Morgunblaðið - 22.09.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992
43
Astvaldur Bjarna
son - Minning
Að morgni 14. september lést
Ástvaldur Bjarnason í Landspítal-
anum eftir langa og stranga bar-
áttu við sjúkdóma, sem frábært
hjúkrunarfólk spítalans hafði létt
honum eins og framast var unnt.
Ástvaldur verður kvaddur hinstu
kveðju i dag, þriðjudag, í Keflavík-
urkirkju.
Hann fæddist að Á á Skarðströnd
6. júní 1930, sonur hjónanna Mar-
grétar Guðmundsdóttur og Bjarna
Jónssonar sem þar bjuggu. Ástvald-
ur var í miðið þriggja bræðra. Elst-
ur var Jón sem býr j Vogum á
Vatnsleysuströnd, þá Ástvaldur og
yngstur Trausti sem býr myndarbúi
að Á.
Eina fóstursystir eiga þeir, Svan-
hildi, hún býr í Kópavogi. Ástvaldur
ólst upp í foreldrahúsum og ekki
fór milli mála að hann átti góðar
minningar um æsku sína og trausta
vini átti hann á þeim slóðum alla tíð.
Upp úr 1950 kom hann hér suð-
ur eins og margir á þeim tíma og
fór að vinna á Keflavíkurflugvelli.
Hann varð starfsmaður hjá íslensk-
um aðalverktökum frá stofnun þess
félags og svo lengi sem kraftar
leyfðu. Lengst af í steypu- og mal-
bikunarstöðinni. Ástvaldur var frá-
bær verkmaður og eftirsóttur til
starfa, utan venjulegs vinnutíma
vann hann mikið við fiskverkun.
Um skeið átti hann trillu með öðrum
og reri á henni seinni hluta vetrar.
Þeir verkuðu aflann sjálfir, að
mestu utan venjulegs vinnutíma.
1954 hóf Ástvaldur búskap með
eftirlifandi konu sinni, Klöru Ólafs-
dóttur frá Stóra-Knarranesi á
Vatnsleysuströnd. Nokkru seinna
giftu þau sig og hófu búskap á
Hringbraut 50 í Keflavík og bjuggu
þar síðan.
Þau eignuðust fjögur börn: Elstur
er Bjarni, þá Margrét, sem fórst í
bílslysi 1979, Ólafur og Hulda.
Klara átti son fyrir, Matthías að
nafni. Honum reyndist Ástvaldur
faðir ekki síður en eigin börnum.
Síðustu kröftunum má segja að
hann hafí eytt í að endurbyggja
I Kveðjuorð
Jóhann M.
Fæddur 2. júlí 1920
Dáinn 21. ágúst 1992
Meðan ég var stödd í Þýskalandi
lést góður vinur minn, Jóhann
Magnús Eiríksson hestamaður, af
slysförum og frétti ég ekki um and-
lát hans fyrr en síðastliðinn laugar-
dag. Mig langar að minnast hans
héy eins og ég þekkti hann.
Eg kynntist Jóhanni, þegar ég
j var í sveit á Búðarhóli í Austur-
Landeyjum. Hann var þá með hross
þar á sumrin og kom til að ríða út.
Um veturinn fór ég að venja komur
mínar upp í hesthús til hans í Víði-.
dal. Hann hafði gaman af áhuga
| mínum fyrir hestum og gerði mig
1 að aðstoðarmanni sínum. Seinna
sama vetur lét hann mig hafa fola
til umráða sem ég eignaði mér og
tamdi undir leiðsögn Jóhanns, sá
hét Bleikur og var mikill vinur minn
meðal hrossa. Það er svo erfítt að
koma í orð þakklæti mínu fyrir alla
þolinmæðina, þá vinnu og kærleika
sem Jóhann lagði í uppeldi mitt sem
tilvonandi hestamanneskju.
Móðir mín sem var einstæð með
okkur sex systkinin, hafði ekki ráð
á sérstökum reiðfatnaði handa mér.
Eiríksson
Jóhanni fannst ekki gott að ég sliti
út skólafötunum uppi í hesthúsi svo
hann tók mig með sér í bæinn og
keypti handa mér mínar fyrstu reið-
buxur. Þegar ég fermdist, mætti
Jóhann í fermingarveisluna með
reiðstígvél undir hendinni handa
mér í fermingargjöf. Svona mætti
lengi telja.
Fáir önnuðust hrossin sín af slíkri
natni og alúð sem Jóhann Eiríks-
son. Hann var samur við sig þegar
ég, eftir langt hlé frá hesta-
mennsku, keypti mér fola og fór
að dusta rykið af reiðmennskunni.
Alltaf var hann tilbúinn að leiðbeina
og aðstoða eftir bestu getu á sinn
hrjúfa hátt. Hann tók ekki í mál
annað en að járna fyrir mig og
veit ég að margir taka í sama streng
þegar ég segi að þar hafí ég fengið
bestu járninguna sem völ var á. Í
mínum huga mun Jóhann Eiríksson
alltaf standa upp úr og þakka ég
honum fyrir allt og allt. Hann var
höfðingi.
Þór og fjölskyldu ásamt öðrum
vandamönnum vott ég mína dýpstu
samúð.
Sigríður M. Björgvinsdóttir.
A P T 0 N
Einfalt • auðvelt • handhægt
■ Smíðakerfi
sniSiö fyrir hvern og einn
1 ©DEX10N SINDRI
____ -sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22
bæinn á Stóra-Knarranesi, þar átti
hann öðrum fleiri og betri handtök.
Eftir þetta framtak er bærinn orð-
inn einskonar félagsheimili niðja og
venslafólks Knarraneshjónanna,
þar er oft fjölmenni og alstaðar
blasa við okkur verk Ástvaldar og
minna okkur á hann um ókomin ár.
Á góðum stundum var Ástvaldur
glettinn og spaugsamur þótt aldrei
væri hann margmáll, enda lítt hrif-
inn af málæði, það samrýmdist ekki
hans prúðmennsku. Því skulu þessi
fátæklegu orð ekki höfð fleiri.
Nú þegar leiðir skilja viljum við
færa Ástvaldi alúðarþakkir fyrir
samfylgdina. Tryggð hans og hjálp-
semi mun seint gleymast okkur.
Minning um góðan dreng mun lifa.
Klöru og allri fjölskyldu þeirra fær-
um við samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að styrkja þau og styðja.
Fyrir hönd venslafólks,
Ólafur Björnsson.
HRAÐLESTUR - NÁMSTÆKNI
Ef þú vilt margfalda lestrarhraðann til að njóta þess að lesa
meira af góðum þókum eða til að taka næstu próf með glæsi-
þrag, ættir þú að skrá þig á hraðlestrarnámskeið.
Lestrarhraði nemenda meira en þrefaldast að jafnaði, hvort
heldur er í erfiðu eða léttu lesefni.
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 1. október nk.
Skráning í sfma 641091.________________________
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
S 1978-1992 \M
Anna Möller,
framkvstj. heildversl.
Fantasia Hitt í Garðabæ.
Vaskhugi
„Nú veit ég alltaf upp á hár stöðu inn-
skatts og útskatts. Hvilikur munur!"
Vaskhugi er nú meðal fullkomnustu
bókhaldsforrita hér á landi.
Hvað verð og einfaldleika snertir
á það sennilega engan jafningja.
fgp Vaskhugi hf. 'S’ 682 680
Kjarnahvítlaukur - 100% hreinn
ir hvítlaukurinn þinn
hreinn hvítlaukur?
Homdu beint að kjarnanum!
100% hvítlaukur
60% hvitlauksseyöi
40% hvitlaukur
j!Pim—rm(_
ii!i6o%,r,i
aukaefni
Hreinleiki
Kjarnahvítlaukur er
100% hreinn hvítlaukur.
Hann er ekki þynntur
með neinumfylliefnum,
S.s.olíum, geri, mjólkur- Kjarnahvit|aukur Gamla aðferðin Garlic,
sykri.spiraeða salti. - hollusta i hverju hylki! Langleginn hvltlaukur og mysa Citrus
Super Formúla 100 & Oil
28% hvitlaukur
72% i
aukaefni
Gartic, Citrus
& Oil (huöaö)
S/yrkur
Kjamahvitlaukur
inniheldur500mg.af
hreinu hvítlauksdufti
unnu úr rúmlega
1,250 mg.afhvítlauk.
500 mg
300 mg
200 mg
167 mg
Kjamahvitlaukur
Gamla aöferöin
Garlic,
• hollusta í hverju hylkil Langleginn hvitlaukur og mysa Citrus
Super Formula 100 & Oil
Garlic, Citrus
& Oil (húöaö)
Kjarnahvítlaukur er.framleiddur af stærsta hvítlauksframleiðanda
heims, Pure Gar í Bandaríkjunum, með upplýsingum á islensku.
Kjarnahvítlaukur gefur framúrskarandi virkni og góðan hvítlauksilm ÁN ANDREMMU.