Morgunblaðið - 22.09.1992, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.09.1992, Blaðsíða 56
Yfirtaka Landsbank- ans á eignum SÍS Lítil þyrla missti afi í 900 feta hæð suður af Nesjavallavirkiun Morgunblaöio/lngvar Unmð að vettvangsrannsókn á slysstað í gærkvöldi. Þyrlan er mikið skemmd en ekki talin ónýt. Tveir sluppu úr brotlendingu LÍTIL þriggja sæta þyrla af gerðinni Hug- hes-269C brotlenti rétt við Nesjavallaveg skammt suður af Nesjavallavirlgun um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Tveir menn voru um borð, flugmaður og farþegi, og sluppu báðir ómeiddir úr þessu óhappi. Flugmaðurinn, Rúnar Sigurbjartarson, hafði tekið þyrluna TF-HHO, á leigu frá Þyrluþjón- ustunni hf. um hálftíma áður en óhappið varð til útsýnisflugs með vini sínum. Voru þeir á leið aftur til Reykjavikur er þyrlan missti snögg- lega afl í um 900 feta hæð. Stýrði Rúnar þyrl- unni til nauðlendingar og tókst með ágætum nema í lendingunni sjálfri er þyrlan lagðist á hliðina. Skúli Jón Sigurðarson framkvæmdastjóri flugslysarannsóknanefndar Flugmálastjórnar sagði ljóst að drepist hefði á hreyflinum af ein- hveijum orsökum. Flytja átti flakið til Reykja- víkur í nótt og sagði Skúli Jón að rannsókn í dag myndi einkum beinast að hreyfli þyrlunn- ar. „Þyrlan er töluvert skemmd eftir þetta óhapp, en ég myndi ekki telja hana ónýta,“ sagði Skúli Jón. Rúnar vildi ekkert tjá sig um óhappið í gær- kvöldi en farþeginn, Höður Guðlaugsson, sagði að hann gerði sér ekki fyllilega grein fyrir því sem gerðist. „Við vorum á flugi í sól og ágætis veðri þegar þyrlan hrapaði allt í einu til jarð- ar,“ sagði Höður. „Lendingin var ekki mjög harkaleg en þyrlan lagðist á hliðina og við kom- um okkur út úr henni. Ég veit ekki hvað gerð- ist, þetta kom allt svo snögglega til.“ Atlantsál og iðnaðarráðherra ákveða að kanna fjármöffnun álversbyggingar Athugað hvort hægt er að brydda upp á nýjum leiðum Á NÆSTU tveimur mánuðum verður á nýjan leik farið yfir möguleika á fjármögnun fyrir- hugaðs álvers Átlantsáls á Keilis- nesi. Þetta var meðal þess sem kom út úr fundi Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra og Jóhannesar Nordals formanns álviðræðu- nefndar með Bond Evans forstjóra Alumax sem er eitt þriggja fyrir- tækja sem standa að Alumax-verk- efninu. Iðnaðarráðherra sagði eft- ir fundinn í gærkvöldi að fulltrúar íslensku viðræðunefndarinnar og Atlantsáls myndu hittast fljótlega aftur, væntanlega í nóvemer, til að fara yfir niálin. Þá yrði rætt um fjármögnun framkvæmdanna og hvort rétt væri að bera málið á nýjan leik upp til ákvörðunar. Jón Sigurðsson og Jóhannes Nor- dal eru staddir í Washington á árs- fundum Alþjóðabankans og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Þeir áttu fund með Bond Evans í gær til að ræða stöðu Atlantsálsverkefnisins. „Það er enn á ný staðfest að þeir eru afar áhugasamir um að ráðast í þessar framkvæmdir svo skjótt sem aðstæð- ur leyfa. Þeir telja að enn sé ekki nægur vilji ti! að lána í svona stórt verkefni og að kjör á framkvæmda- lánum séu ekki nægilega hagstæð. Það hefur verið rætt um að leita ein- hverra nýrra leiða í fjármögnun," sagði Jón. Hann sagði að íslendingar vildu láta kanna hvort hægt væri að brydda upp á einhveiju nýju í fjár- mögnun svo hægt væri að flýta fram- kvæmdunum. „Okkur kom saman um á þessum fundi að litið yrði að nýju á fjármögnun framkvæmdanna í framhaldi þess að þegar hefur náðst samkomulag um nær öll samnings- atriði önnur en þau sem tengjast tímasetningum um upphaf fram- kvæmda og framleiðslu og fjárhæðir sem tengjast því,“ sagði iðnaðarráð- herra. Jón sagði að fulltrúum Atlantsáls hefði verið skýrt frá því að fulltrúar frá Kaiser Aluminium væru væntan- legir til íslands til könnunarviðræðna um hugsanlega fjárfestingu á ís- landi. Iðnaðarráðherra hefur boðið þeim til viðræðna 19.-21. október. Engináhrif á viðskipti við önnur fyrirtæki - segir bankastjóri Hambros Bank BANKASTJÓRI Hambros Bank í London segir að viðræð- ur standi yfir við Landsbanka íslands um skuldir Sambands íslenskra samvinnufélaga í kjölfar ákvörðunar Lands- bankans um að yfirtaka eignir Sambandsins. Landsbankinn hefur sent erlendum lánar- drottnum Sambandsins bréf þar sem því er lýst yfir að skuldir Sambandsins við þá verði greiddar. Sambandið skuldar erlendum bönkum um 1.290 milljónir króna. Eru stærstu lánardrottnarnir Hambros Bank og Scandinavian Bank. Tom Boyce, bankastjóri Hambros Bank, sagði í samtali við Morgunblaðið að bankinn ætti í viðræðum við Landsbankann um hvernig hægt væri að leysa þetta mál. „Augljóslega hefur Lands- bankinn mjög þýðingarmikið hlut- verk í þessu máli,“ sagði Boyce. Hann staðfesti að Hambros- banki hefði fengið bréflega yfirlýs- ingu frá Landsbankanum um að séð yrði til þess að skuldir Sam- bandsins yrðu greiddar. Þegar Boyce var spurður hvort bankinn liti á þessa yfirlýsingu sem jafngildi ríkisábyrgðar svar- aði hann að hún væri stuðningsyf- irlýsing (letter of support) frá Landsbanka íslands. Þegar hann var spurður hvort þetta mál kynni að hafa áhrif á viðskipti annarra íslenskra fyrir- tækja við Hambrosbankann svar- aði hann að svo væri ekki. „Vegna þess að við eigum stuðning Lands- bankans vísan erum við rólegir þar sem við teljum Landsbankann mjög þýðingarmikinn banka á ís- landi. Við teljum þetta vera af- markað mál og einmitt nú erum við að ganga frá láni til annars íslensks fyrirtækis svo þetta hefur engin áhrif á afstöðu okkar að svo stöddu,“ sagði Tom Boyce banka- stjóri Hambrosbanka. Þoka og dimmviðri skall á í innanverðum Faxaflóa í gærkvöldi TuUugii trillur í hafvillum UM TVEIR tugir smábáta lentu í hafvillum og vandræðum á Faxaflóa í gærkvöldi vegna þoku og dimmviðris. Tveir strönduðu en náðust á flot aftur. Nokkrir bátar voru úti í gærkvöldi að beiðni Tilkynningaskyldunn- ar til að miða bátana út og lóðsa til hafnar. Komu björgunarskipin til hafnar með nokkra báta hvert. Tvær flugvélar á leið til Keflavíkur urðu frá að hverfa vegna dimm- viðris. Svarta þoka og dimmviðri var á innanverðum Faxaflóa í gærkvöldi. Á áttunda tímanum byij- uðu smábátaeigendur að leita aðstoðar Tilkynn- ingaskyldunnar. Voru þeir misjafnlega illa staddir. Sumir voru í algerri hafvillu, vissu ekk- ert hvar þeir voru staddir eða hvert þeir ættu að stefna. Tilkynningaskyldan bað trillukarlana að halda kyrru fyrir þangað til hjálp bærist og fékk björgunarbát Slysavamafélags Islands, Henry A. Hálfdanarson, til að fara til aðstoðar, einnig Aðalbjörgu RE og nokkra smærri báta. Miðuðu þeir bátana út og létu þá fylgja sér. Aðalbjörg kom til að mynda með heilmikla strollu á eftir sér til hafnar seint í gærkvöldi. Einn af þeim bátum sem fengu aðstoð hafði bilað norður af Garðskaga og var sjómaðurinn að róa til lands þegar aðstoð barst. Tilkynningaskyldan kallaði út björgunarsveit- ina á Akranesi til að aðstoða bát sem þar var í vandræðum. Þá þurfti að senda bát til aðstoð- ar smábát sem bilað hafði á Breiðafirði. Samkvæmt upplýsingum starfsmanns Til- kynningaskyldunnar eru margir smábátanna illa útbúnir og alls ekki undir það búnir að lenda í svona veðri. Sumir hafa ekki einu sinni rek- akkeri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.