Morgunblaðið - 22.09.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
23
Fíkniefnavarnir í Árnessýslu
Vitað um nokkra neyslu-
o g sölustaði fíkniefna
Tíma og fé skortir til aðgerða, segja tveir
lögreglumenn sem sinna fíkniefnamálum
Selfossi.
„Við vitum um ýmsa staði á Suðurlandi þar sem neysla og sala
fer fram en þurfum meiri tíma og fé til að nálgast málið,“ segja
tveir lögreglumenn hjá lögregluembættinu í Árnessýslu sem hafa
frá því í maí í fyrra annast sérstaklega mál er snerta vímuefni og
koma til kasta lögreglunnar. Á þessum tíma hafa þeir kært 32 ein-
staklinga fyrir neyslu og sölu efna.
Lögreglumennirnir eru í góðri
samvinnu við fíkniefnalögregluna í
Reykjavík og halda ásamt henni
skrá yfir þá sem tengjast meintum
fíkniefnamálum og eru búsettir á
Suðurlandi. Skráin nær yfir undan-
farin tíu ár og geymir nöfn 270
einstaklinga. „Neyslan er ekkert
meiri hér en annarstaðar á Iandinu
og sem betur fer fáum við að vera
með puttana í þessu og það á sinn
þátt í því að nöfnin koma á skrá,“
sagði Elís Kjartansson sem starfar
að þessum málum ásamt Jóni Hlöð-
ver Rafnssyni.
Þeir félagar vinna að fíkniefna-
málum ásamt því að sinna almenn-
um lögreglustörfum og fullyrða að
greinilegt sé að slegið hafi á neysl-
una eða að hún sé ekki eins áber-
andi og verið hafi fyrir rúmu ári.
Þeir sögðu að fylgst væri með fólki
sem kæmist á skrá en skráin er lið-
ur í upplýsingabanka fíkniefnalög-
reglunnar fyrir allt landið. Það
væri greinilega mikið um að fólk
sem tekið hefði verið fyrir litla
neyslu snéri alveg við blaðinu og
hætti fiktinu.
Elís og Jón Hlöðver hafa haldið
fræðslufundi um fíkniefnamál og
segja þá gefa góða raun. Vinna
þeirra að þessum málum frá því í
maí hefur meðal annars skilað þeim
árangri að gott samband er milli
lögreglunnar og skemmtistaðanna
í sýslunni hvað eftirlít snertir. „Það
er mikilvægt fyrir okkur að fjölga
þeim augum úti í samfélaginu sem
fylgjast með þessum málum,“ sagði
Elís. „Við miðum starf okkar við
að byggja upp traust í okkar garð
en við þurfum á gagnkvæmu trausti
að halda þegar kemur að upplýs-
ingaöflun og því er algjör nafnleynd
varðandi þá aðila sem gefa upplýs-
ingar,“ sagði Jón Hlöðver. Þeir
lögðu báðir áherslu á mikilvægi
þess að ná til foreldra, sem oft
væru hikandi gagnvart þessum
málum, en mikilvægt væri að for-
eldrar hefðu samband ef þá grun-
aði eitthvað varðandi börn sín eða
félaga þeirra. Þeir hefðu oft leið-
beint foreldrum í þessum efnum
með góðum árangri.
Þeir sögðu þann hóp fara ört
stækkandi sem gæfi þeim upplýs-
ingar um neyslu og mögulega sölu
efna. Rauða kross deildin í Árnes-
sýslu lagði starfi þeirra lið og gaf
símsvara sem tekur við skilaboðum
um fíkniefnamál og önnur afbrot.
Þeir sem vilja koma þeim á fram-
færi þurfa ekki annað en hringja í
síma 98-22444.
Þeir sögðu þessi mál ekki hafa
nein sérstök einkenni hvað Suður-
land snerti sérstaklega, þetta væri
eins um allt land, neyslan færi mjög
leynt og hún væri mjög víða, sama
hvað hver segði. Eitt mætti nefna
sem einkenni fyrir landsbyggðina
en það væri að hópar leituðu í æ
ríkara mæli út á land, í sumarbú-
staði, til þess að vera í friði frá
lögreglunni við neysluna. Oft væri
um vinahópa að ræða en þá færi
Stjórn veitustofnana
60 milljónir í rekstur
og viðhald Perlunnar
í BÓKUN Sigrúnar Magnúsdóttur, Framsóknarflokki, í stjórn veitu-
stofnana, er vakin athygli á að kostnaður vegna reksturs og við-
halds við Perluna í Öskjuhlíð sé orðinn 60 milljónir í ágúst en í
áætlun er gert ráð fyrir 24 milljónum. Gunnar Kristinsson hitaveitu-
stjóri sagði að hér væri um misskilning að ræða, sem hann muni
fyrst gera grein fyrir í stjórn veitustofnana en ekki í fjölmiðlum.
Á fundi stjórnarinnar 9. septem-
ber lagði hitaveitustjóri fram yfírlit
yfir framkvæmdastöðu Hitaveitu
Reykjavíkur fyrir janúar til ágúst
árið 1992 og gerði hann jafnframt
grein fyrir yfirlitinu. í framhaldi
af bókun Sigrúnar lagði Guðrún
Zoéga, Sjálfstæðisflokki, fram bók-
un, þar sem fram kemur að í áætl-
un um rekstur Perlunnar hafi fast-
eignagjöld til borgarinnar verið
vanáætluð um 8,4 milljónir.
Á fundi borgarráðs í vikunni
lagði Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum
vettvangi, fram fyrirspurn vegna
kostnaðarins og óskaði eftir skýr-
ingu á skekkju i áætlun.
einn úr hópnum til Reykjavíkur og
keypti fyrir hina. Þeir kváðust hafa
vísbendingar um að neyslan færi
vaxandi en erfitt væri að segja
ákveðið til um það. Þumalputtaregl-
an væri sú að 5-7% neyslu og sölu
kæmu til kasta lögreglunnar og það
segði sína sögu. Eitt áberandi ein-
kenni sem fylgdi neytendum og
seljendum væri hnífaburður sem
yrði æ meira áberandi.
Þeir Elís og Jón Hlöðver sögðust
vilja geta gert mun meira og gætu
það ef meiri tíma og fé væri varið
til málefnisins. Þeir kváðust vita
um ýmsa staði þar sem neysla og
sala færi fram, en þyrftu tíma til
þess að sinna þeim stöðum þannig
að hægt væri að láta til skarar
skríða gegn þeim. Enn sem komið
er væru fíkniefnasalar og -neytend-
ur ofaná en það væri klárt að ef
fíkniefnavarnir lögreglunnar yrðu
öflugri um allt land mætti nánast
útrýma vímuefnaófögnuðinum.
Sig. Jóns.
Elisabeth Zeuthen-Schneider, Ulrikke Host-Madsen og John Damga-
ard í „Tre Musici“.
„Tre Musici“ á íslandi
TOPPARNIRILANDSLIÐINU
Sigurður Sigurjónsson, Orn Arnason og Þórhallur Sigurðsson
komnir aftur með nýtt efni til að...
þenja hláturtaugar gesta okkar
* ★ Útsetning og hljómsveitarstjóm: Jónas Þórir
* Leikstjóm: Egill Eðvarðsson
DANSKA píanótríóið „Tre Musici" er nú statt á íslandi á vegum Tríós
Reykjavíkur og Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Miðvikudaginn 23. september kl. 20.30 halda þau tónleika í
safnaðarheimilinu „Vinaminni" á Akranesi, föstudaginn 25. september
kl. 20.30 í Keflavíkurkirkju, laugardaginn 26. september kl. 17.00 í
Stykkishólmskirkju og að lokum í Hafnarborg sunnudaginn 27. septem-
ber kl. 20.00.
Tónleikarnir í Hafnarborg verða hefur ferðast víða og er J)etta í ann-
jafnframt fyrstu tónleikarnir í tón- að sinn sem það sækir Island heim.
leikaröð, sem Tríó Reykjavíkur og Á efnisskránni verða Tríó í B-dúr
Hafnarborg standa fyrir. eftir Schubert, „Geister“-tríóið eftir
„Tre Musici“ var stofnað 1988. Beethoven og tvö dönsk aldamóta-
Meðlimir þess eru Elisabeth Zeuthen- verk í hefðbundnum, rómantískum
Schneider fiðluleikari, Ulrikke Host- stíl eftir P.E. Lange-Muller og Fini
Madsen sellóleikari og John Damga- Henriques.
ard píanóleikari. Þau eru öll þekktir (Fréttatilkynning)
einleikarar í heimalandi sínu. Tríóið
Mannlegi þátturinn
í verkefnastjórnun
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands og Félagið verkefna-
stjórnun standa sameiginlega að námskeiði um mannlega þáttinn
í verkefnasljórnun (The Human Resource Aspects of Project
Management) 28.-30. september nk.
Þessir aðilar hafa frá árinu
1984 staðið sameiginlega að
fræðslu á þessu sviði og reglulega
fengið hingað færa erlenda sér-
fræðinga til kennslu. í þetta skipti
koma tveir danskir sálfræðingar,
þær Mette Amtoft og Henning
Green, sem báðar hafa langa
reynslu sem kennarar og ráðgjafar
á þessu sviði.
Námskeiðið, sem fram fer á
ensku, er einkum ætlað reyndum
verkefnastjórum og er tilgangur
námskeiðsins að æfa þá í að tak-
ast á við mannlega þáttinn í verk-
efnastjórnun. Þeir fá þjálfun í að
hvetja og örva samstarfsmenn í
verkefnum, fræðilega innsýn í
kenningar sálfræðinnar um hóp-
stjórn og þjálfun í viðbrögðum við
eigin hegðun við þær aðstæður.
Allar frekari upplýsingar og
skráning þátttakenda fer fram á
skrifstofu Endurmenntunarstofn-
unar Háskólans.
(Fréttatilkynning)
* *
* *
LAUGARDAGSKVÖLD
Stórkostleg skemmtun, þrírétta veislukvöldverður (val á réttum) og dansleikur. Verð kr. 4.800
Opinn dansleikur frá kl. 23:30 til 3:00
HLJÓMSVEIT
BJÖRGVINS HALLDÓRSSONAR
Vetrarverð á gistingu. Pantanir í síma 29900. Grœnt númer 996099
- lofar góðu !
ARGUS/SÍA