óvarlega innan um bílaumferð
Um miðjan dag var tilkynnt um og gangandi fólk. Vemleg slysa-
ósæmilegt athæfi manns, sem hafði hætta stafaði af þessu háttalagi
berað kynfæri sín fyrir tveimur 10 mannsins. Hann var handtekinn
ára stúlkum við biðstöð SVR í og færður á lögreglustöðina þar
Mjódd. Ekki náðist í manninn, sen sem blóðsýni var tekið úr honum.
hann var talinn vera rúmlega tví- Hrossinu var komið í hús.
tugur, um 180 sm á hæð, svart- Á sunnudagskvöld var tilkynnt
hærður með millisítt hár og skegg- um menn á ferð á bfl í miðbænum
brodda. Hann var klæddur í galla- og veifuðu þeir skammbyssu út um
buxur og ljósan gallajakka. glugga bflsins. Bfllinn fannst
Seinnipartinn var tilkynnt um skömmu síðar og vom tveir piltar
mann standandi í Ráðhústjöminni og ein stúlka handtekin og flutt á
með „flugustöng" og væri hann að lögreglustöðina. Við leit í bílnum
reyna að stunda þar einhverskonar fannst nákvæm eftirlíking af
veiðar. Þegar málið var kannað skammbyssu þar sem henni hafði
kom í ljós að maður nokkur stóð á verið stungið í gegnum gat á einni
bakkanum með veiðistöng. Laxi hurðinni. Annar piltanna viður-
hafði verið sleppt í tjömina og var kenndi að hafa beint henni í bríaríi
maðurinn að reyna að veiða hann að gangandi vegfarendum í mið-
á flugu. Veiðiferð þessi var hluti borginni. Hald var lagt á eftirlík-
uppákomu, sem félagar hans höfðu inguna.
undirbúið. Þeir sáu síðan um að Á mánudagsmorgun var tilkynnt
fjarlægja laxinn úr tjöminni. um innbrot í íbúð í austurborginni.
Um helgina bámst upplýsingar íbúinn vaknaði við mannaferðir í
um að skemmtanahald væri venju- íbúðinni og sá hvar ungur maður
lega framlengt eftir kl. 3.00 um hafði komið höndum yfir hálfa
helgar á tilteknum skemmtistað í milljón í peningum og lagt á flótta.
miðborginni. Pikkað væri í valda íbúinn brá snöggt við, elti þjófinn
gesti og þeim bent á að þeir gætu og náði að hrifsa peningana af
haldið skemmtuninni áfram í kjall- honum. Þjófurinn slapp, en greinar-
ara staðarins. Þessar upplýsingar góð lýsing af honum liggur fyrir.
koma heim og saman við fyrri upp- 4 umferðarslys urðu um helgina
lýsingar af rekstri þessa veitinga- og tilkynnt var um 39 önnur um-
staðar. ferðaróhöpp. Fólk er hvatt til þess
Á sunnudag var tilkynnt um 3 að fara varlega og sýna hvert öðru
pilta að bijóta rúður í skúr á gæslu- tillitsemi.
*
VANN ÞIN
FJÖLSKYLDA?
Heildarvinningsupphæðin :
109.995.219 kr.
21. lelkvlka 24. maí 19!
Röðin : 1X1-222-1X2-1211
13 réttir: 13raðirá
12 réttir: 413raðirá
11 réttir: 5.664 raöir á
10 réttir: 45.650 raöir á
2.284.510 - kr.
45.270 - kr.
3.490 - kr.
910-kr.
Engin röö kom fram meö 13 réttum leikjum hérlendis um
helgina en 10 raöir kom fram meö 12 réttum. Nú er bara aö
kaupa sér getraunaseöil og vera meö í staersta og besta
vinningspotti landsins. TÖLVUVAL • bara að nefna þaO II