Morgunblaðið - 22.09.1992, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.09.1992, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992 41 ___ ______ TTWOTTr Ármula 18, 108 Reykjavík JL XV\_/jL^JL sími: 812300 BÓKA & BLAÐAUTGÁFA myndsendir: 812946 Jóhanna K. Odds- dóttir - Kveðjuorð Fædd 23. apríl 1929 Dáin 3. september 1992 „Jesú sagði við hana: Ég er upprisan og lífið; sá sem trúir í mig, mun lifa, þótt hann deyi og hver sá, sem lifir og trúir á mig, hann skal aldrei að eilífu deyja." í fáeinum orðum langar mig að minnast dóttur minnar, Jóhönnu Kristínu Oddsdóttur, er lést í Borg- arspítalanum 3. september sl. Drottinn gefur og Drottinn tekur. Jóhanna var allt sitt líf glaðlynd og kát. Trúuð var hún og kirkjan henni kær. Hjálpsöm var hún, og síðustu árin, var hún stoð mín og stytta þrátt fyrir að hún gengi ekki heil til skógar. Margar góðar samverustundir áttum við, og er ég þakklát fyrir þær. Ég þakka góðum Guði fyrir að hafa átt dótt- ur eins og Jóhönnu. Dróttinn blessi hana. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andar friði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Guðbjörg Eiríksdóttir. Hinn 10. september sl. var til moldar borin tengdamóðir mín og vinur, Jóhanna Kristín Oddsdóttir, eða Jóa eins og hún ævinlega var kölluð. Jóhanna fæddist í Reykja- vík 23. apríl 1929. Foreldrar henn- ar voru þau Guðbjörg Eiríksdóttir og Oddur Tómasson, og varð þeim Piwm flisar > • 35* v ~ 1 / s í | 1* \ X Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 fimm barna auðið. Jóhanna var þeirra næstyngst. Jóhanna var gift Einari Guð- mundssyni og eignuðust þau þijú böm, Guðmund, f. 1954, Reyni Má, f. 1965 og Guðbjörgu Theres- íu, f. 1962. Voru þau hjónin ákaf- lega samrýmd, ástfangin og ham- ingjsöm allt sitt hjónaband. Jó- hanna hafði mikla gleði og ánægju af að ferðast, og ferðuðust þau hjónin mikið. Hún var glaðlynd að eðlisfari og hafði mikla ánægju af að vera innan um fólk. Ósjandan hreifst fólk með, því lífsgleði og lífskraftur geislaði af henni. Sárt þykir mér að við skulum ekki eiga eftir að heyra hlátur hennar meir f þessu lífí. Jóhanna var ákaflega dugleg kona og gaf sig alla í það sem hún tók sér fyrir hendur. Þau hjónin ráku Listvinahúsið af miklum dugnaði og dvöldu óf- áum stundum þar. Jóhanna var gædd miklum sölumannshæfileik- um og átti auðvelt með að tjá sig við fólk af öllum þjóðernum. Fólk kom því aftur og aftur til hennar, ekki endilega til að versla, heldur meira til að tala við hana og ræða málin. Eignaðist hún marga vini í gegnum starf sitt í Listvinahúsinu. Fjölskyldan var Jóhönnu afar kær og fengu hennar böm afar gott og ástríkt uppeldi. Ef einhveij- um leið illa eða mátti sín minna var Jóhanna fyrst allra komin til að hugga og styrkja. Ást og um- hyggja hennar var mikil og nutu börn hennar og eiginmaður þess í ríkum mæli. Bið ég góðan Guð að styrkja þau í þeirri miklu sorg. Árið 1980 kynntist ég yndislegri dóttur hennar, og varð þá stórkost- leg breyting á lífí mínu. Hún og hennar fjölskylda hafði mikil áhrif á mig og þau hjónin Jóhanna og Einar hafa verið mér einstök. Jó- hönnu á ég mikið að þakka. Hún kenndi mér margt og og alltaf gat ég komið til hennar og rætt málin. Ósjaldan studdi hún mig í því sem ég var að gera og veitti mér þá hjálp og stuðning sem þurfti. Margar voru þær gleðistundir sem við áttum saman, hvort sem það var hér á landi eða erlendis og er erfítt að átta sig á því að þær verði ekki fleiri. Litla dóttir okkar, Diljá Björg, dýrkaði hana ömmu sína og því miður fær hún ekki að njóta leng- ur þeirrar ástar og kærleiks sem hún alltaf fékk í ríkum mæli frá ömmu Jóu. Ég þakka elsku Jóu minni fyrir þessi tólf frábæru ár sem ég fékk að eiga hana sem vin og tengda- móður, og allt sem hún kenndi mér og gaf. Því mun ég alltaf búa að. Minning hennar mun alltaf lifa í hjörtum okkar og er það huggun að vita, að hún er í góðum höndum og henni líði nú vel. Elsku Einar minn! Ég sendi þér mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að gefa þér styrk í þinni miklu sorg. Öðrum ástvinum bið ég Guðs blessunar í þeirri sorg. Ég er ljós í heiminn komið, til þess að hver, sem á mig trúir, sé ekki í myrkrinu. (Jðh. 12.46.) Sævar. Ný gerö bamabílstóla * Fyrir böm frá fæðingu til 5 ára aldurs. * Þægilegar 5 punkta fest- ingar með axlapúðum. * Stillanlegur. * Stólnum má snúa með bakið fram (->9kg.) eða aftur (9-18kg.). * Má hafa frístandandt. * Vasi á hlið, fyrir leikföng eða annað. * Auðvelt að taka áklæðið af og þvo það. * Viðurkenndur. * Verðkr. 10.998,- naust Borgartúnl 26 Síml: (91) 62 22 62 Mynds.:(91) 62 22 03 ISLENSK FYRIRTÆKI I 9 9 3 STÆRRI ÞYNNRI HANDHÆGARI MEIRI UPPLÝSINGAR þörf fyrir þann innri styrk, sem maður dregur af vinum sínum. Það fórst fýrir áð vökva tréð sem skyldi. Heilsu Óttars fór smátt og smátt hrakandi. Hann vildi þó aldrei ræða heilsufar sitt og lét sem ekkert væri. Sýndi hann þar ótrúlegan viljastyrk og æðruleysi. Sjálfur hef ég aldrei getað svo mikið sem heim- sótt sjúka, líklegast búinn einhveij- um innri ótta við að svona gæti verið fyrir manni sjálfum komið. Því var það, að frændi minn var skyndi- lega horfínn áður en maður áttaði sig á þörfinni á skýla vináttutrénu fyrir vetrinum langa. Nú situr maður heima með ákveð- ið tómarúm í hjarta. Tréð stendur enn styrkt í garði sínum, en laufin hafa fallið, hausthretið kom alltof snemma. Góða sál, sért þú Guði gefín. Þorsteinn Helgason deildarforseti verkfræðideild- ar HÍ. Óttar P. Halldórsson, prófessor við byggingaverkfræðiskor, er fall- inn frá. Óttar var einn þeirra manna sem setti svip á skorina undanfarin ár. Óttar var kennari sem nemendur báru mikla virðingu fyrir. Hann var hæfur kennari, fór vel og rólega yfír efnið, en komst þó hratt yfír, vegna þess hve vel hann setti það fram. Hann var ekki að æsa sig yfir neinu, alltaf jafnrólegur og glaðlyndur og sá broslegu hliðarnar á ýmsu sem fyrir bar í kennslunni. Óttar hafði gaman af að segja frá atriðum og viðburðum tengdum og ótengdum námsefninu, hann stóð þá fyrir framan bekkinn og sagði frá á sinn skemmtilega hátt og brosti sínu góðlátlega brosi sem vekur upg hlýjar minningar um hann. Þó Óttar hefði ekki verið við kennslu síðastliðið ár gleymdist hann ekki, öðru hvoru rákust menn á hann í skólanum þar sem hann gekk hægt um og heilsaði á sinn glaðlega máta þeim sem hann þekkti og þeir voru margir. En nú er Óttar horfínn á braut, við fáum ekki lengur notið kennslu hans, hlýlegs viðmóts eða annars sem hann gaf af sér. Góðar minning- ar um Óttar lifa áfram og brosið hans gleymist seint. Ættingjum og ástvinum sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Guð varðveiti Óttar og blessi ástvini hans á þessum erfíðu stundum og veiti þeim styrk. Byggingaverkfræðinemar við Háskóla íslands. SJÁ BLS 40. Föróunarfrœóingur kynnirDior haustlitina á morgun, miövikudag, kl. 13-17. Mosfells apótek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.