Morgunblaðið - 22.09.1992, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
18% bandarísk gjöld
á Levi’s hér en ekki
á Norðurlöndunum
Innkaupsverð 2.450 kr.
PÉTUR Arason, eigandi Levi’s-
búðarinnar, sem flytur m.a. inn
Levi’s-gallabuxur, segir að hluti
skýringar á háu verði gallabuxna
hér á landi sé að hér séu greidd
18% bandarísk gjöld af vörunni.
Þessi gjöld sleppi aðrar Norður-
landaþjóðir við að greiða.
Eins og fram kom í verðsaman-
burði milli níu evrópskra borga sem
birtist í Morgunblaðinu á fímmtu-
dag eru Levi’s-gallabuxur í Reykja-
vík 59% dýrari en i Helsinki, þar
sem þær voru ódýrastar. Pétur
Arason segir að í Danmörku kosti
buxurnar 659 danskar kr., rúmar
6.300 ÍSK, á meðan þær kosti 6.890
kr. á íslandi. Svipað verð sé á þeim
í Svíþjóð. „Ég veit ekki hvers vegna
þær eru svo miklu ódýrari í Hels-
inki. Innkaupsverð á buxunum er
255 danskar kr., [2.450 ÍSK] síðan
leggst á þær 15% tollur og 3,5%
vörugjald. Þá leggst á söluverðið
24,5% virðisaukaskattur."
Pétur sagði að hann yrði einnig
að greiða 18% í bandarísk gjöld af
vörunni. Hann sagði að buxurnar
væru fyrst fluttar til Helsingborg í
Svíþjóð og þaðan til íslands. Aðrar
Norðurlandaþjóðir fái bandarísku
gjöldin endurgreidd.
í verðkönnuninni kom fram að
Philips AVM 611-örbylgjuofn var
78% dýrari hér en í Hamborg, þar
sem hann var ódýrastur. Wiíliam
Gunnarsson, sölustjóri hjá Heimilis-
tækjum hf., sem er umboðsaðili
Philips örbylgjuofna, sagðist skýra
að hluta hið háa verð á örbylgjuofn-
unum með þvl að könnunin hafi
verið gerð áður en verðlækkun sem .
veitt var til seljenda Philips í Evr-
ópu sl. vor, hafí komið inn í verðið
hérlendis. Verðlækkunin hafí verið
um 15%. Þegar könnunin var gerð
kostuðu þessir ofnar 27.500 kr., en
kosta nú 23.655 kr.
Að öðru leyti kvaðst William ekki
o
geta skýrt hinn mikla verðmun,
nema hvað flutningskostnaður til
íslands væri hærri, en ofnarnir eru
framleiddir í Svíþjóð, og 15% að-
flutningsgjöld væri einnig hluti
skýringarinnar.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Um 100 eru nú atvinnulausir í Grindavík, mest konur sem leggja traust sitt á að síldin komi. Myndin
_____________ er tekin við Grindavíkurhöfn.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er tvöfalt landsmeðaltal
Greiddar 3-4 milljónir í
atvinnuleysisbætur á viku
Keflavík.
HLUTFALL atvinnulausra á Suðurnesjum hefur verið um nokkurn
tíma og er enn um helmingi hærra en meðaltal atvinnulausra á land-
inu öllu — og er ástandið hvað verst í Grindavik og Vogum. Um 100
manns hafa verið atvinnulausir í Grindavík að undanförnu og sagði
Jón Gunnar Stefánsson bæjarstóri að konur væru þar í miklum
meirihluta. Í Vogum hafa um 20 manns verið atvinnulausir að jafn-
aði undanfarið sem er um 8% af vinnufærum íbúum og að sögn
Jóhönnu Reynisdóttur sveitarstjóra eru þetta nær eingöngu konur.
Um síðustu mánaðamót var hlutfall atvinnulausra á Suðurnesjum
samkvæmt yfirliti Vinnumálaskrifstofunnar um 5%, en á öllu landinu
var meðaltalið 2,5%. Talið er að 3-4 milljónir séu greiddar út í at-
vinnuleysisbætur á viku hverri.
INNLENT
Jón Gunnar Stefánsson, bæjar-
stjóri í Grindavík, sagði að menn
biðu nú eftir síldinni sem bjarg-
vætti í atvinnuleysinu. Verulegur
samdráttur hefði til að mynda orðið
í saltfískverkun og svo virtist sem
þessi vinnsluaðferð væri að leggjast
af. Jóhanna Reynisdóttir', sveitar-
stjóri í Vogum, sagði að þar hefðu
verið starfrækt tvö frystihús til
skamms tíma, Vogar og Hafgull,
en starfsemi Voga hefði síðan að
mestu flust til Njarðvíkur og Haf-
gull væri ekki starfrækt lengur.
Hafgullsmenn sem hefðu keypt allt
sitt hráefni á fískmörkuðum hefðu
einfaldlega ekki ráðið við hið háa
fiskverð og vildu þeir nú jafnvel
leigja húsið sem væri nýtt og gæti
hentað til margs konar iðnaðar-
starfsemi.
Stjóm Sambands sveitarfélaga á
Suðumesjum hefur þegar lýst yfír
áhyggjum sínum vegna ástandsins
í atvinnumálum og telja stjómar-
menn að nokkurt atvinnuleysi sé
þegar farið að festa rætur á svæð-
inu. í sumar ákvað stjóm SSS að
efna til fundaherferðar um atvinnu-
mál með haustinu og sagði Guðjón
Guðmundsson framkvæmdastjóri
að nú væri búið að skipa vinnuhópa
til að fara ofan í saumana á atvinnu-
starfseminni. Um væri að ræða
þijá hópa, einum væri ætlað að
skoða sjávarútveginn, öðmm flug
og verktakastarfsemi og þriðji
vinnuhópurinn væri að skoða þjón-
ustugreinamar. Niðurstöður ættu
að liggja fyrir í byijun október, en
eins og staðan væri nú virtist ekki
vera tilefni til bjartsýni. Guðjón
sagði að bæjarfélögin hefðu varið
verulegum upphæðum til sumar-
vinnu unglinga í sumar og hefðu
nokkur hundmð ungmenni fengið
vinnu, sem að öðrum kosti hefðu
verið atvinnulaus. Guðjón sagði að
menn fylgdust nú grannt með gangi
mála um þátttöku íslands í Evr-
ópska efnahagssvæðinu og hvaða
möguleikar gætu skapast þar.
Varnarliðið er stærsti atvinnu-
rekandinn á Suðumesjum og þar
hafa liðlega 1.000 manns haft vinnu
undanfarin átta ár. Um áramótin
1986 voru 1.112 íslendingar á
launaskrá hjá vamarliðinu en vom
950 um áramótin 1992. Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi vamar-
liðsins, sagði að um lítils háttar
fækkun starfsmanna væri að ræða
og kæmi í kjölfar aðhalds í rekstri.
Frysting hefði verið í nýráðningum
undanfarin tvö ár, en að undan-
fömu hefðu verið gefnar nokkrar
undanþágur til að ráða íslendinga
til starfa. Friðþór sagði að ræst-
ingafólk hefði aðallega misst vinn-
una vegna uppsagna að undanförnu
og væri sú starfsemi nú að mestu
í höndum verktaka. Friðþór sagðist
ekki vita til þess að neinna meiri
háttar breytinga væri að vænta í
starfsemi vamarliðsins, en ljóst
væri að gætt yrði aðhalds í rekstrin-
um áfram.
íslenskir aðalverktakar og Kefla-
víkurverktakar bíða nú eftir nýjum
verkefnum á vamarsvæðinu og
sagðist Jón H. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Keflavíkurverktaka,
vonast til að ákvarðanir lægju fyrir
í byijun október. Hann sagði að í
sumar hefðu 160-180 manns unnið
hjá Keflavíkurverktökum en nú
væm starfsmenn um 120 .sem væri
eðlileg tala. Ef ekki kæmu til ný
verkefni myndi það óneitanlega
kalla á uppsagnir hjá fyrirtækinu.
Ólafur Thors, starfsmannastjóri hjá
Islenskum aðalverktökum, þar sem
nú starfa 430 starfsmenn, sagði að
beðið væri eftir grænu ljósi frá
mannvirkjasjóði NATO með að
hefja byggingu nýrra flugskýla sem
þegar væri búið að samþykkja. Á
meðan yrði að gæta fyllsta aðhalds
í rekstrinum og óhætt væri að segja
að menn tækju einn mánuð fyrir í
einu. Þeir hefðu orðið að grípa til
hinna hefðbundnu árstíðauppsagna
í fyrra fallinu og hugsanlega yrði
að grípa til þess ráðs að loka deild-
um ef um frekari samdrátt yrði að
ræða.
Talsmenn stærstu verkalýðsfé-
laganna á svæðinu, Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
Verslunarmannafélags Suðurnesja,
kváðust ekki vera bjartsýnir og
sögðu að ekkert benti til batnandi
ástands í atvinnumálum á svæðinu.
Hjá Verslunarmannafélaginu fengu
um 40 manns greiddar atvinnuleys-
isbætur síðast en hjá Verkalýðs-
og sjómannafélaginu fengu 302
greiddar bætur. Atvinnuleysisbæt-
ur eru greiddar hálfsmánaðarlega
og er um verulegar upphæðir að
ræða. Töldu stjórnarmenn SSS að
3-4 milljónir væru greiddar á viku
í atvinnuleysisbætur á Suðurnesj-
um. -BB
Konungur sem kom
fram af heilindum
Bók Lars Roars Langslet um Olaf konung V.
NORÐMENN voru harmi slegnir er Ólafur konungur V lést í árs-
byrjun 1991. Á þeim tíma sem liðinn er, hafa komið út fjölmargar
bækur um konunginn sem átti hug og hjarta norsku þjóðarinnar.
Nýjasta bókin um Ólaf kom út í byijun septembermánaðar og
höfundur hennar er vel þekktur í Noregi, Lars Roar Langslet,
yfirmaður menningarblaðs Aftenposten, fyrrverandi menningar,-
málaráðherra og af mörgum talinn hugsuðurinn í Hægriflokknum
norska. Vel á annan tug bóka hefur komið út eftir Langslet.
Bók Langslets um Ólaf konung,
sem heitir Ólafur V Noregskon-
ungur - Konungsveldi á tímum
örra breytinga, er á íjórða hundr-
að síður. Langslet kynntist Ólafi
konungi persónulega er hann var
ráðherra og vann bókina að hluta
til upp úr sex löngum samtölum
sem hann átti við konung á haust-
dögum 1990. Ætlunin var að þau
yrðu fleiri en Ólafur konungur
lést áður en þeim lauk. „Er við
vorum að vinna að bókinni sagði
konungur: „Ég held að þessi bók
verði öðru vísi“, og ég vona að
svo sé,“ segir Langslet. „Að baki
bókarinnar liggur tveggja ára
vinna en hugmyndin er mun eldri
og hefur verið að geijast á meðan
ég hef unnið að öðrum verkefnum.
Vinnan hefur verið um margt sér-
stök, eftir konung liggur ekki
mikið skrifað, svo að vinna mín
hefur fremur verið fólgin í sam-
tölum við hann og aðra sem
þekktu hann vel. Viðtöl voru sjald-
an tekin við konung, hann taldi
hættu á því að hann yrði ofnotað-
ur, ef svo má segja, auk þess sem
hann átti og vildi vera ópólitískur
og óhlutdrægur."
Langslet segist hafa valið að
lýsa Ólafi V sem konungi en ekki
farið sérstaklega ofan í saumana
á einkalífí hans. „í rauninni tel
ég að Ólafur hafí ekki átt sér
tvær hliðar sem sneru annars veg-
ar að þegnum og hins vegar að
fjölskyldunni, heldur verið ein og
sama persónan, sem ekki skýldi
sér á bak við embættið heldur kom
fram af heilindum."
í bókinni segist Langslet reyna
að meta líf konungs og sögulegt
hlutverk hans en frásögnin ráði
þó ferðinni. Saga konungs er rak-
in í sömu röð og atburðimir gerð-
ust allt fram til þess-tíma er Olaf-
ur V tók við konungdómi. Lang-
slet veltir fyrir sér spumingum á
borð við tengsl konungs við kirkj-
una og stjómmál, rakinn er að-
dragandinn að trúlofun og. gift-
ingu Haralds V sem tók við af
föður sínum látnum og Sohju
Haraldsen, en Langslet segir þol-
inmæði Ólafs í málinu hafa bjarg-
Lars Roar Langslet, höfundur
nýrrar bókar um Ólaf V Nor-
egskonung.
að norsku krúnunni. Níu ár liðu
frá því Haraldur V og Sonja
kynntust og þar til þau giftu sig
og vegna giftingarinnar hrikti í
stoðum konungsveldisins.
„Þjóðin bar mikla virðingu fyrir
Ólafí konungi sínum og fram-
ganga hans í erfíðum málum jók
einungis á þá virðingu. Ólafur V
var þægilegur maður, skylduræk-
inn, vel lesinn og minnugur, gat
jafnvel lýst nákvæmlega landslagi
sem hann hafði séð löngu áður.
Hann var nánasti ráðgjafi foður
síns og voru þeir óvenju nánir.“
Langslet segir Ólaf V ætíð hafa
borið sérstakan hlýhug til íslend-
inga. „Í fyrsta sinn sem ég sá
Ólaf konung, var þegar hann af-
hjúpaði styttu af Snorra í Björg-
vin. Hann þekkti Heimskringlu
út og inn, kennari hans sagði eitt
sinn frá því að þegar Ólafur V
var bam, las hann konungasögur
Snorra af svo miklum áhuga að
tárin runnu niður kinnarnar þegar
hann kom að sorglegum atburð-
um.“