Morgunblaðið - 22.09.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
15
Við líkjumst hvort öðru ...
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Bókmenntahátíð 1992. Norræna
húsið. Rithöfundakynning: Katar-
ina Frostenson, Christoph
Ransmayr, Roy Jacobsen og Gyrð-
ir Elíasson.
Við Ukjumst hvort öðru hét fyrsta
ljóðið sem sænska skáldkonan Kat-
arina Frostenson (1953) las upp (
Norræna húsinu á föstudagskvöld.
Salurinn var þéttsetinn og leikræn
og skýr rödd skáldkonunnar náði
strax athygli áheyrenda; hljómfallið
í ætt við tónlist og stuðlasetning
áberandi. „Við líkjumst hvort öðru,
það er næstum enginn munur ...
það er þannig nótt að enginn sef-
ur.“ Þannig hljómaði bútur úr ljóðinu
í þýðingu Heimis Pálssonar. Ljóða-
gerð Katarinu virðist ekki bundin
þröngu sviði: í einu ljóðinu voru til-
vísanir til þjóðsagna en í öðru var
fjallað um sjúka og einangraða ein-
staklinga.
Katarina Frostenson er vel mennt-
uð; lagði stund á bókmennta-, kvik-
mynda- og leikhúsfræði við Stokk-
hólmsháskóla og hefur lengi búið í
Paris. Hún hefur stundað þýðingar
en vakti fyrst verulega athygli fyrir
ljóðabækur sínar: Rena land (1980),
Den andra (1982), Samtalet (1987)
og Joner (1991).
Christoph Ransmayr (1954) er
eflaust mörgum kunnur. Upphaflega
vakti hann athygli fyrir skáldlegar
blaðagreinar. Seinna kom að því að
hann varð að velja milli blaða-
mennsku og þess að helga sig rit-
störfum. Hann virðist vinna skipu-
lega að skrifum sínum, skiptir tím-
anum reglubundið milli ákveðinna
athafna.
Tvær skáldsögur hafa komið út
eftir Ransmayr: Die Schrecken des
Eises und der Finsternis og Die
letzte Welt sem hefur í íslenskri
þýðingu Kristjáns Árnasonar hlotið
heitið Hinsti heimur. Sú skáldsaga
fékk frábærar viðtökur í Þýska-
landi, hefur enda lengi vermt sæti
söluhæstra bóka þar. T.a.m. var hún
svo árum skipti á metsölulista þýska
vikuritsins Der Spiegel.
Hinsti heimur er saga sem gerist
ekki í neinum ákveðnum tíma. Hún
er uppfull af goðsögum og bókmenn-
talegum tilvísunum. Hér segir frá
dvergmenninu París sem dreymir
um að verða hár maður þegar hann
sýnir kvikmyndir við strönd Svarta-
hafs á tímum Ágústusar keisara!
Eftir að Ransmayr hafði lítillega
kynnt bókina og lesið úr henni las
Kristján Árnason þar sem segir þeg-
ar Thereifur kemur af hafi, sæll og
þreyttur eftir góða veiðiför til þess
eins að finna son sinn barnungan
liðið lík. Hér spinnur Ransmayr út
frá fomgrísku sögninni um Thereif
sem nauðgaði mágkonu sinni. Eigin-
kona hans, Protna, hefndi með því
að drepa son þeirra hjóna.
Roy Jacobsen (1954) hreif salinn
með sér í hlátursstemmningu þegar
hann las kafla úr sögu sinni Seier-
herrene sem fjallar um mannlífið í
7. bekk í norskum skólum. Seierherr-
ene er seinasta og metnaðarfyllsta
verk Jacobsens til þessa, vel yfir 600
bls. að lengd og hefur hlotið frá-
bæra dóma. Verkið er eins konar
ættarsaga, fjallar um líf þriggja
kynslóða í Noregi, frá þriðja áratug-
inum til okkar daga. Norskt samfé-
lag hefur gengið gegnum miklar
umbreytingar á liðnum áratugum
(reyndar svipað og það íslenska) og
því kjörið í jafnbreiða samfélagslýs-
ingu og hér er á ferðinni. Seierherr-
ene hefur selst í nálægt 100.000
eintökum í Noregi sem eru auðvitað
fádæma góðar móttökur.
Framan af ritferli sínum skrifaði
Jacobsen knappar skáldsögur, eins
og Tommy (1985), Det nye vannet
(1987), Virgo (1988) og smásagna-
safnið Det kan komme noen (1989).
Kristján Jóhann Jónsson las bút úr
einni sögunni úr smásagnasafninu
sem fjallaði um mann sem bjó af-
skekkt, með fjöll á þijár hliðar og
haf á eina. Á veturna hrundi gijótið
úr hlíðum fjallsins og aðeins spum-
ing hvenær það hitti hús hans og
hann sjálfan í höfuðið — og á sumr-
in komu gestir í heimsókn til að líta
augum þennan furðulega mann sem
bauð náttúruöflunum byrginn.
Kaflinn, sem Kristján las, var kald-
hæðnislegur. Án þess að endursegja
einfaldan söguþráðinn má fullyrða
að Jacobsen sýndi hér bæði hrana-
lega og ísmeygilega hlið.
Seinasti höfundur kvöldsins og
um leið seinasti höfundur upplestrar-
kvölda bókmenntahátíðarinnar var
Gyrðir Elíasson (1961). Gyrðir vatt
sér strax í að lesa ljóð án þess að
kynna þau sérstaklega. Gyrðir var
Katarina Frostenson
yngsta skáldið sem kom fram þetta
kvöld en eigi að síður sá sem skilað
hefur flestum titlum til lesenda. Nú
hafa komið út 11 bækur eftir hann,
sjö ljóðabækur, tvær skáldsögur og
tvö smásagnasöfn — og von á nýrri
ljóðabók nú í haust.
Ljóðin sem hann las gáfu vel til
kynna eiginleika skáldsins og sér-
stöðu; yfir þeim hæglætisblær, tíma-
leysi, kyrrð og birta, sem stundum
Christoph Ransmayr
minnir á yfirlýstar ljósmyndir. Heiti
ljóðanna gjaman stutt og kristalla
vel meginefnið: Blinda, Dauðinn í
húsinu og Marslok íKópavogi. Ilmur
er gjarnan nálægur í ljóðum Gyrðis
og hér, sem oftar áður, rauk hann
af úr kaffibollum: „í hveiju einasta
húsi... er verið að hella upp á kaffi
. . . er þáð ilmandi" (Síðasta kaffi-
ljóðið).
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
fÝeewoM'í
O F
L O N D O N
PONTUNARUNA
91-653900
VERÐLÆKKUN!
Vegna gengisfalls pundsins
lækkum við vöruverð í listanum.
Vinsamlega notið eftirfarandi
verðtöflu:
Frá vinstri eru Guðmundur Emilsson, tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins,
Tómas Tómasson, starfsmaður tónlistardeildar Ríkisútvarpsins, er
sáu um skipulag og framkvæmd keppninnar, og Bryndís Halla Gylfa-
dóttir sellóleikari og sigurvegari keppninnar um Tónvakann, Tónlist-
arverðlaun Ríkisútvarpsins.
Tónvakinn
Bryndís Halla Gylfa-
dóttir sigraði
BRYNDÍS Halla Gylfadóttir sellóleikari sigraði í keppninni um Tónvak-
ann, Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins 1992. Hún tekur við verðlaun-
um á sérstökum hátíðartónleikum í Háskólabíói 26. nóvember nk. og
leikur við það tækifæri einleik á selló í Sellókonsert í h-moll opus 104
eftir Antonín Dvorák með Sinfóníuh(jómsveit íslands. Útvarpsstjóri,
Heimir Steinsson, afhendir verðlaunin á tónleikunum, en verðlauna-
upphæðin er 250 þúsund krónur, auk þess sem gerðar verðar útvarps-
hljóðritanir með leik Bryndísar HöIIu árið 1993.
Wm
■
■
l
I
z
I
IB' ’
> íh
I;;;; .
Bryndís Halla er 27 ára gömul.
Hún hóf nám í sellóleik hjá Gunnari
Kvaran hér heima en sótti síðan
framhaldsnám til Bandaríkjanna í
New England tónlistarháskólanum í
Boston og síðar einkatíma í Amst-
erdam. Haustið 1990 var hún leið-
andi sellóleikari Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands og gegnir hún þeirri stöðu
í dag.
Dómnefnd keppninnar valdi hana
einum rómi en dómnefndina skipuðu,
auk Guðmundar Emilssonar, tónlist-
arstjóra Ríkisútvarpsins, Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari,
Björn Th. Ámason, skólastjóri og
formaður Félags íslenskra hljómlist-
armanna, Gunnar Kvaran sellóleik-
ari, John A. Speight, söngvari og
formaður Tónskáldafélags íslands,
Rut Magnússon, söngkennari og
framkvæmdastjóri Tónlistarfélags-
ins, og Sigursveinn K. Magnússon,
skólastjóri og formaður stjómar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands.
Alls tóku 44 tónlistarmenn þátt í
keppninni, 23 léku eða sungu í hljóð-
veri Ríkisútvarpsins og af þeim voru
8 valdir til að koma fram í beinni
útsendingu á Sumartónleikum Ríkis-
útvarpsins sem haldnir voru á
fimmtudagskvöldum í ágúst. Bryn-
dís Halla Gylfadóttir var valin úr
þessum hópi 8 flytjenda sígildrar
tónlistar en hún lék á útvarpstónleik-
um 27. ágúst sl. og með henni Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir píanóleik-
ari.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
PUND KRÖNUR PUND KRÓNUR PUND KRÖNUR
3,25 448 24,99 3.442 60,00 8.265
4,25 585 25,99 3.580 61,99 8.539
4,50 620 26,99 3.718 62,99 8.677
4,97 687 27,99 3.856 64,99 8.952
5,50 758 28,99 3.993 65,00 8.954
5,99 825 lllllil 29,99 4.131 65,99 9.090
6,50 895 30.99 4.269 67,99 9.366
6,99 963 31,99 4.407 <kV.<v<3i 69,99 9.641
7,50 1.033 32,99 4.544 lUii! 72,99 10.054
7,99 1.101 33,99 4,682 tiisifc 74,99 10.330
8,50 1.171 34,99 4,820 : 75,00 10.331
8,75 1.205 35,00 4,821 " V' ^d§| - 79,99 11.019
8,99 1.238 35,99 4,958 80,00 11.020
9,50 1.309 ' j | 36.99 5.095 84,99 11.707
9,99 1.376 37,99 5.233 85,00 11.709
10,50 1.446 38,00 5.235 86,99 11.983
10,99 1.514 kd 'K! 38,99 5.371 89,99 12.396
11,50 1.584 39,95 5.503 92,99 12.809
11,99 1.652 39,99 5.509 94,99 13.085
12,50 1.722 40,00 5.510 99,00 13.637
12,99 1.789 ' j 41,99 5.784 99,99 13.774
13,50 1.860 42,99 5.922 107,99 14.876
13,99 1.927 44,99 6.197 109,99 15.151
14,50 1.997 45,00 6.199 110,00 15.153
14,99 2.065 1 45,99 6.335 116,99 16.115
15,50 2.135 46,99 6.473 119,99 16.529
15,99 2.203 . t 47,00 6.474 120,00 16.530
16,50 X273 i 47,99 6.611 129,99 17.906
16,99 2.340 49,95 6.881 139,99 19.284
17,50 2.411 - .! 49,99 6.886 149,99 20.661
17,99 2.478 50,00 6.888 159,99 22.039
18,50 2.548 51,00 7.025 169,99 23.416
18,99 2.616 51,99 7.162 <' llllÍl 173,99 23.967
19,50 2.686 52,99 7.299 179,99 24.794
19,99 2.754 53,00 7.301 189,99 26.171
20,99 2.891 53,99 7.437 199,99 27.549
21,50 2.962 54,99 7.575 209,99 28.926
21,99 3.029 55,00 7.576 219,99 30.304
22,99 3.167 58,99 7.713 229,99 31.681
23,50 3.237 56,99 7.850 245,00 33.749
23,99 3.305 57,99 7.988 474.99 65.430
24,50 3.375 59,99 9.264
T
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
' ' ''
Samsvarandi verðlækkun er fyrir alla aukalista.
Verð gildir út gildistíma listans með almennum fyrirvara um meiriháttar gengisbreytingar.
Klippið út auglýsinguna
og límið yfir verðtöflu innan á baksíðu
vörulistans.