Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B 233. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Flokksþing kinverskra kommúnista Vilja sósíalískt markaðskerfi Ollum lýðræðishugmyndum vísað á bug Peking. The Daily Telegraph, Reuter. KÍNVERSKIR kommúnistar hófu 14. flokksþing sitt í gær og er talið að um tímamót verði að ræða því að gert er ráð fyrir að markaðshyggjustefna Dengs Xiao Pings, helsta valdamanns lands- ins, í efnahagsmálum sigri endanlega innan flokksins. Talsmenn flokksins segja að „töfravopn" markaðsumbóta verði notað fram- vegis. Lögð er áhersla á að ekki muni verða hróflað við valdaeinok- un flokksins, marxisminn verður í orði kveðnu leiðarljósið eftir sem áður og lýðræði er alls ekki á dagskrá. Búist var við að Deng, sem er 88 ára að aldri, yrði viðstaddur þingið en svo fór ekki; dóttir leiðtog- ans fullyrti þó að hann væri við ágæta heilsu. Jiang Zemin, aðalritari flokksins, flutti aðalræðuna í gær og sagði efnahagsumbæturnar jafnast á við „nýja byltingu". Aðalritarinn hældi Deng á hvert reipi, sagði að hann Síðasta flokksþing var árið 1987 en hrun Sovétríkjanna og kommún- ismans í A-Evrópu var ekkert til umræðu í gær. Jiang drap stuttlega á stúdentamótmælin á Torgi hins himneska friðar vorið 1989 sem kæfð voru í blóði, sagði að „óeirðir gagnbyltingarsinna" hefðu verið brotnar á bak aftur. Itcuter Hamar og sigð markaðsstefnunnar Jiang Zemin, aðalritari kínverska kommúnistaflokksins, flytur ræðu sína í gær. Nær 2.000 fulltrúar eru á þing- inu sem haldið er í Alþýðuhöllinni í Peking, í nágrenni við Torg hins himneska friðar. Mikið manntjón í Kaíró af völdum landskjálfta Kaíró. Reuter. MESTI landskjálfti í sögu Egyptalands reið yfir í gær. Forsætis- ráðherra landsins tilkynnti í gærkvöld að vitað væri að 340 hefðu látið lífið í höfuðborginni Kaíró og fjögur þúsund slasast. Skjálft- inn mældist 5,5 - 6 á Richter. Á meðal látinna eru börn sem tróð- ust undir er örvæntingarfullt fólk flýði út úr skólabyggingum er riðuðu til falls. Rykský myndaðist yfir borgarsvæðinu. væri helsti höfundur umbótastefn- unnar og sú niðurstaða hans að markaðshyggja væri ekki andstæð sósíalisma væri „snilldarleg". Hann sagði að ekki væri ætlunin að gera minni háttar breytingar á efnahags- kerfínu heldur umbylta því. Mið- stýrður áætlunarbúskapur hefði að vísu borið árangur á ýmsum sviðum en hefði með tímanum torveldað umbætur. „Þróun sósíalísks mark- aðsbúskapar er eina leiðin fyrir Kínveija til að koma á nútímalegu samfélagi," sagði Jiang. Hann var- aði menn einnig við, sagði að stétta- baráttan yrði áfram háð og myndi jafnvel harðna. Steftit væri að sós- íalísku lýðræði og „alls ekki vest- rænu þingræðis- og fjölflokka- kerfí". Bretland Sprengju- tilræði í London London. Reuter. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) særði fimm manns í sprengjutil- ræði í gær í London, þar af einn alvarlega. Sprengjunni var kom- ið fyrir á salemi veitingastaðar- ins Sussex í Covent Garden- hverfinu sem er meðal hinna dýmstu í borginni og sprakk á mesta annatíma í hádeginu. Þetta er áttunda tilræði hryðju- verkasamtakanna á sex dögum. Nýlega var MI5, þeirri deild leyniþjónustunnar sem fæst við verkefni innanlands, falin yfírum- sjón með baráttunni gegn IRA sem berst fyrir sameiningu Norður- írlands við írland. í ágúst tókst lögreglu og MI5 að klófesta birgðir efna sem nægt hefðu í 15 tonn af sprengjum. Talið er að með árásun- um undanfama daga vilji samtökin sýna MI5 fram á að þau geti auð- veldlega látið til skarar skríða í sjálfu hjarta ríkisins og séu ekki á undanhaldi. Skjálftinn reið yfír kl. 15.10 að staðartíma í gær. Upptök hans voru að sögn bandarískra jarð- skjálftafræðinga 30 km suðvestur af Kaíró. Stóð hann í eina mínútu. Tveimur mínútum síðar varð ann- ar j arðskj álfti á þessum slóðum, sem mældist tæplega 5 á Richter, og voru upptök hans undir Rauða- hafinu norðanverðu. Erfítt var að henda reiður á því í gær hve mikið manntjón hafði orðið í skjálftanum. Forsætisráð- herrann, Átef Sedki, gaf til kynna að óljóst væri hve margir hefðu týnt lífi. „Þetta eru þær tölur sem við höfum nú...Guð einn veit,“ sagði hann. Um tólf milljónir manna búa í Kaíró, sem er eitt þéttbýlasta svæði jarðar, og húsa- kostur er víða ótraustur. Yfírvöld sögðust í gærkvöld hafa fregnir af því að 163 hús hefðu skemmst. Þar á meðal var háhýsi í Helio- polis, fátækrahverfí í austurhluta borgarinnar, sem hrundi til grunna. Að sögn Reuters-frétta- stofunnar var ekki að sjá að stærstu byggingamar í miðborg- inni eins og útvarpshúsið og Rams- is Hilton-hótelið hefðu skemmst. Angistarfullir ættingjar slas- aðra og látinna réðust í gær inn í sjúkrahús í Shubra el-Khaimah- hverfí. Læknar þar sögðu að 34 látnir hefðu komið á spítalann. Óeirðalögreglu tókst að stilla til friðar. Hosni Mubarak forseti Egypta- lands ákvað í gær að aflýsa því sem eftir var af Kínaheimsókn sinni og hraða sér heim vegna skjálftans. -----» ■■ Venezúela Reyntað myrða for- setann Caracas. Reuter. ÓÞEKKTIR menn gerðu skot- árás á bifreið Carlos Andres Perez, forseta Venezúela, í gær og felldu þrjá menn en forsetinn slapp ósærður. Lífverðir hans svöruðu skothríðinni og munu alls sjö manns hafa særst, þar af fjögur böm. Atburðurinn varð í borginni Paraguaipoa, rétt við landamærin að Kólumbíu, og var forsetinn á heimleið til Caracas eftir að hafa tekið þátt í vígslu spítala í grennd- inni. Ekki var ljóst í gær hvort árásarmennimir hefðu náðst. Samtök vinstrisinna er mótmælt hafa spillingu og kenna sig við frelsishetjuna Símon Bolivar sögð- ust hafa staðið fyrir tilræðinu. Shevardnadze hlaut yfir- burðastuðning í leiðtogakjöri Tbilisi. Reuter, The Daily Telegmph. EDÚARD Shevardnadze, fyrrverandi utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, var kjörinn leiðtogi Georgíu með miklum meirihluta atkvæða á sunnudag, samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar voru í gær. Shevardnadze var eini frambjóðandinn í kosningunum. Talsmaður kjörstjórnarinnar sagði að bráðabirgðatölurnar sýndu að 75% þeirra sem vora á kjörskrá hefðu neytt atkvæðis- réttar síns á þeim svæðum þar sem atkvæði hefðu verið talin. Kjörstjórnin hafði ekki fengið upplýsingar frá tíu kjördæmum og ekki var kosið í níu af 84 kjör- dæmum. í þeim kjördæmum, þar sem úrslit lágu fyrir, fékk She- vardnadze 93-94% atkvæða. Hann þurfti aðeins 30% atkvæða til að ná kjöri. Stuðningsmenn Zviads Gams- akhurdia, fyrrverandi forseta landsins, sem var steypt af stóli í uppreisn í janúar, höfðu hvatt kjósendur til að hunsa kosning- arnar. Shevardnadze hefur verið leiðtogi Ríkisráðsins, sem fer með völdin í landinu, frá því í mars og hann sagði fyrir kosningamar að ef þær færa ekki fram blasti ekkert annað en „dauði eða ein- ræði“ við landinu. Margir kjósend- ur sögðust þeirrar skoðunar að Shevardnadze væri eini maðurinn sem gæti komið í veg fyrir al- gjört stjómleysi í landinu. Kosningamar fóru ekki fram í Shevardnadze fjórum kjör- dæmum í hér- aðinu Abkh- azíu, þar sem hundrað manna hafa beðið bana í hörðum átök- um milli stjórnarher- manna og upp- reisnarmanna sem njóta stuðn- ings vopnaðra hópa frá suð- urhluta Rússlands. Ekki var held- ur kosið í þremur kjördæmum í vesturhluta Georgíu, þar sem Gamsakhurdia nýtur mikils stuðnings, og í tveimur kjördæm- um í héraðinu Suður-Ossetíu, þar sem sjálfstæðisöflum hefur vaxið ásmegin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.